Ísafold - 30.04.1878, Blaðsíða 3

Ísafold - 30.04.1878, Blaðsíða 3
ÍSAFOLD. 35 30/47 8 að búa til vínandann úr korntegundun- um, er pd fyrst aff gjöra maltúr peim, og það er að koma til vegar sömu efna- breytingu í þeim og framkemur þegar fræin skjóta frjóvöngum eða springa út*. Ef maltið er nú síðan tekið og marið sundur, og því svo blandað saman við mjöl annara korntegunda og mátulega hveitu vatni hellt yfir, þá gjörir „dia- stasinn“ í maltinu þá breytingu í öllum þessum mjöl-graut, að línsterkjan verð- ur að sikri, — en hún er meiri partur mjölefnisins,—en vatnið dregur allt sikr- ið til sín úr mjölinu, og „diastasinn“ með, svo þegar því er hellt af eða síað frá, þá fer allt þetta nýmyndaða sikur með vatninu. þetta ernú mesta verkið við vínanda tilbúninginn. þriðja stigið er að breyta þessu sikri í vínanda, og sú breyting kemur fram af sjálfu sjer við ólgu, sem kemur í þennan sæta lög, af því hann hefir í sjer holdgjafa-efni, nfi. „diastasinn“, eins og áður var sagt. fegar þessi þrjú stig eru um garð gengin, nfl. maltgjörðin, bruggunin og vínólganin, þá er eptir að ná vínandan- um úr maltleginutn eða bruggleginum. Vínandi þarf miklu minni hita til að gufa upp, heldur en vatn, og það hjálp- ar mönnum til að ná honum úr brugg- leginum. Lögurinn er sem sje hitaður þang- sem kallast „diastasu og um leið verður lin- sterkjan að sikri. f>essi umbreyting er vísdóms- leg tilhögun forsjónarinnar, því jurtalím og lín- sterkja gætu ekki orðið að næringu fyrir hina ungu jurt án þessarar breytingar. *) Malt er optast gjört úr byggi, en líka úr öðr- um korntegundum; er þannig farið að þvi að byggið eða hvaða korntegund, sem er, er bleytt i vatni, lagt síðan í dyngju; þar fer það að hitna af sjálfu sjcr og springa út (skjóta rótum) og myndast þá i þvi „diastasu og sikur, erþví síðan nuggað til og frá til þess að það hitni allt jafnt og springi allt jafnt út. f>egar það nú hefir skotið frjóvöngum hæfilega mikið, þá er það allt í einu þurrkað, og er þá malt-gjörð- inni lokið. að til að vínandinn fer að gufa burt, en við þann hita breytist vatnið ekki í gufu. Vínanda-gufan er nú leidd i langa pípu, sem liggur i einlægum bugðum niðriíköldu vatni; þar þjettist hún sam- an við kuldann og verður að legi—-vin- anda—en af þvi að vínandinn sækir ept- ir að draga til sín vatn, þá fer allt af nokkuð af því með honum; þess vegna er þessi lögur eimdur í annað sinn, og er hann þá nokkuð sterkari. það er hinn venjulegi vinandi (spiritus vini). Sje hann eimdur í þriðja sinni verður ekki eptir í honum nema svo sem 10 til 20 af hundraði af vatni, og er hann þá kallaður hreinsaður vínandi (spiritus vini rectificatus). Að ná öllu vatninu úr vínandanum er erfitt og fyrirhafnar- samt, en þó er það stundum gjört. Vínandinn er, þegar hann eralveg hreinn, gagnsær vökvi, með þægilegri lykt, og gagntakandi brennandi smekk. Hann er hjer um x/5 ljettari en vatnið, og dregur vatn svo sterklega til sín, að ef að flaska með vínanda er látin standa opin, þá dregur hann til sin vatn úr loptinu, og þyngist til muna. Hann er reykulli (breytist fljótar í gufu) en vatn- ið. Hann getur ekki frosið við þann kulda, sem menn þekkja mestan; þess vegna er hann hentugur i kuldamæla, þar sem kuldinn er svo mikill, að kvika- silfrið frýs. Vínandinn er mjög eldfim- ur, og logar reykjarlaust með daufum bláum loga, sem ber litla birtu, en hefir ákaflega sterkan hita; þess vegna er hann svo hentugur til að brenna hon- um við ýmislegar efna-rannsóknir. Vín- andinn er almennt notaður til að leysa upp ýms efni, sem ekki uppleysast í vatni. Hann er líka ágætt varnarmeð- al gegn rotnun, og þess vegna má geyma jurtir og dýr í honum alveg ó- skemmd. Læknar og náttúrufræðingar brúka hann til að geyma limi og lík- ami í. Póstgufuskipið Phönix (Ambro- sen) hafnaði sig hjer í gær, eptir 14 daga ferð; var viku frá Khöfn til Skot- lands, sakirþoku. Farþegjar: JónJóns- son landshöfðingjaritari, Sveinn Sveins- son búfræðingur, kaupmennirnir