Ísafold - 16.01.1884, Side 1

Ísafold - 16.01.1884, Side 1
Kemur út á miðvikudassniorgna. Verí árjanjsins (50 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borjist Ijrir miBjan júlimánuí, ÍSAFOLD. Uppsöjn (skriD.) bundm við áramót, 6 jild nema komin sje lil útj, Ijrir 1. olt. Aljreiðslustoía i Isaloldarprenlsm. 1. sal. XI 3. Reykjavik, miðvikudaginn 16. janúarmán. 18 84. 9. Innlendar frjettir. 10. Hugurinn minnir á,en hönd og tunga framkvæmir. 11. Vegurinn yfir Svínahraun. 12. Skýrsla um mannskaðann á Akranesi Aug- lýsingar. Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I 2. Landsbókasafnið opið hvern md„ mvd. og ld. 12—-3. Niðurjöfnunarskrá á bæjarþingsstofunni í dag síð- ast kl. 12—2. Kærur fyrir mánaðarlok. Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4 5 Veðurathuganir í Reykjavík 2. viku janúar 1884. Eptir Dr. J. Jónassen. 1 Hiti (Cels.) LþmSelir | Vindur Veður- far á nóttu um hád. fm. | em. | fm |em. M. 9. -r 3 I 28,6 28,7 SV I SV h. h. F. 10. -F3 -f- 1 28,7 29.1 SV NV h., d. F. 11. — 8 -r- I 29,6 29.9 SV sv h. d. L. 12. • 2 + 4 29,8 29,7 s sv h. d., r. S. 13. + 2 O 29,2 29.5 sv sv h. hv. M.14. -^-1 0 29,6 29.4 sv sv h. d. h. r. p. 15. O +1 nr NV 0 h. Aths. Svo má heita að veðurlag hafi verið með stirðasta móti alla vikuna; þótt hann hafi verið hægur að morgni. hefir hann stund- stundum allt i einu rokið og þá optast og næstum eingöngu frá suð-vestri með jeljum og slyddu. Hinn 13. um kv. rokhvass. Snjór nokkur fallið við og við, en óðar tekið upp aptur. Hjer í dag (15.) að eins föl. Reykjavík 15. jan. — Sameining Valþjófsstaðar-jjresíaáiaZZs við Assprestakall í Fellum frá fardögum 1884 er fyrirskipuð af landshöfðingja 22. desbr. f. á. samkvæmt prestakallalögum 27. febr. 1880 og síra Sigurður Gunnarsson skipaður prest- ur f hinu sameinaða brauði. Síra Hjörleifi Guttormssyni á Völlum í Svarfaðardal s. d. veitt lausn frá prestsem- bætti frá næstu fardögum með 350 kr. eptir- launum úr landsjóði. — Vitavörður á Reykjanesi skipaðurí dag Jón Gunnlaugsson trjesmiður og þilskipa- formaður í Reykjavík. — Eptir því sem segir í landshöfðingja- brjefi í Stjt. 31. des f. á. befir verið varið 17,300 kr. til brítargjörðarinnar á Skjálfanda- fljót, er lokið var við að mestu í sumar,—af hinu lögheimilaða 20,000 kr. láni úr lands- sjóði til þessa fyrirtækis. Lánið átti að vera vaxtalaust og afborgunarlaust í þrjú ár. Ejeð befir verið greitt af bendi smátt og smátt, eptir því sem brúargjörðinni miðaði áfram, og varð því vafamál, frá bvaða tíma telja ætti þessi 3 vaxtalausu ár o. s. frv. Landshöfðingi hefir nú með áminnztu brjefi skorið svo úr, samkvæmt tillögum amtmanns- ins fyrir norðan, að tímabil þetta skuli telja frá síðasta greiðsludegi lánsins úr landssjóði, en til þess dags skuli greiddir 4 af hundr. í vöxtu á ári »af hinum ýmsu útborgúnum frá þeim degi, er hver þeirra átti sjer stað«. — Stjórnarherrann hefir í brjefi til landsh. 8. nóv. f. á. lýst ógilda hjer á landi prests- vígslu prestaskólakand. Halldórs Briems, sem nú er keunari við gagnfræðaskólann á Möðruvöllum, er framkvæmd var í Ameríku fyrir nokkrum árum af síra Jóni Bjarnasyni, sem nú þjónar Dvergasteini. — Stjórnarherrann hefir sent landshöfð- ingjanum brjef frá hinum danska konsúl 1 Niðarósi, dags. 12. okt. f. á., þess efnis, að með því að gufubrætt meðala-lýsi sje nú komið í óvenju-hátt verð (allt að 300 kr. tunnan), af því að svo lítið hafi verið búið til af því árið sem leið, vegna þess að þorsk- afli hafi verið lítill (í Norvegi) í fyrra og lifr- in magrari en dæmi sjeu til áður, þá mundi mikil ábatavon að því fyrir Islendinga að stunda shka lýsisbræðslu til verzlunar. Vísikonsúllinn í Cristiansand sje á sama máli, eptir því sem hann segist þekkja til fiskiveiða við Færeyjar og Island, og bjóðist til að leiðbeina