Ísafold - 03.07.1877, Page 1
r
IV15. | Reykjavik, þriðjudaginn 3. júlímán.
Rokkrgr athugasemdir um skattamálið.
Eptir Jakob Guðmundsson.
(Niðurl.). Áður en mönnum komi til
hugar að ráða skattamálinu til lykta
að nokkru eða öllu leyti, álít jeg
sjálfsagt að fækkað sje embættismönn-
um að því leyti skaðlaust mætti virðast
fyrir embættis-þjónustuna, ákveða síðan
hveiju embætti að eins þau laun, að
menn þættust vissir um að vel hæfir
menn vildu um þau sækja. Jegheldþað
mætti fækka 3 sýslumönnum, og mundi
landssjóðnum sparazt við það allt að
10,000 kr. það mætti máske fækka
sýslumönnum meira, ef þeir væru losaðir
við alla skattheimtu.
Jeg ætla það mætti líka fækka prest-
um svo mikið, einkum ef kirkjum væri
fækkað um leið, þar sem það er gjörlegt,
að gjalda-upphæð sú, sem þeir nú hafa
samlagt um alt land, mætti nægja þeim
til sómasamlegsuppeldis, einkum ef fyrir
uppgjafaprestum og prestaekkjum yrði
sjeð á annan hátt en að setja þau niður
á brauðin, eins og niðursetur. Jeg álít
að prestar gætu bæði haft stærri verka-
hring og lifað af minni tekju-upphæð,
ef þeir þyrftu elcki að hafa innheimtu
gjq.lda sinna.
J>að væri nær að kosta nokkru til að
mennta æskulýðinn og koma upp mennt-
aðri meðalstjett, sem fær verði um að
taka þátt í löggjöfinni og hafa á hendi
stjórn þá, sem nú er svo mjög kominí
hendur þjóðarinnar, heldur en að hafa
of marga embættismenn og gjöra þá
að ómögum fátækrar þjóðar.
þ>egar búið væri að raða niður em-
bættatölunni og ákveða hverju embætti
hæfileg laun, þá fyrst sjá menn þarfim-
ar; þásjá menn, hverjum nýum stofnun-
um má við bæta smátt og smátt, þjóðinni
til framfara, í samanburði við þá skatta-
upphæð, sem hún er fær um að bera að
svo stöddu.
Jeg heldannars að upphæð ábúðar-
skattsins ætti ekki að vera fast ákveð-
inn í skattalögunum, þviupphæð slíkra
skatta verður í rauninni ákveðin í hvert
skipti af alþingi, þegar þingið samþykk-
ir einhverja vissa útgjalda-upphæð úr
landssjóði.
Stjórnin leggur fyrir þingið áætlun
um, hvað mikla upphæð þurfi til að
standast allan þann kostnað, sem greið-
ast á úr landssjóði til næsta þings, til
embættismanna, allra skóla og mennt-
unarstofnana, fyrirmyndarbúa, til að efia
iðnað og fiskiveiðar, til sjúkrahúsa, til
alþingis, til póstmála, til fjallvega og
fleira. J>egar alþingi hefir yfir farið allar
þessar upphæðir, sett þær upp eða niður
að því leyti þær eru ekki fast ákveðnar
með lögum, eða samþykkt þær óbreytt-
ar, þá er fengin aðal-upphæð útgjald-
anna. En hins vegar ætlast stjómin á,
hvað fást muni upp í þessa útgjalda-
upphæð, af tillagi úr ríkissjóði, eptir-
gjaldi núverandi umboðsjarða og kirkju-
jarða, í tollum af vörum þeim, er toll
skal af greiða að lögum, í lestagjaldi
af kaupförum, í tekjusköttum jarðeig-
enda, húseigenda og þeirra, sempeninga
eiga á vöxtum, eptir því, sem lög á
kveða, og ef ákveðinn yrði nokkur em-
bættistekjuskattur. þegar þetta, og
máske eitthvað fleira, sem kalla mætti
fastar tekjur landssjóðsins, væri saman-
lagt, þá sjest fyrst, hvað mikið vantar
til þarfanna og hversu háan atvinnuskatt
þyrfti að leggja á samkvæmt hinum til-
tekna mælikvarða, afgjöldunum. Væri
nú slíkur atvinnu-eða ábúðarskatur, eða
hvað menn vilja kalla hann, fastákveð-
inn í skattalögunum, þá gæti vantað
meira eða minna til þeirrar útgjalda-upp-
hæðar úr landssjóði, sem þingið álíti
óumflyjanlega nauðsynlega, ellegar að
það yrði meira eða minna umfram þær
þarfir, sem þingið áliti þjóðina færa um
að bera að svo stöddu.
