Ísafold - 03.06.1876, Page 4
52
uft úfinn. Undir miðnætti sán þeir, er
þá höfðn vörð. skip koma siglandi af
liafi; hafði það vind á hlið, og hjelt !
fyrstu nokkuð slögótt, en er það nálg-
aðist, slel'ndi það beint á Olgu. Fóru
þá skipverjar þegar að kalla til hinna,
svo þeir yrðu sín varir, og hjeldu því
áfram, unz skipið var komið að þeim.
Stýrimaður Olgu Ijet gefa út stjórafær- I
ið, en það kom eigi að notum, sökum
þess að straumur bar undir vind, svo
jaktin lá fyrir slökum stjóra ; hið að-
komanda skip sigldi á Olgu flata með
fullri ferð. Skipverjar björguðu sjer allir
upp í skipið, sumir á nærklæðum, svo
sem þeir höfðu hlaupið upp úr rúm-
um sínum, er þeir heyrðu köllin og
brakið í Olgn ; skip það, er þeir nú
voru komnir í, var frakkneskt fiskiskip,
Yirgine að nafni nr. 24 frá Dunkirque.
Ilvorki frakkneska skipið nje Olga hafði
Ijós í vanti; hafði þeim á Olgu eigi þótt
þess þurfa, þar sem þeir segja að svo
hafi verið bjart, að sjá hafi mátt skip
að minnsta kosti hálfa raílu í burtu.
Daginn eptir fóru Olgumenn aptur að
skoða jakt sína jþannig, að hið frakk-
neska skip, er engau bát hafði, sigldi
þjett hjá Olgu, og stukku þá hinir
yfir, og tökst 6 það, 1 varð eptiri;
var þá fjarska mikill sjór kominn i
jaklina, hún mjög brotin, gat á henni
og vantur slitinn; dvöldu þeir þar að
eins fjórðung stundar og óx sjórinn í
henni um 4 til 6 þumlunga á þeim
tima. Sáu þeir að sjer mundi þar eigi
lengi vært, og björguðu sjer allslausir
með mesta hfsháska í tnjög miklum
osjó á litlum lekum og veikum skips-
bát aptur yfir í bið frakkneska skip.
þeir dvöldu I því til þess 17., að bátur
þeirra var settur út nál. I ‘/2 m>lu
I austur af Vestmannaey, í úfnum sjó
og vindi á móti, og Olgumöunum
gefið að skilja, að nú skyldu þeir
fara. Skipstjóri Olgu bað hinn frakk-
neska skipstjóra að sigla nær landi
með þá (lengra), en hanu setti þar
þvert nei fyrir; urðu þeir þvi að fara
i bátinn, og náðu landi með mesta
lifsháska, og höfðu orðið að standa í
austri alla leið, þar sem báturinn var
lekur og ofhlaðinn með 7 mönnum í
úfnum sjó. Tvisvar áður hafði hinn
frakkneski skipstjóri viljað losazt við
þá, nfl. á föstudaginn langa, í austan-
stormi, dimmviðri og veltubrimi, fyrst
hjá Hjörleifshöfða og síðan hjá Dýr-
hóiaey; þar sem þetta var nál. hið
sama, og fleygja þeim í sjóinn, hafði
hann þó farið ofau af þvi fyrir bend-
ingar Olgumanna, og fortölur eins af
hinum frakknesku skipverjum.
Olgumenn láta illa yfir vistinni með
Frökkum. Að eins einn eða 2 af skip-
verjunum voru góðir við þá; höfðu þeir
aðbúnað illan, verra en ekkert legurúm,
viðurværi miklu verra en Frakkar, en
urðu þó að vera á verði og undir færi
til jafns við Frakka, og höfðu 2 afþeim
dregið miklu betur en nokkur af Frökk-
um; einungis skipstjórínn afOlgu hafði
haft þar allgóða æfi. Til merkis um
menntunarstig og mannúð þessarar
skipshafnar má og gela þess, að þeir
höfðu sleppt ýmsum fiskum lifandi, t.
