Ísafold - 18.07.1878, Page 4

Ísafold - 18.07.1878, Page 4
G8 ÍSAFOLD. byggt i staðinn fyrir, ogskal landsdrott- inn endurborga leiguliðanum á einhvem hátt það, sem húsið er dýrara en hin; eða að öðrum kosti leyfa leiguliða æfi- langa ábúð, ef hann kýs það heldur.— þegar landsdrottinn hefir gjört þetta annaðhvort, er steinhúsið hans eign, en jarðarhús þau, er áður voru, á leiguliði. Jeg gjöri nú ráð fyrir, að jarð- eigendum þyki þetta nokkuð hart; en þeir verða að gæta þess, að meðan þeir slaka ekkert til við leiguliðana, mun jörðum þeirra lítið framfara, hvorki í einu nje öðru, og loks mun reka að því að þeir fá ekki jarðir sín- ar byggðar, ef þeir ekki gæta sín í tíma, og breyta betur við leiguliða sína hjeðan af en hingað til, því „flýtur á meðan ekki sekkur“. Á margan annan hátt mætti hugsa sjer þetta, og vil jeg skora á alla greinda og góða menn, að veita þessu máli athygli, því jeg get ekki betur sjeð, en að þetta sje eitt af velferðar- málum vorum. Alpýðumaður í Suðurmúlasýslu Útlendar frjettir. (Frá frjettaritara vorum i Skotlandi). Edinborg, 8. júlí 1878. Hinn 31. maí rákust tvö þýzkfier- skip hvort á annað í sundinu milli Eng- lands ogFrakklands, hét annað Grös- ser Kurfúrst, hitt König Wil- helm. Hið fyrra sökk á fám mínút- um, og týndust um 300 manns, en Kö- nig Wilhelm skemmdist eigi alllítið. Hinn 2. júni skaut maður að nafni Dr. Nobiling á Vilhjálm Prússakeisara, þar sem hann ók í vagni gegnum götu þá, er kallast Unter den Linden. Komu nokkur höglin í andlit keisaranum og handlegginn annan. Hefir hann legið í sárum síðan, en er á góðum batavegi. Dr. Nobiling reyndi að ráða sjálfum sjer bana, en særði sig að eins; liggur hann enn í sárum. Hinn 13. júní byrjaði stjómenda- fundurinn í Berlín. þetta er hið helzta sem ráðið er til lykta. Servía verður óháð Tyrkjum alveg, og fær nokkra sneið af landi. Rúmenía verður og ó- háð og fær Dobrudscha og Silistria og önnur lönd við Dunármynnið, en verð- ur að skila Rússum aptur sneið þeirri af Bessarabíu, sem þeir fengu við frið- inn 1856. Austurríki setur liðí Bosníu og Herzegovínu, og ætla margir, að Tyrkir muni eigi hafa framar af þeim hjeruðum. Montenegro fær landsauka nokkum og höfnina Antivari. Búlgaría fyrir norðan Balkanfjöll verður gjörð að fylki sjer, og yfir það settur krist- inn stjórnari, og setja Tyrkir ekki þann stjórnara. Fyrir sunnan Balkaníjöll verður og gjört nýtt fylki, og skulu stjórnendur allir og valdamenn vera innanhjeraðsmenn. Grikkland fær sneið nokkra sunnan af Thessaliu. f að sem nú er eptir órætt, er um Batum við Svartahaf; er ætlað, að Rússar muni fá þann bæ, og að fundurinn hafilokið störfum sínum í þessari viku. Bretar hafa gjört samningvið Tyrki, að sjá um, að ríki Tyrkja í Asfu hald- ist óskert, og hafa Bretar ábyrgð á, að þeim ríkjum sje vel stjórnað. En Bret- ar fá rjett til að halda eynni Cyprus, og hafa þeir þegar sent flota þangað. Seint í f. m. fóru fram kosningar í Belgíu, og gengu þær gegn klerka- flokknum, sem nú hefir haft þar völd á hendi í mörg ár. Sögðu þeir þá frá sjer ráðin, en frelsismenn komust að. Sá heitir Frére Orban, er fremstur er í stjóm þeirra. Georg V. konungur í Hannover, sá er Prússar ráku fráríkjum 1866, dó í París 12. júní. Mercedes drottning á Spáni dó 26. júní. Hún var rjettra 18 ára, og hafði eigi verið gipt nema nokkra mánuði. Prestvígsla. Hinn 17. f. m. vígði biskupinn cand. theol. Sigurð Gunn- arsson prest að Ási í Fellum. Brauðaveitingar. Hinn 25. f. m. veitti landsh. Tjörn í Svarfaðardal síra Kr. E. J>órarins- syni á Stað i Grindavík — aðrir sóttu eigi —, °g 13 þ. m. Hvanneyri í Siglufirði cand. theol. Skapta Jónssyni, sem einnig var eini sækjandinn. Oveitt brauð. Staður í Grindavik, metinn 493 kr. 26 a., augl. 28. f. m. Sá sem fær þetta brauð, kann að verða settur til að þjóna Selvogs- þingum fyrst um sinn. Skipafregn. Komin: 1. f. m. „Örnen“, 17, Lou, með vörur til Linnets og Christensens í Hafn- arfirði; 7. „Anna“, 41, Petersen, með ýmsar vörur til Fischersverzl. hjer og í Keflavík; s. d. „Ran- ders“, 100, Sörensen, með við frá Halmstad til Knudtzonsverzlunar; 9. „John Holmes“, 81, Samp*. son, frá