Ísafold - 21.04.1876, Side 4

Ísafold - 21.04.1876, Side 4
32 mannsins sjálfs, því þeir stæðu bezt að vígi til að koma brotinu upp. En því var svarað heppilega á þá leið, «að það væri engin siðaspilling, að þjónar segðu til, ef lávarðar þeirra yrðu lögbrotar; hitt væri meiri siðaspilling, ef þeirra væri freistað til að vera dyljendur lög- brota þeirra, er þeim væri kunnug» (Benid. Sveinsson, Alþ.tíð. 1875, 15.147). Gjaldheimtumenn (lögreglustjórarn- ir) fá 2 af hundraði í innheimtulaun, eins og af brennivínstollinum. Með auglýsingu 16. febr. þ. á. hefir ráðgjafinn samkvæmt allrahæstum úrskurði ll.s. m. sett nákvæmari regl- ur um, hvernig framfylgja skuli tóbaks- tollslögunum. þar er meðal annars mælt svo fyrir, að dómstólarnir skuli ákveða allar sektir eptir lögunum. — Tolllög þessi hvorutveggja verða að öllum likindum eitthvert vinsælasta verk hins fyrsta löggefandi alþingis (á þessari öld); svo þrámælt hefir mönn- um lengi verið 'um, að nauðsynlegt væri að reyna að stöðva hið háskalega ólióf á munaðarvörukaupum vorum. Allir hljóta líka að kannast við, að eng- ar álögur eru ljettbærari en óbeinir skattar eða tollar, einkum ef þeir eru eigi lagðir á annað en ónauðsynjavöru. Menn eru alvanir við, að prísar á kaffl, tóbaki og brennivíni hækki um nokkra aura á ári, og því skyldi þeim ekki standa á sama, hvort það er kaupmað- urinn eða landsstjórnin, sem hækk- uninni veldur, nema hvað þeim ætti að þykja vænna um, að landssjóðurinn njóti hennar. Þar á móti er mönnum mjög tilfinnanlegt, þegar jafnaðarsjóðs- gjaldið hækkar stórum ár frá ári, og svó er um alla beina skatta. Auk þess geta beinir skattar, hvað þungir sem þeir eru, aldrei gefið neitt af sjer á við tollana. Síðasta árið, sem til er landsreikningur fyrir, eða árið 1874, gaf brennivínstollurinn af sjer eins margar þúsundir ríkisdala (27000), eins og konungstíundin hundruð (2739), og þykir tíundin þó eigi all-ljett álaga. Að minnsta kosti leikur það orð á, ekki sizt um suðurland, að fæsta langi til að tíunda meira en þeir komast minnst fram með. þar sem ekki eru nema beinir skattar, geldur óreglu- og óhófs- maðurinn ekkert í landsþarfir, því hann á optast ekkert að gjalda af, mundi jafnvel þykjast verða hart úti, ef hann væri látinn gjöra það; en óbeinaskatt- inn eða tollinn geldur hann möglun- arlaust, brennivínstollinn og tóbakstoll- | inn dags daglega, ef hann fær sjer dag- lega í staupinu og tekur í nefið. Auglýsingar. — §arnskot til að styrkia Guð- mund Hjaltason til að ferðast til norsks bændaháskóla. — Frá Nýjabæ á Sel- tjarnarnesi 19 kr. 61 e. (Brynjólfur Magnússon 6 kr. Halldóra Guðmunds- dóttir 4 kr. Steini Halldórsson, Pjetur Árnason og Jónas Ólafsson hver 1 kr., Gísli tórðarson 66 a., tórólfur Jóns- son og Bjarni 50 a. hvor. Þar að auki gaf 1 41 e., 9 hver 33 a., 2 hvor 25 a , 1 27 a og 5 hver 16 a.j. Ólafur bóndi Guðmundsson í Mýrarhúsum 18 kr., Þórður bóndi Jónsson sama st. 4 kr., Ingjaldur hreppstjóri Sigurðsson á Lambastöðum 4 kr.. Alþingismenn gáfu alls 63 kr. (Jón Sigurðsson þingm. ís- firðinga 5 kr , Benidikt Kristjánsson 4 kr., Tryggvi og Eggert Gunnarssynir hvor 3 kr., ísleifur Gíslason, I’áli Páls- son þingm. Skaptf., þórður þórðarson, Hjálmur Pjetursson, Þorsteinn Jóns- son, Guðmundur Ólafsson, Páll Páls- son þingm. Húnv., Einar Gislason, Jón Sigúrðsson