Tíminn - 27.05.1979, Side 2
2
Sunnudagur 27. mai 1979
Rektor Hafnarháskóla á íslandi:
Reið út í fyrsta
sinn og tilkynnti
bókagjöf
Kominn á bak islenskum hesti, Grána.
Rektor Kaupmannahafnarhá-
skóla próf. Erik Skinhöj, dvaldi
fyrir skömmu nokkra daga hér á
landi I tilefni 500 ára afmælis
Kaupmannahafnarháskóla. Meö
rektornum var próf. Svend Elle-
höj, en hann er ritstjóri hins
mikla verks um sögu háskólans,
sem kemur út i 14 bindum. A
Island þar talsveröan hlut, þvi
Hafnarháskóli var háskóli Islend-
inga á fimmta hundraö ár.
1 tilefni af þessu afmæli ákvaö
Háskóli Islands aö bjóöa hingaö
fimm fyrirlesurum frá jafn
mörgum deildum Hafnarháskóla
til viku dvalar og fyrirlestrar-
halds á næsta háskóláári. Skýröi
Guölaugur Þorvaldsson, 'rektor
frá þessu á samkomu, sem haldin
var i Hátiöasal Háskóla Islands.
Erik Skinhöj, rektor skýröi einnig
frá þvi, aö Hafnarháskóli myndi
gefa Háskóla tslands eintak af
sögu Kaupmannahafnarháskóla,
þegar hún kæmi út.
Þeim Erik Skinhöj og Svend
Ellehöj var boöiö i ferö til Þing-
valla, Gullfoss og Geysis og voru
Heima hjá Magnúsi Má Lárussyni. Frá vinstri: Guömundur Magnús-
son, Erik Skinhöj, Magnús Már Lárusson og Guölaugur Þorvaldsson.
meöfylgjandi myndir teknar i
þeirri ferö. Eirikur Eirlksson,
þjóögarösvöröur á Þingvöllum,
tók á móti gestunum og sagöi
þeim sögu staöarins. Þá var
haldiö til Geysis og var Strokkur
óspar á myndarleg gos. Gullfoss
skartaöi sinu fegursta meö regn-
boga i sólskininu og haföi Erik
Skinhöj orö á þvi aö þarna ættu
norrænir menn fegurstan foss i
heimi.
A bakaleiöinni var komiö viö á
Selfossi og slegiö upp veislu, þar
sem próf. Þórir Kr. Þóröarson
var veislustjóri. Meöal gesta þar
var Magnús Már Lárusson, fyrr-
verandi rektor H.I. og kona hans
María Guömundsdóttir. Voru
margar ræöur fluttar i anda hins
norræna bræöraþels.
Viö komu sina til Islands haföi
rektor Kaupmannahafnarháskóla
aöallega eina ósk fram að færa.
Aö koma á bak islenskum hesti.
Var skjótt brugðið viö og reiö
rektorinn upp i Baldurshaga. Var
það i fyrsta skipti, sem hann kom
á hestbak, en að ööru leyti er
hann mikillútivistarmaður.
Hjólar t.d. daglega til vinnu og úr,
en þaö er um 12 km leiö og notar
hvorki höfuöfat eöa vettlinga.
Meöan á dvöl rektorsins stóö
hér á landi notaöi hann tækifæriö
til aö hitta starfsbræður sina i
læknastétt, en sérgrein hans er
taugasjúkdómafræöi. Dr. med.
Gunnar Guðmundsson lét þess
getið, aö mikill fengur væri af
komu Erik Skinhöj til landsins og
yröi hann Islendingum ábyggi-
lega haukur i horni I Kaupmanna-
hafnarháskóla.
G.T.K.
Frankfurt
fyrsti áfangi á ieið lengra
Frankfurt er ekki adeins mikil miðstöð
viðskipta og verslunar-heldur ein stærsta
flugmiðstöð Evrópu. Frá Frankfurt, sem er
um það bil í miðju Þýskalandi, eru óteljandi
ferðamöguleikar. Þaðan erstutt til margra
fallegra staða í Þýskalandi sjálfu (t. d. Mainz
og Heidelberg) og þaðan erþægilegtað halda
áfram ferðinni til Austurríkis, Sviss, Ítalíu,
Júgóslavíu, eða jafnvel lengra.
FRANKFURT- EINN FJÖLMARGRA STAÐA
íÁÆTLUNARFLUGI OKKAR
FLUGLEIÐIR
Viðskiptavinir
athugið:
SÍMANÚMER okkar
á aðalskrifstofunni
Suðurlandsbraut 4
cr ÓBREYTT
38100
Olíufélagið
Skeljungur h.f.
(Birt vegna villu í nýju símaskránni)