Aug. Thomsen, Jakob Thorarensen frá Reykj- arfirði, Chr. Hall frá Borðeyri og Einar Jónsson frá Eyrarbakka; ennfremur A. Rothe ingenieur, sá er hjer var i fyrra að undirbúa Reykjanesvitann, og með honum steinsmiður, Liiders að nafni, og eiga þeir nú að reisa vitann í sumar; Jensen bakarasveinn og skipbrotsmenn- irnir 4 frá Fanny (Jóh. Zoega, Krist. Guðmundsson, Helgi og Oddur). Útlendar frjettir almennar eru litl- ar aðrar en frjettust með Fyllu og síð- an með frakkneska herskipinu hinu meira: ófriður enginn enn sem komið er, en látið all-ófriðlega, einkum afEng- lendingum; þó engan veginn vonlaust um að skruggan líði hjá. (Fijettapist- ill vor frá Khöfn kemur í næsta bl.). Fiskiskútan Fanny þeirra Geirs Zoéga og hans fjelaga, er lá í Færeyj- um í vetur eptir hrakninginn þangað i haust, lagði út þaðan á leið hingað 15. f. m., en hreppti landnorðanstorm með kafaldshríð og hafróti miklu, hraktist suður í Englandshaf, valt tvisvar á hlið- ina, braut af sjer öldustokkinn oglask- aðist svo, að skipverjar sáu eigi annað fyrir en opinn dauðann. það varð þeim til lífs, að þýzkt kolaskip, á leið frá Noregi til Englands, bar þar að, er skútan var komin að sökki, og björg- uðu þjóðverjar þeim, veittu þeim bezta beina og aðhjúkrun og komust þeir þannig á land og náðu i póstskipið. í Leith. Emhættaskipan. Yfirdómaraembætt- ið var veitt af konungi 12. þ. m. Lárusi E. Sveinbjörnsson, bæjarfógeta í Reykja- vík, Snæfellsnessýsla cand. juris Sig- urði Jónssyni í Kaupmannahöfn, og ig. Hólmgangan. Eptir Alexander Púschkín. (Framh.). Hún var mjög fríð sýnum. Greifinn sagði henni, hver jeg var. Nú versnaði mjer feimnin aptur, og því meir sem jeg reyndi til að láta eigi á henni bera, því klaufalegar fór fyrir mjer. Loks tóku hjónin það til bragðs, til þess að gefa mjer tóm til að átta mig, að þau fóru að tala saman sín á milli, eins og jeg væri gamall kunningi þeirra, sem þau þyrftu eigi að skipta sjer af, þó til heyrði. Fór jeg þá að ganga til og frá um stofuna og virða fyrir mjer bókaskáp- ana og myndirnar á veggjunum. Jeg hefi ekkert vit á myndum; en eitt af þeim, sem jeg sá þar, vakti athygli mína. J>að var uppdráttur af fögru hjeraði í Sviss; en þaðjáta jeg, aðþað var eigi hjeraðið, sem mjer varð svo mjög starsýnt á, heldur það, að í miðja myndina voru göt eptir tvær byssukúl- ur, hvort rjett hjá öðru. ,.þetta er laglega skotið!“ mælti jeg og sneri mjer að greifanum. „Já, það er laglegt skot“ svaraði hann. „þjer eruð líklega góður skot- maður líka?“ „Og lítið lætur nú að því“ svaraði jeg, og þótti mjer vænt um, að þarna var fengið umtalsefni, sem var mitt með- færi. „Jeg held samt að jeg mundi naumast missa spils á 10 faðma færi, það er að segja væri jeg kunnugur á- haldinu“. „J>að kalla jeg laglega gjört“ mælti greifafrúin, og var að heyra sem hún hefði gaman af þessu umtalsefni. „Held- ur þú, góði minn, að þú mundir hæfa spil á 15 faðma færi?“ „pað er ætíð hægt að reyna það“ svaraði maður hennar. „Sú var tíðin að jeg varallvel leikinníað skjóta; en nú hefi jeg eigi snert á skammbyssu upp í mörg ár“. „Sje svo“ mælti jeg, „þori jeg að veðja um, að þjer hæfið eigi spil á 3 faðma færi, herra greifi. Til þess að geta hæft vel með skammbyssum, verð- ur maður að æfa sig á því á hveijum degi; það hefi jeg reynt. Jeg hafði einu sinni það orð á mjer, að jeg væri beztur skotmaður í minni hersveit; en svo liðu einu sinni nokkrar vikur svo, að jeg tók mjer aldrei byssu i hönd, og þá missti jeg flösku á 3 faðma færi fjórum sinnum hvað ofan í annað. Einn af íjelögum mínum fór að hlæja að mjer fyrir það og sagði: „þú ert fjarska of meinlaus, lagsmaður; þú ert að hlifa flöskunum“. J>ví segi jeg það; maður verður að æfa sig vel; annars verður maður hreint ónýtur. Jeg þekkti einu sinni mann, sem skaut aldrei færri en þrjú skot fyrir miðjan dag á hverjum degi, enda hefi jeg aldrei þekkt aðra eins skyttu. það var orðið honum að

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.