Tíminn - 27.05.1979, Blaðsíða 10

Tíminn - 27.05.1979, Blaðsíða 10
10 Sunnudagur 27. mai 1979 Jón Sigbjörnsson. — Timamynd GE. „Það er mjög gaman að vinna við útvarpsdagskrá...” — segir Jón Sigbjörnsson, sem hefur unnið I tæknideild útvarpsins f 37 ár Þegar viö hlustum á útvarp, gerum viö okkur sjálfsagt ekki alltaf grein fyrir þvi, hversu mikil vinna liggur á bakviö dag- skrána. Að baki dagskrárliöar, sem li'öur hjá á hraöfleygri stund, liggur ekki sjaldan margra klukkutima- margra daga- eöa jafnvel margra vikna vinna og umhugsun þess manns eöa þeirra manna, sem bera ábyrgð á þvi aö einmitt þetta efniersent út ,,á öldum ljósvak- ans,” eins og oft er komist aö oröi. Siðan i september 1942 Maöurinn, sem hefur lengur en nokkur annar unniö aö einum þætti þessarar starfsemi, tækni- deild útvarpsins á Skúlagötu 4, heitir Jón Sigbjörnsson og er upp runninn austur á Fljóts- dalshéraði. Hann leit fyrst ljós þessa heims á Hjartarstööum i Eiðaþinghá áriö 1921. Jón Sigbjörnsson er nú hingaö kominn og hefur veriö beöinn aö spjalla viö lesendur Tfmans á þessum degi. — Og þá er mál til komiö aö bera upp fyrstu spurninguna, Jón: Hvenær fórst þú aö vinna hjá útvarpinu? — Ég byrjaöi þar i septem- bermánuöi 1942. Ég var þá 21 árs gamall, og fjögur næstu árin á undan haföi ég aö mestu veriö á Laugarvatni viö nám og störf. — Ertu búinn aö vinna þarna úrtakalaust i þessi 37 ár, að sumarleyfum og veikindafor- föllum undan teknum? —Já, ég hef unnið óslitiö, nema í sumarleyfum, — og sárasjaldan veriö frá störfúm vegna lasleika. Ég verð næstum aldrei veikur! Þá voru útvarpið, Veð- urstofan og Landssim- inn, öll undir sarna þaki — Er ekki allt gerbreytt og óþekkjanlegt frá þvi sem var, þegar þú hófst störf hjá útvarp- inu fyrir 37 árum? Jú, breytingarnar eru mikl- ar. Þegar ég byrjaði aö vinna hjá útvarpinu, var stofnunin i Landssimahúsinu við Austur- völl. Húsakynni tæknideildar útvarpsins voru ekki mikil þá. Þaö var útvarpssalurinn, sem var aö visu áttatiu fermetra stór, og þar aö auki tvö lítil her- bergi. 1 ööru var þulurinn meö sina starfsemi,oghitt herbergið var notaö til þess aö flytja þar erindi, og til upplestrar. Tækni- mennirnirsjálfir áttuaðeins ráö á einu herbergi. Þar voru þau tæki, sem til voru, en annars mátti heita aö allt útvarpsefni væri flutt beint. Upptökutæki voru aö visu til, þaö var tekin ýmis tónlist, aðallega söngur á grammófónplötur, en litiö af ööru efni. En þvi nær öll leikrit, erindi og annaö slikt var flutt beint. — Hvar i Landssimahúsinu var útvarpiö? Hvar var út- varpssalur, sem viö heyröum svo oft talaö um i gamla daga? — Útvarpiö haföi til umráöa Siguröur Ingólfsson hljóöritar þáttinn Viösjá. Timamynd GE. fjóröu hæöina i Landssimahús- inu. Otvarpssalur og þularher- bergi voru i norð-vesturálmu, en skrifstofurnar voru i her- bergjunum. sem snúa út aö Austurvelli. Auk þess haföi út- varpiö tvö eöa þrjú herbergi á efetu hæö, fimmtu hæöinni, og þar var Veöurstofan lika, þegar ég kynntist útvarpinu fyrst, 1942. — Þaö hefúr veriö mikiö unn- iö i gamla Landssimahúsínu þá, eins og löngum endranær, þegar bæöi útvarpið, Veöurstofan og Landssími Islands voru þar undir sama þaki? — Já, þaö var mikiö unniö, og þaö var þröngt um marga. — Fórst þú