Ísafold - 14.07.1877, Side 3

Ísafold - 14.07.1877, Side 3
67 kláða í því; að hreppsnefndirnar eiga að sjá um, að næg baðmeðul sjeu til í hreppnum hvenær sem skipað er að baða; að kindur, sem sleppa úr fyrir- skipaðri heimagæzlu eða gegnum verði, skuludræpar; að 20—200 kr. sektligg- ur við, ef brotið er bann valdsmanna gegn rekstri eða fjárflutningi; að allar sektirnar skulu ákveðnar með dómi og renna í landssjóð. Á athugas. við frum- varpið má sjá, að landsh. heíir stungið upp á bótalausum niðurskurði hjá fjár- eigendum, sem uppvísir yrðu að hirðu- leysi eða óhlýðni gegn skipunum j'fir- valdsins. En ráðgjafinn segir, að niður- skurði megi aldrei beita í hegningar- skyni, heldur eingöngu til að stemma stigu fyrir útbreiðslu fjársýkinnar, og það gegn skaðabótum. þingnefnd í efri d. 6/7: Benidikt Kristjánss. (skrif.), Sighvatur og Stefán Eiríksson (formað.). Skiptalög. Stjórnarfrumvarpið um skipti á dánarbúum og fjelagsbúum er allmikill bálkur og merkilegur, í 93 greinum, og að miklu leyti samhljóða lögum þeim um þetta efni, er Danir fengu 30. nóv. 1874. Hafði ráðgjafinn borið undir ýmsa valdsmenn hjer, hvort þau væru hentug handa íslandi, og hef- ir amtm. Norðlendinga, sýslum. Eyfirð- inga, Skagfirð. og Rangæinga, lagt á móti þeim, en landshöfðingja og lands- yfirrjetti, amtmanninum sunnan og vest- an, og sýslumanni Dalamanna, litizt vel á þau. það má einkum telja til gildis frumvarpi þessu, eins og stjórnin gjörir, að það er reglulegur skiptalagabálkur: öll lagafyrirmæli um skiptameðferð dregin saman í eina heild, þar sem þau voru áður í sundrungu á víð og dreif, og jafnvel ruglingur og ágreiningur um, hvað væri lög hjer á landi í því efni, og hvað aðeins dönsk lög; og annað það, að ætlazt er til að erfingjar skipti sjálfir, miklu optar en nú tíðkast, án meðalgöngu skiptaráðanda, eða þá að eins með umsjón haus. Svo er og bætt á ýmsan hátt talsvert úr brestum þeim, er verið hafa á opinberri skiptameð- ferð hjer á laudi. þingnefnd í efri d. 5/7: Á. Thorst, B. Thorberg (formaður), M. Steph, (skrif.). Endurskoðun jarðamatsins á eptir frv. stjómarinnar að fara fram á þann hátt, er utanþings-nefndin í skattamálinu stakk upp á, og skýrt er frá í ísaf. IV 3, að því viðbættu, að endurskoðunar- nefndin eða hlutaðeigandi sýslunefnd, og eins hver jarðeigandi eða ábúandi, getur látið meta jarðir á ný, og skulu það gjöra 3 greindir menn í hverri sýslu, er sýslumaður til þessa nefnir, og stendur hann fyrir virðingargjörðinni, fyrir 6 kr. á dag í fæðispen., en virð- ingarmenn fá 4 kr. Endurskoðunar- nefndarmennirnir eiga að fá 6 kr. hver í fæðispen. á ferðalagi sínu, auk ferða- kostnaðar, svo og þóknun sjer á parti fyrir starf þeirra. þingnefnd í efri d. 6/7: Jón Pjeturs- son (foryn.), Sighvatur, Eir. Kuld (skrif.). Tíundarsvik. Svo sem fyr er getið, hefir stjórnin lagt fyrir þingið ,,frv. um lögsókn og hegning fyrir rangt tíundar- framtaF, út af þar að lútandi bending- um utanþingsnefndarinnar í skattamál- inu. ITefir samt stjórninni virzt ráð- stafanir þær, er nefndin stakk upp á, ónógar til að bæta úr göllunum á hin- um eldri hegningarlögum um tíundar- svik (op. br. Ys 1786), og stingur hún upp á, að hreppstjórum sje falið á hendur að útvega þær skýrslur um brot þetta, sem fengist geti þegar í stað, en sýslumenn haldi hina eiginl. rannsókn í málinu, að sýslumenn skuli hafa vald til að telja fje þess, sem grun- aður er um tíundarsvik, a ð lagðar skuli sektir við tíundarsvikum (20—200 kr.), og gjaldi hinn seki auk þess þrefalt við það, er hann hefir undan dregið tíund, að sektirnar skuli á lagðar með opinberum lögreglurjettardómi, nema hinn seki kjósi heldur amtmanns úr- skurð, og að sektirnar skuli renna í landssjóð, en uppljóstrunarmaður þó fá helming þeirra. þingnefnd í n. d. 6/7: G. Ein., Jón Sig., Páll bóndi Pálsson. Dýralæknaskipun. Stjómin vill skipa 4 dýralækna á landinu, sinn í hvern landsfjórðung, með 1 200 kr. launum úr landssjóði, auk 4 kr. í fæðispeninga á ferðum að boði yfirvaldsins og ferða- kostnaðar, hvortveggja úr jafnaðarsjóði; leiti einstakir menn dýralæknis, greiði