Tíminn - 13.03.1979, Blaðsíða 5

Tíminn - 13.03.1979, Blaðsíða 5
Þri&judagur 13. mars 1979 5 Krá ráðstefnu um vestræna samvinnu. A myndinni eru f.v. Magnús Þórðarson, Einar Agústsson, Guömundur H. Garöarsson, Benedikt Gröndal, Ólafur G. Einarsson, en I ræöustólnum Sighvatur Björgvinsson. Friður í þrjátíu ár — árangur vest- rænnar samvinnu Ráðstefna um vestræna samvinnu um s.l. helgi — Hlutleysi tslands frá 1918 miðaðist við það að landiö væri á áhrifasvæði Breta og breski flotinn gæti framfylgt hlut- leysisyfirlýsingunni. Eftir siðari heimsstyrjöldina var ljóst aö þessar aöstæður höfðu breytst i grundvallaratriöum. Þetta kom m.a. fram i ýtar- legu erindi dr. Þórs Whiteheads sagnfræðings um aðdragandann að þátttöku tslands i Atlants- hafsbandalaginu, en hann flutti erindi sitt á ráðstefnu Samtaka áhugamanna um vestræna samvinnu sem haldin var á Hótel Loftleiðum s.l. laugardag. Formaður samtakanna, Guð- mundur H. Garðarsson, setti ráöstefnuna með stuttu ávarpi. Að þvi loknu ávarpaði utan- rikisráðherra ráðstefnuna og fjallaði m.a. um árangurinn af starfi Atlantshafsbandalagsins i 30 ár og þær breytingar sem orðiöhafa á varnar-og öryggis- viöbúnaði á þeim tima. A fyrra fundi ráðstefnunnar fjölluðu alþingismennirnir Einar Ágústsson, ólafur G. Einarsson og Sighv a tur Björg- vinsson um Atlantshafsbanda- lagið, vestræna samvinnu og Is- land undanfarin 30 ár, um stöðu Islands i samstarfinu og gildi þess fyrir ísland. 1 hádegisverði flutti Martini, yfirmaður varnarliðsins á Keflavikurflugvelli, ræðu eftir Harry D. Train, yfirflotafor- ingja. 1 henni kom m.a. fram að á siðasta ári jukust hernaðarleg umsvif Sovétmanna á svæðinu umhverfis ísland um hvorki meira né minna en helming. A si'ðara fundi ráðstefnunnar, eftir hádegið, flutti Tómas A. Tómasson, sendiherra, mjög fróðlegt erindi um Atlantshafs- bandalagið og landhelgismálið, en Tómas var sendiherra Is- lands i aðalstöðvum bandalags- ins á þeim árum sem land- helgisdeilan stóð sem hæst. Það kom fram i erindi Tómasar að allan timann hafði forysta At- lantshafsbandalagsins mikil af- skipti af málinu fyrir hönd ls- lendinga, og kvað hann það ekki fara á milli mála, að aðild Is- lands að bandalaginu hefði verið þjóðinni til mjög mikillar styrktar I átökunum viö Breta. Dr. Þór Whitehead sagnfræö- ingur flutti siðan erindi um að- dragandann að þátttöku íslands i Atlantshafsbandalaginu. 1 erindi sinufjallaði Þór rækilega um sögu utanrikisstefnu ís- lands, svo sem þegar hefur verið minnst á. Hann gerði grein fyrir umfjöllun utanrikis- mála i þjóðstjórninni við upphaf siðari heimsstyrjaldar, og þeim umræðum san fram fóru um öryggismál Islands að styrjöld- inni lokinni. Þaö kom m.a. fram i erindi hans að islenskir stjórn- málamenn höfðu gert sér grein fyrir gerbreyttum aðstæðum þegar á árunum fyrir upphaf siðariheimsstyrjaldar, en að al- menningi heföi ekki verið gert ljóst hve mikið hefði breytst þegar striðinu lauk. Stjórn- málamenn hefðu haldið áfram að vitna til hlutleysisyfirlýs- ingarinnar eftir 1945 og hefðu þau „mistök” Bandarikja- manna, að krefjast herstöðvar til 99 ára, þátt sinn þátt i þessu. Að loknum erindunum voru pallborðsumræður. 