Ísafold - 31.01.1883, Blaðsíða 4

Ísafold - 31.01.1883, Blaðsíða 4
8 yl fastur á Sauðanesi. Hann tók stúdents- próf 1844, embættispróf á prestaskól- anum 1850 og 1852 var hann vígður sem aðstoðarprestur afa síns síra Gunn- ars Gunnarssonar í Laufási; við fráfall hans 1854 var honum veitt það presta- kall. Nokkur ár var hann prófastur í þingeyjarsýslu; á þjóðfundinum 1851 hafði hann sæti sem fulltrúi þingey- inga. Hann kvongaðist 1851 Sigríði Einarsdóttur; af börnum þeirra lifa Vilhjálmur bóndi i Kaupangi, er hlotið hefir verðlaun fyrir dugnað af gjöf Kristjáns konungs 9. og kand. þórhall- ur, sem var að taka embættispróf í guð- fræði við háskólann, þegar póstskipið fór þaðan. Síra Björn heitinn var orð- lagður kennimaður, og skáld gott; í hjeraði sínu var hann atkvæðamikill og hvervetna vinsæll og mikils metinn. 23. þ. m. andaðist hjer í Reykjavík frú Ragnheiður Smith, kona konsúls Smiths; hún var dóttir hins nafnkunna merkismanns Boga stúdents Benedikts- sonar á Staðarfelli, systir Benidiktsens heitins í Flatey og þeirra systkyna. 8. þ. m. dó hjer í Reykjavík Guð- mundur bóndi Eiriksson frá Kalmans- tjörn 48 ára að aldri. 15. þ. m. andaðist Vigfús Hjörtsson bóndi á Hliðsnesi á Álptanesi 75 ára að aldri. Frjettir innlendar eru þær helztar að næstum alstaðar að er að heyra, að menn sjeu mjög tæpt staddir með fóður fyrir skepnur sínar, ef nokkur harðindi gjörir, en yfir meiri hlut landsins hefir tíðarfar verið gott fram undir þennan tíma. 21. nóvember gjörði logndrífu mikla í Múlasýslum og Austur-Skapta- fellssýslu og stóð í 4 daga; gjörði þá víðast jarðlaust um fjörðu og lágsveitir en eigi eins til fjalla, því þar var snjór- inn þurrari; hin yngstu brjef úr þess- um sveitum eru skrifuð hálfum mánuði síðar og voru þá engin umskipti orðin, en verið getur að þar hafi þó batnað skömmu síðar í norðanhláku þeirri, er leysti mikið snjó í norðurlandi. Með jólaföstu gjörði í Strandasýslu illviður og jarðbannir voru engin umskipti orð- in þar fyrir norðan Bitru rúmri viku eptir nýjár; annarstaðar um norður- hluta landsins var tíð góð fram að sól- stöðum; þá gjörði um tíma jarðskart þar víða þangað til í hlákunum eptir þrettándann; á suðurlandi hefir hver- vetna verið góð tíð og jarðir nógar fram að þessum tíma. Heilsufar manna er hvervetna að heyra gott. Póstskipið Laura kom hingað 26. þ. m. og hafði gengið vel ferðin ; það hafði komið við bæði á Skotlandi og á Færeyjum, þó að það væri eigi tekið fram í ferðaáætluninni. Einhættayeitingar: Landlæknisevibættið er veitt settum landlækni hr. G. Schierbeck. Skaptafellssýsla er veitt settum sýslu- manni hr. Sigurði Ólafssyui. Breiðabólstaðar prestakall á Skógar- stönd er veitt kand. Magnúsi ILelgasyni (frá Birtingaholti Magnússonar). Embættispróf í lögum hefir hr. Hall- dór Daníelsson (frá Hólmum Halldórs- sonar) tekið með 1. einkunn. Hr. Eiríkur Magnússon M. A. bóka- vörður í Cambrigde hefir verið sæmd- ur riddarakrossi dannebrogsorðunnar og er það makleg viðurkenning á hinni drengileguframmistöðu hans til að reyna að bæta úr neyð manna hjer á landi. Utlendar frjettir, er bárust nú með póstskipinu voru litlar, en hvervetna var friðsamlegt sem stendur. þ>að sem mest þótti tíðindum sæta var fráfall Gambetta, hins mikla þjóðskörungs Frakka; hann. dó eptir stutta lega á nýársnótt í blóma aldurs síns 44 ára gamall; æfiágrip hans er f almanaki f>jóðvinafjelagsins fyrir þetta ár. í Egiptalandi voru Englend- ingar