Ísafold - 14.05.1881, Page 4

Ísafold - 14.05.1881, Page 4
40 eða eptir mati rjettarins. Hinn stefndi hefir aptur á móti krafizt, að hin áfrýjaða fógetagjörð verði staðfest, og að áfrýjandinn verði dæmdur til að greiða allan kostnað af áfrýjun málsins skaðlaust, eðameð nægilegu eptir rjettarins mati. Bins og að framan er á vikið, hefir áfrýj- andinn haldið því fram, að hann hafi verið búinn að fullnægja hinum um rædda lands- yfirrjettardómi löngu áður en hinn stefndi beiddist fjárnáms eptir honum, með því að hann 27. septembermán. f. á. hefði látið hlutaðeigandinotariuspublicus afhenda hin- um stefnda reikningsskil fyrir fje því, sem hann (áfrýjandiún) hefði tekið við fyrir hönd þjóðvinafjelagsins frá þinglokum 1877 til þingloka 1879, sem og grein fyrir þeim bókum nefnds fjelags, sem hann hefði veitt móttöku, og hafa þessar skilagreinir, sem hinn stefndi ekki hefir viljað viðurkenna að fullnægðu dóminum, verið lagðar fram fyrir fógetarjettinum. Að því er snertir reikn- ingsskil áfrýjandans fyrir fje því, sem hann hefir veitt móttöku fyrir hönd þjóðvinafje- lagsins á áðurgreindu 2 ára tímabili, þá bera skjöl málsins með sjer, að áfrýjandinn þegar í ágústmánuði 1879 hefir afhent forseta nefnds fjelags »uppteiknun« yfir fje það, sem hann hefði tekið við á optnefndu tíma- bili, eins og hann líka í septbr. s. á. hefir af- hentfjelagsstjórninni sparisjóðsbók, fjelaginu tilheyrandi, hljóðandiupp á 600 kr., en með því að fjelagsstjórnin ekki vildi taka þessa uppteiknun gilda, sem reikningsskil, höfð- aði hún mál það á móti áfrýjandanum, sem áður er um getið. Meðan á máli þessu stóð fyrir undirrjettinum, sendi áfrýjandinn fje- lagsstjóminni aptur eptirrit eptir áminnstri uppteiknun, en hinn stefndi hjelt allt um það málinu áfram, og var áfrýjandinn eins og fyr segir, dæmdur til að gjöra fjelags- stjórninni full skil fyrir fje því og bókum, sem hann hefði veitt móttöku fyrir fjelag- ið. Skilagrein sú, sem áfrýjandinn síðan hefir látið notarialiter afhenda hinum stefnda til þess að fullnægja optnefndum dómi, er fólgin í svonefndum reikningsskilum, þar sem tekjur og gjöld eru tilfærð hver um sig með einni upphæð, án allrar sundurliðunar, og með skírskotun til tveggja fylgiskjala; en fylgiskjöl þau, sem skírskotað er til, eru aptur eptirrit eptir hinni sömu uppteiknun, sem áfrýjandi hafði afhent forseta þjóðvina- fjelagsins sumarið 1879, og aptur sent fje- lagsstjóminni eptirrit af 1880. Auk þess sem þessi nýju reikningsskil þannig ekki eru annað en eptirrit eptir hinum fyrri reikningsskilum, sem stjórn f>jóðvinafjelags- ins var búin að fá í hendur, áður en hún höfðaði mál á móti áfrýjandanum og fjekk hann dæmdan til að gjöra full reikningsskil, þannig fær yfirdómurinn ekki sjeð, að þau, einkum þar sem um skil fyrir opinberu fje er að ræða, verði skoðuð sem formleg og því síður sem full reikningsskil, því að þeim fylgja engin skilríki, hvorki nein kvittun fyrir fje því (1591 kr. 16 a.), sem áfrýjand- inn segist hafa goldið út, nje nein skýrteini viðvíkjandi fje því (2169 kr. 17 a.), sem hann segist hafa tekið á móti, svo að eigi er auðið að rannsaka, hvort hinar ýmsu upp- hæðir, sem uppteiknanirnar ná yfir, erurjett tilfærðar, nje einu sinni verður sjeð um sum- ar þeirra, hvorki hver hafi goldið fjelaginu þær, nje í hvaða skyni þær sjeu goldnar. þegar þar næst kemur til þeirrar skilagrein- ar, sem áfrýjandinn hefir verið dæmdur til að gjöra fyrir bókum, er hann hafi tekið við fyrir f>jóðvinafjelagið, þá er skilagrein hans í því efni þar í fólgin, að hann ekki hafi tekið við neinurn bókum, nje heldur afhent neinar ; að vísu getur hann þess, að meðan hann var í forstöðunefndfjelagsins hafibæk- ur fjelaginu tilheyrandi jafnaðarlega gengið fram og aptur milli sín og hinna stjórnenda fjelagsins, og slíkar bækur stundum verið afhentar í húsi því, þar sem hann bjó, en eins og hann ekki hafi veitt slíkum bókum formlega viðtöku, þannig viti hann ekki til, að nein slík bók sje enn í sfnum vörzl- um. Með því nú að áfrýjandanum í optnefnd- um landsyfirrjettardómi er gjört að skyldu að gjöra grein fyrir þeim bókum f>jóðvina- fjelagsins, sem hann hafi tekið við, meðan hann var í forstöðunefnd þess, og uppteikn- anir hans bera með sjer, að hann hefir keypt handa fjelaginu 360 landabrjef með skýr- ingum við þau, og borgað fyrir Andvara og Mannkynssögu yfir 900 kr., og að hann enn fremur hefir