Ísafold - 25.03.1878, Blaðsíða 2

Ísafold - 25.03.1878, Blaðsíða 2
26 ÍSAFOLD dómaranum, hvernig lagamenn eigi að fara með mál svo, að þau verði útkljáð á sem rjettlátastan og sómasamlegastan hátt. f»að getur því opt verið örðugt að komast í skilning um ensk dómsmál, þó salir þessir sjeu optast stórir ogvel lagaðir til að taka við margmenni. í Oxford var þannig um daginn háð saka- málaþing í sal, sem annars er hafður til að leika í sjónarleiki. Voru þar sæti fyrir fleiri hundruð manna; en samt var salurinn troðfullur allan þann tíma, sem á rjettarhaldinu stóð. (Frá kl. 10 um morguninn til kl. 6 um kvöldið). Margur mundi ætla, að lítt fært yrði að halda við á slíkum dómþingum þeirri reglu og þeirri þögn, sem nauðsynleg er til að rjettarhald geti farið fram skipulega; en það er öðru nær. Eins og Englendingar mega eiga það, að hvergi fer guðsþjónusta fram á hátíð- legri hátt en hjá þeim, eins hafa þeir almennt mikla virðingu fyrir dómstól- um sínum. Einum tveim sinnum hefi eg heyrt almenning gjöra róm (applaus) að ræðu fyrir dómþingi, — í annað sinn var það innbrotsþjófur, sem sjálfur flutti mál sitt, í hitt skiptið ungur málaflutn- ingsmaður, er talaði; en í hvorttveggja skipti varð steinshljóð, undir eins og dómarinn áminnti þá sem viðstaddir voru um, að hjer væri eigi sýnileikur á ferðum. Hjer heyrist þess aldrei getið, að dómarar fái að sitja í embættum sin- um þrátt fyrir hneykslanlega hegðun, eða þó þeir sjeu fyrir aldurs sakir eða af öðrum orsökum alveg óhæfir tii að gegna embættum sínum, og aldrei þess, að dómari ginni fáfróða almúgamenn til að samþykkja eða segja annað, en þeir í rauninni ætla sjer. Slílct getur ekki heldur vel átt sjer stað hjer, þar sem margir vottar eru viðstaddir hvert rjettarhald og allmargir þeirra lögfróðir, og hvað dómarana snertir, þá er það meira vandaverk en íslenzk- ur dómari getur gjört sjer í hugarlund að vera dómsforseti á Englandi. Hann verður ekki að eins að vera skarpur og mælskur maður, til þess að geta gripið fljótt og vel aðalatriði málsins og skýrt glögglega frá þeim, þegar hann að end- uðum málflutningi ávarpar kviðinn; hann verður líka að vera vel að sjer í lögum, því úrskurði þá, er þar verður að gefa, verður hann optast að kveða upp jafnóðum og spurningin kemur fram, án þess að leita leiðbeiningar í lagabólcum; en málsfærslumennirnir, sem sjálfsagt geta vel þegið að fá höggstað á dómaranum og sem þekkja málið, áður en það kemur fyrir rjettinn, geta aptur leitað eins mikið og þeir vilja í laga- og dómasöfnum, og af þeim eru til við hendina þ}rkk bindi svo hundruðum skiptir. Heima á íslandi þykir það tölu- verð minnkun að verða f}'rir op- inberri ákæru („komast undir manna hendur11) eða eigaí máli við náungann. —á'jer höfum jafmel heyrt það kallaða góða ástæðu til að víkja embættismanni frá, að hann þóttist þurfa að verja land sitt, hlunnindi og fjenaö gegn ágeng- um nábúum. Hjer líta menn nokkuð öðruvísi á slíkt. f>að er vitaskuld, að ekki þykir neinn sómi að verða fyrir „ákæru rjettvísinnar“, og þrætugjarnir menn eru ekki í meiri metum hjer en annarstaðar, en valdstjórnin lætur al- menning sjálfan áfella málagarpana, og hún álítur sjer skylt að fara með hvern ákærðan mann sem með heiðvirðan mann, þangað til hann er sakfelldur á löglegan hátt. Auðvitað er, að hinn á- kærði er tekinn fastur, þegar nauðsyn- legt þykir að útvega tryggingu fyrir, að hann strjúki ekki áður en málið er útkljáð; en að undanskildu fangelsinu, má hann lifa og láta eins og hann vill, bera sig saman við vini sína og við lög- fræðinga um málstað sinn, og aðrar farin að leggjast svo þungt á mig, að jeg fór að reyna að venja mig á að drekka brennivín. En jeg hafði eigi annað upp úr því en höfuðverk, og ótt- aðist jafnframt, að svo kynni að fara, að jeg yrði reglulegur drykkjumaður með tímanum, en það var nógaf drykkju- mönnum í sveitinni undir, og eigi ábæt- andi. I þeirra tölu voru grannar mínir hinir fáu, sem til voru, enda var viðtal þeirra eigi annað en letistunur og