J>að er nú sjálfsagt, að ætíð þyrfti
að gjöra ráð fyrir nokkrum eptirstöðv-
um í landssjóði til óvísra útgjalda, eða
sem stjórnin gæti gripið til í nauðsyn
og viðlögum á milli þinga. En mjer getur
eigiskilizt, að það eigi að styðjast við
rjettar hagfræðisreglur, að safna tals-
verðum viðlagasjóði, sem ekkert sje
gjört við, meðan þjóðar-búskapurinn er
í þeim barndómi, að menn geta naum-
ast haft til knífs og skeiðar og ekkert
það fyrirtæki verður stofnað, sem til fram-
fara horfir. Skyldi viðlagasjóðurinn vera
orðinn yfir 300,000 kr, þá mætti að lík-
indum gjöra eitthvað með því fje, sem
þokaði þjóðinni áfram til framfara.
Jeg held t. a. m það sje ekki rjett,
að leggja á menn búnaðarskólagjald,
sem ekki sje jafnóðum varið til einhverra
búnaðarframfara eða sem ekki ætti að
brúkafyr en að öldum .liðnum, að sjóð-
urinn væri orðinn nógu stór til að setja
á stofn svo fullkominn búnaðarskóla og
fyrirmyndarbú, sem skáldlegustu hag-
fræðingar gætu hugsað sjer. J>að er
rjett eins og fátækur frumbýlingur,
sem reisti bú á stórri og niður níddri jörð,
færi undir eins að safna í viðlagasjóð-
til þess að af honum yrði, eptir marga
mannsaldra, ræktaðir skógar og grafin
fiskidíki á jörð hans, uppi í afdölum, þótt
hann gæti aldrei komið upp hálfri 4-
57
höfn penings á jörð sinni, eða lagfært
eina þúfu í túni sínu.
þ>að stoðar ekki að leggja á aukna
skatta á skatta ofan, án þess að nokkru
af sköttunum sje jafnóðum varið til að
efla þrifnað og þjóðmegun, svo þjóðin
verði jafnvel færari um að bera hina
hærri skatta, heldur en hún var áður
um að bera hina lægri.
það hlýtur að vera annað meginat-
riðiallra skattgjaldslaga, að skattar sjeu
hæfilega háir í samanburði við þarfir
og efni þjóðarinnar, en hitt aðalatriðið
er það, að skattgjaldinu sje sanngjarn-
lega jafnað niður á skattgreiðendurna,
eptir efnum og ástæðum, þannig, að
það efli en hepti ekki framfarir þjóðar-
innar; og sje jeg ekki, að hinu síðara
atriði verði náð á neinn hátt betur, en
með því að hreppanefndir jafni skatt-
gjaldinu síðast niður.
Samkvæmt þessum athugasemdum
verð jeg þá að ráða alvarlega frá því,
að skatta-málið verði á nokkurn hátt leitt
til lykta á alþingi í sumar, því mál þetta
er enn þá svo illa undir búið, að það
veitir ekki af tveggja ára tíma enn til
að undirbúa það. Mjer þætti góðu fyr-
ir goldið, ef slcattalög vor gætu orðið
lögleidd 1880, og það ártal væri líka
gott til minnis fyrir seinni tíðar menn
sem afmœlis-ár hinna nýu skattalaga
íslands.
Mjer virðist óumflýanlega nauðsyn-
legt, að alþing velji í sumar 3 eða 5
manna nefnd, upp á væntanlegt sam-
þykki stjórnarinnar, til þess að safna
saman víðsvegar úr landinu öllum þeim
tillögum og uppástúngum, sem fengist
geta, viðvíkjandi skattamálinu, og ætti
nefndin að láta prenta allar slíkar upp-
ástúngur, sem henni þættu nokkru nyt-
ar, í sjerstöku blaði, og ættu allar þess.
ar uppástungur að vera komnar til nefnd-
arinnar fyrir lok maímánaðar 1878.
Nefndin ætti einnig að fá afgjalda-
skrár yfir allt land, ekki að eins jarða,
heldur og allra tómthúsbýla og leigu-
húsa, og ættu afgjalds-skrár þær að vera
byggðar ábrjeflegum byggingarskilmál-
um milli jarða- og húseigenda og leigu-
liða, en á mati lögskipaðra virðingar-
manna á býlum þeim og húsum, sem
sjálfseigendur búa á og í.
Ennfremur þarf nefndin að fá nýtt og
áreiðanlegt brauðamat, samið af hlutað-
eigandi presti og prófasti, og 2 eða 3
bændum úr hverju prestakalli. Ef al-
þingi þykist ekki geta strax í sumar —
sem varla er von það geti — ákveðið,
hvað mörgum kirkjum og prestaköllum
mætti fækka á lanflinu, þá þyrfti nefnd-