Tíminn - 27.05.1979, Side 27

Tíminn - 27.05.1979, Side 27
Sunnudagur 27. mai 1979 27 Tvö af lögmálum „Þaö skelfilega við skrifstofu- bákn niitimans er ekki endilega peningasóunin, sem af þvi lei&ir, heldur mikiu frekar sú staðreynd, a6 menn flækjast hver fyrir öörum og vinna störf hver fyrir annan. Þetta lögmál mitt, eins og öll hin, er enn i fuDugildi iöllum löndum, jafnt á Islandi sem annars staðar”. Þetta meðal annars hafði blaðamaður Timdns eftir prófessor Cyril Northcote Parkinson á blaðamannafundi hér I borginni fyrir skömmu. Réttara mun þó vafalaust haft eftir honum aðmenn búi til störf hver fyrir annan fremur en aö þeir vinni störfin hver fyrir ann- an. En hvað um það þá var hér á ferðinni hinn kunni höfundur Parkinsonslögmálanna sem fjalla um ýmsa vankanta em- bættismannakerfisins. Hefur höfundurinn hlotið heimsathygli og viðurkenningar fjölmargra fyrir skrif si'n og ekki eyöileggur þaö fyrir honum hversu fram- setning hans á lögmálunum er þrungin skopi og skrif hans flest eru afburðaskemmtileg. Parkinson er raunar menntaður sagnfræðingur og hálæröur prófessor I þeirri grein. Hann er fædduroguppal- inn Breti og sá fyrst þennan heim 30. júh" 1909. Slðan lögmál- in hans komust á prent hefur hann og verið á eilifum þönum um heiminn og haldið óteljandi fyrirlestra og nú siðast i Reykjavík. Auk lögmála sinna um embættismannakerfið hefiir hann gefið út bæði sagnfræðirit og skáldverk. Islensk útgáfa „Lögmála Parkinsons” kom út árið 1959 I þýðingu Vilmundar Jónssonar landlæknis. Er hér áeftir ætlun- in að rifja upp tvö lögmála Parkinsons, lesendum til fróð- leiks og gamansséu þeir þá ekki öllum hnútum i fræðum hans kunnugir. Eru þetta annars vegar frægasta lögmálið hans um útþenslu embættismanna- kerfisins og hins vegar lögmál hans um stofnanadá. Síhækkandi pýramídi „Vinna þrútnar, uns hún fyllir út i timann, sem gefet til að inna hana af hendi”. Svo hljóðar upphaf bókar Parkinsons um lögmálin og nánar útfært hljóðar lögmálið um útþenslu embættismannakerfisins þannig: „Ekkert samband er á milli fjölda embættismanna og vinnuafkasta” en hins vegar felst i kerfinu stöðug tDhneiging til mannfjölgunar. Sérhver embættismaður hefur tilhneigingu til að koma sér upp undirmönnum, nánast safna þeim, enhann forðast það að skipta starfi sinu með öðrum þar sem hann hefur þar með öðlast keppinaut um næstu stöðu fyrir ofan. Þess vegna er það ófrávíkjanleg regla að þeg- ar embættismaður annað hvort er orðinn of gamall eða óhæfur til að gegna starfi sinu hjálpar- lausLeða hver önnur sem skýr- ingin kann að vera, reynist nauðsynlegt að fá honum tvo eða fleiri aðstoðarmenn. Þá eru þrir um störf eins manns áður. Kölium yfirmann- inn A og hina B og D og þeim er af A „báðum haldið i skefjum af ótta hvors um sig við að hinn verði framaður. Þegar C tekur að kvarta um of mikið vinnu- álag (og að þvi rekur vissu- lega), mun A með stuðningi C ráða tíl þess, að honum verði fengnir tveir aðstoðarmenn. En þá verður ekki haldiö innan- hússfriði, nema D verði lika séð fýrir tveimur aðstoðarmönnum, enda er hans staða i engu veru- legu frábrugðin. Þegar þessum nýráðningum, þeirra E, F, G og H, hefur verið komið i kring, má frömun A heita algerlega tryggð”. Hann hefur nú sex undirmenn tíl að vinna þau störf er hann vanneinnáður. Ogaf þviaðþeir eru iðnir mjög skapa þeir svo mikla vinnu hver handa öðrum aö A hefúr eftir sem áður jafn mikið.ef ekki meira, að gera en nokkurn timann áður. Eitt og sama erindið sem A leysti áöur með einni undirskrift getur nú komiö tíl kasta sjömenninganna margsinnis og tekiðvikur aðaf- greiða. Svona frjótt kerfi hlýtur að vaxa stöðugt og skal hér ekki frekar fjafiað um útþenslu em- bættismannakerfisins. Stofnanadá En stofnanadá — hvað er það? Hér skuium við alveg gefa Parkinson orðið: „Fyrsta hættumerki er þaö ef I fyrir- mannastétt stofnunar birtist einstaklingur, sem safnað hefur innra með sér blöndu mikUlar styrktar óhæfi (á latinu: incompetentia) og afbrýði (á frönsku: jalousie).A hvorugu er mikið mark takandi i sjálfu sér og flest fólk hefur sitt litið af hvoru. En þegar hvoru tveggja lýstur saman i ákveðnum styrktarhlutföllum — sem til bráðabirgða eru táknuð