brenni- vínshixti — og kaus jeg miklu heldur að vera einn en að hafa samneyti slíkra skepna. Loks tók jeg upp á því i ó- yndisúrræðum að fara snemma að hátta á kvöldin og neyta miðdegisverðar sem allra-síðast; með því styttist kvöldið, en dagurinn lengdist. Eigi alllangt þaðan, sem jeg átti heima, var höfðingjasetur eitt mikið og fagurt, er greifafrú nokkur átti, er hjet B., en sat þar þó eigi, heldur hafði þar ármann. Hún hafði alls einu sinni á æfi sinni dvalið þar nokkrar vikur, skömmu eptir að hún giptist. En þeg- ar jeg varbúinn að vera nokkuðáann- að ár í sveitinni, frjettist einu sinni, að hún ætlaði að vitja þangað aptur, og reyndist það satt; hún kom þangað um Jónsmessuleytið og maðurinn hennar með henni. J>að þykja eigi smáræðis-tíðindi í hjeraðinu, er þangað er von á lendum manni stórauðugum og er það þá stöð- ugt umtalsefni hálft missiri fyrir og hálft missiri eptir komu hans, bæði meðal höfðingja og almúgamanna. Mjer þótti og eigi ónýtt að eiga von á að verða .granni ungrar og fríðrar hefðarkonu. Jeg rjeð mjer eigi fyrir forvitni að sjá hana, og fyrsta sunnu- daginn eptir að þau hjón voru komin, lagði jeg af stað að heimsækja þau. Jeg hitti skósvein, sem bauð mjer inn í hversdagsherbergi greifans sjálfs. J>að var stórt og prýðilega búið. f>ar voru stórir bókaskápar meðfram veggj- 27n8 eins rannsóknir og þær sem þeir Björn sýslumaður Blöndal og Jón heitinn á Stóra-Ármóti í Árnessýslu urðu frægir fyrir á sínum tíma, þekkjast ekki hjer. J>ví fer svo fjarri, að dómarar hjer herði að hinum ákærðu um að segja satt og skýra frá broti sínu, að þeir þvert á móti stöðugt áminna þá um að segja elckert, sem geti orðið þeim til áfellis, og heldur segja sig saldausa en seka, því þeir muni fá þá hegningu, sem þeir verðskuldi, ef kviðurinn úrskurði þá seka, hvort sem þeir vilji játa sjálfir brot sitt eða eigi. Af hendi valdstjórn- arinnar flytur æfinlega málsfærslumað- ur málið, en hinum seka er frjálst að flytja sjálfur sitt mál, ef hann vill það heldur en að fá sjer málaflutningsmann, og hafa margir ákærðir menn, er varla kunnu að draga til stafs, og því hefðu engin ráð haft með að flytja mál sín á íslandi, gjört það snilldarlega fyrir ensk- um dómstóli. Hinn ákærði stendur eða situr á tilteknum stað, en rjett hjá sjer hefir hann málaflutningsmenn sína, og vinum hans er heimilt að ganga til hans, taka í hendina á honum og hvísla að honum því, sem þeim þóknast. J>að er sjálfsagt, að þegar hinum ákærða er gefið svo mikið frelsi til að verja mál sitt, verður mjög áríðandi að vitni þau, sem geta borið um málið, verði prófuð sem rækilegast, ogaðlög- in ekki hamli dómaranum frá að nota sannanir þær, sem til eru. Hjer erþað, að kviðurinn hjálpar. J>að er eigi að eins heimilt hverjum kviðmanni að leggja sjálfur fyrir vitnin þær spurn- ingar, er hann vill, heldur getur lcvið- urinn heyrt og tekið gildan vitnisburð, sem mundi hafa sárlitla þýðingu sam- kvæmt íslenzkum lögum, t. a. m. vitn- isburð barna, jafnvei yngri en 10 ára, giptra kvenna í málum, er varða eigin- menn þeii'ra, og fl. Beri sitt vitnið hvað, sem optar er hjer á landi en skyldi, unum, og marmaramyndir uppi á þeim, en dýrindisábreiða á gólfinu. Ofninn var úr marmara, og sldnandi spegill mikill þar uppi yfir. Jeg var löngu orðinn óvanur allri viðhöfn og skrauti, og langt síðan að jeg hafði komið í nokkurt höfðingjahús. Mjer fannst því eins og það ætlaði að verða lítið úr mjerinnan um slíka dýrð, og beið greif- ans all-feiminn, eins og ölmusumaður ofan úr sveit, þegar hann á von á að fá að tala við stjórnarherrann. Bráðum var hurðinni lokið upp og kom þar inn ungur maður fríður sýnum, á þrítugs aldri á að gizka, og kvaddi mig vin- gjarnlega. Jeg ætlaði að fara að gjöra honum grein fyrir hver jeg væri, en hann Ijet sem þess gjörðist engin þörf og var hinn þýðasti í viðmóti. Hann var svo alúðlegur og blátt áfram, að það fór undir eins að fara af mjer feimn- in; en þá kom konan hans inn. (Framhalcl).

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.