Tíminn - 27.05.1979, Síða 5

Tíminn - 27.05.1979, Síða 5
Sunnudagur 27. mai 1979 5 Smalinn á Hcllisheiöi. Oliumálverk málað 1934. Sumarsýning Asgrímssafns: Nýjar myndir í eigu safns- ins sýndar í fyrsta sinn 1 dag verður hin árlega sumarsýning Asgrimssafns opnuð, og er hiin 46. sýning safnsins frá opnun þess árið 1960. Leitast var við að velja sem fjölþættust verk á sýninguna. Meðal myndanna eru tvær vatnslitamyndir sem safnið eignaðist nýlega, og eru nú sýndar i fyrsta sinn. Aðra þeirra færði Gunnar Hjörvar safninu að gjöf. Er hún af bænum Litla-Vatnshorni i Dölum og landslaginu þar, en móðir Gunnars, frú Rósa Hjörvar, kona Helga Hjörvars, er fædd á þessum bæ, og var myndin I hennar eigu. Asgrimur Jónsson var á þessum slóðum árið 1915, og mun hafa málað þar nokkrar myndir. Það var mikill fengur fyrir Asgrimssafn að eignast þetta fallega verk, en áður átti safnið enga mynd úr Dölum. Hin myndin var i eigu Jóns Sveinbjörnssonar konungs- ritara I Kaupmannahöfn, og kom myndin þaðan fyrir nokkrum mánuðum. Álitið er aö hún sé máluð á árunum 1925-30. Landslag óþekkt. Myndin er ein af stærstu va'.nslitamyndum Asgrlmssafns, og hefúr safnið reynt aö kanna hvar myndin muni vera máluð, en án árangurs hingað til. Undanfarin ár hafa safninu verið færð að gjöf fögur mynd- listarverk, og nokkur þeirra sýnd nu. 1 heimili Asgrims Jónssonar er sýning á vatnslitamyndum frá ýmsum timum, en i vinnu- stofunni oliumálverk og nokkrar þjóðsagnateikningar. Skýringatexti á islensku og ensku fylgir hverri mynd, og þá hafðir Ihuga erlendir gestir sem safnið skoða á sumrin. Asgrimssafn hefur einnig látið prenta kynningarrit á ensku, dönsku og þýsku um As- grim Jónsson og safn hans, og er það látið gestum i té án endurgjalds. Einnig kort i litum af nokkrum landslagsmyndum safnsins, sem seld eru þar. Asgrimssafn Bergstaðastræti 74, verður opið alla daga, nema laugardaga, i júni, júiiog ágúst frákl. 1.30-4. Aögangurókeypis. Útboð Rafmagnsveitur rikisins óska eftir til- boðum i byggingu aðveitustöðvar við Rjúkandavirkjun í ólafsvik. ótboðið nær til byggingarhluta stöðvarinnar, þ.e. jarð- vinnu, undirstaða fyrir stálvirki og girðingar. útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Raf- magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavik, frá og með 28. mai 1979, gegn kr. 20.000,- skilatryggingu. Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 10 miðvikudag 13. júni n.k. og verða þau þá opnuð. Tilboð sé i lokuðu umslagi merkt ,,79031 RARIK”. Verki á að ljúka að mestu fyrir 1. sept. og að fullu fyrir 1. okt. 1979. Jarðeign til sölu Til sölu eru jarðirnar Neðri-Dalur I og Neðri-Dalur II i Vestur-Eyjafjallahreppi, Rangárvallasýslu, ásamt húsum og mannvirkjum. Veiðiréttur i Markarfljóti fylgir. Allar nánari upplýsingar veitir Eggert óskarsson lögfræðingur Hvols- velli. Simi 99-5162. Fundarboð Aðalfundur Fjárfestingafélags íslands hf. árið 1979 verður haldinn á Hótel Sögu, bláa salnum, fimmtudaginn 31. mai nk. kl. 17.00. Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf. Að- göngumiðar og atkvæðaseðlar verða af- hentir á skrifstofu Fjárfestingafélagsins að Grensásvegi 13, þrjá siðustu virka daga fyrir fundardag og til hádegis á fundar- degi 31. mai. Vörubíll sérstaklega hannaður fyrir grófa vegi og með þægindi ökumanns í huga. Getum fljótlega afgreitt eftirtaldar gerðir af lager: 2ja öxla 260 HÖ Detroitdísilvél, heildarburðargeta 17000 kj 2ja öxla305 HÖ - - 19000 - 3ja öxla 305 HÖ - - 23000 - Allir þessir bííar eru búnir lúxus innréttingum eru með veltihúsi, með eða án svefnhúss og miklum auka- búnaði. IJM gerð II UR gerð H ^^HSOverland Limiti 9 || flwBB llœ a GM |B n BEDFORD 1

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.