1 þeim tóku þátt, auk þeirra Tómasar Á. Tómassonar og dr. Þórs White- head, ritstjórarnir Markús örn Antonsson, Höröur Einarsson ogJónSigurðsson, ogþeir Eiður Guðnason alþingismaður og Stefán Friöbjarnarson blaða- maður. Fjölmennivar á ráðstefnunni, og mikil og almenn þátttaka i umræðum og þótti hún takast viö besta. Stúdenta- og háskóla- ráðskosningar ÍZT Fimmtudaginn 15. mars 1979 fara fram kosningar meðai nemenda við Há- skóla Islands kosnir eru til Stúdentaráðs 25 fulltrðar og auk þess f jórir fulltrúar stúdenta i Háskólaráði sem jafnframt eiga sæti í Stú- dentaráði. 1 framboði eru tveir listar, A- listi Vöku, félags lýöræðissinnaö- ra stúdenta, og B-listi, listi vinstri manna. Kosið verður I hátiðasal Há- skóla Islands frá kl. 9.00-18.00 og auk þess kýs hluti liffræðinema að Grensásvegi 12. Þriöjudaginn 13. mars kl. 20.00 fer fram framboösfundur i há- tiöasal Háskóla Islands. Verður útvarpaö frá fundinum á sér- bylgju. 1412kHz, 212 metrum á miðbylgju. Stúdentaráð er nú skipaö svo: Vinstri menn, 16, fulltrúar i Stú- déntaráði að viðbættum tveim i Háskólaráöi, samtals 18. — Vaka, 10 fulltrúar f Stúdentaráöi að við- bættum tveim i Háskólaráði, samtals 12. Hefur þetta hlutfall veriö á milli hinna tveggja fylk- inga allt frá 1977. Eigum fyrirliggjandi frá DUALMATIC í Bandaríkjunum: Blæjuhús hvit og svört á Willys C J 5 árg. 1955 til 1978 og C J 7 árg. 1976 til 1978. útvegum blæjuhús á aðrar gerðir jeppa- bifreiða. — Einnig fyrirliggjandi og væntanlegt næstu daga: Driflokur, stýrisdemparar, hjólboga- hlifar, varahjóls- og bensinbrúsagrindur, bensinbrúsar, hettur yfir bensinbrúsa og varadekk o.fl. o.fl. Einkaumboð á íslandi VÉLVANGUR HF Hamraborg 7 Kópavogi. Simar 42233 og 42257. Hestamenn Tek hesta i tamningar og þjálfun. Upplýs- ingar: simi gegnum Borgarnes. Tamningar- og þjálfunarstöðin, Staðar- hús, (15 km. frá Borgarnesi). Tamningamaður: Benedikt Þorbjörnsson. Starf við innheimtu og sendiferðir Starf við innheimtu og sendiferðir hjá Hafnarskrifstofunni er laust til umsóknar. Umsækjandi sé minnst 16 ára og æskilegt er að hann hafi vélhjól til afnota. Um- sóknir sendist skrifstofu minni fyrir laugardaginn 24. mars n.k. Hafnarstjórinn i Reykjavik. Akraneskaupstaður Bifvélavirkjar - Vélvirkjar óskum eftir að ráða duglegan og vanan bifvélavirkja eða vélvirkja til starfa i á- haldahúsi Akraneskaupstaðar, til að annast viðgerðir og viðhald á vinnuvélum og tækjum. Skriflegum umsóknum er greini frá menntun og fyrri störfum skal skilað á skrifstofu bæjartæknifræðings Kirkjubraut 2, Akranesi. Bæjartæknifræðingur Matreiðsla Hjón óska eftir vinnu við mötuneyti. Vön matreiðslu. Margt kemur til greina. Til- boð sendist á blaðið merkt „Vön”.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.