Ísafold - 16.07.1880, Síða 4
72
halda reglur fyrir byggingu á þjóðjörð-
um, sem virðast nokkuð flóknar á sum-
um stöðum, þó höfuðinntakið kunni að
vera gott. A sama stað, bls. 105—106
finnst einnig erindi frá ráðherranum í
þá stefnu, að kennarar við prestaskól-
ann láti prenta fyrirlestra sína, eða noti
að öðrum kosti kennslubækur annara
rithöfunda. Enn fremurer í tíðindunum
reglur fyrir gagnfrœðaskólann á Möðru-
völlum.
— Enn að nýju er búið að rífa laxa-
kisturnar og brjóta úr Elliðaánum. þ>etta
eru þær eðlilegu afleiðingar af hygg-
indum þeirra þingmanna (sjer í lagi
Benedikts Sveinssonar), sem á síðasta
þingi með engu móti vildu láta breyta
hinum nýju laxalögum (5. gr.) svo, að
dæmt yrði eptir þeim skýlaust. j?ótt
aldrei væri annað en þetta, þessi stefna
og viðleitni, að rugla rjettarmeðvitund-
ina og æsa menn til gripdeilda og yfir-
gangs, til þess að ná rjetti sínum, þá
ætti annar eins maður og Benedikt
Sveinsson, aldrei framar að koma á þing.
Ef slíkum mönnum tækist að neyða
landsstjórnina til þess, að eptirdæmi
Trampes, að panta hingað upp danska
hermenn, til að halda reglu, þá hefði
þeir unnið fósturjörðu sinni þarft verk.
— Mál það, sem amtmaðurinn í Suður
og Vesturumdæminu höfðaði gegn lands-
sjóði út af skrifstofufje sínu, hefir hann
unnið fyrir hæsta rjetti. Aptur hefir
landssjóður unnið mál, sem stórkaup-
maður Knudtson höfðaði gegn honum
út af brennivínstollgjaldi.
— Mælt er að kaupmenn hjer syðra
hafi nú komið sjer saman um, að borga
saltfisk með 40 kr. skippundið. Á Seyð-
isfirði og Vestmannaeyjum gengur hann
á 45 kr. skippundið. Ull borga kaup-
menn hjer nú með 80 a. pundið; dúnn
stendur í sama verði og í fyrra. Yfir
höfuð virðist verzlunin muni verða enn
þá óhagstæðari en síðastliðið ár, sökum
þess að útlenda varan, sjerílagi nauð-
synjar, standa nú í hærra verði enn þá.
— Á amtráðsfundi suðuramtsins, sem
haldinn var dagana frájo.júní til 3. júlí
var meðal annars rætt, hvernig verja
skyldi fje því, sem í hluta suðuramts-
ins er ætlað til eflingar búnaði, og var
sú stefna tekin, að fjenu bæri sjer í lagi
að verja til búfræðisferða og verkfæra
kaupa. Nokkrum nafngreindum mönn-
um voru gefin meðmæli til þess að fá
verðlaun fyrir miklar og góðar jarða-
bætur. Nöfn þeirra verða kunnug, þeg-
ar landshöfðingi er búinn að leggja úr-
skurð á málið. Sömuleiðis var kvenna-
skóla Reykjavíkur veittur álíka styrkur
fyrir 1881, eins og í fyrra.
Afli hefir til þessa verið hinn bezti,
og mun bæði vetrar- og vorvertíð mega
reiknast með þeim beztu sem komið
hafa á öldinni. En hætt er við að verð-
lag og, verzlun dragi talsvert úr arðin-
um. Ohóf landsbúa bætir ofan á því
sem á vantar, til þess að lítill ávöxtur
sjáist af árgæzkunni.
„Norðlingur44 fer nokkrum, en ekki
fögrum orðum um úrslit málsins um
þinghússstæðið. þ>ar er ýmislegt rang-
hermt og sumt rangfært. |>að mun á
sínum tíma gefast færi á, að Jeiða sann-
leikann í Ijós. Sama blað ritar í líka
stefnu um jarðarför Jóns Sigurðssonar.
þ>að er ekki gott að sjá, hvað blaðinu
gengur til, að sakast þannig um orðinn
hlut. J>ví jarðarförin verður ekki gjörð
um, þótt ritstjórinn kæmi sjáifur. Enda
var hún í alla staði sómasamleg, enda
þótt ritstjóri „Norðlings“ ekki kæmi að
prýða hópinn.
Alþingiskosiiingrtr. Mælt er,aðherra
Skapti Jósepsson bjóði sig fram til
þingmanns í Skagafjarðarsýslu; verði
hann kosinn í Skagafirði í stað hvers
sem er hinna fyrri þingmanna þessa
kjördæmis, þá má með sanni segja, að
Skagfirðingum eru ekki mislagðar hend-
ur með alþingiskosningar. Sje það apt-
ur á móti satt, sem raunar er ólíklegt,
að |>ingeyingar ætli að kjósa Benedikt
Sveinsson í staðinn fyrir Jón Sigurðsson
á Gautlöndum, þá verður ekki móti því
borið, að þeim væru mislagðar hendur,
og það í meira lagi. Mælt er enn frem-
ur, að Theodor bæjarfógeti Jonassen
bjóði sig fram í Borgarfjarðarsýslu, sira
|>órarinn Böðvarsson í Isafjarðarsýslu
og Björn kennari Olsen í Mýrasýslu.
|>að væri mikið vanþakklæti af Mýra-
mönnum, að hafna Hjálmi Pjeturssyni,
ef hann annars gefur kost á sjer; því
Hjálmur er góður og samvizkusamur
þingmaður, eins og hann er greindur
og vandaður maður. Um kosningar í
öðrum kjördæmum landsins hefir lítið
heyrzt með vissu, nema í Eyjafirði álítast
sjálfsagðir síra Arnljótur og Einar í Nesi.