d. skötu, háfi og flestum luðum, en
alia þessa fiska höfðu þeir eitthvað
sært áður: blindað flesta þeirra. skorið
í tálknið, neðri skoltinn t’rá, trjónuna
eða halann af skötunum, og haft hið
mesla yndi af þessum þorparaskap sín-
um. það er vonandi að þessi fátæka
eyja, eða þeir eyjabúar, er tjón
þetta biðu, verði eigi látnir hafa það
svo búið, en fái bætur fyrir skaðann
og skipverjar auk þess fyrir hrakninga
sína, og lifsháska, og að skipstjórinn
frakkneski fái makleg iðgjöld fyrir þetta
afrek sitt og breytni sína við skipbrots-
menn eptir á.
Vestrnannaeyjum, 23. d. aprílm 1876.
l'orsteinn Jónsson.
—rlTínniitjóii af slysiorum.
Hinn 31. f. mán. týndist fjögramanna-
far, frá Ilrólfsskála á Seltjarnarnesi, á
uppsiglingu af Sviði, með 5 mönnum
á, í versta hrakviðrisstormi á austan.
— Hrossaítimpiiskip herra
Slimons, Fusilier (220 tons, Jaques)
hafuaði sig hjer l.þ. in. Með því kom
sira Matt. ritstjóri Jochumsson. — það
fór aptur í nótt, með 300 hross.
Meö skipi þessu sigldi aptur snöggva
ferð til Englands og Danmerkur laud-
lækuir vor, Dr. Jon Hjaltalín.
— Vestiirlieimsíerdir. Uinn
23. þ. m. á útfaraskip Allan-fjelagsins
að leggja af stað hingað frá Glasgovv,
og á að fara aptur frá Borðeyri 28.,
Irá Sauðárkrók 30. s. m., og frá Akur-
eyri 1. julí, með allt safnið af þessum
3 höfnum. Síðan fer það aðra ferð
hingað til Seyðisfjarðar, eptir Austfirð-
ingum, og á að verða ferðbúið þaöan
aptur 13. júlí. Skipið heitir Verona,
(gufuskip) og er 1600 tons, sjálfsagt
langstærsta skip, er hjer hefir sjezt.
Eptir því sem umboðsmenn fjelagsins
hafa skýrt oss frá, verður farareyrir
121.50 kr. á mann, alla leið til Quebec,
að frátöldu fæði á leiðinni til Englands,
sem ætlazt er til að útfarar hafi sjálfir
með sjer.
Útlendar frjettir
Vrá Danmörku hafa síðustu skip
flutt þau tíðindi, að vinstrimenn hafa
unnið ágætan sigur i fólksþingiskosn-
ingunum 25. f. m., svo að þeir ern nú
74 saman á þingi, en lið hægrimanna
einir 28. Áður stýrðu vinstrimenn að
eins rúmum helming atkvæða, og það
þótli hinum of lítið til þess að þeir
gætu átt heimtingu á að skipa ráða-
neyti konungs. En hvað ætli þeirsegi
nú? — Meðal nafQkendra Hægrimanna,
er Vinstrimenn lögðu að velli i þessari
kosningahríð, sern Danir muna enga
jafnsnarpa, nefnum vjer þá Klein ráð-
gjafa vorn fyrverandi, og Holstein- Hol-
steinborg greifa, er ráðaneyti stýrði
1870—74. Klein felldi ungur greifi,
Tramp að nafni (kjördæmi Kleins var
Álaborg). — Hinn 28. apríl hefir kon-
ungur stefnt hinum nýju þingmönnurn
til aukapingsetu 15 f. m., og mun mega
telja víst.að þinginn hafi verið eða verði
hleypt upp á nýjan leik, áður stjórnin
og jiennar liðar gefa upp bardagann.
Ofriðurinn í Tyrkjalöndum er allt af að
færast út ogvandræðiTyrkjans óbotnandi.
Uppreistin í Mexico stendur enn, og
er eigi skriðið til skara með vegendum.
í þjóðveldinu Hayti í Vestureyjum er
og uppreist síðan í vetur: Forsetinn,Do-
minque, drepinn. Ýms spilivirki framin.
