Ísafold - 21.12.1880, Side 4
128
Menn allir, 7 að tölu, komust á kjöl, en skol-
uðust af honum aptur og drukknuðu allir,
nema formaðurinn og annar til, sem Hjörtur
bóndi j>orkelsson í Melshúsum bjargaði, þeir,
sem drukknuðu, yoru allir frá Lambastöðum,
nema einn.
— Aðfaranótt hins 10. þ. m. gerði ofviðri
svo mikið af vestri, að fullornir menn þykj-
ast ekki muna slíkt. Yarðafþví skaðimikill
á skipum við sjó og heyjum í sveit. það vildi
til, að smástreymt var, annars telja menn
víst, að skipastóll hjer með sjó hefði sópað
burt, og jafnvel mörgum bæjum. þá rak upp
af Reykjavíkurhöfn upp í Laugarnes þilskip
þeirra Lambertsens og Jóns kaupmanns
Guðnasonar, og komust menn af. Einn bóndi
á Alptanesi missti allan sinn skipastól, átt-
æring góðan, sexæring og bát. Margir fleiri
misstu og skip, eða náðu þeim meir eða
minna brotnum. Hjallar veltust um og
brotnuðu og þak raup af húsum. Nú ganga
menn hjer um kaupstaðina, að reyna til að
fá timbur í skip í stað þeirra, er fórust, en—
kaupmenn eru timburlausir.
Sagt er að bóndi nokkur hafi orðið nýlega
úti í Flóa.
AUGLÝSINGAR.
A yfirstandandi hausti var mjer dregin í
Kollafjarðar-skilarjett svarthosótt ær lamb-
sogin; — mark a hægra eyra þessarar sauð-
kindarer: hvatrifað, fjöður framan, ávinstra
eyra: fjöður framan, en yfirmark óglöggt.
Auk þessa er ær þessi hornmörkuð með fjár-
marki mínu: stúfrifað hœgra, hamarskorið
vinstra, — og var dregin eptir þessu horn-
marki. Kind þessa á jeg ekki, en hún er
geymd hjer óseld,- og skora jeg á eiganda
hennar, að ráðstafa þessari eign sinni, gjöra
grein fyrir heimild sinni til að nota mark
mitt, og borga auglýsingu þessa. Kindin er
auðþekkt af litnum: aptur-fætur hvftir, hinn
hægri upp fyrir hækilbein, hinn vinstri upp
fyrir lágklaufir,—að öðru leyti alsvört.
þingvelli við Oxará, 9. nóv. 1880.
Jens Pdlsson.
1 prentsmiðju ,,Fróða“, á Akureyri eru ný-
útkomnar á kostnað eiganda hennar:
IIITKEHLLK
eptir Valdimar Asmundsson; þær eru aukin
og endurbætt útgáfa af „Stuttum rjettritun-
arreglum" eptir sama höfund, sem alveg
voru upp seldar (1200 expl.) á rúmu ári.
Ritreglurnar eru 5 arkir að stærð, og kosta
í kápu 85 aura, en í bandi 1 kr. þær ganga
mjög vel út og mæta góðum viðtökum hjá
landsmönnum, enda þykja þær einkar-vel
og nákvæmlega samdar handa alþýðumönn-
um og unglingum, og eru brúkaðar við alla
skóla á norðurlandi (barnaskóla, kvennaskóla
og Möðruvallaskólann). Nú með síðustu
póstferðinni voru þær sendar til flestra bók-
sala á landinu, og geta þeir, sem nota vilja,
fengið þær hjá þeim. I Reykjavík hjá bók-
bindara Br. Oddssyni, o. fl.
Óveitt prestaköll.
Metið. Auglýst.
i. Sandar í Kýraíirði (Sandasókn og Hrauns) í Vestur- Kr.
ísafjarðarprófastsdæmi ........................... . 485.62 n.maíi875.
2. Crarpsdalur (Garpdalssókn) í Barðastr.prófastsdæmi . 423.88 25. maí 1880.
3. Helgastaðir (Einarsstaðasókn) i Suðurþingeyjarpróf.d. . 686.20 17. júlí 1876.
Verður veitt með þeim fyrirvara, að þegar tækifæri
býðst, verður þverársókn (frá Grenjaðarstað) sam-
einuð Helgastaðabrauði, svo að það verða 2 sóknir,
Einarsstaðasókn og þverár (sbr. lög 27. febr. þ. á.
um skipun prestakalla) 1. gr. 135).
4. Ögursþing (Ogurssókn og Eyrar) í Norðurísafj.próf.d. . 732.10 i2.apr. 1880.
5. Staður í Hrútafirði (Staðarsókn) í Húnavatnspróf.d. . 504.12 6. júlí 1880.
Verður veitt með þeim fyrirvara, að við fyrsta tæki-
færi verður Núpssókn (frá Staðarbakka) sameinuð
Stað, svo að brauðið verður 2 sóknir, Staðarsókn
og Núps. Prestssetur þar skal vera aö Húki; til-
lag 200 kr. (sbr. tilvitnuð lög. 1. gr. 96).
