Tíminn - 27.05.1979, Side 11

Tíminn - 27.05.1979, Side 11
Sunnudagur 27. mai 1979 11 Þó ber þess aö geta, aö ndna i vetur hafa tveir þættir veriö aö hluta til sendir út beint, þaö eru Morgunpósturinn og 1 vikulokin. Fylgdist með nær öllu sem flutt var — fyrr á árum — Geymiö þiö mikiö af þvi efiii, sem tekiö er upp á segul- bönd, áöur en þaö er flutt? — Já, það er heilmikiö geymt. Þaö er skaöi, hve litið viö eigum . frá fyrstu árum segulbandsins. Plöturnar frá þvi i gamladaga eru að visu til, en fyrst eftir aö segulbandiö kom til sögunnar, var tekiö ofan i þetta aftur og aftur, þvi aö menn vissu, aö segulböndin þoldu aö vera notuð æ ofan I æ, meö þvi aö þurrka út þaö sem fyrir var á bandinu. Þetta var vitaskuld sparnaöur, — i bili — en fyrir vikið glataöist efni, og þann skaöa erekkihægt aö bæta uppnú.hversu fegnir sem menn vildu. — En ekki getið þiö samt geymt allt, sem tekiö er upp á segulband og flutt i útvarp, þótt þiö fegnir vilduð? — Nei, að visu ekki. Það er reynt að greina efniö i sundur eftir eöli þess, — meta, hvaö skuli geymt ot hverju fleygt. Þaö er til dæmis ekki sama hvort lesið hefur verið upp úr alkunnri bók, sem er til á hverju bókasafni og á fjölmörg- um heimilum i landinu, eða hvort tekið er viötal viö mann, sem kann frá mörgu merkilegu aðsegja, en er svo aldinn aö ár- um, aö þaö geta kannski veriö siðustu forvöð aö heyra hann sjálfan segja frá þvi sem hann veit. — Vinnur þú enn viö að taka upp efni? — Nei, þaö kemur sarasjald- an fyrir núorðiö. Fyrir nokkrum árum feröaðist ég talsvert um landið og tók upp efni, en nú eru svo margir farnir að vinna við þessar upptökur, að verkiö dreifist miklu meira á milli manna en áður. Mér þótti ákaf- lega gaman að þessum feröum um landiö, þótt oft væri tekiö upp viö erfiöar aðstæður, eink- um fyrr á árum, á meðan tækin voru frumstæöari en nú. — Nú hlýtur þú aö heyra mjög mikinn hluta þess eftiis sem flutt er i Utvarp, þótt þú starfir ekki sjálfur við upp- tökutækin. A hvaö heldur þú aö þér þyki skemmtilegast aö hlusta? — Égveitekki. I gamla daga, á meðan viö vorum ekki nema tveir eöa þrir, sem unnum viö upptökuna, mátti heita aö ég vissium allt efni, sem flutt var i útvarp, hverju nafni sem nefnd- ist, ogfylgdist meö þvi. En eftir aö starfsemin óxsvona gifurlega og verkin dreiföust á fleiri hend- ur, breyttist þaö eins og margt annaö, og nU má heita ógerning- ur að fylgjast með nema hiuta þess sem flutt er. Aður fyrr hlustaöi ég mjög mikið á leikrit, og reyndar á fjölmargt annaö efni, en ég gafst snemma upp á framhaldssögunum, þvi að ég missti alltaf úr lestra við og við, og þá slitnaöi þráöurinn. En þó aö Utvarpshlustun min hafi minnkað meö árunum, er samt afltaf ýmislegt, sem ég vil heyra, og þá hlusta ég, og læt ekkert trufla mig. Tuttugu ára gamall tækjabúnaður — Mér skilst, aö oröið sé harla þröngt um ykkur, þarna á SkUlagötu 4. Er nokkuð hægt Ur þvi að bæta, fyrr en nýja Ut- varpshUsið kemur? — Þaö er langt komiö aö teikna og hanna mikla byggingu fyrir Utvarpið. Ég held, að ekki liöi á löngu, þangað til hægt verður að bjóöa þetta Ut, ef til- skilin leyfi fást fyrir bygging- unni. Það veröa gifurleg viö- brigöi að koma i nýtt hUs, sem er sérstaklega byggt fyrir slika starfsemi. Það er nú svo, að út- varp getur ekki starfað i hvaöa skrifstofubyggingu sem er. Þar kemur margt til, m.a. hljóö- Magnús Hjálmarsson hefur y firumsjón meö tækjum tæknideiidar. Timamynd GE. einangrunin, sem þarf aö vera allt ööru visien I öörum húsum. Og það þarf lika aö vera góöur hljómburöur i húsum þar sem dagskrárgerð fer fram. — Við erum langt á eftir mörgum öör- um þjóöum hvaö þetta snertir. — En hvaö um tækjabúnaö- inn? — Hanneroröinngamall, —á tvitugsafmæli um þessar mund- ir. Núna ihaustveröa liöin tutt- ugu ár siöan Utvarpiö flutti úr Landssimahúsinu aö SkUlagötu 4. Uppistaöan I