Ísafold - 26.05.1880, Page 2

Ísafold - 26.05.1880, Page 2
54 Kr. pessi verzlun er nú, sem kunnugt er, mestöll ekki innlend. fað er að segja, kaupmenn vorir búa erlendis, og hafa þar lánstraust sitt. Ef þeir þurfa að lána peninga, þá fara þeir til bank- anna þar, þeir eru líka neyddir til þess, því hjer er enginn banki. Apturámóti á jeg erfitt með að trúa því, að þeir kaupmenn, sem nú búa hjer mestan hlut ársins eða allt árið, færu til Hafn- ar til þess að lána peninga, ef þeir gætu fengið þá hjer. Og jeg hygg, að hver maður hljóti að vera á sama máli og jeg með það, að banki með nokk- urn veginn góðu fyrirkomulagi, hlyti að vera hið bezta meðal til þess að ljetta fyrir verzlun vorri, og gjöra hana smátt og smátt innlendari en hún er. Til þess nú að geta gjört sjer ein- hverja hugmynd um, hvað banki fái að gjöra, verður að finna, hve mikil lán íslendingar þurfa um árið. Bankinn græðir á því að lána út peninga, og á að hafa fje sitt í veltunni árið um kring. Sparisjóðurinn í Reykjavík lánar út hjer um bil i20ookr. um árið, viðlaga- sjóðurinn hjer um bil 20—30,000 kr., það eru alls hjer um bil 40,000 kr. um árið, sem allt er lánað gegn veði í fast- eign. Og menn biðja árlega um miklu meira en það. Nú þessa daga erbúið að biðja um c. 40,000 kr. lán úr viðlaga- sjóði, og það er óvíst, hve nær þeir komast allir að, sem um það hafa beð- ið. Ef peningaeklan væri minni, en hún er, og menn vissu sjer vera það til nokkurs, þá þykir mjer ekki ólík- legt, að miklu fleiri leituðu láns en aú gjöra á móti veði í fasteign. Hjer fer ýmislegt í vöxt, sem einmitt þarf meiri peninga við. fað er mjög líklegt, að menn fari að byggja almennara úr timbri eða steini, að jarðabætur aukist að nokkrum mun, að þörfin á ýmsu, sem er nú mikil, aukist, og að íslend- ingar innan skamms þurfi að taka 100,000 kr. til láns um árið gegn veði 1 fasteign. Ef hinir sjóðirnir geta lán- að c. 50,000 kr. um árið, þá þurfa menn enn 50,000 kr., sem bankinn gæti hjálp- að um að nokkru eða einhverju leyti. En þetta er minnst af því, sem ís- lendingar þurfa að taka til láns, öll hin stærstu af lánum vorum eru gjörð annarstaðar. Jeg álít að árið 1870 hafi vörumagn það, sem fluttist frá íslandi, verið hjer um 3 millíóna króna virði. 1879 ætlar „ísafold", að vjer höfum keypt útlendar vörur fyrir hjer um bil 4 mill. króna. íslenzku kaupmennirnir eru svo settir flestir, nema þeir í Reykja- vík, að þeir verða að útbúa verzlunar- staðina með vörur fyrir allt árið, eða þá vor og haust. Til þess að geta gjört það, þyrftu þeir að hafa handa á milli hjer um bil 3 millíónir kr. (sje verzlun vor 4 mill. kr. að upphæð) á vorin. Allir vita, að þeir hafa það ekki. Sumir þeirra taka hjer um bil ekkert til láns, sumir helmíng- inn af því, sem þeir verzla meíð, og sumir allt. J>ad er getgáta, þegar jeg segi, að þeir muni lána hjer um bil 1 millíón kr. árlega, en jeg hygg að það sje þó ekki langt frá þvi rjetta. Að síðustu eru lán til ýmissa fyrir- tækja, eins og bráðabirgðarlán til að fullgjöra hús eða skip, sem peninga vantar til, lán gegn handfengnu veði, kaup á ávísunum, peningasendingar til annara landa o. fl. þessháttar, sem jeg ekki skal geta mjer neins til um, þar eð jeg er því ókunnugur. Eptir því sem nú hefir verið tekið fram, er ekki ólíklegt, að menn þurfi að taka til láns hjer á landi árlega, og geti borgað aptur töluvert yfir 1 millí- ón króna um árið, en þetta er ekki tekið til láns hjer af því, að hjer er enginn sem getur lánað það. Ef hjer væri banki, þá færu þeir, sem vilja lána gegn veði í fasteign, strax til hans, en kaupmennirnir kæmu fyrst síðar. En þegar ástandið væri orðið svo breytt, að t. d. ‘/4 hluti af þeim lánum, sem þeir fá annarsstaðar, væri tekinn