Tíminn - 27.05.1979, Page 7

Tíminn - 27.05.1979, Page 7
Sunnudagur 27. mai 1979 7 Þórarinn Þórarinsson: Kaupgjaldið er lögbundið í Noregi og Danmörku Óvenjulegt ástand krefst óvenjulegra ráðstafana Stjórnarforustan i Noregi og Danmörkuer um þessar mundir i höndum sósialdemókrata. Bæöi sósialdemókratar i Noregi og Danmörku eru undir venju- legum kringumstæöum fylgj- andi viötækum samningsrétti og verkfallsrétti launþega I sam- bandi viö kaupgjaldsmál. Samt er kaupg jald nú lögbundiö i báö- um bessum löndum aö frum- kvæöi sósíaldemókrata. 1 Noregi var þaö lögfest meö bráöabirgöalögum, sem rikis- stjórnin setti á siöastl. hausti og siöar voru staöfest af Stórþing- inu. Bindingin gildir tíl ársloka 1979. I Danmörku voru horfur á miklum verkföllum og verk- bönnum á siöastliönum vetri. Rikisstjórnin taldi óhjákvæmi- legt aö koma i veg fyrir þau og lagöi þvi fyrir þingiö frumvarp um lögfestingu kaupgjaldsins, sem varsamþykkt. Lögbinding- in gildir til tveggja ára. Astæöan til þessarar forustu sósialdemókrata i Noregi og Danmörku um lögfestingu á kaupgjaldi i tiltekinn tima, þrátt fyrir fylgi þeirra viö samningsrétt og verkfallsrétt undir venjulegum kringum- stæöum, rekur fyrst og fremst rætur til þess, aö i viöskipta- málum heimsins rikir nú óvenjulegt ástand, sem ein- kennist af mikilli veröbólgu og miklu atvinnuleysi viöast hvar. Undir slikum aöstæöum hentar ekki kerfi hinna frjálsu samn- inga, heldur veröur rikisvaldiö aö hafa meira og minna hönd i bagga, ef ekki á þvi verr aö fara. Sáttastarf A þessu ári eru liöin 54 ár siö- an fyrst voru sett lög á Alþingi um sáttasemjara rikisins. Þaö voru tveir þáverandi forustu- menn Framsóknarflokksins, Tryggvi Þórhallsson og Asgeir Asgeirsson, sem höföu forustu um setningu þessara laga. Sjálfstæöisflokkurinn, sem þá hét Ihaldsflokkur, haföi þá lagt fram frumvarp um svokallaöa varalögreglu, sem bersýnilega var ætlaö aö hafa afskipti af vinnudeilum. Framsóknarmenn voru þvi andvígir og töldu væn- legra aö rikisvaldiö heföi for- ustu um sáttastörf en ihlutun lögreglu. Þegar Hermann Jónasson hófst til forustu I Framsóknarflokknum, lét hann þaö vera eitt fyrsta verk sitt aö beita sér fyrir setningu vinnu- löggjafar, þar sem enn rikari áherzla yröi lögö á sáttastarf rikisins, jafnframt þvi, sem ákveönar reglur yrðu settar um tilhögun. vinnudeilna. Hann fluttí um þetta mál itarlegt er- indi á flokksþingi Framsóknar- manna 1931 ogeftir aö hann var oröinn forsætisráöherra 1934 fylgdi hann þessu máli fast eft- ir. Arangur þessa starfe hans varsetning vinnulöggjafarinnar 1938. Þótt hún sé aö ýmsu leyti oröin úrelt nú, hefur hún á und- angengnum 40 árum átt stór- felldan þátt I þvi aö stuöla aö lausn vinnudeilna og stórum meiri vinnufriði en ella. Afstaöa Framsóknarflokksins hefur þannig frá upphafi verið sú, aö rikiö ætti ekki aö láta vinnuveitendur og launþega eina um aö semja um kjaramál- in. Rikisvaldiö ætti-þar einnig að koma tíl sögu og stuðla aö sáttum og samkomulagi. Annar kaflinn i nýju efnahagslögunum er I fullu samræmi viö þetta, en hann fjallar um samráö viö stéttasamtökin. Ekki einhlítt Þótt sáttastarfiö i vinnudeil- um sé mikiivægt, er þaö ekki alltaf einhlítt. Aöstæöur geta veriö þannig, ef sættir nást ekki meö góðu móti, aö rikisvaldiö veröi aö skerast i leikinn, eins og nú hefur gerzt i Noregi og Sviþjóö. Óneitanlega bendir margt til þess aö slikar aöstæö- ur séu nú fyrir hendi hérlendis. Auk mikillar veröbólgu eru nú mikil náttúruharöindi og viö- skiptakjör