Ísafold - 07.07.1881, Page 1
ISAFOLD.
VIII16.
Reykjavík, fimmtudaginn 7. júlimán.
1881.
Ileikniiigsdómur.
Svo lesendur „ísafoldar“ geti sann-
færzt um, með hve góðum rökum herra
Indriði Einarsson bar oss á brýn, að vjer
vildum blekkja almenning í þessu máli,
setjum vjer hjer öll höfuðatriði hjeraðlút-
andi laga frá 29. okt. 1846 fyrir Belgíu.
1. gr. I reikningsdómnum sitja einn
dómsforseti, 6 meðdómendur og einn dóms-
skrifari.
þeir eru sjötta hvert ár útnefndir af
neðri deild þingsins, sem ávallt hefir rjett á
að víkja.þeim frá.
Dómsforseti og meðdómendur eiga að
minnsta kosti að vera þrítugir.
Skrifarinn á að minnsta kosti að hafa
fimm um tvítugt; hann hefir ekki dómsat-
kvæði.
2. gr. hljóðar um skyldugleika og mægða-
meinbugi, bannar þeim að vera þingmenn
eða launaðir embættismenn, eða að vera
nokkurt starf eða fyrirtæki viðriðnir, sem
heyrir undir reikningasvið ríkisins. Ekki
mega þeir heldur dæma neitt málefni, sem
svertir sjálfa þá, eða frændur þeirra og
venzlamenn allt að fjórða Iið.
3. gr. fyrirmunar þeim alla verzlun eða
því um lík gróðastörf.
4. gr. Meiri hluti dómenda verður að
vera til staðar til að ljúka við reikninga.
5. gr. Dómi þessum er falið að rannsaka
og Ijúka bæði við reikninga hinnar æðstu
umboðsstjórnar og allra reikningshaldara
við landssjóð.
Hann gœtir þess, að engum gjaldlið fjár-
laganna sje ofboðið, og að enginn1 umflutn-
ingur gjaldliða d milli eigi sjer stað.
Hann úrskttrðar reikninga hinna sjer-
stöku stjórnarvalda ríkisins, og skal hann,
í þeirri veru, safna öllum skýringum og reikn-
ingafylgiskjölum. A dómurinn rjett á að
heimta sjer afhent öll yfirlit, skýringar og
skilagreinir, er snerta tekjur og gjöld ríkis-
ins og hjcraðanna (provinces).
6. gr. Dómurinn skrifast beinlínis á við
aðalstjórnarvöldin; sömuleiðis við hjeraðs-
ráðanefndimar (amtsráðin) um það, sem
snertir reikninga hjeraðanna, og við reikn-
ingshaldarana um það, sem snertir reikn-
ingskil þeirra.
7. gr. I sjerstökum atvikuin, svo sem
þegar reikningshaldari fer frá embætti, deyr,
eða hefir sjóðsþurð, setur dómurinn frest
fyrir reikningsskilum til sín, að óskertum
þeim ráðstöfunum, semumboðsstjórninkann
að gjöra til reglu og eptirlits.
8. gr. Eptir hæfilega áskorun, og aðmeð-
teknu svari reikningshaldaranna, dæmir
dómurinn þeim sekt, er ekki má fara fram
úr hálfum launum þeirra eða öðrum þókn-
1) Hjer hefir danska þýðingin bætt inn orðinu;
uberettiget (heimildarlaus).
unum. Einnig getur dómurinn, ef svo ber
undir, heimtað þá afsetta eða þeim vikið
frá embættum.
þá sem hvorki hafa laun nje þóknun,
getur dómurinn dæmt í sekt, sem þó ekki
má fara fram úr 2000 fr. (hjer um 1347 kr.),
að óskertum rjetti sínum til að krefjast
reikningsskila, samkvæmt lögum, af hverj-
um reikningshaldara innan tiltekins tíma.
9. gr. þegar sekt er dæmd, skeður það
eptir kröfu ýngsta meðdómanda, sem þá er
kærandi fyrir hönd hins opinbera.
10. gr. Dómurinn greiðir og sker úr
(régle et apure), reikningum ríkisins og hjer-
aðanna, og leggur fullnaðarúrskurð á um
það, hvort reikningshaldarar hafa goldið
fullt, fram yfir eða of lítið.
Eigi hið fyrra tvennt sjer stað, kvittar
hann þá alveg, fyrirskipar, að tryggingarfje
þeirra sje þeim aptur skilað, eða, ef svo ber
undir, að burt sje numið allt bann og hapt
á eigum þeirra, sem lagt kynni að hafa verið
á þær, í ábyrgðarskyni.
I síðasta tilfellinu setur hann þeim frest
til þess að gjalda fullt út.
þegar reikningarnir snerta landssjóð, eru,
hvernig sem á stendur, samrit af úrskurðum
dómsins send fjármálaráðherranum tilfram-
kvæmdar, en hjeraðsráðsnefndinni, þegar
þeir snerta hjeraðaeyri.
