Tíminn - 16.05.1979, Page 1
Miðvikudagur 16. maí 1979
109. tölublað—63. árgangur
Hvað er orðið af gömlu,
góðu móðurástinni?
Sjá bls. 10
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Steingrímur Hermannsson:
Taki stjórnin ekki á málum með
festu
— hefur hún ekki ástæðu til að sitja lengur
HEI —,,Við þrír ráðherrar, sem að lokum vor-
um tilnefndir i þessa ráðherranefnd, Magnús
H Magnússon og Svavar Gestsson, ásamt
mér, áttum ágætan fund i morgun og fórum yf-
ir málin eins og þau standa”, sagði Steingrim-
ur Hermannsson, er hann var spurður um stöð-
una i kjaramálunum og hvarð stjórnin hyggist
gera.
„Okkur bar saman um, aö
raunverulega væri lausn á yfir-
standandi verkföllum próf-
steinninn á það, hvort rikis-
stjórnin hefur mátt til að taka á
þessum málum. Viö urðum
sammála um að leggja fyrir
ríkisstjórnina tillögu um aö rætt
yrði við deiluaðila, þeim boðið
upp á sáttanefnd og jafnframt
tjáð að rlkisstjórnin væri tilbúin
að tryggja þeim 3%
grunnkaupshækkun, en að hún
færi jafnframt fram á það að
verkföllum verði frestaö meðan
sáttanefndin starfaði. Einnig
yrði þeim tjáð að rlkisstjórninni
þætti þaö mjög alvarlegt, ef
grunnkaupshækkanir færu yfir
3% til áramóta.
Forsætisráðherra ræddi slðan
við farmenn I dag, og ég viö að-
ila að deilu mjólkurfræðinga.
Þessir aðilar hafa fallist á að
ganga að tilboði um sáttanefnd.
Mér heyrðist lika á mjólkur-
fræðingum að þeir gætu jafnvel
fallist á að fresta frekari grunn-
kaupshækkunum fram yfir ára-
mót, en vilja fá frekari vilyrði
fyrir þeim þá.”
— Að verkföllunum verði þá
frestað.
— Það geta þeir ekki ákveðið
fyrr en á félagsfundum. Sátta-
nefndirnar verða þvl skipaðar
strax I fyrramálið. A fundinum
ræddu menn málin almennt.
Allir voru inni á þvl að bjóða 3%
grunnkaupshækkun en viö
framsóknarmenn leggjum á það
rlka áherslu að slíkri lagasetn-
ingu veröi þá aö fylgja, að frek-
ari grunnkaupshækkanir veröi
frystar til áramóta.
— Næst samstaða um þaö?
— Fulltrúi Alþýðuflokksins,
Magnús H. Magnússon, er inni á
þeirri Hnu, en Alþýðubandalag-
ið ekki.
En það var sem sagt fallist á,
að láta reyna á hvað út úr þess-
um samningaviðræðum kæmi,
slöan kæmi i beinu framhaldi
hvað menn treysta sér út i varð-
andi frystingu grunnkaups. Það
eru allir á þeirri skoöun að það
megi ekki hækka umfram 3.%,
en spurningin er um þaö, hvort
menn hafa kjark til að ákveða
þaö. En mér finnst það alveg
ljóst, að ef ríkisstjórnin tekur
ekki á þessum málum með
festu, ef nauðsyn krefur, þá hef-
ur hún ekki ástæðu til að sitja
lengur.
„Líst ekki vænlega á
þessar tillögur”
____\
Forsvarsmenn FFSt koma af fundi forsætisráöherra I gær með Ingólf Ingólfsson f broddi fylkingar.
Tlmamynd Róbert
„3% kauphækkun veröur ekki tekin út
nema með aukinni verðbólgu”
— segir Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri VSÍ
ESE —„Ekki iist mér vænlega á
þessar tillögur rikisstjórnarinn-
„Erum að
drukkna í
táraflóði”
ESE — „Við vorum að
drukkna i táraflóöi, þannig aö
við ákváðum að veita þessar
undanþágur”, sagði Páll Her-
mannsson stýrimaöur og
blaðafulltrúi FFSÍ I samtali
við Tímann en I gær var
ákveðiö aö heimila skipi að
lesta fóðurvörur i Hollandi og
Þýskalandi og sagði Páll að
leyfiö hefði veriö veitt sökum
Itrekaðs gráts frá Stéttasam-
bandi bænda.
Að sögn Páls verður það trú-
lega Eldvikin sem fer I fóöur-
flutningana og að þeim lokn-
um hefur skipinu verið veitt
undanþága fyrir saltfisk-
flutninga til Spánar, ítaliu og
Grikklands.endasagðiPáll að
grátur S.f.F. hefði ekki verið
minni en Stéttasambandsins.
