Tíminn - 27.11.1979, Blaðsíða 5
Þri&judagur 27. nóvember 1979
5
Halldór Asgrímsson:
Fólk vill markvissar aðgerðir
en orðiö leitt á eilifu verðbólgutali, talnaflóði og prósentum
HEI — „Þaö er mikið kosninga-
starf i gangi hjá framsóknar-
mönnum hér á Austuriandi,
enda eru menn staöráönir i þvi
aö rétta okkar hlut eftir áfalliö i
si&ustu kosningum. Ná bæöi
fyrra forystuhlutverki hér og
okkar þrem þingmönnum aftur,
sem viö teljum vera mögulegt.
En til þess a& svo megi veröa
þurfa auövitað ailir a& ieggjast
á eitt”.
Þetta sagöi Halldór Asgrims-
son sem nú er 2. maður á lista
framsóknarmanna i Austur-
landskjördæmi, nýlega. Hall-
dór var fyrst kosinn á þing 1974,
þá aöeins 27 ára gamall
Hann er einn af fjölda ungra
manna sem nú skipa Fram-
sóknarlistann i Austfjaröakjör-
dæmi, þar sem 2., 3., 4., 5., 6 og
9. sætiö er skipaö fólki af eftir-
striöskynslóðinni, þar af þrir
undir þritugu. Um þetta fólk
fórust Vilhjálmi Hjálmarssyni,
fyrrv. alþingismanni svo orö i
frambjóðendakynningu Fram-
sóknarflokksins: „Þetta er fólk,
sem gerþekkir austfirskar að-
stæður, vinnur að félagsmálum
og tekur þátt I landnámi nýrra
tima hvert á sinu sviði. Allt er
þettafólká ágætum starfsaldri,
borið og barnfætt á Austurlandi
eða hefur haslað sér hér völl að
loknu námi”.
Timinn spurði Halldór hverj-
um augum Austfirðingar litu á
þjóðfélagsmálin um þessar
mundir.
„Fólk er afskaplega mikið
hugsandiyfirþviástandi sem er
I þjóðfélaginu. öllum er auðvit-
aðljóst.að það verðbólguástand
sem verið hefur, getur ekki
gengið i það óendanlega, heldur
verður að vinna bug á þvi. Hins-
vegar er fólk orðið afskaplega
leitt á hinu eilifa tali um verö-
bólguna, og öllu þessu prósentu-
og talnaflóði, sem bæði fram-
bjóöendurog fjölmiðlar ausayf-
ir það á degi hver jum. En fólkið
vill fá einhverjar markvissar
aðgeröir I þessum málum.
Aftur ámótihefégþóekkihitt
marga sem telja einhverja von
til þess að vinna á veröbólgu-
draugnum með þeim aðferðum
A
.
lHi
„Segja má aö þennan tima hafi ég stundaö sjómennsku og siöan félags-
málastörf, sem ég hef veriö mikiö i aö undanförnu” sagöi Halldór er
Timinn spuröi viö hvaö hann hafi starfaö frá siöustu kosningum. Þessi
mynd var tekin af Halldóri á bryggjunni á Höfn I fyrrahaust, en hann
var þá á sildarbát.
sem sjálfstæðismenn boða nú,
þ.e. i einu vetfangi. En það er
allt að þvi á sjálfstæðismönnum
að skilja að þetta megi gera i
einum matartima. En miðað við
þá miklu baráttu sem háð hefur
veriðviö þennan draug á undan-
förnum árum, leggja menn lit-
inn trúnað á aðþetta sé hægt svo
fyrirhafnarlitið.
Úti á landsbyggðinni hafa
menn afskaplega mikinn áhuga
fyrir sinum framfaramálum”
svaraöi Halldór er hann var
spuröur um málefni sem sér-
staklega brynnu á Austfiröing-
um. „Þótt hér hafi orðið mikil
atvinnuuppbygging á undan-
förnum árum, má segja að
félagsmálin og uppbygging
opinberrar þjónustu hafi ekki
fylgt nægilega i kjölfarið. Einn-
ig hafa smæstu staöirnir orðið
nokkuð útundan.
Menn hugsa lika mikið um
orkumálin, en i þeim hefur
Austurland orðið útundan, svo
hér blasir við vandræðaástand á
næstunni. Austurland býr yf-
ir miklum auö i vatnsorku og
auðvitað er það eitt brýnasta
málið hér, að takast á við þau
framtlðarverkefni sem felast i
þeim auði.
Einnig er það hið mikla órétt-
læti i húsahitunarmálum. Það
brennur mjög á fólki hér, aö ein-
hver aðstöðujöfnun fáist fram I
staö þess gifurlega ójafnaðar
sem nú rikir, þegar fólk þarf
kannski áð grefða allt að 10
sinnum hærra verð fyrir aö hita
upp hús sin hér, en á Reykja-
vikursvæðinu.”