mönnum til að útvega sjer áhöld til þess, og sjeu þau segir hann frem- ur ódýr. þetta er hjer með gert almenningi kunn- ugt eptir ósk landshöfðingja. — Eaupstaðurinn að Hólanesi brann til kaldra kola laust fyrir jólin, eitthvað 3 timburhús, með vörubirgðum og öðrum lausum munum. Var verzlunin ný-orðin eign kaupmanns O. P. Möllers, seld honum af Gránufjelaginu (Tr. Gunnarssyni). Full- yrt er að mestalltþað sem brann hafi verið í brunaábyrgð. — Fróði segir frá, að þrjú hafskip hafi strandað í haust á Reyðarfirði, eitt þeirra haustskip Jóns kaupmanns Magnússonar á Eskifirði. »Annan og 3. nóv. lögðu nokkur Norð- mannaskip heimleiðis af Eyjafirði, en þá gerði dimmviðris-norðanbyl. í þessum byl hefir spurzt til að 3 norsk skip hafi hleypt á land til skipbrots, en menn komust af; eitt á Látrum, annað í Siglufirði og þriðja á Skaga. |>ess hafa og sjezt merki, að skip muni hafa brotnað yzt 1 firðinum (Eyjafirði) og hafa allir menn af því týnzt«. (Fróði). A Kalmannstjarnar-reka, í svo nefndum Sandvíkum, hefir rekið rjett nýlega segl af hafskipi með rá eða öðrum sigluvið. Enn- fremur lausafregn um, að stýri hafi rekið í Grindavík. f>að er haft eptir vitaverðinum á Reykjunesi, að hann hafi sjeð svo til ferða kaupskipa þeirra þriggja (Nancy, Ida og Annette), er hjeðan fóru nokkru fyrir jóhn, að óhugsandi sje að vogrek þotta geti verið af nokkru þeirra. — Stórkostlegir skiptapar. Drukknan 31 manns. 1 góðviðrun- um fyrstu dagana eptir nýjárið fóru fáein skip 1 hákarlalegur hjer af nesjunum, og aflaði eitt þeirra, það er fyrst reyndi fyrir sjer, afbragðsvel, í tveimur legum hvorri eptir aðra. f>að var skip Pjeturs kaup- manns Hoffmanns á Akranesi og var hann sjálfur fyrir því, enda alvanur og mjög afla- sæll hákarlaformaður, vestan frá Búðum að upphafi. Hann fór síðan í þriðju leguna mánudag 7. jan., við 11. mann, og tvö skip önnur af Akranesi, formenn Ólafur í Litlateig Bjarnason og þórður Guðmundsson í Háteig; en eitt af Alptanesi, formaður þórður bóndi þórðarson á Hliði. þegar á leið daginn hvessti mjög á austan-landsunnan, gekk síðan í suður seint um kvöldið, en loks í útsuður um nóttina, með miklum ofsa og dimmviðrisfj úki. það er skjótast af að segja, að af skipum þessum öllum fjórum náði einungi seitt landi, þeir Ólafur á Litlateig og hans fjelagar, á áliðinni nóttu, nálægt Melum í Melasveit, fyrir staka mildi. Hin týndust öll, og komst enginn maður lífs af. þegar daginn eptir rak skip þórðar í Há- teig óbrotið að mestu og líkin sjö með tölu Belgsholti í Melasveit. Hafa þeir farist í lendingu eða því sem næst, þá um morgun, inn í útsynningsrokinu. Sömuleiðis rak þar bráðlega um sömu slóðir ýmislegt af Alptanesskipinu, en eng- inn maður. þar á móti hafði ekki rekið annað af skipi Pjeturs Hoffmanns, er síðast spurðist, en framsiglan. Töldu kunnugir hins mundi helzt að leita vestan fjarðar, vestur um Mýrar. Til ferða þórðar frá Hliði hafði ekkert sjezt. En til hinna höfðu þeir Ólafur í Litlateig sjeð það síðast, að þeir sigldu til lands hvorirtveggju um kvöldið, er stórviðrið skall á, á undan þeim Ólafi. þórður á Hhði var við 11. mann, eins og Pjetur Hoffmann, en 7 á hjá þórði á Háteig. Alls týndust þar í einu 29 manns, og það sjerlegt mannval, eins og venjulega ger- ist til slíkra sjóferða, þar sem lagt er sam- an úr ýmsum áttum tii þess að manna sem bezt fáein úrvalsskip í veiðistöðunni, með því að öðrum er ekki í það leggjandi. A skipi þórðar á Hhði voru t. d. að sögn fimm formenn. þessir eru nafngreindir, er drukknuðu, með Pjetri Hoffmann; Stefán Geirsson Bachmann áður í Miklaholti; Georg Thor- steinsen, heitins sýslumanns í Snæfellsnes- sýslu, ný orðinn veitingamaður á Akranesi; Halldór Einarsson á Grund; Sveinn Hoff- mann, frændi Pjeturs.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.