selt Almanök fyrir fjelagið, þá getur slík skilagrein ekki með neinu móti á- litizt fullnægjandi. f>ar eð yfirdómurinn þannig ekki fær sjeð, að áfrýjandinn hafi verið búinn að fullnægja landsyfirrjettardómi 19. júlímán. f. á., áður fjárnáms var beiðzt eptir honum, og hin áfrýjaða fjárnámsgjörð einnig að öðru leyti virðist vera lögum samkvæm, en í því efni skal sjerstaklega tekið fram, að tilskipun fyrir Danmörku 6. apríl 1842 ekki er leidd í lög hjer á landi, ber að staðfesta fjárnáms- gjörðina, og ber áfrýjandanum þá einnig eptir þessum úrslitum málsins að endur- gjalda hinum stefnda málskostnað fyrir yfirdóminum, sem virðist hæfilega metinn 15 krónur. f>ví dæmist rjett að vera : Hin áfrýjaða fjárnámsgjörð á óröskuð að standa. Afrýjandanum, Jóni lands- höfðingjaritara Jónssyni, ber innan 8 vikna frá dóms þessa löglegri birtingu að greiða hinum stefnda, Dr. Grími Thomsen, 15 krónur í málskostnað fyrir yfirdómi. — 25. apríl drukknaði merkisbóndinn Ásgeir Fiimbogasoil, dannebrogsmaður, frá Lundum 1 Borgarfirði, ofan um ís á f>verá; var hann að fylgja ferðamanni yfir ána. — 15. dag júlí 1880 andaðist merkiskon- an GUÐBJÖBG EYJÓLFSDÓTTIE, hús- freyja í Fljótsdal í Fljótshlíð, eptir að hún lengi hafði þjáðzt af kvalafullri innvortis meinsemd. Hún fæddist 3. marz 1823, gipt- ist sínum eptirlifandi ektamanni, Jónibónda Jónssyni í Fljótsdal 27. maí 1847, og eign- aðist með honum níu börn, átta syni og eina dóttur; 4 synir lifa hana. f>eim, sem þekktu Guðbjörgu sálugu, mun víst ekki þykja of mikið sagt, að Bang- árvallasýsla hafi misst eina sína mestu merkiskonu og kvennskörung, þar scm hún ljezt, því að þótt víðar hefði verið leitað um suðurland, mundi trauðlega hafa fundizt jafningi hennar meðal bændakvenna, þegar á allt er litið. Af náttúrunni var hún búin fjörugum og liprum sálargáfum, og hjer við bættist framúrskarandi menntunarfýsn og fróðleikslöngun, sem knúðu hana áfram og styrktu hana til að yfirvinna alla hina miklu og mörgu erfiðleika, sem hún átti við að stríða á hinum örðuga vegi sjálfsmenntun- arinnar, því aðGuðbjörg sáluga hafði engan kennara, heldur kenndi hvin sjer sjálf þær kvennlegu hannirðir, sem hún síðar meir svo fúslega veitti mörgu kvennfólki hjer í sýslu tilsögn í. Guðbjörg sál. var glaðlynd kona og einkar skemmtileg í viðræðum, hún var trygg og vinholl, úrræðagóð, þegar hennar ráða var leitað, sem opt bar við, hún kunni það sem fáir kunna, að stjórna geði sínu; hún var einstök húsmóðir, um- hyggjusöm og ástrík manni sínum og börn- um, og þungbæran barnamissi bar hún með stillingu og glaðri von um endursjón þeirra, því að hún var trúkona. Heimili hennar mátti heita fyrirmynd hvað reglusemi og sparsemi snertir, við fátæka var húu örlát, og hjartagæzku sína sýndi hún opt sjúkum, því hún var mikið náttúruð fyrir lækningar. „Einn af syrgjandi vinum hinnar framliðnu“. AUGLÝSINGAR. Mánudaginn hinn 16. og þriðjudaginn hinn 17. þ. m. verða við opinbert uppboð seldir allir þeir lausafjármunir, sem tilheyra dánarbúi Nikulásar sál. Jafetssonar, svo sem búsgögn, sængurföt, rúmstæði, borð- búnaður, fatnaður og margt annað fieira. Gppboðið byrjar kl. 11 f. m. á mánu- daginn í húsi dánarbúsins, og verða þar lagðir fram skilmálar fyrir sölunni. Skrifstofu bæjarfógeta í Beykjavík 7. maí 1881. E. Th. Jónassen. — Hjer með kunngjörist, að við verzlun mína fást nú strax og fram eptir þessu sumri, móti borgun i peningum, skozk ofn- kol af beztu tegund, skippundið á 3 kr. 25 a., einnig Newcastle ofnkol, skippundið á 3kr. 60 a. Beykjavík, 11. maí 1881. M. Smith. A næstliðnu hausti var mjer dreginn sunn- an úr Hvítársíðu, hvíthyrndur hrútur 3 vet- ur með fjármarki mínu : blaðstýft apt., biti fr. hægra, tvístýft fr. vinstra, sem jeg á ekki. Bjettur eigandi getur vitjað verðs fyrirhann til mín, að frá dregnum kostnaði, og samið við mig um markið. Guðlaugsstöðum í Blöndudal, JT6- 1881. Jón Guðmundsson. Fjármark Jóhannesar Magnússonar á Múlakoti í Stafh.t.: tvíst. fr. h., biti apt., sýlt vinstra, fj. fr. Mark þetta eru allir þeir sem hafa undir höndum Markaskrá Mýrasýslu frá 1880, beðnir að innfæra í hana. Múlak. 5. apríl 1881. J. M.s. Leiðrjetting: í seinasta blaði ísafoldar í fyrir- sögninni stendur: aprílmán., en á að vera maímán. Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil. Prentuð í ísafoldar prentsmiðju.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.