strax aö vinna sem tæknimaöur, þegar þú réö- ist til útvarpsins? — Já, en fyrsta áriö var ég ekki I Landssimahúsinu, heldur vestur á Ægisgötu 7. Þar var viðgerðarstofa útvarpsins og viötadcjasmiðja. Ég held ég fari rétt meö þaö, aö þetta hafi veriö eina viögeröarstofan á þeim ár- um, — eöa aö minnsta kosti sú eina, sem nokkuö verulega kvaö aö. Þaö var sett saman heilmik- ið af tækjum þarna, bæöi raf- hlööutæki, sem voru seld út um sveitir, og eins tækifyrir skip. — Ég vann viö þetta fyrsti" staö, en fluttist fljótlega i Lands- simahúsiö, þar sem ég starfaöi viö útsendingu dagskrár, og upptöku, aö svo miklu leyti sem hún var um hönd höfö. — Þaðhefurnúmargtdrifiöá dagana á þessum árum. Manst þú ekki eftir einhverjum skemmtilegum atvikum, sem óhætterað segjafrá.eftir svona langan tima? — Þetta var aDt ósköp hvers- dagslegt hjá okkur þarna. Jú, auðvitaö gekk á ýmsu, en ég veit ekki hvort ástæöa er til aö rifja þaö upp, — enda er ég lik- lega búinn aö gleyma öllum sér- kennilegum atburöum hafi þeir einhverjir veriö. Þetta var þá, og er enn, ákaflega skemmtilegt starf og lifandi. Þaö er mjög gaman aö vinna við útvarps- dagskrá, aðstæöurnar eru bara ekki nærri nógu góöar hjá okk- ur. Dagskráin er oröin viðamikil — t hverju er starf þitt fólgið núna? Þetta hlýtur að vera orö- iöallt öðru visien þaö var i' upp- hafi? — Já, þetta er allt annaö núna. Ég hef núum langt árabil átt að heita forstöðumaður tæknideildar útvarpsins. Þetta er i raun og veru verkstjóra- starf, ég þarf aö skipuleggja vinnu annarra manna og sjá um aö allt gangi liðugt og árekstra- laust. — Hvaö vinna margir menn i tæknideildinni núna? — Viö erum átján. Upptöku- herbergin eru sex: einn allgóður salur, þar sem hægt er að taka upp kórsöng, einsöng, og þar sem hljómsveitir geta leikiö, ef þæreruekki mjögfjölmennar. I einu herberginu eru aðallega tekin upp leikrit, — og svo eru fjögur herbergi litil, sem notuð eru til þess aö taka upp lestur, viötöl og annaö sllkt efni, þar sem einn, tveir eöa örfáir menn geta veriö aö störfum i' einu. — Þarft þú ekki aö skipu- leggja upptöku langt fram i tim- ann, þar sem húsrými er af skornum skammti, en aftur á móti margt fólk, sem vinnur aö gerð dagskrárinnar? — Jú, i sumum tilfellum get- ur þess þurft. 1 rauninni er það áskiliö frá okkar hálfu, aö menn panti upptöku meö þriggja daga fyrirvara, aö minnsta kosti, en stundum er svo ásett, aö sá fyrirvari hrekkur ekki til. Astæður manna eru llka meö ýmsum hætti, eins og auðvelt er að imynda sér. Þaö getur staöiö svo á, aö margir dagskrár- gerðarmenn séu allt aö þvi tilneyddir aö koma til upptöku allir I einu, ýmist vegna eigin ástæöna eöa vegna ástæöna þeirra, sem þeir hafa fengiö til þáttageröar meö sér, t.d. þegar um viöræöuþætti er aö ræöa. En oftast greiöist úr slikum vanda- málum, þannig aö allt bjargast. Hinu er ekki að neita, aö nú er dagskráin oröin svo viöamikil, aö erfitt er aö vinna hana sóma- samlega viö þessar aðstæöur. —Er allt dagskrárefni tekiö upp fýrirfram, áöur en það er flutt? — Svo má þaö heita. Bein út- sending er orðin mjög fágæt. Næstum allt útvarpsefni er tek- iö upp á segulband nema auðvit- aö lestur frétta og tilkynninga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.