Ísafold - 17.10.1883, Side 1

Ísafold - 17.10.1883, Side 1
Árgangurinn, 32blöð, kostar 3 kr. innanlands, en í Danm., Svíþjóð og Norvegi um 3V2 kr., í öðrum löndum 4 kr. Borgist í júlím. innanlands, erlendis fyrir fram. ÍSAFOLD. Auglýsingar kosta þetta hver lína : aur , , , ímeð meginletri.. 10 mnleiidar ° tmeö smaletn.... o Ímeð meginletri.. 15 með smáletri.... 12 X 27. Reykjavik, miðvikudaginn 17. októbermán. 1883. 105. Innlendar frjettir. Grænland og Grænlands- ferðir. 107. Útlendar frjettir. 108. J>orvaldur Jónsson (lcvæði). HittJ og þetta. Auglýsingar. Austanpóstur fer frá Rvík 20. okt. Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2. íþökubókasafn opið hvern þrd. og ld. 2—3. Landsbókasafnið opið hvern md., mvd. og ld. 12—3. Norðanpóstur fer frá Rvík 19. okt. Póstskipið Laura fer af stað frá Rvík 19. okt. Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd. og ld. 4—5. Vestanpóstur frá Rvik 20. okt. Reykjavík 17. okt. |>essi sex smálög frá alþingi í sumar er konungur búinn að staðfesta, öll 21. sept.: 1. í’járaukalög fyrir 1878 og 1879; 2. Lögumsamþykktálandsreikningnum fyr- ir 1878 og 1879; 3. Lög um breyting á opnu brjefi 27. maí 1859 um að ráða útlenda menn á dönsk skip, sem gjörð eruút frá einhverjumstað á Islandi; 4. Lög um að eptirstöðvar af byggingar- kostnaði fangelsa greiðist eigi af jafnað- arsjóðum amtanna nje af bæjarsjóði Eeykjavlkur; 5. Lög um breyting á 1. gr. 2. lið í tilskip- un handa Islandi um skrásetning skipa 25. júní 1869; 6. Lög um afnám aðflutningsgjalds af út- lendum skipum. Stjórnarherrann hefir 28. sept. sam- kvæmt áskorun alþingis í þingsályktun gef- ið landshöfðingja heimild til að veita allt að 100,000 kr. lán úr viðlagasjóði, einkum handa þeim sveitabændum,®fþem þurfa að auka bústofn sinn. Og sömuleiðis heimild til að veita meistara Eiríki Magnússyni í Oambridge 5100 kr. lán, á þann hátt. er neðri deild alþingis hafði farið fram á. — Síra Helga Sigurðssyni á Melum veitt lausn frá prestskap 2. okt. —Markús Asmundarson Johnsen, cand. pharm., hefir fengið 21. sept. koungsleyfi til að setja á stofn og halda lyfjabúð á Seyðisfirði. — Síra Sigurður Jensson í Llatey var 9. okt. skipaður prófastur í Barðastrandar- sýslu; var settur í það embætti í fyrra. — Skólakennari Björn Magnússon Ólsen, er fór utan 30. júní í sumar og kom aptur með póstskipinu 15. þ. m., hefir hlotið doktors-nafnbót við Khafnarháskóla fyrir ritgjörð um rúnir í íslenzkum fornritum, er hann varði 21. sept. Úr flokki háskólakenn- aranna andmæltu þeir Konráð Gíslason og Wimmer ; úr áheyrendaflokki cand. mag. Guðmundur |>orláksson. — Aflabrögð eru að frjetta góð af Eyja- firði, einkum af síld. Én á Austfjörðum aflalaust af síld og lítið af þorski. Hjer í Beykjavík og þarígrenndreytinguraðundan- förnu, sem nú er að lifna við að góðum mun. Sven Foyn, hvalveiðamaðurinn norski, er hjer var við land í sumar, fyrst við Isa- fjarðardjúp, og síðan á austfjörðum, kom heim til Túnsbergs í miðjum sept. Hafði ekki fengið nema 3 hvali allt sumarið, enda hafði tlminn gengið mestallur til að koma sjer hjer á laggirnar. Eimm færeyskar fiskiskútur komu heim þangað frá austfjörðum fyrstu vikuna af október með 30 þúsund fiskjar minnst og 38 þús. mest, samtals 170 þús. — Craigforth, fjárkaupaskip frá Slimon í Leith, kom hjer 11. okt.; fór aptur 15. okt. með 2314 fjár, sumt að norðan, hitt flest úr Arnessýslu. Hafði Coghill keypt og gefið fyrir 16—20 kr. fullorðna sauði; borgaði yngra fje betur að tiltölu. Annars kosta gamlir sauðir hjer langt yfir 20 kr.; meðal- kindur um eða undir 20 kr. Kjöt minnst 25 a. pdið; 30 a. algengt og jafnvel 35 a.; dæmi til 40 a. Von á Camoens á hverjum degi eptir öðrum fjárfarmi. — Póstskipið »Laura« kom hjer ekki fyr en 15. okt. að morgni; hafði verið 16 daga á leiðinni frá Khöfn, hreppt töluverð hrak- viðri. — »Thyra«, strandferðaskipið, var komið til Eæreyja 9. okt. Hafði gengið ferðin á- gætlega. Var þar með skipinu meðal ann- ara Tryggvi kaupstjóri og alþm. Gunnars- son. Hann ráðgerði að fara af skipi í Leith og til Lundúna, á fiskisýninguna þar. — Von á nýrri prentsmiðju í Beykjavík. A að komast upp i vetur. Éigandi og for- stöðumaður Sigmundur Guðmundsson, er áður var yfirprentari í Isafoldarprentsmiðju. Hefir hann útvegað sjer hraðpressu og önn- ur áhöld í Edinburgh í