6. Skinnastaðir (Skinnastaðasókn og Garðssókn í Keldu-
hverfi) með 200 kr. tillagi, verður veitt frá fard.
1881 (sbr. fyrnefnd lög, 1. gr. 137). 28. ág. 1880.
7. Fjörður í Mjóafirði (Fjarðarsókn, nýtt prestakall) með
tillagi 800 kr., veitist frá fardögum 1881, ef hinni
fyrirhuguðu breytingu á Dvergasteins prestakalli
verður við komið (sbr. fyrnefnd lög. 1. gr. 9). 28. ág. 1880.
8. Ríp (Rípursókn) í Skagafjarðarprófastsd................386.29 20. des. 1880.
Verður veitt frá fardögum 1881 og á samkvæmt i.gr.
prestakallalaga frá 27. febr. þ. á. að fá 300 kr. tillag.
Prjedikanir í dómkirkjunni um liátíðirnar.
Aðfangad. jóla, kl. 6: cand. Morten Hansen.
T ,. , I kl. 11: síra Matthías Jochumsson.
J o 1 a d a g)
| kl. lþ: —dönsk messa—dómkirkjupresturinn.
Annan í jölum, kl. 12: dómkirkjupresturinn.
Gamlaárskveld, kl. 6: dómkirkjupresturinn.
N ý á r s d a g , kl. 12: síra Helgi Hálfdánarson.
Sd. eptir Nýár: síra Eiríkur Briem.
norðast í Norvegi gr. 69sái menn
byggi og rúgi allstaðar, þó lukkist ekki
rúgur alltíð, en sumarið sje of stutt
fyrir hafra. Byggi er sáð i Tromsöen,
enn nú norðar, og Debes segir, að i
Færeyjum sje það hið bezta og vissasta
korn, og gefi af sjer 20 og 30 faldan
ávöxt, og vaxi þar bezt, úr því næt-
urnar fer að lengja. það var einnig
það korn, sem hjer á landi hjelzt lengst
við, hafi annars öðru korni verið hjer
nokkurn tíma sáð. Fræbygg skal stutt
og digurt, með grófum og þungum
kornum; því skal sá í feitan þurran
akur, nokkuð djúpt, helzt í leirjörð.
Nýja mykju má aldeilis ekki bera á
byggakur. Bezt er að bíða með að
uppskera byggið, þangað til að brakið
er úr því, sem heyrist á sumrin, þegar
byggið er fullvaxið og hitaveður er.
Hafrar þola meiri vætu og kulda en
bygg, er líka sáð nokkru þjettara og
fyr, og ekki valin svo góð jörð sem
byggi. þeir eru hentastir á nýtt ak-
urlendi, og hafa verið almennasta korn,
þar sem akuryrkja ekki hefir verið í
stand komin.
Ertur sást í feitri leirjörð, þriðjungi
gisnara en rúgur, eða í hið hæsta 1
pottur, í 120 ál. qvadrat. þær full-
komnast seint, en þær má slá, þó þær
sjeu grænar, því þær þorna og gulna
í bindunum, þær þrífast hvorki í mó
nje sandi.
Vikku skal sá snemma í hálendi og
sandjörð, en sízt í feita, vota eður seiga
leirjörð. þ>ær feita og hreinsa akurinn,
og vaxa bezt í vætuári, Uppskerutími
þeirra er, þegar stráið er farið að verða
jarpt.
— þar eð jeg undirskrifuð hefi nú nógan
reyr í strásetur, get jeg bæði gjört við gamla
stóla og riðið nýjar setur.
Ingiríður Brynjúlfsdóttir.
Reykjavík (doctorshús).
A skrifstofu biskupsins fást til kaups Bibl-
íur og Nýjatestamenti.
Sexróið skip nokkurra ára gamalt, vænt
og með öllum útbúnaði fæst til kaups hjá
Olafi Hjartarsyni í Skálholtskoti.
Almanak þjóðvinafjelagsins, með mynd af
Jóni Sigurðssyni, verður selt í húsi Jóns Jóns-
sonar skipasmiðs fyrir 50 aura hvert.
—- Jeg undirskrifaður hefi í dag fundið
koffort, rekið af sjó á Skaga 1 Út-Garði; það
er mjög fornlegt, ólæst, en bundið með ólar-
reipum; er í því ýmislegur búðarvarningur,
svo sem sængurdúkur, ljerept, tóbakogkafli
m. fl.; svo var og geymt i þyí brjef með ut-
anáskriptinni: „jómfrú Guðríður þorsteins-
dóttir á Hæli i Borgarhreppi".
þeir, sem geta sannað eignarrjett sinn að
nefndum fjármunum, geta vitjað þeirra til
undirskrifaðs gegn því að borga hirðing á
þeim og þessa auglýsing.
Gerðum í Garði, 27. nóv. 1880.
0 Sveinn Magnússon.
Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil.
Prentuð í ísafoldar prentsmiðju.