Ísafold - 10.05.1876, Blaðsíða 1
I§90
á « n f o l b.
III 11. Miðvikudaginn 10. maímánaðar.
fsing'vallaírinduriiin.
í ísafold III 6. og fleirom blöðum
boðum við sira þórarinn í Görðum,
fund að fdngvöllum við Öxará, 27. júnf
næstkomandi, til þess, meðal annars,
að ræða um útrýmingu fjárkláðans.
þetta gjörðum við eptir brjeflegum og
inunnlegum áskorunum ýmsra merkra
manna í norðurlandi. En nú heflr rit-
stjóri Norðlings, í umboði fundar að
Akureyri l. marz þ. á., ákveðið þing-
vallafundinn 6 dögum síðar, eða 2.
júlí næstk. (sbr. 23. bl. Norðlings þ.
á.), og er auðsætt að tveir slíkir fnndir
eru óþarfir, og geta naumast átt sjer
stað. Nú með því að Norðlingar eru
aðalhvatamenn fundarins, og eiga lengst
aðdráttar að sækja hann, er ekkert á
móti því, að þeir fái að ráða, hvenær
hann er haldinn. f>ess vegna leyfl jeg
mjer að apturkalla fundarhaldið 27.júní;
en vænti þess, að þeir sem þann fund
hafa ætlað að sækja, snúi sjer að
fundinum 2. j ú I i.
þeir, sem ef til vill ætla sjer að
bera einhver málefni upp á fundinum,
vildu þvi snúa sjer til ritstjóra Norðl-
ings, en ekki til okkar sira l'órarins í
Görðum.
p. t. Ileykjavík 8. maí 1876.
Jón Sigurðsson,
frá Gautlöndum.
— PÓHtskÍpið (Arcturus) kom
lijer 3. þ. m., eptir 12 daga ferð frá
Iíhöfn. f>að fór aptur í morgun, eða að
eins 3 dögum síðar en ráð var fyrir
gjört í áætluninni. í næstu ferð á það
að bregða sjer til Stykkishólms og
sömuleiðis Í2 ferðunum þar á eptir. f>að
loforð er ítrekað í nýrri áætlun, sem
gufuskipafjelagsstjóruin, er gjörir Arc-
turus út, hefir gefið út í marzm. þ. á.
— Frá útlömlnin færði þetta
póstskip eigi miklar frjettir um fram
það, sem áður hefir borizt og sagt er
frá í síðasta bl. Danir voru sem ólm-
ast að búast til fóiksþingiskosniDganna,
er póstskipið fór. En öllum varhulið,
hvernig þær mundu fara. Fjárlögin
höfðu komizt fram á þinginu 29. marz,
en fólksþingið neitaði varnarlagafrum-
varpi stjórnarinnar, og vildi eigi veita
fje til að útvega fallbyssur með nýju
lagi. Fyrir þær sakir hleypti stjórnin
þinginu upp.
Af stjórnarbyltingunni í Mexico
bárust engar nýjar sögur að marki.
Orsök ófriðarins er sú, að Tejada, for-
setinn, sem nú er, siðan 1872, að
Juarez fjell frá, hefir þótt of afskipta-
samur um stjórn einstakra ríkja í sam-
bandinu — Mexico er bandaríki, mörg
o| smá — og viljað láta allsherjar-
valdsins gæta of mikið. Porfirio Diaz
hershöfðingi, sá er fyrir uppreistinni
ræður, er gamall byltingaseggur og illa
ræmdur.
Miklar og ófagrar sögur fara af
óráðvendni stjórnarmannaí Bandaríkjun-
um í Norðurameríku. »Þeir ætla að
sökkva landinu» — er oss skrifað það-
an. Til dæmis er hershöfðingi eiDn,
er Belknap heitir, og lengi hefir verið
leyndarskrifari Grants forseta og hans
önnur hönd, talinn sannur að sök um
stórkostlegan innbrotsþjófnað. fað
fylgir stjórnarháttum Bandamanna, að
embættismenn allsherjarstjórnarinnar
eru mjög valtir í sessi. Þessir em-
bættismenn eru nær 60,000 að tölu,
og verður mest allur sá hópur að fara
frá í hvert sldpti sem forsetaskipti verða,
en það er 4. eða 8. hvert ár. Hinn
nýi forseti skipar embættin sínum vin-
um og liðsmönnum, er stutt hafahann
til valda, og gengur svo koll af kolli.
Embættismenn þessir hafa lítil laun,
og engin eptirlaun. Afþessu má skilja,
að þeim verði á að seilast frekt til
fjárins, meðan valdsins nýtur, en mun-
aðarlífafskaplegt í Vesturheimi ogskraut-
girni, einkum í borgunum hinum meiri
og mest í höfuðstaðnum (Washington).
