Ísafold - 30.06.1883, Blaðsíða 1
Argangurinn, 32 blöð, kostar
3 kr. innanlands, en í Danm.,
Svíþjóð og Norvegi um 3!/2
kr., í óöium löndum 4 kr.
Borgist í júlím. innanlands,
erlendis fyrir fram.
ÍSAFOLD.
Auglýsingar kosta þetta
hver] lína : aur>
Étt|meðmeginletri...IO
^meö smaletri....... »
ítak{me®mtnletri--'12
Jmeð smaletn...15
Pöntun er bindand
simí1
fyrir ár. — Uppsögn til áraskipta með tveggja mánaða fyrirvara. 3
X 13.
Reykjavík, laugardaginn
30. júnímán.
1883.
Útlendar frjettir.
Khöfn 27, maí 1883.
Hjer var hjeraðsfundur mikill vinstri-
manna á Sjálandi í Herthadal nærri
Hleiðru fyrra sunnudag, 20. maí. Tíu
eða 14 þúsundir manna. Samþykkt
meðal annars nokkurs konar áskorun
til konungs um ráðherraskipti. Hann
svaraði í gær erindrekum fundarins, 12
bændum, að þingmenn einir væri lög-
legir fulltrúar þjóðarinnar, og að hann
einn rjeði hvaða ráðgjafa hann hefði
o. s. frv., af sama tagi og fyr. Viðlíka
fundum mun eflaust haldið áfram í öðr-
um hjeruðum landsins, þrátt fyrir þessi
svör. Mikið barizt nú um aukakosn-
ingu á Friðriksbergi. J>að er svo sem
hliðið að Kaupmannahöfn, sem vinstri-
menn leggja nú allt sitt kapp á að
vinna undir sig.
Ríkismálsóknin í Norvegi gegn stjórn-
arherrunum byrjaði 18. þ. m.
Búið nú að dæma morðingja þeirra
Cavendish og Burkes á írlandi, sex af
lífi (2 þegar hengdir), hina í hegningar-
vinnu. Fimm höfðu skotið sjer undan
hegningu með því að gjörast sögumenn
eða uppljóstrarmenn, samkvæmt enskum
lögum.
Páfinn hefir ámælt þunglega í um-
burðarbrjefi írskum kennilýð kaþólskum
fyrir hlutdeild í byltingaráðum, og bann-
að meðal annars að styðja að samskot-
um í heiðursgjöf handa Parnell. írar
eru annálaðir fyrir páfahollustu, og
því þykja þetta tíðindi. En örðugt að
svara páfa, er hann er óskeikull. jþeir
hafa það ráð að kenna brjefið rógi af
hendi erindreka Bretastjórnar í Róm.
Dufferin lávarður búinn að afljúka
erindinu á Egiptalandi. Hefir búið til
handa Egiptum stjórnarskrá og látið
jarl samþykkja. Bretar ráða þar lög-
um og lofum upp frá þessu.
Bretar ráðgera að búa til nýjan Súez-
skurð, til þess að vera ekki komnir upp
á hinn franska eptir Lesseps. J>að lík-
ar Frökkum ekki vel.
Fiskisýningin mikla í Lundúnum opn-
uð 12. þ. m., eins og til stóð, af prinz-
inum af Wales ; drottning lasin. Dan-
ir eru þar mjög svo annara eptirbátar.
Skrifað hingað frá I.undúnum, að spurt
sje töluvert eptir á sýningunni sýnis-
hornum af íslenzkum varningi, t. d.
prjónlesi.
Cetewayo konungur, er Bretar skil-
uðu aptur ríki sínu í fyrra, Zúlúlandi,
er farinn að berjast þar syðra við
granna sína og veitir miður. Munu
Bretar til neyddir að skerast í leik-
inn.
Krýningin Rússakeisara og drottn-
ingar hans fer fram í dag í Moskva.
Hátíðahöldin byrjuðu 22. þ. m., með
innreið í borgina. Standa til 10. júni.
Dýrð og viðhöfn óumræðileg. Bara að
jörðin tolli nú saman. Sægur af út-
lendu stórmenni við krýninguna. Hjeð-
an Valdimar prinz, með fríðu föruneyti.
Enn fremur fulltrúar frá þeim 112
þjóðum, sem Rússakeisari á yfir að
ráða.
Friður fullgerður nú að sögn með
Chileverjum og Perúmönnum. Perú-
menn láta suðurhluta landsins ; má þó
hverfa aptur, ef landsbúar óska þess,
að io árum liðnum. Perú þjakað
grimmdarlega á allar lundir af Chile-
verjum þau 2 ár, sem liðin eru síðan
þeir unnu fullnaðarsigur.