Hinn 29. apr. þ. á. hefir Bretadrottn-
ing tekið sjer keisaratitil á Indlandi.
Auglýsingar.
— það auglýsist hjer með, að frá
þessum degi og til 1. Septbr. þ. á.,
verður eigi beitutekja leyfð eða liðin
á Laxvog i Kjós.
Laxanesi og Neðrahálsi 24. maí 1876.
J>. Guðmundsson. J. Sæmundsson.
J. Guðmundsson.
Uppboð á Suður-Reykjiim.
— Samkvæmt beiðni óðalsbónda
Jóns Halldórssonar á Suðnr-Beykjum
í Mosfellssveit auglýsist það hjer með,
að föstudaginn 9. d. júnímán. næst-
komandi kl. 11 f. m. verðnr opinbert
uppboð haldið að nefnduin bæ Suð-
ur-Heykjum, og verða þar seld hæst-
bjóðendum allskonar búsgögn, bæði
utan húss og innan, svo og rúmfatn-
aður, og enn fremur, ef viðunanlegt
boð fæst, lifandi peningur, bæði kýr
ær, sauðir, gemlingar og hestar.
Skilmálar verða birtir á nppboðs-
staðnum áður en uppboðið byrjar.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbringusýslu
30. maí 1876.
L E. Sveinbjörnsson.
— það auglýsist hjer með, að jeg
tindirskrifaður samkvæmt þar til gef-
inni fullmakt og brjefi dagsettu 18.
apríl þ. á. frá þeim herrum R. B.
Symington & Co í Glasgow á Skotlandi,
hefir i dag veitt yfirrjettarprokurator
Guðmundi Pálssyni í Reykjavik umboð
til að innheimta, ef þörf er á rneð
lögsókn, allar skuldir þær, tilhevrandi
fyr nefndum R. B. Symington & Co,
sem enn eru ógreiddar til verzlunar
þeirrar, er Sveinbjörn kaupmaður Jac-
obsen rak hjer í Reykjavík undir nafn-
inu «S. Jacobsen & Co» og sem al-
mennt var kölluð «Liverpoolsverzlun».
V’erða því allir hlutaðeigendur hjer
eptir i einu og sjerhverju að snúa sjer
til ofannefnds málaflutningsmanns, að
því er snertir borgun á sknldum
þessum. Reykjavík 31. maí 1876,
fyrir hönd R. B. Symington & Co
þorláknr Ó. Johnsen.
— Samkvæmt ofanritaðri augiýsingu
herra þorláks Ó. Johnsons hefi jeg
fyrir hönd þeirra R. B. Symingtons &
Co í Glasgow tekið að mjer innheimtu
á ógreiddum skuldum til verzlunar
þeirrar, sem með nafninu «S. Jacob-
sen & Co» var rekin hjer í Reykjavík
af hendi Sveinbjarnar kaupmanns
Jakobsens; leyfi jeg mjer því að skora
á alla þá, er enn eigi hafa goldið
skuldir sínar til verzlunar þessarar að
greiða þær til mín hið allra fyrsta, og
skal jeg geta þess, að þeir sem þess
kynnu að óska, geta átt kost á þvi að
greiða skuldir sínar með ávísunum,
sem kaupmenn hjer í bænum vilja
taka að sjer að borga.
Reykjavík 31. maí 1876.
Guðmundur Fáhson.
tíaluid kemi.r 6t 2 — 8var a iu»iiufcí, 3z bl. I Xrsverbif; greifcist í kauptíb, eta þa halit á eumarajalum, há 1 (t a
um krit. Kostar 3 kr. árgariguriuri (er- ! haustiestuiu Auglýsiiiuar eiu teknar í blatbib fyrir 6 a. smáleturs-
leudis 4 kr.), stúk nr. 20 a. Sólulauu: 7. I liuau eta jafnmikiti rúm, eu 7a rnetl venjulegu meginmálsletri. —
htert expl. I Skrifstofa ísafoldar er í Doktershúsiriu (í Ulifcarhúsum).
Ritstjúri: Björn Jónsson, cand phii.
Laudsprentsmihian í Keykjavík.
Eiiiar þórðarson.