En «víða er í löndum pottur brot-
inn». Blöðin færa nú einnig þá sögu
af Grikkjum, að hæztirjettur í Aþenu-
borg hefir dæmt 2 ráðgjafa, er slepptu
völdum í vetur, fyrir að hafa selt em-
bætti hæstbjóðanda, annan í 10 mán-
aða fangelsi, hinn í 1 árs fangelsi,
33,000 kr. sekt og þriggja ára æru-
leysi. fað voru 3 biskupar, er em-
bættinu höfðu keypt, og urðu þeir að
láta úti tvöfallt á við múturnar.
Við Kínastrendur hefir lengi þótt
reymt af víkingum, og kanpför hjeðan
úr álfu orðið að sæta af þeim þung-
um búsifjum. Ilefir það optverið kært
fyrir stjórninni í Peking, en keisari eigi
fengið að gjört eða eigi hirt um að
refsa ódáðamönnum sem skyldi. Nú
hafa nokkur höfuðríki álfu vorrar tek-
ið sig saman um að taka til sinna ráða
og búa leiðangur á hendur víkingun-
um. Hafa þjóðverjar gjörst forgöngu-
menn að því, með því að víkingar
myrtu fyrir þeim heila skipshöfn eigi
alls fyrir löngu.
Carl F. Sáve, ágætur málfræðing-
ur sænskur, andaðist 27. marz þ. á.,
63 ára gamall. Eptir hann liggja ýms
ritverk í norrænni fornfræði, vönduð og
merkileg, og þótti hann í marga staði
ágætur maður.
Frakkar hafa misst einn meðal
hinna þjóðkunnu byltingagarpa sinna,
Blanqui gamla.
— 3\Tý lög'. ílinn 7. f. m. hefir
konungur vor ritað undir lögumping-
41
sköp tianda alþingi íslendinga. [>á
eru laxalögin ein eptir óstaðfest, auk
kláðalaganna sællar minningar, sem
neitað var um konungsstaðfestingu í
haust.
— Penlngabreytinffin.
Hinn 17. f. m. hefir konungur gefið út
tilskipun þess efnis, að hinar eldri
spesíumyntlr, sera getið er f tilsk. 31.
júlí 1818 6. gr., 2/3, \ og Vs úr
spesíu (áttmörk, hálfar spesfur, og íjög-
ur mörk), aðrar en hinar sljesvíkhol-
steinsku, er voru úr gildi felldar í fyrra,
skuli úr gildi gengnar 1. okt. 1876,
hvort heldur er í gjöldum til ríkissjóðs
(landssjóðs) eða manna á milli; sömu-
leiðis allar spesíur, spesíudalir, ríkis-
bankadalir, tveggjaríkisdalapeningar, rík-
isdalir og hálfir ríkisdalir, sem slegn-
ir eru samkvæmt seinni auglýsingum.
«Á íslandi og Færeyjum skulu samt
peningar þessir vera gjaldgengir þang-
að lil 6 mánuðir eru liðnir frá þeim
degi, að tilskipun þessi erbirt aimenn-
ingi á venjulegan hátt».
— Díana, strandsiglingaskipið,
sem á að verða í sumer, kvað nú eigi
muni verða ferðbúin frá Iíhöfn fyr en
seint í júnímánuði, og mun þess því
naumast hingað von fyr en einhvern
tíma um eða eptir miðjan júlímánuð,
og fer þá fráleitt nema 2 ferðir fram
og aptur. Áreiðanleg vissa um, hvar
hún á að koma við, er eigi komin
hingað enn, og er það óþægilegt;
munu ferðir hennar fyrir þá sök vafa-
laust miður notaðar en ella í þetta sinn.
Landshöfðingi hefir þó að undirlagi
innanrikisstjórnarinnar auglýst í stjórn-
artíðindunum (B 6), að «rjettast þyki að
láta Díönu koma í hverri ferð við á
Seyðisfirði, Raufarhöfn, Akureyri, ísa-
firði og í Stykkishólmi, og á Skaga-
strönd í 1. og 2. ferðinni frá Khöfn, og
á 1. ferðinni aptur í leið frá Reykja-
vík».
— Austflrðing'asaniskot-
unum í Danmörku er nú lokið, og
liafa þau orðið alls rúmar 27,000 kr.
— Vestnrlieimsferðir.
Fregn sú, um ófarirlanda vorra i «Nýja
íslandi» í vetur, sem hjer gekk staf-
aust eptir komu póstskipsins fyrstu
ferðina, og höfð var úr brjefum bæði
frá Englandi og Kaupmannahöfn, og
eptir farþegjum á póstskipinu, er nú
borin til baka, og virðist, sem betur
fer, tilhæfulaus. Enda mun nú óðum
fjölga vesturförunum víðsvegarum land,
og höfum vjer sannfrjelt, að nær 9
hundruðum fullorðinna manna sje nú
komnir á skrárnar hjá útflutningastjór-