þingm. þingeyinga, þórður Jónasson, Snorri Pálsson, Einar Ás- mundsson, Benidikt Sveinsson, Þórar- inn Böðvarsson, Pjetur Pjetursson, Ól- afur Pálsson, Jón Hjaltalín, Eiríkur Kúld, Bergur Thorberg, Torfi Einars- son, Sighvatur Árnason, Stefán Eiriks- son, Jón Pjetursson og Ásgeir Einars- son hver 2 kr.). Guðbrandur bókhald- ari Finnbogason 3 kr., Jón faktor Steffensen 2 kr. Magnús yfirdómari Stephensen 2 kr., Böðvar bókbindari þorvaldsson 2 kr. Friðrik bókhaldari Fischer 2 kr. Benedikte Arnesen Kall 5 kr. Jakobsen skóari 2 kr. Jón rit- ari Jónsson 20 kr., alls 147 kr. Loks- ins skal eg geta þess, að ritstjóri ísa- foldar hefir prentað kauplaust áskorun- ina um samskot frá 4. sept. f. á. (ísa- fold II 17), og að ritstjórar ísafoldar og Þjóðólfs hafi eigi viljað þiggja borgun fyrir þessa skýrslu. Um leið og jeg þakka hinum heiðr- uðu geföndum fyrir þessar gjafir sínar, skal jeg geta þess, að allt útlit er fyrir að fyrirtæki það, sem þeir svo góð- fúslega hafa stutt, muni blessazt, og fer skáldið Kristofer Janson, sem áður hefir verið forstjóri bændaháskólans í Gausdal, í brjefi til mín frá 14. janúar þ. á. meðal annars þessum orðum um það: «Eg trur de hava funnet retta mannen, dá de sendde Guðmund hit, og eg trur han er ein av deim, som vil gjöra sig best nylte av skulen, men han maa vere her lenger, skal han fá ret fast grunn at slanda pá». Fyrir ferð Guðmundar hjeðan til Björgvinar með seglskipi og frá Björgvin á gufuskipi og járnbraut til Gausdals hefi jeg lagtút 71 kr., og það sem eptir er af ofannefndum samskotum alls 147 kr. nægir ekki lil að borga fyrir fæði Guðmundar við skólann í vetur í 6 mánuði, 28 kr. á hverjum mánuði, alls 168 kr. Með því að þar að auki virð- ist æskilegt að styrkja Guðmund til að vera á skólanum enn einn vetur, leyfi jeg mjer að ítreka áskorun mína frá 4. septbr. þ. á. um að styðja þetta fvrirtæki. Reykjavík 18. apríl 1876. Jón Jónsson, landritari. Nærsveitamenn geta vitjað ísafold- ar í a p ó t e k i n u. | o 1 P O o ?H <2 | 8 0 ci U <P ?H > O rC c£ _ ’bb •rt rO Ph g © 00 _ o ö Qj •+=> 03 £ & 5h • rH r—í > CÆ o ^^5 2» Ld o> rO o ei S h fi £ S8 C. W. Salomon <fc Co. Prima valskegraa Kogeærter Prima Lollandske gule Kogeærter (letkogende) Prima Möenske grönne Kogeærter (Sukkerærter) Kussiske Taffel Dessert Ærter i 3 Kvaliteter Spanske Ærter (store, fra sidste Höst) Hollandske Lindser samt livide & brune Hönner Eussiske Mannagryn Leipziger Semoulegryn Ostindiske Sago i 3 Störrelser Ungarsk Stjernemel Helgisk Risstivelse • Java Ris (klare) Arrakan Ris Caroline Ris (store, gjennemsigtige) Ragoon Ris Italiensk Macaronni i forskjellige Tykkelser Franske Nudler Engelske Biscuits i 35 Sorter Holstenske Havregryn. M uAuquaqofji c aq <1 H- • O p cr* j- o cÓ O S- ° O í1 O rt CTq o rt o o p. p o O crq o o p- o ísafoKl kemur út 2 —3var á nnnu?)i, 3* bl. um áriö. Kostar 3 kr.a árgangurinu (er- Undis 4 kr.), stuk ur. 20 a. Sólulaun: 7. hvert expl. Arsveibiö greifcist í kanptíb, eta þá hallt á sumarmálum, hálft á haustlestum. Auglýsiugar eiu teknar í blafoií) fyrir 6 a. smáleturs- línan eba jafnmikib rúoi, en 7 a. rneö venjolegu meginmálsletri. — Skrifstofa Isafoldar er í Doktorshúsinu (í HliÖarhúsom). ltitstjóri: Bj Örn Jónsson, cand phil. Laudsprentsmiöjan í Reykjavík. Einar pórðarson.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.