tækjabUnaöinum er siöan, þótt sumt hafi veriö lagfært og endurnýjað aö ein- hverjum hluta.Sannleikurinn er sá, aö mörg þeirra tækja, sem nU eru notuö daglega, endast ekki öllu lengur. — 1 gamla daga, á meöan þU vannst mikiö viö upptöku efnis, hlýtur þU að hafa kynnst mikl- um fjölda manna, sem lögöu til eftii I dagskrána. Var ekki ákaf- lega ólikt aö vinna með þessum mönnum? — Jú, visterþaö, —og þannig verður það alltaf. Hver maður hefur sina siöi og hætti, — og jafnvel sinar tiktúrur. Með þvi er ég ekki aö segja, aö þær „tiktúrur” þurfi endilega að vera slæmar. Siðuren svo. Allir vildu gera sitt besta, og þaö vilja allir, nU eins og áöur, en hins vegar vinna menn hver með sinu lagi, og ekkert viö þvi aö segja. Fólkiö, sem vinnur að gerö dagskrárinnar ermesta prýöisfólk, og samstarfiö hefur jafnan gengið vel. En húsnæöis- leysiö er vandamál. Þaö er óneitanlega orðið ansi þröngt um okkur þarna. Og svo er tækjakosturinn lika tekinn fast að eldast, eins ogégsagði áöan. En allt hefur þetta bjargast hingað til, með góöum vilja. Eftirminnilegasta „utanhússútvarpið” — Hvað heldur þú að þér sé minnisstæöast, þegár þU litur um öxl, eftir aö hafa starfað viö tæknideild Utvarpsins i meira en hálfan f jóröa áratug? — Þaö gæti nú verið margt. Otvarpinu hafa oft verið falin stór verkefni, sem ekki hefur alltaf veriðauðvelt aöleysa. Ég get öl dæmis nefnt hátiðahöldin á Þingvöllum árið 1944, þeg- ar lýöveldiö var end- urreist. Það var feiknar- leg vinna, þegar miöaö er viö þær aöstæöur og þau tæki sem þá voru fyrir hendi. Heims- styrjöldin var i algleymingi, og ekkihægtaðfá neitt keypt, — ég man aö við fengum lánaöa hljóönema og hátalara frá breska Utvarpinu, og auk þess lét útvarpiö sjálft smiöa bæöi magnara og hátalara fyrir hátí"ðina. Ég var, ásamt fleiri starfe- mönnum útvarpsins, austur á Þingvöllum i heila viku við undirbúningsvinnu. Viö settum upp tæki, grófum leiöslur i jörö o.s.frv. Svo geröi bandvitlaust veður, eins og flestir vita, sem muna svo langt aftur i timann. Kvöldið fyrir lýöveldishátiöina varö að taka niöur aila hátalara ogmargt fleira,ogþað sem ekki var tekiö niöur, fauk eöa valt um koli um nóttina. Seinni part nætur slotaði mesta hvassviör- inu, og þá rifum viö okkur upp til þess að reyna aö ganga frá þvi sem tekiö haföi veriö niður, eða óveöriö feykt og velt um. Viö unnum aö þessu i ausandi rigningu og vonskuveðri, þótt ekki væri eins hvasst og um kvöldiö og fyrri part nætur. Það stóöst nokkuð á endum, aö við höföum lokiö verki okkar, þegar hátiöin átti aö fara aö hefjast. Alltaf rigndi, — allan daginn og fram undir kvöld. Þetta var sannarlega erfiöur sólarhringur, en allt slampaðist af, öllu var útvarpaö, allt tekið upp á grammófónplötur, og þær eru til enn. — Já, þaö er margs aö minnast, en þetta held ég nú að sé eftirminnilegasta „utan- hússútvarp,” sem ég hef unnið við. A þjóöhátiöinni 1974 var aUt öðru máli aö gegna. Þá voru tæki og allur búnaöur miklu betri en verið haföi þrjátiu ár- um fyrr, þá mátti heita ágætt veöur allan timann sem undirbúningsvinnan stóð yfir, og aUt var miklu auöveldara viöfangs. — Þú sagðir i upphafi, aö þú hefðir byrjað aö vinna á útvarp- inu árið 1942. Ert þú þá ekki meö elstu starfsmönnum þar, — aö starfeaidri, — hvaö sem æviár- um liöur? — Jú, ég er vist annar af tveimur eistu starfsmönnum þar. — Hvernig er þér svo innan brjósts, þear þú litur yfir hinn langa starfsferil þinnhjá Rikis- útvarpinu? (Og þú mátt ekki skilja spurninguna svo aö ég sé aðspáþérneinum endalokum!) — Mér finnst ánægjulegt aö lita um öxl. Þetta hefur veriö skemmtílegurtimi. Þaö er mjög gaman aö vinna viö útvarps- dagskrá, alltaf einhver tilbreyt- ing og alltaf eitthvað nýtt. —vs. Geir Christensen og Ragnheiður Asta Pétursdóttir við útsendingu morgundagskrár. Timamynd GE

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.