Ísafold - 30.11.1881, Page 2
112
Á sumardag eru póstarnir vanalega
minnst 2 daga á leiðinni frá Rvík að
Saurbæ, og vor og haust jafnaðarlega
3—4 daga, í illviðrum og ófærðum á
stundum talsvert lengur; og er því
auðsætt hver sparnaður myndi verða
við það, ef einn maður eptirleiðis flytti
norðan og vestan brjef og sendingar á
nokkrum klukkustundum milli Akra-
ness og Reykjavíkur fram og aptur 8
sinnum á ári, í stað þóss að tveir póst-
ar verja nú jafnopt til þess frá 2—4 og
5 dö'gum í hvert sinn, sem þeir nú fara
norður og norðan og vestur og vestan.
2. Greidari og vissari samgöngur milli
allra hjeraða og kauptúna í kringum
Faxaftóa frd Garðskaga að Akraness-
skaga. Slíkur gufubátur, semhjerræð-
ir um, ætti jafnframt að taka að sjer
alla flutninga innan Faxaflóa, svo sem
milli Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Voga,
Njarðvíkur, Keflavíkur, Garðs og Leiru,
sömuleiðis milli Reykjavíkur, Akraness,
Brákarpolls og Straumfjarðar. Myndu
slíkir flutningar verða talsverðir, eru
þeir það þegar eins og nú er ástatt,
en yrðu sjálfsagt miklu meiri, þegar
menn hefðu vissu fyrir reglubundnum
milli-ferðum á tilteknum tímum og með
þolanlegum kjörum. Einnig myndi allt
ferðafólk bæði norðan og vestan miklu
fremur sæta gufubátsferð af og á Akra-
nes, af og á Brákarpoll, til og frá Rvík
heldur en, að fara landveg alla leið um-
hverfis Hvalfjörð, eða kaupa sjerstak-
an flutning milli Rvíkur og Akraness,
sem eins og nú hagar til, lcostar 18—
20 kr. fyrir einhleypan mann. Eptir
að aðgjörðirnar á fjallvegunum yfir
Holtavörðuheiði og Bröttubrekku nú
þegar eru komnar langt á leið, ræður
það að líkindum, að þessir millivegir
milli norður- og vesturlands á annan
bóginn, og suðurlands á hinn, muni
verða miklu tíðfarnari en áður, ef fljót
sjóvegsferð væri vís á ákveðnum tímum
milli norður- og vesturlands á aðra hlið-
ina og suðurlands á hina, sjer í lagi ef
þetta á sjer stað á þeim tímum árs,
þegar enginn annar fjallvegur verður
farinn vestur og vestan, norður og norð-
an, en Holtavörðuheiði. Hæfilega stór
gufubátur, með fast ákveðinni ferða á-
ætlun árið um kring eða þá mestan
hluta árs, sem færi um Faxaflóa úr
Garði og Leiru eða frá Keflavík upp
á Akranes og Brákarpoll, og sem, auk
Rvíkur, kæmi við á hæfilega mörgum
stöðum, myndi brátt draga að sjer nægi-
lega flutninga bæði af mönnum og varn-
ingi, þótt hann færi þessa leið t. d. á
hverjum 8—10 dögumj fram og aptur.
þ>á er ekki ólíklegt að slíkur bátur
þess á milli opt geti komið í góðar
þarfir, þar sem sigling er eins' mikil og
í Rvík, til þess að toga seglskip í og
úr höfn í lognum eður andviðrum.
þ>ví til frekari sönnunar, hver þörf
er á slíkum bát, skal þess getið, hve
miklar milliferðir þegar, eins og nú er
ástatt, eru milli Akraness og Rvíkur í
hverjum mánuði ársins.
í janúarmánuði byrja vermannaferðir
að norðan til suðurlands, og má telja
þessa vermenn og aðra ferðamenn í
öðrum erindum allt að 400.
í febrúar halda þessar ferðir áfram á-
samt ferðum Dalamanna^ Borgfirðinga og
Mýramanna, og má ætla, að einn mað-
ur fari til sjóar frá hverjum bæ úr
þessum sýslum, eða um 400, að ótöld-
um Akurnesingum. Mun í allt mega
gjöra ráð fyrir allt að 500 farþegjum,
sem vanalega verða að greiða 1 kr.
hver fyrir sig og farangur sinn af Akra-
nesi til Rvíkur.
í marz minnka þessir flutningar mik-
ið, nema fyrir og um póstskipskomuna.
jþá eru opt férðamenn að norðan og
vestan á leiðinni til þess að sigla með
því, flytja rjúpur og sækja nauðsynjar
til Rvíkur, og má ætla, að þessir flutn-
ingar nemi 100 krónum. En ef vissar
gufubátsferðir væri, myndu kaupmenn
á Akranesi og jafnvel Brákarpolli nota
þær mikið, og ekki horfa í að verja
allt að 200 kr. tih þeirra.
í apríl er umferðin minnst, sjer í lagi
síðan Akurnesingar eru að mestu hætt-
ir að sækja salt til Rvíkur. þó myndi
hún aptur aukast, ef vissar og áreið-
anlegar milliferðir kæmust á.