hjer, þá hefði útlenzkur banki að minni hyggju nóg að starfa. III. J>á er eptir að líta á það veð, sem menn geta gefið fyrir lánum sínum. Til þess þarf að vita, hve mikið þjóðin á í heild sinni, og svo þarf að velja það úr þjóðareigninni, sem er gott bankaveð. Slíkur reikningur getur aldrei orðið nákvæmur, það er getgáta mín um lánsþörfina heldur ekki. En í mörgum greinum má fara nærri því, hvað sú eða sú eignartegund er mikils virði. þjóðareignin grípur yfir alla þá hluti, sem eitthvert þjóðfjelag á. 1. Jarðarhundruðin á íslandi eru 86.755. Eptir skýrslum þeim, sem koma ár- lega frá sýslumönnunum yfir afgjald af fasteignarsölu, er alveg óhætt að setja hvert jarðarhundrað Kr. á 100 kr.................8,675,500 2. Bæjarhúsin íReykjavík eru metin til brunabóta, og bæj- irnir eptir lögboðnu mati á 939,304 3. Eptir virðingum, sem fram hafa farið samkvæmt lög- um um húsaskatt 14. des. 1877 voru öll önnur hús á landinu, sem „eigi eru not- uð við ábúð á jörð þeirri, sem metin sje til dýrleika“, og eru yfir 500 kr. virði, að undanteknum kirkjum, skól- um og sjúkrahúsum, metin á 917,024 4. Eptir búnaðarskýrslunum 1876 voru til hjer á landi þá í fardögum 1876 16,677 kýr og kelfdar kvígur, sem að líkindum má meta . . 1,000,000 5. Enn fremur 1058 geldneyti sem líklega má meta á . 50,000 flyt 11,581,828 1) Hjer í eru taldar opinberar byggingar. flutt 11,581,828 6. Sama ár voru talin fram 2^2034 fullorðin hross, að líkindum upp og niður á 60 kr....................1,322,000 7. og 9278 tryppi á 30 kr. 278,000 8. 58 þilskip á 6000 kr. . . 348,000 9. f fardögum 1876 voru enn fremur talin fram 6416 opin skip, sem ef til vill mætti virða á............ 10. Búshlutir c. 10,000 heimila, iookr. á heimili. . . . 11. Sauðfjenaður talinn eptir þeirri ull, sem flyzt út ár- lega (ekki eptir landshags- skýrslunum) hjer um bil 800,000 fjár á 10 kr. — hjer með telst einnig geit- Qe....................... 12. Fatnaður 72000 manna 50 kr. á mann , . . . 13. Utlend skuldabrjef í vörzl- um innlendra manna og stofnana eptir tilgátu land- fógetans ...... 14. Peningar manna í milli í gulli og silfri hjer um bil 15. Og að siðustu sje varn- ingur landsmanna virtur um lestir, þá eigum vjer kaupstaðarvörur allt að . Væri þetta rjett, ættiþjóð- areign vor að nema hjer um bil...................33,369,828 eða til þess að taka óná- kvæma tölu 33 millíónum króna. Allir geta sjeð, að hjer er ýmislegt verðlagt eptir ágizkun, og mjer er það ekkert kappsmál, hvort verðlagið er meira eða minna. Jeg vil einungis halda því föstu að þjóðaraleigan nemur eflaust hjer um bil 30 mill. kr., eða, ef til vill, meiru. þegar nú er verið að tala um banka, þá eigum vjer að velja úr þessum eig- um það, sem getur verið bankaveð. Gott veð fyrir banka eru jarðeignir og húseignir, sem tryggðar eru fyrir elds- voða, að svo miklu leyti, sem banki má lána gegn veði í fasteign. Hra L. í ísafold VII, 9 segir, að bankar í A- meríku megi ekkert lána gegn slíku veði nema þeir komist í öngþveiti. Sænskir bankar, sem hann einnig nefn- ir, mega lána x/4 af allri eign sinni gegn fasteignarveði. Og að íslenzkur banki einkum framan af, mætti lána það gegn veði í fasteign, og með afborgunum með 2ð/0 á ári álít jeg sjálfsagt. Vjer hjer höfum þá fasteignarveð í jörðum fyrir.....................8,675,500 kr. og í húsum tryggðum gegn eldsvoða (Reykjavík, og hinir kaupstaðirnir vilja komast í það fjelag einnig) 700,00 —- samtals . 9,375,500 kr. Að Vio eða V20 af Þyí veði síe n°8' fyrir því sem bankinn má lána gegn veði í fasteign, finnst mjer ekki vera efamál. Og ef það væri einn Qórði 1,340,000 1,000,000 8,000,000 3,600,000 900,000 1,000,000 4,000,000

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.