sumar. GRÆNLAND 0G GRÆNLANDSFEROIR. Eptir PÁL MELSTED. LLerra ritstjóri! jþegar jeg hafði lesið grein yðar í ísafold (X 23) um Grœnlands- för Nordenskiölds, kom í mig hugur, að setja saman eitthvað um Grænlandog senda yður það, engan veginn í því skyni, að jeg treysti mjer til að leggja orð í með, til þess að leysa úr þeim spurningum um Græn- land, sem lærðir menn og landafróðir eru enn í miklum vafa um, heldur til hins, að gjöra það lítið, sem í mínu valdi stendur til þess ásamt yður að vekja athygli landa vorra á málefni þessu, sem jeg ímynda mjer að mörgum þyki allmerkilegt. f>að sæmir eigi að hjer á landi sje þagað um þetta efni, þegar ganga má að því vak- andi, að um alla Norðurálfu, og enda víðar, verður fram eptir vetrinum rætt og ritað um Grænland, eptir að Nordenskiöld er heim kominn. Hann er sem menn vita, víðfrægur maður nú á tímum. þegar hann talar, leggur öll Európa eyrun við, Islendingar mega með engu móti sitja þegjandi hjáþegar aðrir tala um Grænland; bæði er það, að Islendingar fundu fyrstir manna Grænland og byggðu það, og svö hitt, að Grænland er næst Islandi af öllum löndum; en mikið væri gefandi til, að vjer værum lausir við það nágrenni. Grænland er, eins og kunnugt er, afar- mikið eyland í úthafinu milli Európu að austan og Ameríku að vestan. Bækurnar segja, að það sje um 20,000 ferh. mílur á stærð, en enginn veit það með vissu, því að mönnum er ókunnugt um bæði hve langt landið nær til norðurs, og hverja lögun það hefir að norðanverðu; en hitt er kunnugt, að norðarlega er Grænland um 200 mílur á breidd frá vestri til austurs, en mjókkar eptir því sem til suðurs dregur, og nær allt suður á 60° n. br. f>annig er suður- oddi Grænlands—er íslendingar hinir fornu nefndu Hvarf, en nú er kallað Cap Farvel — á sömu norðurbreidd sem Kristjanía í Norvegi, eða Stokkhólmur í Svíþjóð. Grænland er mjög vogskorið, og ganga víða langir firðir inn í landið, bæði að aust- an og að vestan, og ótal margar eyjar eru með ströndum fram. Landið er hátt og svipmikið til að sjá; sumstaðar ganga jökl- arnir fast fram að sjó, eru þar þverhnýpt- ir og brotna einatt framan af þeim stór stykki eptir því sem jökulþunginn sígur fram; þaðan er borgarísinn, sem hingað kemur til lands; sumstaðar ganga gróður- lítil nes fram á milli fjarðanna. Helzt er gróðurins að leita inn í fjarðabotnum, og er sagt, að þar sje allvíða gott hagkvisti og jafnvel slægjuland. Orskammt frá sjó taka jöklarnir við, og allt til þessa dags vita menn eigi annað en að Grænland sje allt jöklum þakið hið innra. Út á þann innlands- eða upplandsjökul hætta Grænlendingar sjer aldrei, enda er það eigi árennilegt fyrir botnlausum jökul- gjám, eða jökulsprungum, og niðri í þeim eru víða fossandi ár og lækir. Jökullinn sem hylur Grænland, segja þeir sem til. þekkja, að sje víðast hvar skriðjökull, og þess vegna er hann mjög ósljettur og illur yfirferðar, einkum á útjöðrum. Aður en Nordenskiöld kom til sögunnar höfðu Norðurálfumenn tvívegis, að því sem sagt, erreynt að ganga inn á jöklaogkanna upplandið. I fyrra sinnið var það danskur maður Dalager að nafni, um miðja 18. öld. Hann gekk á jökulinn á 62° 30' n. b., en komst að eins örskammt og varð áð snúa aptur sökum skóleysis. Hinn maðurinn var enskur jöklagarpur, eins og sá sem hingað kom fyrir nokkrum árum og gekk yfir Vatnajökul, Watts ; en það fór á sömu leið fyrir honum sem Dalager, hann lagði upp á jökla á 69° 30' n. b., en gat eigi kom- ið þar við sleðum og látið hunda draga þá, eins og alltítt er norðan á heimsálfunum, Asíu og Ameríku, og varð að hætta við svo búið. Hann hjet Whymper. f>að var árið 1867. Arið 1870 kom Nordenskiöld og með hon- um nokkrir sænskir náttúrufræðingar til Grænlands, til þess að kanna upplendið. Gengu þeir á land á vesturströndinni norð- ur í Auleitsivik-firði á 68° 30' norðurbreiddar, því að þar þótti jökullinn lfklegastur til uppgöngu. En að eigi hafi verið greiðfært eptir honum, er auðráðið af því, að þeir fjelagar komust einar 7 mílur danskar á- fram á 8 dögum, og það með mestuherkjum. Kenndi Nordenskiöld það raunar með fram ófullkomnum útbúnaði ogheldur sig mundu hafa komizt margfalt lengra ef hann hefði verið í góðu lagi. Voru þeir þá komnir 2000 feta hátt yfir sjávarmál. Jökullinn fór smá-

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.