fara versnandi sök- um oliuveröhækkananna. Framsóknarmenn leggja þó megináherzlu á, aö reynt verði samkvæmt áðurnefndum ákvæöum efnahagslaganna aö ná samkomulagi miili stéttanna um lausn þessaara mála. Takist það hins vegar ekki veröur rikið aö gripa i taumana meö ein- hverjum hætti. Aö öörum kosti getur veriö voöinn vis. Lausnir gæti veriö sú aö ákveöin væri tiltekin kauphækkun en frekari hækkanir ekki leyfðar og ekki heldur verkföll eða verkbönr meðan stéttasamtökin ynnu af heildarsamningum sem t.d. yrði lokið fyrir 1. október 1. desem- ber eða 1. janúar. Frjálsir samningar Margir Sjálfstæöismenn hafa vafalaust ekki búizt viö þvi, af flokkur þeirra tæki haröa af- stööu gegn slikri málsmeðferö, enda þótt hann sé i stjórnarand- stööu. Sú hefur þó oröiö raunin. Forustumenn Sjálfstæöisflokks- ins teljasig nú ekki mega heyra annað nefnt en frjálsa samn- inga, þ.e. aö samtök launþega og vinnuveitenda eigist viö, án þess aö rikisstjórn eöa Alþingi komi þar nokkuö nærri. Þaö eigi aö láta stéttunum eftir aö berj- ast til þrautar. Areiöanlega myndi ekkerl geta aukiö meira þá erfiöieika, sem nú er fengizt viö, en slikt stéttastriö. Mikil og langvar- andi verkföll eöa verkbönn myndu skeröa þjóöartekjurnar meö margvislegum hætti og veröa beint og óbeint öllum tíl tjóns. Veröbólgan fengi nýjan stórfelldan fjörkipp. Sundrung stéttanna myndi aukast og jafn vel verða að fullu hatri. Slil stéttastyrjöld gæti skilið eftii sár, sem seint myndu gróa. Það furðulega hefur gerzt, at ýmsir forustumenn Alþýöu flokksins hafa lýst sig fylgjand Aburöarverksmiöjan i Gufunesi. þessari afstööu Sjáifstæöis flokksins gagnstætt afstöön þeirra, sem þeir telja flokks bræöur sina i Noregi og Dan mörku. Verkalýösforingjarnir : Alþýöuflokknum eru hins vegai á öndverðum meiöi, eins og kemur fram i viötali viö tv< þeirra i Alþýöublaöinu 23. þ.m „Frjálsir samn- ingar leiða til stöðvunar” Annar þessara manna er Jór Karlsson, formaöur Fram é Sauöárkróki. Alþýöublaöiö seg ir svo frá skoöunum hans undii fyrirsögninni Frjálsir samning ar leiöa til stöövunar: ,,Ég verö aö segja þaö að méi list. ekki á þessar hugmynd- ir þingflokksins miðað viö þæi aöstæöur sem fyrir eru i þjóöfé laginu i dag. Ég óttast þaö mjög mikið aö frjálsir samningai muni leiöa til verkfalla og stöövunar, en fyrst og fremsl óttast ég þaö aö þessir frjáisu samningar leiöi til þess aö ekki veröi hægt aö hafa nokkra stjórn á þessum málum og aö allt muni þá fara i vitleysu og verkföll”, sagöi Jón Karlsson formaður Fram á Sauöárkróki. „Við teljum þaö hlutverk rikisstjórnarinnar aö tryggja kaupmátt lægstu launanna og tryggja fulla atvinnu. Ég held að verkafólk hafi treyst hvaö mest á þaö aö rflússtjórnin næöi einhverjum árangri i launajöfn- uninni, og miöaö viö aöstæöurn- ar nú list mér ekki á aö gefa þetta laust, sagöi Jón ennfrem- ur. Þá benti Jón á þaö að stjórn- völdviröistlitiöaöhafastí fyrir- heitum sinum t.d. gagnvart f járfestingarmálunum og hvernig þeim málum skulihátt- aö. Aöspurður um þaö hvort hann teldi aö flugmenn heföu hleypt af stað þessari launaskriöu sagöi Jón: ,,Ég er þeirrar skoö- unar aö þetta eigi upptök sín i borgarstjórn Reykjavikur og það sem menn bölsótast út af flugmönnum og allri þeirri vit- leysu aö þá er sú hækkun, sem þeir fengu bein afleiöing af þeirri ákvöröun borgarstjórnar- innar aö setja samningana i gildi, en siöan kom kjaradómur- inn hjá BHM og þetta var nán- ast sama eðlis hjá flugmönnum. Allt hefur þetta leitt til þess aö auka