1 fyrradag veitti verkfalls-
nefnd leyfi til áburöar-
flutninga til hafissvæðanna
fyrir norðan- og norðaustan
land og var það leyfi veitt
samkvæmt beiðni hafisnefnd-
ar.
ar, en við munum aö sjálfsögðu
ræða þær eins og hvað eina sem
upp kannaökoma og taka afstöðu
til þeirra”, sagði Ingólfur Ingólfs-
son, forseti FFSt I samtali viö
Tfmann i gær, en Ingólfur var þá
nýkominn af fundi með forsætis-
ráðherra, þar sem tillögur rfkis-
— sagði Ingólfur
Ingólfsson forseti
FFSÍ um tillögur
rikisstjórnarinnar
stjórnarinnar um lausn yfir-
standandi kjaradeilu voru lagöar
fram.
Ingólfur sagði, að það væri
e.t.v. merkilegasta fréttin aö
rikisstjórnin hefði orðið sammála
um þessar tillögur, en I þeim felst
að skipuð verður sáttanefnd I
deilunni, 3% grunnkaupshækkun
komi til framkvæmda og að verk-
fallinu veröi annað hvort frestað
um óákveöinn tima, eöa að þvi
verði algjörlega aflýst.
Að sögn Ingólfs mun samninga-
nefnd FFSI væntanlega taka til-
lögur rlkisstjórnarinnar til athug-
unar á fundi sinum, sem veröur i
dag en að ööru leyti vildi Ingólfur
ekki tjá sig um málið I gaa-.
ESE — ,,Við erum alveg sam-
mála rikisstjórninni I þvi aö
grunnkaup megi ekki hækka um
meira en 3% á árinu, en viö höf-
um jafnframt lagt á það áherslu,
að þessi 3% verða ekki tekin út
nema með aukinni verðbólgu”,
sagði Þorsteinn Pálsson fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambandsins I viötali við Timann
I gær.
SagðiÞorsteinn að rikisstjórnin
hefði þá um daginn sett fram
ákveönar óskir við þá um lausn
yfirstandandi kjaradeilna og
væruþessartillögur nú iathugun.
Annað væri ekki hægt að segja á
þessu stigi málsins, sagði Þor-
steinn Pálsson að lokum.
Klýfur Geröahreppur sig út úr Samtökum
sveitarfélaga á Suðurnesjum? hagkvæmni aðildarinnar
AM —Nýlega munusamtök þau
sem standa að þeim lista, sem
myndar meirihluta I hrepps-
nefnd Gerðahrepps, hafa skipað
nefnd til þess að endurskoða
aðild hreppsins að hinum nýju
Samtökum sveitarfélaga á
Suðurnesjum.
Sem kunnugt er er hér um að
ræða samband sjö sveitar-
félaga, sem sögðu sig úr hinu
gamla Sambandi sveitarfélaga I
Reykjaneskjördæmi sem öll
byggðarlög kjördæmisins nema
Hafnarfjörður áttu aðild aö.
Hafði enda lengi veriö starfandi
sérstök samstarfsnefnd meðal
hinna sjö sveitarfélaga sem
hafði unnið að ýmsum sam-
eiginlegum verkefnum, svo sem
sorpeyðingarstöð og mörgu
öðru.
Suöurnesjatíðindi segja frá
þessu máli hinn 11. mai sl. og
segja meirihluta hrepps-
nefndarinnar vilja kanna það
rækilega hvort hagkvæmt sé
fyrir hreppinn að taka þátt I
mörgum hinna kostnaðarsam-
ari samstarfsverkefna þar á
meðal sorpeyðingarstöðinni,
þótt rétt sé taliö að eiga áfram
aðild aö stofnunum sem sjúkra-
húsi, elliheimili, brunavörnum,
fjölbrautaskólanum o.fl.Mun i
sem stystu máli vera um aö
ræöa ótta við að sambandið
verði að bákni sem geti oröiö
þungt I skauti fyrir lltið sveitar-
félag að eiga aðild aö.
Samþykkt hrepps-
nefndar
Timinn ræddi I gær viö Þórð
Gislason sveitarstjóra I Gerðum
og sagði hann að á fundi i
hreppsnefnd nú nýlega heföi
verið gerð sérstök yfirlýsing
vegna fréttar Suðurnesjatiöinda
um þetta mál. Er yfirlýsingin á
þessa leið:
„Vegna fréttar i Suöurnesja-
tiöindum hinn 11. mai sl. þar
sem lesa má úr fréttinni að
hreppsnefnd Gerðahrepps hafi
hug á að segja sig úr SSS, vill
hreppsnefndin taka fram aö
fréttin er henni með öllu óviö-
komandi og málið hvorki komið
til álita né umræðu i hrepps-
nefnd.
Hafi samtök eða félög i
Gerðahreppi hug á aö taka fyrir
einstök mál eða málaflokka,
sem varða hreppsnefnd eöa
störf hennar, fagnar hrepps-
nefndin því, ef slikur áhugi er
fyrir hendi en harmar jafn-
framt, ef samþykktir sllkra
aðila eru túlkaðar sem álit
hreppsnefndar”.
Þóröur sagöi aö samtökin sem
standa áð meirihluta hrepps-
nefndarinnar væru samtök
vinstri manna utan allra flokks-
lista og um könnun þeirra vildi
hann ekki segja annaö en að
ágætt væri að fá álitsgerö vegna
þessa máls, unna á slíkri athug-
un, hver sem niðurstaöan yröi.