í maí er umferðin aptur mikil, því
þá hverfa sjómenn aptur heimleiðis og
jbændur eru þá á loka- ferðum sínum.
Má telja þessa flutninga um 500 kr.
í júní er umferðin sömuleiðis tals-
verð, mest. af skreiðarflutningum að
sunnan, og heldur mikið af þeim á-
fram sjóleiðis inn í Borgarfjörð. Má
svo að orði kveða, að á degi hverjum
sje með hverju aðfalli flutningsferð inn
í Borgarfjörð, þegar veður leyfir. En
ekki er hægt að segja, hverju það
nemur.
I júlí er minna um ferðir, nema kaupa-
fólks, sem'þá streymir að sunnan, vest-
ur á Mýrar og inn í Borgarfjörð, þá
eru og nokkrir kaupstaðarflutningar í
og úr Rvík.
í ágúst eru flutningarnir minnstir, en
byrja aptur í septembex ; bæði kaupa-
fólk og haustlestir til Rvíkur. þess-
ar ferðir haldast einnig fram i októ-
bermánuð.
í nóvember komast menn ekki hjá
flutningum. fví veldur hin síðasta póst-
skipsferð, og myndi kaupmenn á Akra-
nesi og Brákarpolli þávilja vinna líkt
til ogi marz, að vissar samgöngur væri
milli Rvíkur á annan bóginn og Akra-
ness og Brákarpolls á hinn.
1 desember eru jólaferðir Akurnesinga,
og myndi þá margur vilja gefa nokkuð
til þess, að kostur væri á vissum og
fljótum milliferðum.
Hjer að auk má til nefna laxflutning
úr Borgarfirði til Rvíkur á sumardag,
o. a. fl.
Af þessu má ráða, hve mikið fje
mætti sparast við slíkar gufubátsferðir,
en enginn reiknar i tölum það tlma-
tjón, sem ieiðir af því samgönguleysi,
sem nú er, þegar margur maður má
dögunum saman liggja til byrjar i nauð-
synjaerindum sínum.
f>að sem alþingi í sumar er var þótti
vanta til skýringar málefni þessu, var
áætlun um kostnaðinn, og væri því bæði
rjett og einnig kleyft, að útvega þess-
ar skýringar til næsta þings.
J>að ervonandi, að málefnið þá bæði
verði og þyki vera nægilega undirbúið
til þess það geti fengið góða áheyrn
hjá löggjafarvaldinu. Lán ætti að
minnsta kosti að geta fengizt, og einn-
ig nokkurt tillag á ári hverju fyrir póst-
flutninga. Af hálfu stjórnarinnar ætti
maður að mega búast við eins góðum
undirtektum, eins og Rosenörn Ijet í
tje fyrir rúmum 30 árum siðan. En —
mikið er eigi að síður undir því komið,
að þau sýslufjelög, sem hlut eiga að
máli, og jafnframt amtsráð suður- og
vesturamtsins í orði og verki sýnir á-
huga á þessu velferðarmáli sunnlend-
ingafjórðungs. Reykjavíkurkaupmenn
hafa nú einnig tækifæri til a sýna þá
framtakssemi í verzlunarmálum -— því
þetta fyrirtæki snertir verzlun þeirra á
margan hátt — sem vjer ekki efumst
um þeir hafi til, þegar áliggur. Stjett-
arbræður þeirra á Brákarpolli og Akra-
nesi munu eflaust fylgja þeim örugg-
lega. Loksins ættu landsbúar um land
allt að minnast þess, að þótt málefni
þetta snerti sjer í lagi suðurland, þá
er það allra hagur, að póstferðirnar
verði greiðari og fljótari.
Borgfirðingur.
Skipreikar. Fyrir Sljettu fórst í haust
(sökk ?) að sögn gufuskip norskt, hlað-
ið með síld. Skipið kom af Akureyri.
Nokkrum af skipverjum varð bjargað.
í veðrinu manudaginn 21. nóv. fórst 2.
manna far úr Garði og með því merk-
isbóndinn Einar á Hofi.
Síldaryeiði hefir fram eptir öllu hausti
verið mikil á Akureyri.
A Garðskaga óska nú margir sjófar-
endur, sem fara um Faxaflóa, að viti
yrði byggður, og ætla þejr, að annars
sjeu ekki hálf not af vitanum á Reylcja-
nesi. Enda er mjög óhreinn sjór fyrir
Garði; hættir skipum því við að halda
sjer of fjarri suðurströndinni, en straum-
ar vilja jafnan þoka þeim til útnorðurs,
og veldur það þeim mörgu skipreikum
sem orðið hafa undir Jökli.
Útlendar frjettir.
Ekki eru hin nýju írsku landbúnað-
lög Gladstones enn þá farin að sýna
neinn góðan árangur. Æsingarnar á
írlandi hafa fremur aukizt en rjenað.
Og hefir stjórnin því sjeð sig tilknúða
að taka ýmsa af höfuðmönnum hins
isvo kallaða landflokks (land-l'eague)