Dáinn Laboulaye, nafntogaður þjóð-
megunar- og lögfræðingur franskur.
Khöfn 16. júní 1883.
Kosningarbaráttan hjer á Friðriks-
bergi fór svo, eptir mjög harðan at-
gang og langan, að þingmannsefni
stjórnarsinna, Steffensen herdómari, varð
hlutskarpari, en með harla litlum at-
kvæðamun. fað varð bert í þessu kosn-
ingaþrefi, að mjög margir meiriháttar-
menn, bæði menntamenn og aðrir, eru
orðnir stjórninni fráhverfir. J>eim blöskr-
ar þetta vandræðaástand, er allt ligg-
ur svo sem í lamasessi, það er til rjett-
arbóta horfir.
Haldið áfram óhikað hjeraðsfundum
víðsvegar um land með sama tilgangi
og sama sniði og var á fundinum í
Herthadal. Sunnudag 3. júní einn slík-
ur á Falstri. Konungur nú í kynnisför
suður á f>ýzkalandi.
Dáinn 4. júní Israel Levin málfræð-
ingur, 73 ára.
í Svíþjóð ráðgjafaskipti um síðustu
mánaðamót: Arvid Posse frá stjórnar-
formennskunni, en við tók maður sem
Thyselius heitir og hefir verið ráðgjafi
áður tvívegis. Tilefnið var, að hrundið
var fyrir þeim Posse á þingi herlaga-
frumvarpi, er verið hafði á prjónunum í
mörg ár. Posse var áður oddviti land-
mannaflokksins, þ. e. vinstrimanna.
Ekki er búizt við verujegri breytingu
á stjórnarstefnunni fyrir þessi ráðgjafa-
skipti.
f>ar er nú komið ríkissökinni í
Kristjaníu, að fyrsta málinu er stefnt í
dóm 7. ágúst. J>að er gegn Selmer,
yfirráðgjafanum. Málin eru nefnilega
ellefu, sitt gegn hverjum ráðherranna.
Nú er lokið aftöku banamanna þeirra
Burkes landritara og Cavendish lávarð-
ar á írlandi, fimm að tölu. Hinum
sjötta var líf gefið. Hefir ekkert orðið
til tíðinda við aftökuna, og líkur til að
afdrif morðingjanna leiði öðrum slík
tiltæki.
Frakkar komnir í ófrið austur í
Asíu, í Tonkin í Austur-Indíalöndum.
Munu lengi hafa haft hug á að kgma
sjer þar upp nýlenduríki, því landið er
mikið og gott; það er höfuðpartur
keisaradæmisins Annam, með 15 milj.
íbúa. í fyrra vor tók frakkneskur her-
skipsforingi, Riviére að nafni, herskildi
höfuðborg landsins, Hanoi, og settist
þar með liðsflokk sinn. Tilefnið var
eða á að hafa verið samningsrof af
hendi keisarans í Annam, og einhver
reyfaraskapur þarlendra manna. í vor,
18. maí, gerði Riviére útrás úr borg-
inni, með litla sveit manna, til að hrinda
af sjer atsókn af hendi landsbúa, er
voru ærið fjölmennir. Riviére barði
vel á umsáturshernum, að sagt er, en
á heimleiðinni var honum veitt fyrir-
sát og fjell hann þar með 20—30 manna
en nokkrir urðu handteknir. jpetta
þóttu ill tíðindi, er þau spurðust til
Parísar, og var þegar undinn bráður
bugur að leiðangri austur eptir, til
hefnda og líklega annars frekara, með
nær samróma samþykki og fjárframlög-
um af þingsins hendi. Ekki er þetta
neitt stórvirki, verði við Tonkínsbúa eina
að tefla. En það þykir tvísýnt. Kín-
verjar eru nágrannar Tonkínsbúa og
kalla Tonkín skattland sitt; vilja auk
þess afstýra þvi til lengstra laga, að
Evrópuríki komist í nábúð við sig. í
annan stað hafa Bretar mjög illan
augastað á viðburðum Frakka til að
koma sjer upp nýlendum í öðrum álf-
um, og munu því ekki spara að eggja
Kínverja til mótspyrnu gegn Frökkum
þar í Tonkin. Fyrir þá sök má vel
fara svo, að hjer dragi til meiriháttar
tíðinda.
Abd-el-Kader, frelsiskappinn mikli
frá Alzír, andaðist 25. maí í Damaskus,
hálf áttræður ; hefir setið þar í fullan