Hafi reikningsdómurinn ekki öðruvfsi
ályktað, skulu reikningshaldarar lausir allra
mála þrem árum eptir það, þeir hætta starfi
sínu.
11. gr. þrátt fyrir fullnaðarúrskurð á
reikningi, getur dómurinn í þrjú ár frá dag-
setningu úrskurðarins yfirskoðað hann á ný,
hvort heldur eptir beiðni reikningshaldara,
byggðri á skjölum, sem fundizt hafa eptir
það úrskurður var fallinn, eður ex officio,
hafi við yfirskoðun annara reikninga fundizt
villur, einhverju verið sleppt, eður eitthvað
tvítekið.
Jafnvel eptir þennan tíma má taka hvern
reikning til ítrekaðrar yfirskoðunar, hafi úr-
skurðurinn stuðzt við fölsk fylgiskjöl.
12. gr. Finni dómurinn við rannsókn
reikninga, svik eða fjárdrátt, gjörir hann
fjármálaráðherra viðvart, og ber málið undir
dómsmálaráðherra, sem þá hefja málssókn
við hina almennu dómstóla gegn þeim seka.
13. gr. Úrskurðir dómsins gegn reikn-
ingshöldurum hafa lagakrapt; þó má áfrýja
þeim til hæstarjettar (cour de Cassation),
sökum formgalla, eða komi þeir í bága við
lögin.
þykist reikningshaldari hafa ástæðu til
að fá úrskurði hrundið sökum formgalla eða
lögleysu, skal hann áfrýja honum innan
þriggja mánaða frá birtingu úrskurðar. Skal
dæma málið eptir stefnu án málaflutnings.
Sje úrskurði hrundið, er honum vísað
til nefndar, sem þar til er kvödd af neðri
deild þingsins, og sem dæmir málið fullnað-
ardómi eptir þeirri málsaðferð, sem reikn-
ingsdómur fylgir.
14. gr. Engin iítgjaldsdvísun greiðist úr
landssjóði, nema reikningsdómtor hafi skrifað
upp á hana.
pyki dómi sjer ekki bera að skrifa upp
d ávísunina, rannsakar ráðherrafundur á-
stœðurnar fyrir neituninni.
Komist rdðherrar að þeirri niðurstóðu,
að fjeð skuli greitt ei að síður upp á þeirra
ábyrgð, skrifar dómur upp á ávisunina með
fyrirvara.
I ársskýrslu sinni til þingsins gjörir
dómur grein fyrir ástœðum sínum.
15. gr. Rjettlœta má lántökuna eptir
uppáskriptina:
1., þegar gjaldliðurinn, eptir eðli sínu,
útheimtir fjárstyrk til einhvers útgjalds ;
2., þegar framkvœmd einhvers fijrir-
tœkis, sem umboðsvaldið ráðstafar, útheimtir
fjárreiðu fyrirfram (avance) til reiknings-
haldara fyrirtækisins.
pó má þessi fyrirframgreiðsla ekki fara
fram úr 20000fr. (hjer um bil 14000 kr.), og
skal rjettlœta brúkun fjárins innan 4 mán-
aða.
Engin ný fjárreiða upp á 20000 fr. eða
þar fyrir neðan, má eiga sjer stað i þarfir
fyrirtækis, sem umboðsvaldið stendur fyrir,
fyr en biíið er að leggja fyrir reikningsdóm-
( inn öll fylgiskjöl til rjettlœtingar hinni fyrri
fyrirframgreiðslu, eða sjeu ekki liðnir fullir
fjórir mánuðir frá þvi sá partur af fjárreið-
unni, sem ekki er búið að rjettlœta, var út-
goldinn.
Allar aðrar undantekningar verða að
vera teknar fram i lögum þaivi, sem heimila
útgjaldið.
16. gr. Samrit af skuldaskrá rlkisins á
að geymast hjá reikningsdómi. Dómurinn
hefir vakandi auga á, að allir umflutningar
og afborganir (á skuldabrjefum), sem og
öll ný lán sjeu nákvæmlega bókfærð. Hann
sjer og um, að allir reikningshaldarar gefi
lögboðna tryggingu fyrir fjárinnheimtu sinui.
I þessu skyni fær dómurinn frá öllum aðal-
umboðsvöldum skrá yfir tryggingarupphæðir
allra reikningshaldara, í hverri veru sem
trygging er gefin.
Ekkert skuldabrjef eða skuldarflutnings-
brjef, eða tryggingarskjal er gilt, nema reikn-
ingsdómur hafi skrifað upp á það.
Dómurinn heldur bók yflr öll lán, sem
samkvœmt fjárlögum eru veitt í þarfir verzl-
unarinnar, iðnaðarins , jarðyrkjunnar eða i
hverju öðm skyni sem er, og sem endurborg
ast eiga, og sjer um, að lán þessi sjeu ná-
kvœmlega bókuð bœði í reikningum reiknings-
haldara og i aðalreikningi ríkisins.
17. gr. Reikningsdómurinn heldur skrá
% samriti yfir eptirlaun af landsfje. Dómur-
inn bókfœrir og skrifar upp á öll veitinga-