Tíminn - 28.07.1979, Blaðsíða 13

Tíminn - 28.07.1979, Blaðsíða 13
Laugardagur 28. júli 1979. 13 Aðalfundur Tæknifræðinga- félags íslands haldinn nýlega Aðalfundur ' Tæknifræðingafé- lags tslands áriö 1979 var nýlega haldinn að Hótel Loftleiðum. Fundarstjóri var kosinn Kristján Kristjánsson og fundarritari Sigurður Georgsson. Fráfarandi formaður, Ingvi I. Ingason, flutti itarlega skýrslu um starfsemi félagsins á siðast- liðnu starfeári, fjallaði hann m .a. um stjórnarfundi, félagsfundi, kynningarfundi með nemendum Tækniskóla tslands væntanlega aðild félagsins með Verkfræðifél. tslands að ,,FEANI”-(Fédération Européenne D’Associations Nationales D’Ingenieurs). A fundinum kom einnig fram, að danska menntamálaráðuneyt- iðhefðisentfrá sérsérstaka stað- festingu um, að tæknifræðingar frá dönskum tæknifræöiskólum (Ingenior Teknium) hefðu Bachelor of Science gráðu að loknu námi. Þá tók til máls gjaldkeri félags- ins og skýrði reikninga þess og voru þeir samþykktir samhljóða. Kosin var stjórn félagsins og skipa hana þessir menn: Jón Sveinsson, formaður, Guömund- ur S. Guðmundsson, Heimir Sigurðsson, ÞorleifurFinnsson og Gisli Gislason, Bolli Magniisson og Hermann Hermannsson. Forstjóri Alþjóöaorkumálastofnunar- innar i heimsókn: OLIU- 06 ORKUMÁL TILUMRÆÐU I byrjun næstu viku er vænt- anlegur hingað til lands dr. Ulf Lantzke, forstjóri Alþjóðaorku- málastofaunarinnar (International Energy Agency) i Paris. Varhonum boðið til við- ræðna við islensk stjórnvöld að frumkvæði oliuviðskiptanefnd- ar, en auk hennar mun hann ræða við iðnaðarráðherra og fulltnla viðskipta- og iðnaðar- ráðuneyta. Ætlunin er, að i þessum viðræðum verði bæöi fjallað um oliu- og orkumál almennt svo og um hugsanleg samskipti íslands og Alþjóða- orkumálastofnunarinnar i framtiðinni. Olafi S. Andrés- syniveitt- ur EMBO- styrkur Sameindalfffræðisamtök Evrópu (European Molecular Biology Organization, EMBO) hafa veitt Ólafi S. Andréssyni, liffræðingi, styrk til rannsókna við Edinborgarháskóla frá hausti komanda. Styrkurinn er til eins árs. ólafur lauk B.S.-prófi i liffræði frá Háskóla tsiands 1974, með ágætiseink- unn, og hefur stundað rannsókn- ir og framhaldsnám I lifefna- fræði og sameindaerfðafræði við háskóiann i Wisconsin frá hausti 1975. Ólafur mun væntan- lega ljúka doktorsprófi þar i haust og halda þá til frekari rannsóknastarfa I Edinborg. EMBO eru samtök um 300 sameindaliffræðinga I Evrópu og tsrael. Þau skipuleggja nám- skeið sem er m.a. ætlaö að kynna nýjungar i rannsókna- tækni og veita styrki til að efla alþjóðlega rannsóknasamvinnu. Samtökin voru stofnuö 1963, en árið 1969 ákváðu rikisstjórnir þrettán Vestur-Evrópurikja að koma á fót alþjóðastofnun, Sameindali'ffræðiþingi Evrópu (European Molecular Biology Conference, EMBO), sem skyldi fjármagna EMBO og vinna þannig að aukinni sam- vinnu Evrópurikja á þessu sviði. Nú eiga 17 riki aðild að þinginu, þ.e. flest lönd Vest- ur-Evrópu og tsrael. tsland hef- ur verið aöili frá 1978 og hefur fulltrúi þess á þinginu verið dr. Baldur Simonarson, lifefna- fræðingur við Tilraunastöð Há- skólans í meinafræði að Keld- um. Frá 1970 hefur EMBO veitt yfir 1500 styrki til þriggja mán- aða og um 900 ársstyrki, og haldin hafa verið um 250 nám- skeiö og vinnuráðstefnur. Alþjóðaorkumálastofnunin er undirstofnun Efnahagssam- vinnustofnunarinnar i Paris (OECD), og eru öll aðildarriki' OECD þátttakendur i henni að fjórum undanteknum, og er Is- landi þeim hópi. Verkefni stofn- unarinnar eru margvisleg, þ.á m. samræming stefnu þátt- tökurikja á sviði oliumála, orkusparnaðar og rannsókna á nýjum orkulindum. Italskar kartöflur leysa ey- firskar af hólmi KEJ — t verslunum I Reykjavik er nú boðið upp á kartöflur úr Eyjafiröinum og er það það sið- asta sem verður af Islenskum kartöflum á markaðnum fram að uppskeru i haust. Að sögn Jóhanns Jónssonar forstjóra Grænmetisverslunar Landbúnað- arins munu ftalskar kartöflur koma til landsins um miðja næstu viku og væntanlega I verslanir viku eða 10 daga af ágúst. Ekki kvaðst Jóhann geta sagt til um hvert verð þeirra yrði þar sem sú ákvörðun væri alveg i höndum Landbúnaðar- og fjár- málaráöuneytisins. Islensku kartöflurnar eru nú niðurgrádd- ar um 90 krónur kilóið. Otlit með sprettu i íslenskum kartöflugörðum er enn sem kom- iðer mjög svart en þess ber þó að minnast að vöxtur á kartöflum á' siðasta mánuði i fyrra var með eindæmum hraður og ekki öll nótt úti enn þó svo hraður vöxtur komi nokkuð niður á gæöum kartafl- anna eins og Islenskir neytendur hafa þótst veröa varir við i vetur. Myndina sem hér fylgir með tók ljósmyndari Timans, Tryggvi, I Grænmetisverslun Landbúnaðarins i gærdag.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.