Tíminn - 14.10.1979, Page 16
16
Sunnudagur 14. október 1979
t
Umsjón:
Eiríkur S. Eiríksson
NUTIMINN
Einn þekktasti gítar-
leikari Breta látinn
Eins og fram hefur
komið i fréttum, þá lést
nýlega i Lundúnum,
gitarleikarinn Jimmy
McCulloch, en hann
var einn virtasti rokk
gitarleikari Breta.
McCulloch, hóf feril sinn meö
smá hljómsveitum og þaö var
ekki fyrr en um 1970 að Pete
Townsend, gitarleikari The Who
uppgötvaöi þennan efnilega
tónlistarmann. Townsend kom
McCulloch á framfæri við rétta
aðila og varð það til þess að
hann komst f hljómsveitina
Thunderclap Newman, sem
vakti töluverða athygli á sinum
tima. McCulioch lék sfðan með
hijómsveitinni Stone the crows
og árið 1975 gekk hann I hljóm-
sveit Paul McCartney, Wings.
McCulioch iék meö Wings á
fjórum plötum, og meöal laga
sem hann samdi fyrir Wings var
lagið „Medicine Jar”, sem var
á plötunni „Venus and Mars”.
Eftir að McCulloch hætti i
Wings tók hann m.a. þátt i að
endurvekja Small Faces, en það
samstarf fór út um þúfur
snemma á siðasta ári. Hann
stofnaöi þá hljómsveitina The
Dukes og með henni lék hann
alit til dauðadags.
Þess má geta að The Dukes
sendi nýlega frá sér sina fyrstu
plötu og samkvæmt upplýs-
ingum eins iiðsmanna hljóm-
sveitarinnar hafa The Dukes i
hyggju að haida eitthvað áfram
og voru þeir þvi byrjaðir að
svipast um eftir nýjum gitar-
leikara, þegar i siðustu viku.
9 Jimmy McCulloch.
Rokk gegn kjarnorku?
Bruce Springsteen
Hinn kunni tónlistarmaður Bruce Springsteen mun innan tíðar
senda frá sér nýja hljómplötu, þá fyrstu síðan „Darkness on the
edge of town" kom út í fyrra.
A plötunni með Springsteen verður hljómsveit hans E Street
Band, en útgáfudagur plötunnar, sem enn er óskírð, verður
væntanlega i desember.
Þess má geta að Bruce Springsteen kom nýlega fram á hljóm-
leikum í New York, sem haldnir voru til þess að mótmæla kjarn-
orkuverum og þótti honum og hljómsveit hans takast einstaklega
vel upp, þannig að væntanleg plata ætti að lofa góðu.
• Iggy Pop.
Iggy Pop og
Patti Smith
taka saman
höndum
Einn athyglisverðasti
„punk" listamaður Bret-
lands í dag er furðu-
fuglinn Iggy Pop, en
hann sendi nýlega frá sér
hljómplötuna „New
Waves"
Þessi plata varð til þess
að opna augu almennings
fyrir tónlistarhæfileikum
Iggy Pop, og nú er
kappinn kominn af stað á
ný og ný plata væntanleg í
byrjun næsta árs.
Til liðs við sig fyrir plötugerð-
ina hefur Iggy Pop fengb ekki
ófrægari listamenn en Patti
Smith og bassaleikara hennar
Ivan Kral, en aðrir sem koma
við sögu eru eftirtaldir:
Klaus Kruger, trommur, Clen
Matlock, bassi (en báðir þessir
menn aðstoðuðu Pop á siðasta
ljómleikaferðalagi), Steve
New, gitar, fyrrum meðlimur
Rich Kids, og Barry Andrews,
hljómborð, en hann var áöur I
hljómsveitinni XTC.
Allir þeir sem taldir eru upp
hér að framan, utan
Andrews munu aðstoða Iggy
Pop á væntanlegu hljómleika-
ferðaiagi um Bandarikin, en
nýja platan kemur út eins og
áður segir I byrjun næsta árs.