Tíminn - 27.05.1979, Síða 6

Tíminn - 27.05.1979, Síða 6
6 Sunnudagur 27. mal 1979 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdast jóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórdrinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Simi 86309. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 150.00. Askriftargjald kl. 3.000.00 — á niánuöi. Blaöaprent Fráleitt að gefast upp Erlent yfirlit Samveldisráöstefnan tefur Ródesíumálið Fær Musorewa óbeina viðurkenningu? Sú tillaéa, að rikisvaldið haldi að sér höndum i þeim vinnudeilum sem nú geysa, er fráleit. Rikis- stjórn sem slikt gerði við núverandi aðstæður væri með þvi að koma sér undan ábyrgð sinni, og eink- um ef tillit er tekið til þeirra margvislegu afskipta sem núverandi rikisstjórn hefur þegar haft af mál- efnum vinnumarkaðarins og samningsaðilanna. Á þvi leikur ekki vafi að jafnt verkalýðs- hreyfingin sem vinnuveitendur óska eftir af- skiptum rikisvaldsins eins og nú er komið málum. Sjálfsagt eru báðir þessir aðilar endranær sam- mála um það að rikisvaldið eigi ekki að taka fram fyrir hendurnar á þeim.en um slikt er alls ekki að ræða nú. Allt tal um svokallaða „frjálsa” samninga er innantómt þvaður eins og málum er komið um þessar mundir. Hugtakið, „frjálsir kjarasamningar” er vitan- lega góðra gjalda vert, en sliku ástandi á vinnu- markaðinum verður ekki náð — nema þá þannig að fyrst hafi verið gerðar ýmsar breytingar á að- ferðum við kjarasamninga og tiltölulegu jafn- vægisástandi náð i efnahagsmálunum yfirleitt. Við þess háttar aðstæður væri það alls ekki út i hött að tala i alvöru um „frjálsa” samninga. En „frjálsir kjarasamningar”, jafnvel við slikar aðstæður.verða aldrei gerðir án þess að rikisvaldið komiþarvið sögu. Það er og verður hlutverk og skylda rikisvaldsins að hlutast til um heildarþróun efnahags- og atvinnumála. „Frjálsir” kjara- samningar sem fælu i sér ofþenslu hlytu þvi að kalla á samdráttaraðgerðir stjórnvalda til að hindra verðbólgu, en samningar sem fælu i sér samdrátt myndu á sama hátt kalla á aukin umsvif af hálfu rikisvaldsins til þess að koma i veg fyrir atvinnuleysi i kjölfar samninganna. Það er með öðrum orðum réttara að tala um „ábyrga” kjarasamninga, heldur en „frjálsa” kjarasamninga.vegna þess að siðara heitið er i reyndinni villandi. Sú tillaga, að rikisvaldið kippi nú allt i einu að sér hendinni er i raun og veru ekkert annað en uppgjöf heilbrigðrar skynsemi. Þessi tillaga jafn- gildir þvi að rikisstjórnin leggi með öllu niður störf að þeim mikilvægustu málum sem nú biða úr- lausnar. Tillagan er ávisun á algera upplausn á vinnumarkaðinum, stöðugar stórdeilur og vinnu- stöðvanir. Hún er i rauninni tillaga um stjórnar- slit. Það er út af fyrir sig undarlegt að slik tillaga skuli eiga upptök sin i flokki sem aðild á að rikis- stjórn. Óábyrg stjórnarandstaða Sjálfstæðis- flokksins hefði verið liklegari til að setja fram hugmyndir af þessu tagi, enda þjónar tillagan aðeins flokkslegum hagsmunum ihaldsins i stjórnarandstöðu. Það er mjög mikilvægt að allir stuðningsmenn rikisstjórnarinnar geri sér grein fyrir þessu, og ekki sist þeir stjórnarsinnar sem fylgt hafa Al- þýðuflokknum að málum. Á þeirra herðar mun það falla að koma vitinu fyrir þá flokksleiðtoga sina sem með þessari uppgjöf heilbrigðrar skyn- semi eru orðnir pólitiskir arðuruxar Sjálfstæðis- flokksins. Um það hefur myndast samstaða með vinnu- veitendum og launþegaforystunni að ábyrgar að- gerðir stjórnvalda til að koma i veg fyrir nýja hol- skeflu verðbólgunnar og atvinnuleysi i kjölfarið verði að koma til. Þessi samstaða bendir til þess að skynsemin geti orðið ofan á. Það væri fráleitt að fara að gefast upp nú þegar mest á riður. JS ÞVI haföi verið spáð, að það yrði eitt af fyrstu stjórnarverk- um Margarets Thatcher að viðurkenna rlkisstjórn Musor- ewa biskups f Ródesiu og aflétta viöskiptabanninu. Nil þykir sennilegast, að þetta dragist fram 1 ágúst eða lengur, en I ágúst verður brezka samveldis- ráðstefnan haldin I Zambiu, en þar munu þær báðar mæta Margaret