Fundur kaupfélagsstjóra:
Stefna skal að
hvetjandi
launakerfi
FRI- Fyrir nokkru var haldinn
fundur kaupfélagsstjóra i
Hoitagöröum i Reykjavfk. Auk
fastra liöa á fundinum þá var
fjallaö um hvetjandi launakerfi
I smávöruverslunum hérlendis.
Máliö var undirbúið af
Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna. Framsögu-
maöur var Július Valdimarsson
framkvæmdastjóri Vinnumála-
sambandsins. Fundurinn sam-
þykkti álytkun um það að stefna
að þvi að taka upp hvetjandi
launakerfi. Þetta getur komið
til með aö veröa stórmál i sam-
vinuversluninni.
A fundinum flutti Erlendur
Einarsson forstjóri SIS bráða-
birgöaskýrslu um rekstur og af-
komu sambandsfélaganna frá
áramótum. Talaði hann um
störf Sambandsins og um rekst-
ur Sambandsins og kaupfélag-
anna frá áramótum.
Umræður urðu um skýrslu
markaðsráðs, en það er nefnd
sem er samstarfsnefnd kaup-
félaganna og Sambandsins um
vöruval og annað sem lýtur að
versluninni i heild.
Auk sérmálsins um hvetjandi
launakerfi var annað sérmál til
umræðu á fundinum. Var þaö
vaxtareikningur I viðskiptum
kaupfélaga við viöskiptavini
sina. Eiginlega um vaxtatöku i
viöskipta reikningum kaup-
félaganna. Framsögumaður
var Geir Magnússon fram-
kvæmdastjóri fjármáladeildar
Sambandsins. Það var
samþykkt ályktun sem sérstök
nefnd haföi undirbúið um það
hvernig beri að reikna vexti af
viðskiptum kaupfélaganna við
viðskiptavini sina.
Forsætisnefnd Norðurlandaráös:
Auglýsir starf
upplýsingastj óra
— á skrifstofu nefndarinnar i Stokkhólmi
Verkefni upplýsingastjórnans
eru m.a.:
að fjalla um erindi sem varða
upplýsingar innan Noröurlanda
og utan um Norðurlandaráð og
norrænt samstarf að öðru leyti,
aö veita upplýsingadeildinni for-
stöðu, að vera ritari upplýsinga-
nefndar Noröurlandaráös.
Umsækjandi um starfið verður
að kunna góð skil á samstarfi,
þjóöfélagsmálum og stjórnarfari
Noröurlanda.
Upplýsingastjórinn nýtur sömu
launkjara og starfsmaður I
launaflokki F 23 i Sviþjóð (nú 10
586 sænskar krónur á mánuði), en
fær auk þess sérstaka uppbót.
Starfið verður veitt til fjögurra
ára, en möguleiki á framlengingu
allt að tveimur árum.
Nánari upplýsingar um starfs-
svið og starfsskilyrði fást I for-
sætisskrifstofunni (hjá Gudmund
Saxrud skrifstofustjóra) eða
Harry Granberg upplýsinga-
stjóra), simi 08/14320.
Umsóknir skal senda forsætis-
nefnd Norðurlandaráðs og berast
henni i siðasta lagi 12. desember
1979.
Utanáskriftin er: Nordiska
radets presidiesekretariat, Box
19056, S-104 32, Stockholm 19.
Upplýsingar fást einnig hjá rit-
ara Islandsdeildar Norðurlanda-
ráðs, Friöjóni Sigurðssyni skrif-
stofustjóra Alþingis, simi 15152.
REnniHURÐH SKHPHR
ERU SÍGILD LAUSN
Auðveldir i uppsetningu
fyrir hvern sem er.
Viðartegundirnar teak, eik
og álmur ávallt fyrirliggjandi.
við sendum um land allt,
en útsölustaðir okkar
em:
JL-húsið Reykjavík,
Húsgagnakjör Reykjavík,
Húsgagnaverzlun Axels EyjóHssonar
Kópavogi,
Nýform Hafnarfirði,
Bústoð Kefiavík,
Kjörhúsgögn Seffossi,
Bólsturgerðin Sigkifirði,
Vörubœr Akureyrí
Kaupfólag Þingeyinga Húsavík,
Verzkin Elíasar Guðnasonar Eskifirði og
Egilsstöðum.
Vinsamlega sendiö mór upplýsingar um skápana.
5 hentugar stærðir.
Hæð:
Breidd
Dýpt:
Hæó: 173 sm.
Breidd:. 110 sm.
Dýpt: 60 sm.
240 sm.
110 sm.
65 sm.
Nafn
Breidd A: 175 sm
Breidd B: 200 sm
Hæö: 240 sm
Dýpt: 65 sm
Heimili
Hæó: 240 sm.
Breidd: 240 sm.
Dýpt: 65 sm.
AXEL EYJOLFSSON
HUSGAGNAVERSLUN SMIÐJUVEGI 9 KOPAVOGI SIMI 43577