Christiansand, með við í ískjallara Bow- mans ; 11. „Yraldemar“, 89, Heintzelmann, frá Li- verpool með salt til Fischers; 13. „Helene Frede- rikke“, 72, Mortensen, frá Khöfn með vörur til Fischersverzlunar; 20. „Marie Christine“, 61, Han- sen, frá Liverpool til Smiths; s. d. „Neptune“, 76, Green, frá Christianssand með timbr og ís i iskjall- ara John Holmes og Bowman’s; 26. „Anton“, 166, Pedersen, frá Mandal með timbur tíl lausakaupa; 28. „MastifF“, gufuskip, 870, Kerr, frá Skotlandi skemmtiferð; 6. júli „Louvise“, 93, Rasmussen, frá Hull til Fischers með salt; s. d. „Uranus“, 75, Clarkson, frá Hull eptir lax til John Holmes og Co. (fór til Húsavikur 8. júlí); 7. „Gylfe“, 41, Simon- sen, færeyskt fiskiskip; 13. „Queen“, 283, W. 'Reid, (hrossaskip Slimons). — Farin aptur til útlanda: 18. f. m. „John Holmes“, með lax til Hull ; 5. þ. m. „Mastiff“. Auglýsingar. þjóðhátiðarkoatnaðar-samakot. Úr Hvit- ársiðuhreppi, safnað af sýslunefndarm. Eyjólfi jó- hannssyni og hreppst. Salómoni Sigurðarsyni 5 kr. 92 a. — Úr Jn’erárlilíðarhr. safnað af alþingismanni Hjálmi Pjeturssyni 4 kr. 60 a. — Safnað af sýslu- nefndarm. Helga Magnússyni í.Birtingaholti 23 kr. Mestar gjafir þarámeðal: frá prófasti J. Kr. Briem i Hruna 6 kr. (hafði áður gefið 4 kr.), Helga Magn- ússyni í Birtingaholti 2 kr. (áður 4 kr.), síra Stein- dóri Briem i Hruna, Sigurði Magnússyni á Kóps- vatni og Jóni Ingimundarsyni á Skipholti 2 krónur liverjum (áður 2 kr. hver), frá síra Valdimar Briem i Hrepphólum og Einari Jónssyni á Laugum 2 kr. hvorum. Safn. af herra Bjarna Árnasyni á Brodda- dalsá í Strandasýslu 7 kr. 67 aurar. í prentsmiðju Einars þórðarsonar í Reykjavík er nýprentuð „Stutt æfi- m i n n i n g Sig. Breiðfjarðar skálds“, ásamt nokkrum ljóðmælum hans, IV -j- 6o bls. Kostar i kápu: 50 aura, 18/t78 og verður til sölu hjá Sigmundi Mattías- syni, gestgjafa á Seyðisfirði, Haraldi Ó. Briem, trjesmið á Rannveigarstöðum í Álptafirði, forsteini Jónssyni lækni á Vestm.eyjum, Guðm. Guðmundssyni, barnakennara á Eyrarbakka, J. Borg- firðing, í Reykjavík, Á. Ó. Thorlacíus, kaupmanni í Stykkishólmi, J>orv. Jóns- syni, lækni á ísafirði, Eggert Ó. Briem, presti á Höskuldsstöðum, Kristj. Hall- grímssyni, verzlunarfulltrúa á Sauðár- krók, og Friðbimi Steinssyni, bókbind- ara á Akureyri. Til athugunar kaupendum skal þess getið, að á bls. 49, 16. 1. a. of. er mis- prentað bls.tal 1 059, í staðinn fyrir 159. FUNDIZT hefir á Jónsmessudag síð- astl. á götunum fyrir ofan Árbæ pen- ingabudda með rúmlega 1 kr. í pen- ingum. Rjettur eigandi fær hana á skrifstofu ísafoldar gegn borgun fyrir þessa auglýsing. Skildu ferðamenn frá fjarlægari hjeruðum landsins óska eptir að fá ræðu Mag. Jóns þorkelssonar Vídalíns um lagarjettinn keypta nú í sumar, þá fæst hún enn hjá útgefandanum Jóni Bjarnasyni Straumfjörð verzlunar- þjóni við Knudtzon’s verzlun í Reykja- vík. Jörðin Halldórsstaðir í Vatnsleysu- strandarhrepp fæst til kaups á þessu sumri. Afgjaldið er 2 skippund af salt- fiski. Lysthafendur eru beðnirað snúa sjer til undirskrifaðs. Reykjavík, 19. dag júnímán. 1878. II. Th. A. Tliomsen. Með því að enn eru óseldir nokkrir lotterí-seðlar fyrirkvennaskólann, biðjum vjer þá, er vilja styrkja fyrir- tækið með því að kaupa seðla þessa, að snúa sjer til einhverrar af okkur undirskrifuðum. Annan ágúst kl. 12 verður dregið um gripina. Reykjavík, 16. júlí 1878. Olufa Finsen. Ingileif Melsteð. María Finsen. þórhildur Tómasdóttir þðrunn Jónassen. TÝNZT hefir 8. þ. m. milli Melshúsa og Eiðis á Seltjarnarnesi r e i ð b e i z 1 i vænt með koparstöngum og keðjutaum- um með ól í miðju. Finnandi er beð- inn að skila því annaðhvort á skrifstofu ísafoldar eða til Eiriks hreppst. Eiríks- sonar á Miklaholti í Biskupstungum, gegn sanngjömum fundarlaunum. STRANDFERÐASKIPIÐ DÍANA kemur við í Stykkishólmi í næstu ferð hjeðan, 6. ágúst, en fer ekki beina leið til þingeyrar, eins og póst- stjórnin danska hefir sett í ferðaáætlun- ina af misgáningi. Reykjavikur póststofu, 18. júní 1878. O. Finsen. Ritstjóri: Björn Jónsson, cand. philos. Prentsroiðja Btsafoldaru.— Sigm. Guðmundsson,

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.