með formúlu: 1/3 J/5 — veröa efna- skiptí. Frumefnin tvö ganga þá i samband hvort við annaö og nýtt efni myndast, sem vér höf- um kosið að nefna „Injalih”. Alykta má örugglega um ivist þessa efnis af áhrifum þess. Þá er ekki um aðvillast, þegar ein- staklihgur, sem hefur mislánast að gera nokkuð úr sinni deild stofnunar, situr um hvert tæki- færi til að sletta sér fram i störf annarra deilda og kostar alls kapps um að komast i yfirstjórn stofnunarinnar. Sérfræðingur, sem leiðir sjónum þessa blöndu getuleysis og metorðagirndar, hristir höfuðið og tautar við sjálfan sig: „Injalinosis primaria sive idiopathica”. A einkennunum er engin leið aö villast. Næsta eða öðru stigi sjúk- dómsins er náð þegar sýktur einstaklingur nær meira eða minna fullkomnum tökum á yfirstjórn stofnunar. Margoft kemst sjúkdómurinn á þetta stig, án þess að á undan sé gengiðnokkurttimabil sýkingar á sama stað: hlutaðeigandi hefur hafið störf i yfirstjórn stofnunarinnar. A þessu stígi sjúkdómsins er injalinosissjúk- Dngur auðkenndur á þrásækinni viðleitni að losa stofnun sina við alla starfemenn sem honum eru hæfari,svo og andstöðu gegn þvi sem likur eru til, að getí meðtið og tima orðið honum hæfari. Hann dirfist aö vfeu ekki að segja: „Herra Stjarni er ekki hæfur”, svo að hann segir „Duglegur, ef tU vill — en er •hann traustur? Ég haliast heldur að þvi að ráða herra Núlius”. Hann fær sig auðvitað ekki tD að segja: „Herra Stjarni lætur mér finnast ég vera agnarlitill karl”, svo að hann segir: „MérvirðistherraNúlius vera gæddur öruggri dóm- greind”. Dómgreind er merki- legt orð og merkir I þessu við- fangi öfugð gáfna: i reynd er merkingin sú að gera eins og gert var slðast. Svo aö herra Núli'us er tekinn fram yfirherra Stjarna, sem ræður sig annað. Yfirstjórn skipast smátt og smátt fólki, sem er heimskara en forseti, forstjóri eða ráðs- maður. Ef höfuð stofnunar er annars flokks höfuð, sér höfúðs- maður til þess, að allir, sem næstir honum ganga, séu þriðja flokks menn: og þeir munu aftur sjá til þess, að undirmenn þeirra séu fjóröa flokks lýður. Uppaf þessusprettur raunveru- lega samkeppni um heimsku svoaðfólk freistast tíl aðlátast vera enn heimskara en þaö þó er. Næstaeða þriðja þróunarstigi sjúkdómsins er náð, þegar eng- an greindarneista er lengur að finnaistofnun,ofan frá ogniður i gegn. Þetta er dauðadáið er vér vikum aö i upphafi þessa kafla. Þegar þar er komið er stofnunin, að þvi er tekur tU allra hagnýtra nota, dauð. Hún getur dummað i þvi' dauðadái I tuttugu ár. Hún getur leystst upp hægt og rólega. En hún getur jafnvel lika rétt við. Batí er sjaldgæfur. Þaö má þykja gegna furöu að bati getur átt sér stað, án þess að nokkur læknis- meðferökomitil. Þó er sú þróun algerlega eðlileg og samsvarar allnáiðþvi fyrirbrigði er ónæmi þróast með ýmsum li'fverum gegneitrisem ella er þeim ban- vænt. Þessu svipar til þess, að stofnun i heild hafi verið úöuö með DDT — lausn þeirrar náttúru að hún eyddi örugglega allri hæfi.er fyrir úðuninni yrði. 1 nokkur ár ber þessi ráðstöfun jafnaðarlega endurtekinn tU- ætlaðan árangur. En fyrir kem- ur samt, að með einstaklingum þróast ónæmi. Þeir leyna hæfi sinni bak við grimu fábjánalegs kumpánaskapar. Þetta verður til þess, að starfsmenn sem til þess eru settir að útrýma allri hæfi, bilar hæfi til að bera kennsl á hæfi, þegar þeir sjá hana. Hæfileikamaður brýst i gegnum ytri varnarvirki og tek- ur að klifa hamarinn. Hann heldursina leið.þvaðrar um golf og flissar eins ogafglapi, glopr- ar niður skjölum, gleymir nöfn- um og lítur út eins og hver ann- ar. Það er ekki fyrr en hann hefur náð hárri stöðu, að hann kastar skyndilega grimunni og stendur þá eins og alskapaður djöflakóngur I hópi álfameyja i bendingaleik. Háttsettir fram- kvæmdastjórar skrækja van- máttarhljóðum, er þeir verða hæfi varir mitt á meðal sin. En nú er úrhættis að gera nokkuð við þvi. Slysið er orðið, sjúk- dómurinn á undanhaldi og ef tíl vill horfir til fulls bata innan tiu ára. En dæmi sliks eðlilegs bata eru ákaflega fágæt. Langtiðast hagar sjúkdómurinn sér svo að hann rennur öll stig til enda og verður að lokum ólæknandi”. —KEJ

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.