Tíminn - 11.04.1979, Blaðsíða 20
Sýrð eik er
sígild eign
ftGÖGIf
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Gagnkvæmt
tryggingafé/ag
Skipholti 19, n.
sími 29800, (5 línur)
Verzlið
sérverzlun með
litasjónvörp
og hljómtæki
Hitaveita Akraness og Borgarness:
Áfangastarfs-
skýrsla lögð
n — vönduð og mikil
tram úttekt ^
iðnaðarráðherra
AM — Eins og blaðið hefur áður skýrt frá,
standa nú yfir viðræður við eigendur Deildar-
tunguhvers og aðila að hinni nýstofnuðu hita-
veitu Akraness og Borgarness, en þessar við-
ræður eru til komnar
neytis, eftir að þær hafa
Hjörleifur Guttormsson, iðn-
aðarráðherra, sagði blaðinu i
gær að hann vonaðist til að sam-
komulag mundi nást um þessi
mál að þessu sinni, en nú fyrir
hálfum mánuði var lögð fram
áfanga starfsskýrsla, unnin af
sérstökum starfshópi, og sagði
ráðherra það vandaða úttekt,
sem mikils virði væri að hafa
við hendina, vegna væntanlegra
framkvæmda.
Enn sagöi ráðherra ekki gott
að segja hvenær framkvæmdir
mundu hefjast, en hið nýstofn-
aða fyrirtæki á enn eftir að
sækja um einkaleyfi til rekstr-
arins, eins og iög gera ráð fyrir,
en slik umsókn krefst útvegunar
margvislegra gagna. Þá er
lánsfjáráætlun frá Alþingi enn
fyrir tilstuðlan ráðu-
tvisvar strandað áður.
ekki lokið, svo enn er ekki hægt
að opna fyrir fjármagnsveiting-
ar til framkvæmda.
Húnbogi Þorsteinsson, sveit-
arstjóri i Borgarnesi sagði að
fyrsti fundur hinnar nýkjörnu
stjórnar hitaveitunnar hefði
verið haldinn i gær og formaður
kjörinn Guðmundur Vésteins-
son á Akranesi, en varaformað-
ur Jón Sigvaldason i Ausu.
Mundi hin nýja stjórn senn taka
upp viðræður við ráðuneytið um
næstu skrefin, en hvað þá Borg-
firðinga, Hvanneyringa og
Andakilshreppsmenn snerti
sagði hann að allt væri undir
það búið að hefja framkvæmdir,
þar sem þeir munu að likum
sækja vatn til hitaveitunnar að
Bæ i Bæjarsveit.
t gær var lögreglan að radarmæla á Hringbrautinni þar sem þessi mynd er tekin.
Aukið og hert eftirlit
með of hröðum akstri
— og ökuleyfissviptingum beitt oftar
Stal bil á Blönduósi og náðist I
Norðurárdal
GP — Um miðjan dag i
gær var stolið bifreið af
gerðinni Mazda á
Blönduósi. t»etta var
hin mesta biræfni, þar
sem bifreiðin stóð við
sama hús og lögreglu-
stöðin er til húsa i.
Bifreiöin fannst svo
seinni partinn f gær fyrir neðan
Fornahvamm í Norðurárdal,
fóst I skafli ásamt fleiri bílum.
Þjófurinn haföi þá frétt aö lög-
reglan væri á leiðinni, og er aö
var komið var hann aö hamast
viðað moka bflinn lausan — og
sig frá vörðum laganna. 1 gær
var vonsku veður á Holtavöröu-
heiði og lentu margir bllar i
erfiðleikum.
GP — Undanfarna vikur
hefur lögreglan hert
mjög eftirlit sitt með of
hröðum akstri og t.d.
voru i siðustu viku milli
60 og 70 ökumenn teknir
fyrir of hraðan akstur í
Reykjavik og nágrenni.
Viðurlög hafa mikið verið hert,
og ef ökumaður er tekinn á yfir
100 km. hraða gildir nær undan-
tekningarlaust ökuleyfissviptíng
— auk sektar. Algengustu staðir
sem mælt erá i Reykjavik eru við
Hringbraut, Kleppsveg, Kringlu-
mýrarbraut, Miklaubraut aúk
Vestur- og Suðurl.vega. 1 stuttu
spjalli við Hilmar Þorkelsson hjá
umferðardeild lögréglunnar kom
fram, að margir héldu að þessar'
mælingar færu aðeins fram á sól-
skinsdögum en auövitaö væri þaö
alrangt. Lögreglan reyndi. eftir
fremsta megni að halda ökuhraða
sem mest niðri og þetta væri
þeirra eina vopn í þeirri viöleitni.