Thatcher og Ellsabet drottning. Langflest samveldis- rlkin munuandvíg þvl, að stjórn Musorewa verði viðurkennd að sinni eða að viðskiptabanninu verði aflétt. Brezka stjórnin mun þvi telja nauösynlegt að fara gætilega I sakirnar. Hinn nýi utanrikisráðherra Breta, Carrington lávarður, geröi Ródésiumáliö að umtals- efni i lávarðadeildinni siöastl. þriöjudag. Af orðum hans mátti ráða, að stjórnin ætlaði aö fara eins konar meöalveg, a.m.k. fyrst um sinn. Hann kvað það markmið hennar að koma á stjórn I Ródesiu, sem nyti al- mennrar viðurkenningar. Hann kvaö þingkosningarnar i Ródesiu hafa tekizt allvel og er það i samræmi viö niðurstööur nefndar, sem íhaldsflokkurinn- hafði sent til Ródesiu til þess aö fylgjast með þeim. Ríkisstjórn- in myndi senda fulltrúa til Ródesiu til þess að fylgjast með málum þar og störfum hinnar nýju stjórnar, en ráða mátti af orðum hans, að ekki fælist I þvl viðurkenning á stjórninni, a.m.k. ekki að sinni. Af hálfu talsmanns Verka- mannaflokksins í lávarðadeild- inni var lýst þeirri afstöðu hans, aö hafa bæri hliðsjón af við- brögðum annarra Afrikurikja. ÞETTA og fleira bendir til, að brezka stjórnin ætli að fara sér gætilega og rasa ekki um ráð fram. Húnmuni ekki taka undir það, að kosningarnar hafi verið ólögmætar, en heldur ekki viðurkenna stjórnina, sem verður mynduö á grundvelli þeirra, fyrr en séð er hvernig hún hleypur af stokkunum. Það mun að likindum hafa veruleg áhrif á afstöðu brezku stjórnarinnar, hvort Ian Smith veröur áfram i stjórninni, en þaö myndi þykja merki þess, aö hvítir menn réöu mestu. Þá mun það hafa áhrif, hvort helztu ráðherraembættin verða skipuð hvítum mönnum eða svörtum. Það mun styrkja stöðu Musorewa, ef hann felur svört- Sithole I hópi Musorewa greiðir atkvæði inu. Flokkur Sithole, sem var einn þeirra þriggja blökku- mannaleiðtoga, sem sömdu við Smith á sinum tima, fékk um 15% greiddra atkvæða og 12 þingsæti. Flokkur þriðja leið- togans, Cirau, sem samdi við Smith, fékk ekkert þingsæti. Hins vegar fékk ftokkur annars ættarhöfðingja, Ndiweni, 9 þingsæti, en hann tilheyrir sama ættflokki og Nkomo og mun hafa notið þess. Hvltir menn hafa svo 28 þingsæti og fékk flokkur Smiths þau öll. Samkomulag var um það fyrir kosningarnar, að hver flokkur skyldi fá ráðherraembætti i samræmi við þingmannatölu sina, ef hann faigi fleiri en 5 þingmenn. Samkvæmt þvi mun ftokkur Musorewa fá 10 ráö- herra, flokkur Smiths 4 ráö- herra, flokkur Sitholes 2 og flokkur Ndiwenis 2. MUSOREWA hóf aö vinna að stjórnarmyndun sinni i siöari hluta slöustu viku, en 23. þ.m. fóru fram kosningar til öldunga- deildarinnar og þótti rétt að blða með stjórnarmyndunina þangað til þeim væri lokið. öld- ungadeildin er skipuð 30 mönn- um. Tiu þeirra eruvaldiraf ætt- arhöföingjum, 10 af svörtum þingmönnum og 10 af hvitum þingmönnum. Eins og ábur segir, getur það ráðiö verulega um álit manna á stjórn Musorewa, hvernig hún verður skipuð. Þá er talið vafa- samt, hvort flokkur Sithole tekur þátt i henni, en Sithole hefur mótmælt kosningaúrslit- unum, þar sem ólöglegum að- ferðum hafi verið beitt. Einnig hafa risið deilur milli Musorewa og varaformannsins i flokki hans. Musorewa þarf nú að sýna, að hann sé eins vel fallinn til forustu og hann hefur verið vinsæll. Þ.Þ. um mönnum helztu ráðherra- embættin. Þá mun brezka stjórnin leggja áherzlu á, að Musorewa reyni að semja við leiðtogana, sem haida uppi skæruhernaðinum i landinu, eða þá Nkomo og Mugabe. Loks mun brezka stjórnin telja mikilsvert, að stjórnarskránni verðibreytt á þann hátt, að völd svartra manna verði enn aukin. Allt þetta myndi hjálpa til að afla stjórn Musorewa meiri viðurkenningar en ella. Það reynir nú á það, hvort Musorewa verðskuldar þann sigur, sem flokkur hans hlaut I þingkosningunum. Kosninga- þátttakan varð allmikil, en 64,5% kjósenda á kjörskrá greiddu atkvæði. Flokkur Musorewa hlaut 67% greiddra atkvæðaeða 1,2 milljónir. Hann hlaut 51 þingsæti af þeim 72, sem blökkumenn hafa á þing- fylgismanna

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.