þeir honum sömu fæðispeninga og leggi honum til fararbeina kauplaust, eða gjaldi ferðakostnað samkv. regl. 10/9 1 830, 16. gr. Eandsh. semur erindis- brjef handa dýralæknum, með ráði amts- ráðanna. þingnefnd í efri d. 7/7 : Jón Hjaltalín, Sighvatur og Ásgeir. Lagabirting. Eptir frv. stjórnarinnar á prentun í Kaupmannahafnardeild Stjórnartíðindanna að koma í staðinn fyrir þinglýsingu laga og tilskipana m. fl., frá 1. ágúst 1878. Sje ótiltekið í lögunum sjálfum, hvenær þau öðlist gildi, verður það 2 mánuðum eptir að birt er í Reykjavíkurdeild Stjórnartíð- indanna, að lögin eða tilskipunin sje komin út. Hreppstjórar skulu lesa öll ný lög og tilsk. upp á kirkjufnndum; þó er sá lestur eigi skilyrði fyrir því, að lögin sjeu skuldbindandi. Fátækratíundargjald. Breytingin á fátækratíundargjaldi, er stjórnarfrv. fer fram á, er sú, að þeir sem svari minni tíund en af 5 lausafjárhundruðum, slculi vera undaþegnir að gjalda J/4 af fátækra- tíundinni. Breyting þessi á að komast á, þegar ábúðar- og lausafjárskattslög- in öðlast gildi, og er gjörð til jafnaðar gagnvart þeim, er í skiptitiund eru, með því að konungstíundin áað leggj- ast niður. — Frumvarpi þessu var vísað til skattamálsnefndarinnar (í n. d.). Bæjargjöld í Reykjavik. í stað húsa- skatts þess og lóðargjalds, er lagður var á með regl. 27/n 46 og op. brjef 26/9 60, á eptir frv. stjórn. að koma lóðargjald, sem sje 3 aurar af hverri ferh. alin í flatarrúmi allra húsa í um- dæmi kaupstaðarins, úr hvaða efni sem eru og hvort sem það eru íveruhús eða eigi, og V4 eyrir af hverri ferh. alin af öllum óbyggðum lóðum, sem útmældar eru til að fylgja húsum. Dómkirkjan skal undan þegin lóðargjaldi. í öðru lagi skulu allir, sem hafa fast aðsetur í kaupstaðnum, greiða skatt eptir efn- um ogástandi samkv. tilsk. 2% 72, 22. gr., svo og utanbæjarmenn, er 4 mán- uði á gjaldárinu reka verzlun í kaup- staðnum, eða stunda þar einhverja aðra borgaralega atvinnu eða sýslu, sem er þess eðlis, að hún sje eða geti veríð atvinnuvegur út af fyrir sig, og hafa sölubúð, iðnaðarhús eða híbýli fyrir at- vinnu sina; skal telja gjald það eingöngu eptir þeim tekjum, sem atvinnan gefur af sjer. Lög þessi eiga að öðlast gildi 1. jan. 1878. þingnefnd í efri d. 6/7 Bergur Thorb. (skrif.), Árni Thorst., M. Steph. (form.). Kosningar til alþingis. Frv. stjómar- innar er samhljóða frv. því, er neðri deild alþingis 1875 samþykkti við 3. umræðu, en efri deildin felldi við 3. umr., mest sakir tímaleysis. þingnefnd efri deildar 6/7: E. Kuld (skrif.), Ben. Kr. (form.), Torfi. Leysing sóknarsambands. Stjómar- frumv. er þess efnis, að þeim, sem ein- hverra orsaka vegna eigi er um að lata sóknarprest sinn framkvæma fyrir sig kirkjulegar athafnir, skuli heimilt að kjósa sjer utansóknarprest að sálu- sorgara, en nota sóknarkirkju og kirkju- garð hlutaðeiganda — þó svo, að hinn reglulegi sóknarprestur missi einskis í af tekj um sínum, vísum nj e óvísum. Verður því hver sá, er segir sig úr sókn, að greiða tvenn gjöld fyrir öll prestleg aukaverk og tvenn offur, þang- að til nýr sóknarprestur kemur; úr því þarf hann eigi að gjalda öðrum presti fyrir auknverk en þeim, er hann not- ar, nje heldur ofihr. þingnefnd efri deildar 7/7: E. Kuld, Benid. Kr., Á. Thorst. Borgaralegt hjónaband. Stjómarfrv. er þess efnis, að veraldlegt yfirvald megi gefa saman hjón, er annað þeirra eða bæði eru annarar trúar en þjóð- lcirkjunnar; annars ekki. Hjónaefnin skulu segja til á undan hjónavígslunni, í hverjum trúarbrögðum þau vilja að börn sín verði uppfrædd, og skal það jafnan vera trú annarshvors hjónanna, eða þá þjóðkirkjutrúin. Að öðru leyti hefir frv. að geyma ýmsar ýtarlegar reglur um, hvernig hjúskap þenna skuli binda, svo löglegt sje, m. fl. það er 47. gr. stjórnarskrárinnar, er gjört hefir lög þessi nauðsynleg, og tilefni þeirra er meðfram Mormóna-hjónavígslan á Vestmannaeyjum, sem varð að fá kon- ungsleyfi til í hitt eð fyrra, og þrasið varð út úr í „ísafold“. Tíundarlög. Frv. frá Jóni Sigurðssyni á Gautl. Hver maður, sem á lft hdr.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.