Aðspurður sagði Hilmar að
árangur af þessu herta eftírliti
væri ótvfræður og væri það vel.
Þá sagöi Hilmar það mikiö atriði,
að sem flestir ökumenn kæmu i
lið meö lögreglunni I starfi þeirra
aö bættri umferðarmenningu, og
er vlst óhætt aö tak undir þaö-
Hilmar sagöi, aö við radarmæl'
ingar væri algengasti hraðinn frá
70 km. hraða ogupp I 90 — 95 km.
hraða, en siðan væru margir
teknir á yfir 100 km hraða og
langt yfir. T.d. hefði einn öku-
maður veriö tekinn á Suöurlands-
vegi við Rauðavatn á um 130 km
hraða I síöustu viku.
0FRÍKI VERKALÝÐSFÉLAGS GEGN VERKAMANNI
— vildi reka hann af félagssvæði fyrir ósæmilegt orðbragð við stjórnarmenn félagsins
HEI — Eru hlutirnir ekki farnir
að snúast við, þegar atvinnurek-
andi þarf að standa i vörn fyrir
starfsfólk sitt gegn verkaiýðsfé-
lagi staðarins? Flestum þykir
þetta Uklega Ukast öfugmæli, en
þó er áþekkt mál I gangi 1 ólafs-
vik þessa dagana.
Tildrögin eru þau, að fullgild-
ur félagi I Verkalýösfé-
lagi Borgarness, réði sig um
tveggja mánaöa Uma til vinnu I
Hraðfrystihúsi ólafsvikur. Þá ber
svo við, að forsvarsmenn verka-
lýðsfélagsins Jökuls I Ólafevik
heimta af honum gjald, nánast
jafn hátt og ársgjaldið tíl Verka-
lýðsfélags Borgarness, sem
maðurinn gat sýnt gögn fyrir aö
hann hafði greitt. Þar sem enginn
á að þurfa að greiða margfalt
gjald til verkalýösfélaga, þótt
hann vinni á fleiri en einum stað,
samkvæmt lögum Verkamanna-
sambands Islands, vildi
maöurinn ekki taka þvi þegjandi
að gengið væri á rétt hans og
neitaði að greiöa gjaldið.
Viö þessu brást Jökull á þann
hátt, aöskrifa bréf til Hraðfrysti-
hússinsogkrefjast þess aö maður
þessi væri rekinn úr vinnu, og
burtu af vinnusvæði félagsins.
Sakargiftin, sem nefnd var i
þessu merkilega bréfi, var þó
ekki talin vangreidd gjöld heldur
að maðurinn heföi haft i frammi
ósæmilegt oröbragð við starfs-
mann og stjórnarmenn verka-
lýðsfélagsins.
Að sögn mannsins, hefur verk-
stjóri frystihússins staðið með
honum I málinu, en húsið þó orðiö
aö láta undan og greiða umrætt
gjald, sem hann býst viö að verði
innheimt af honum við næstu út-
borgun.
Einnig hefi hann leitað liösinnis
Verkamannasambandsins sem
virtist máttlaust I málinu til
þessa. Verkalýösfélag Borgar-
ness hafi lika reynt aö fá réttan
hlut þessa manns, og fleiri sem
állka er ástattum, enþvl hafi lltið
orðiö ágengt viö ofurmennin i
Ólafsvlk enn sem komiö er.
Þótt hér sé fyrst og fremst um
að ræða mál eins manns, þá er
þaö engu aö slöur alvarlegt mál
fyrir þann hóp fólks, sem leitar
sér vinnu á hinum ýmsu ver-
stöðvum landsinseftir árstimum,
ef einstök verkalýðsfélög ge*a
eftír geöþótta heimt margföld fé-
lagsgjöld af fólki, án þess aö það
njóti neinna réttinda viökomandi
félaga I staðinn.
Er þvl vonandi aö svona mál
séu einsdæmi.