að festa vald Kedivans, skipa mál- um landsins og koma lagi á eptir ófrið- inn, stóð Dufferin lávarður fyrir þeim störfum. í byrjun Decembermánaðar fjell dómur í málum Arabis ; var hann og ýmsir af fylgismönnum hans dæmd- ur til útlegðar og er mælt að honum sje bústaður ætlaður á eyjunni Ceylon við Indland og allmikið fje til uppeld- is; þykir norðarálfumönnum þeim, er eiga um sárt að binda fyrir manndráp- in og ofsóknirnar í Egiptalandi, dóm- urinn ærið vægur og segja hætt við, að slíkur dómur muni eigi fæla aðra frá að taka upp lík ráð gagnvart norð- urálfumönnum, ef svo ber undir. Við rannsókn málsins hafði það komið fram að Arabi hafði verið örfaður til stór- ræða sinna úr ýmsum áttum og þar á meðal af mönnum, er standa í nánu sam- bandi við soldáninn í Miklagarði ogjafn- vel að soldán sjálfur hafi verið í vitorði um ráð hans. í írlandi þykir nú vera minna farið að bera á óspektum held- ur en að undanförnu, enda hafa stór- eignarmennirnir ensku á margan veg sýnt tilslakanir við leiguliða sína. í Norvegi höfðu kosningar til stórþings- ins gengið svo að vinstri menn hafa enn meiri atkvæðafjölda á þinginu en áður. í Danmörku hafði það sem af var vetrinum verið kalt og frostasamt. I Bandaríkjunum í Ameríku hafa kosn- ingar gengið mjögívil ríkjavaldsmönn- um (demokrötum). Vopnasala Larsens, Dronningensgade 34, Kristianía, er hefur einkarjettindi til þess að selja í Skandinavíu vopn frá byssusmið H. Larsen, Drammen og rifflafjelagi Larsens, Liege, mælir fram með: RÍffllim. ýmislega löguðum einkaleyfis-rifflum til skotmarksskota og dýraveiða. Einkanlega má taka fram Salóns-riffla, sem á vetrum má nota inni í herbergjum. Haglabyssuin, sem eru holaðar eptir hinni nýjustu aðferð, bæði fyrir messingshylki og papphylki. Við „Internationale Jagd-austellung“ i Cléve 1881 hlutu rifflar Larsens gullmedallu, og voru settir nr. 1 í prófskotunum. Við 5 fyrstu verðlauna-samkomurnar, sem voru haldnar 1881 í Noregi, var heitið 365 verðlaunum, og þar af fengust 249 verðlaun með rifflum frá smiðju Larsens, 109 verð- laun fengust með rifflum frá 14 öðrum byssusmiðum, og 7 þekkja menn eigi. Menn unnu því með rifflum frá verksmiðjum Larsens meira en tvöfalt fleiri verðlaun en með rifflum frá öllum öðrum vopnasmiðum til samans. Verðlistar á rifflum með 74 teikningum og á haglbyssum með 71 teikningu verða sendir undir- gjafarlaust eptir beiðni. Að minnsta kosti 1500 vopn eru ávallt til smíðuð eða í smíðum. Alls konar vopn eru smíðuð eptir beiðni manna. Umburðarbrjef og kort yfir Rauðárdalinn (á íslenzku og dönsku) verða send og borgað undir með póstum til Islands hverjum, sem sendir utanáskript til sín eða vina sinna til A. E. Johnson, Com. of Emgr., St. P., M. & M. R. R. St. Paul. Minn. America. Medicinal ægte Tokayer (M.3269). (den mest nærende og styrkende Vin) samt mine övrige allerede i 17 Aar til Norden dírekte im- portede ungarske röde, hvide og Dessert- vine anbefales og garanteres med mit Navn i Lakken: J. Bauer, Tordenskjoldsgade 19. Kjöbenhavn K. M. L. Möller & Meyer (xotlicrsgade 8 i Kjöbenhavn anbefaler alle Husholdnings- og Deli- katesse-Varer; Farvevarer, Spirituosa, som Rom, Cognac og Banco; — Apo- thekervarer. Andre Varer besörges uden Avance. Priskurant tilsendes franco. (M. 7401). Útgefandi: Björn Jónsson, cand. phil. Ritstjóri: Eiríkur Briem. Prentuð í ísafoldar prentsmiðju,- Sigm. Guðmundsson.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.