Tíminn - 27.05.1979, Síða 13
Sunnudagur 27. mai 1979
13
Þessa konur eru ekki þesslegar aö vera komnar á ellilifeyrisaldurinn.
Ragnheiður Brynjólfsdóttir:
Gott sánabaö yngir og léttir þá
sem komnir eru af léttasta
skeiöi.
Fulloröna fólkiö sem sækir Heilsuræktina getur veriö siungt meö
léttan likama og unga sál. Timamyndir GE.
Heilsubót og kjarabót
fyrir gamla fólkið
Ég las með athygli
grein Gísia Sigurbjörns-
sonar í Tímanum 13. maí
síðast liðinn. Ég hef lesið
margt, sem hann hefur
skrifað um framtíð
gamla fólksins, og finnst
mér þjóðin öll standa í
mikilli þakkarskuld við
þennan sérstaka mann,
sem hefur að áhugamáli
bætt kjör og betra líf
fyrir gamalt fólk.
En eins fannst mér hann
gleyma að geta i grein sinni, og
það er Heilsuræktin i Glæsibæ
þar sem er frábær aðstaða og
þjónusta við 67 ára og eldri og
ellilifeyrisþegar geta haft að-
gang að sér til heilsubótar. Þar
eru fyrir hendi heit böð, sauna-
gufubað, ljós og svo stór æfinga-
salur, þar sem þjálfun fer fram
undir stjórn sjúkraþjálfara og
eftirliti lækna stofnunarinnar.
Þetta er allt til staðar fyrir gam-
alt fólk og þvi að kostnaðarlausu
1 25 skipti getur gamalt fólk
fengið þjálfun, yndislega þjálf-
un, fyrir ekki neitt.og það finnst
mér vera aðalmálið, að þjálfa
likamann, og halda honum ung-
um, þvi þá verður sálin lika ung
og engin elli til.
Mér er alveg óskiljanlegt, að
þessi heilsurækt i Glæsibæ er
ekki auglýst, svo gamla fólkið
viti auglýst, stofnun og geti
notfært sér þessa aðstöðu, sem
þarna er, svo það geti verið
siungt með léttan likama og
unga sál.
mm
Hér er hjóiað og róiö og sækist feröin seint, en þaö er Iikamþjálfunin sem skiptir máli
Félag
járniðnaðar-
manna
Félagsfundur
verður haldinn miðvikudaginn 30. mai
1979 kl. 8.30 e.h. i Domus Medica v/Egils-
götu.
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Umræður um takmörkun yfirvinnu.
3. önnur mál.
Mætið vel og stundvislega
Stjórn félags járniðnaðarmanna.
Verslunarmannafélag
Suðurnesja
Þar sem tveir listar hafa borist til kjörs,
stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins
verður viðhöfð allsherjar atkvæðagreiðsla
hjá féiaginu.
Atkvæðagreiðsla fer fram miðvikudaginn
30. mai og fimmtudaginn 31. mai 1979. At-
kvæðagreiðslan stendur frá kl. 14-22 hvern
dag á skrifstofu félagsins að Hafnargötu
16, Keflavik.
Kjörskrá liggur frammi mánudaginn 28.
mai og þriðjudaginn 29. mai frá kl. 14-19 á
sama stað.
Kærufrestur er til loka kjörfundar.
Kjörstjórnin.
Orkustofnun
Orkustofnun óskar að ráða rannsóknar-
mann til starfa timabilið júni til des. 1979.
Rannsóknarmanninum er ætlað að vinna
við efnagreiningar á rannsóknarstofu
Orkustofnunar, Keldnaholti.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf óskast sendar
starfsmannastjóra Orkustofnunar fyrir 5.
júni nk.
Orkustofnun.
Umferðarfræðsla
5 og 6 ára barna
í Hafnarfirði og Kjásarsýslu
Lögreglan og umferðarnefndir efna til
umferðarfræðslu fyrir 5 og 6 ára börn.
Hvert barn á þess kost að mæta tvisvar
klukkustund i hvort skipti. Sýnd verða
brúðuleikhús og kvikmynd og auk þess fá
þau verkefna spjöld.
28. og 29. mai 6ára 5ára
Öldutúnsskóli kl. 9:30 11:00
Lækjarskóli 14:00 16:00
30. og 31. mai
Engidalsskóli 9:30 11:00
Viðistaðaskóli 14:00 16:00
Reiðhjólaskoðun fer fram á ofangreindum
stöðum á sama tima.
Foreldrar geymið auglýsinguna.
Lögreglan i Hafnarfirði
og Kjósarsýslu.