launamismuninn og nú stefnir allt i þá áttina aö auka hannenn meir, nema hressilega veröi tekið i taumana og þaö er þaö sem ég ætlast til af rikis- stjórninni og ég held bara fólk almennt. Allavega veröur rikis- stjórnin aö láta lægstu launin i friöi”. „Frjálsir samn- ingar leysa ekki vandann” Alþýöublaöiö skýrir svo frá skoöunum Jóns Helgasonar, formanns Einingar á Akureyri, undir fyrirsögninni: Frjálsir samningar leysa ekki vandann: „Ég sé ekki lausn i þvi núna aö frjálsir samningar leysi þennan vanda sem viö er aö etja, vegna þess aö viö gerum náttúrlega kröfu til þess aö halda fullri atvinnu og ef þau fyrirtæki sem eru þaö illa sett aö þau telji sig ekki tilbúin til þess aö taka á sig kauphækkan- ir, farasvo aö semja undir ein- hverri pressu i frjálsum samn- ingum, þá held égaö þaö kalli á stöövun atvinnu”, sagði Jón Helgason formaöur Einingar á Akureyri og nágrenni. „Þannig aö ég tel aö þaö veröi að lögbinda kauphækkun á alla linuna. Ég viöurkenni þó aö þaö er lika hægt aö framkvæma þetta meö sköttum til þess aö stoppa þetta af, sagöi Jón enn- fremur. Þá benti Jón á aö hann hefði aldrei hafttrúá þessu frjálsræöi aö öllu leyti, sérstaklega þegar heröa þyrfti sultarólina. Sér fyndist dæmiö ekki ganga upp ef þeir þrýstihópar sem heföu sterka stöðu I þjóöfélaginu fengju aö ógilda raunverulega þá stefnumörkun sem rfkis- stjórnin hafi veriö búin aö setja sér. Þá sagöi Jón aö forsvars- menn fyrir lægst launaöa fólkiö I landinu hafi gefiö eftir f trausti þess að þeir hópar sem betur væru settir yröu stoppaöir af og þvf væri nú nauðsynlegt aö setja lög, fyrst og fremst til þess aö jafna lifskjörin i landinu. Launamismunurinn væri oröinn alltof mikill og þvi væri nú lög- binding réttlætanleg, ailavega er ég tilbúinn til þess aö setja nafn mitt undir slikt, sagöi Jón”. Viðhorf almennings Þaö er næsta sennilegt, aö þeir Jónarnir túlki öllu bet- ur viöhorf almennings f landinu en þeir leiötogar Sjálfstæöis- flokksins og Alþýöuflokksins, sem mega nú ekki heyra annaö nefnt en frjálsa samninga, þótt oft hafi þeir áöur fyrr gripiö til lögbindingar. Vafalftiö gildir þetta jafnt um launafóik og vinnuveitendur, sem sjá ekki síöur hættuna en launafólkið, ef mikil verkföll og verkbönn koma til sögunnar. Af þeim ástæöum ætti aö mega vænta þess, aö samráö viö stéttirnar undir forustu rikisstjórnarinnar gæti boriö nokkurn árangur. Þá leiö veröur vitanlega aö reyna til þrautar áöur en til annarra aögeröa er gripiö. Bregöist sú leið, hlýtur óhjákvæmilega að koma tíl athugunar, hvort um nokkuð betra sé aö velja en aö fylgja fordæmi sósialdemókrata I Noregi og Danmörku. « Áburðarverk- smiðjan 25 ára Um þessar mundir er minnzt 25 ára starfsemi Aburöarverk- smiðjunnar en 10. mai siðast- liöinn voru 31 ár liöiö frá þvi aö lögin um hana voru sett. Bjarni Asgeirsson var þá landbúnaðar- ráöherra og haföi forgöngu um þessa lagasetningu. Upphaf málsins var hins vegar þaö aö i tiö vinstri stjórnarinnar 1934- 1937 fól Hermann Jónasson Sigurði Jónassyni aö gera rann- sókn á þvi hvort hyggilegt væri að koma hér upp áburöarverk- smiðju og sementsverksmiöju. Siguröur leitaöi bæöi til inn- lendra og erlendra sérfræöinga og varð niðurstaöan jákvæö. Heimsstyrjöldin siöari varö til þess, að ekki varö úr fram- kvæmdum að sinni. Þaö sýnir stórhuginn sem rikjandi var á heimskreppuárunum, aö þá skyldi vera lagöur grundvöllur bæöi að áburöarverksmiðjunni og sementsverksmiðjunni. menn og málefni

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.