• — A bókmenntafjelagsfundi 8. þ. m. var
það ákveðið, að semja skyldi »Frjettir frá
íslandi« fyrir árin 1878 og 1879; var til þess
kosinn hinn sami sem fyr, Valdimar prestur
Briem í Hrepphólum. Embættismenn voru
flestir kosnir hinir sömu sem áður: Forseti
Magnús Stephensen, skrifari Helgi Helga-
sen, fjehirðir Ami Thorsteinssen (í stað
Hallgríms Sveinssonar, sem baðst undan
kosningu).
— Með gufuskipinu Camoens, sem kom
hjer 14. þ. m. frá Skotlandi, frjettist, að Jón
Hjaltalín í Edinborg hefir fengið forstöðu-
mannsembættið við gagnfræðaskólann á
Möðruvöllum, en þorvaldur Thoroddsen
kennaraembættið við sama skóla. Sömuleið-
is frjettist að Friðrik Petersen (Færeyingur)
og Guðni Guðmundsson hafa nýlega tekið
embættispróf, báðir með 2 einkunn (haud
primi gradus), hinn fyrri í guðfræði og hinn
í læknisfræði.
.Lög uui brúargjðrð yfir þjórsá
Og' Ölflisá hafa til þessa ekki náð stað-
festingu konungs.
Tímarit Bókmcnntafjelagsins*, 2.
hefti, er út komið, og hefir inni að halda
tvær fróðlegar ritgjörðir, um straumana
umhverfis landið, og um fornleifar.
VEÐUEÁTTUFAR í REYKJAVÍK,
í JÚNÍMÁNUÐI.
þennan mánuð másegja, að veðurhafiyfir
höfuð verið einstaklega hlýtt og gott; fyrstu
viku mánaðarins var veður stillt (optast logn)
með talsverðri úrkomu; 8. var hvasst ánorð-
an, en svo aptur hægur, ýmist á austan eða
sunnan með rigningaskúrum, þangað til 18.,
að hann var hvass á austan, en bjart veður;
síðan var veður bjart og stillt til hins 24., að
hann gekk til landsuðurs í nokkra daga, svo
aptur logn eða útræna og bezta veður.
Hitam. var hæstur (um hád.) 18. + 15°R.
---- —lægstur(-------) 5.14. + 6°R.
Meðalt. um hád. fyrir allan mán. +9,05°R.
----á nóttu — — — +5,06'R.
Mestur kuldi á nóttu (aðfaranótt
hins 8. og 9.) .......... + 2°R.
Loptþyngdarmælir hæstur 2. og 3. 30,30) "g
--------------- lægstur 12.... 29,35:4
Að meðaltali ............... 29,58 f|
Rvík J 80. J. Júnassen.
Fyrirspurn til E. þórðarsonar.
Mig langaði til að eiga Passíusálmana, en mjer
brá heldur en ekki í brún, þegar jeg heyrði, að
þeir kostuðn í snotru bandi, 2 kr. 50 a., því jeg
er ekki rílcur. — Eins og á sálmunum stendur,
lcosta þeir óbundnir 66 a., (ó)myndin framan við þá
(sem mætti selja á 2 eða 3 aura), lcostar 15 a., og
eptir þessu kostar því bandið 1 kr, 69 a. Hvernig
stendur nú á því, að viðlíka band á hinni dönsku
lestrarbók Stgr. Thorsteinssonar, sem að öllu leyti
er meira en helmingi stærri, er selt fyrir eina60a.,
en bandið á Passíusálmunum 1 kr. 69 a. ?
Kristján.
AUGLÝSINGAR.
Hjá undirskrifuðum fæst til kaups :
FORTEPIANO, vandað, nokkuð brúkað.
JARNSTOLL, sem má hafa fyrir rmnstœði.
SAUMAVJEL, vönduð, til að stíga.
BROKKBÖND, ný, mjög vönduð.
VINDLAR, margar tegundir, og
FRANSKT RAUÐVÍN. Allt með bezta
verði.
Reykjavík 10. júlí 1880.
Kr. 0. porgrímsson.
Fyrir haustið kemur út, á mitt forlag,
REIKNINGSBÓK, eptir J>. Thóroddsen.
Bókin er samin með tilliti til laga 9. jan.
þ. á. um uppfræðingu barna í skript og
reikningi. Verðið mun ekki verða yfir 60
aura. Presta og aðra, sem þurfa bókarinn-
ar, bið jeg að láta mig vita það sem fyrst,
því töluvert af upplaginu er þegar pantað.
Reykjavík, 14. júlí 1880.
Kr. (). porgrimsson.
SVISSAR-OSTAR, KRISTÍANÍU-ÖL,
MYSU-OSTAR og KONÍAK og
GAMAL-OSTAR W I S K Y
fæst í hinni iwrsku verzlun í Reykjavík.
Nýjar birgðir aif NÍBURSOÐNUM MAT-
VÆLUM (kjöti og fiski) frá Mandals Pre-
serving Co., eru nú komnar til
hinnar norsku verzlunar í Reykjavík.
Frá Skildinganesi tapaðist aljarpur HEST-
UR 5 vetra gamall, marklaus á eyrum aðmig
minnir, en á báðum framhófum brennimerkt-
ur með 'híi. Sá sem kynni að hitta þennan
hest, er beðinn að gjöra svo vel að afhenda
hann hið allrafyrsta—mótborgun—til járn-
smiðs Björns Hjaltsted í Reykjavík.
p. t. Reykjavík, 16. júní 1880.
porgrímur Gudmundscn.
Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil.
Prentuð í Isafoldar prentsmiðju.