Ísafold - 09.07.1884, Blaðsíða 1
taur úi a iuiðvitudagsiaorjna. ’/erí
árgangsins (50 arka) 4 kr.; erlendis
5 kr. Borgist fjrir miBjan júlimánuð.
Dppsögn (skriD.) ■ buodin við áramóí, 5-
gild nema komin sje til úlg. fjrir L skí
AfgraiÖslustofa í Isafoidarprenlsm. i. sai.
ÍSAFOLD.
XI 28.
Reykjavik, miðvikudaginn 9. júlímán.
18 84.
109. Innl. frjettir.
110. Um súrhev.
111. Um meðferð á kúm og fjósvitjanir. Sum-
armorgun (kvæði).
112. Hitt og petta. Auglýsingar.
Forngripasafmð opið hvern mvd. og ld. kl. 1 — 2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12 2
útlán md„ rr.vd. og ld. kl. 2—3
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd og ld. 4—5
Veðuratliugamr í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
Júlí. Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttu um hád. fm. em. fm. em.
M. 2. + 6 + 12 29,7 29,7 Sa h d 0 b
F. 3. + 7 + II 29.9 29.9 s h b S h b
U. 4. + 7 + io 29.9 30 s h b 0 b
L. 5- + 7 + II 29,8 29,8 0 d 0 b
S. 6. + 7 + 13 29.9 20,8 Sa h b S h b
M. 7. + 9 + x5 29,9 29.9 Sv h b 0 b
í* *. 8. + 9 + 15 29.9 3° 0 b 0 b
Athgr. Stilling hefir verið alla umliðna viku,
nokkur úrkoma með köflum; einkum var mjög mik-
il rigning aðfaranðtt h. 6. Loptþyngdarmælir hefir
verið mjög stöðugur síðari part vikunnar. I dag 8.
fagurt sólskin og logn.
Hinir heiðruðu kaupendur ísafoldar eru
beðnir að minnast þess, að, eins og stendur
í yfirskriftinni á hverju blaði, á árgangurinn
að borgast
fyrir 15. júlí.
Ollum þeim hinum mörgu, sem fylgdu mín-
um elskaða manni, sira G. porvaldi sdl. Ste-
fánssyni, til grafar 28. f. m., en sjer í lagi
þeim sem mceltu yfir moldum hans, sem voru
þeir síra Jónas Guðmundsson á Staðarhrauni,
og prófastarnir síra Eiríkur Kíild og Magniis
Andrjesson, vottajeg mitt innilegasta þakk-
lœti. Munaðamesi 10. júni 1884.
Kristín Jónsdóttir.
Reykjavík 9. júlí 1884.
Útskrifaðír úr latínuskólanum 5.
júlí þessir 25 stúdentar, miklu fleiri en
nokkurn tíma áður (þeir stjörnumerktu 10
voru utanskólamenn; rómversku tölurnar
tákna einkunn, hinar stig) :
Sigurður Jónasson ................. I 96
Skúli Skiilason ................... I 94
*Björn Ólafsson ................... I 92
Bjarni Pálsson..................... I 89
*Björn Jónsson,.................... 1 85
*Jón Finnsson ..................... I 84
þorleifur Bjarnason................ I 84
Bjarni Thorsteinsson ............. II 81
*Einar Benidiktson................ II 81
*Kristján Jónsson................. II 81
!!Hálfdán Guðjónsson ............. II 80
Ólafur Magnússon ................. II 77
Axel Tulinius..................... II 75
Magnús Asgeirsson ................ II 75
*Stefán Stefánsson ............... 11 74
Tómas Helgason..........>....... II 73
Sigurður Sigurðsson.... .......... 11 71
Chr. Riis ........................ II 68
Lárus Arnason .................... II 63
Sveinbjörn Egilsson............... II 63
*Arni |>órarinsson .............. III 58
Páll Stephensen ................. III 57
*Halldór Torfason ............... III 45
*Arnór Arnason .................. III 42
Ólafur Stephensón ............... III 42
Bókmemitaljelagsfundur í Rvíkur-
deildinni, aðalfundur þ. á., var haldin í
gœr. Forseti (Magnús Stephensen) skýrði
frá, að deildin treysti sjer ekki til vegna
efnaleysis að gefa út þetta ár meira en Tíma-
ritið, auk Rithöfundatalsins, sem þegar er
út komið, og frá Hafnardeildinni væri von
á Skírni og kvæðum Bjarna Thorarensen.
Itrekuð uppástunga um að hætta við að gefa
út Frjettir frá Islandi var felld. I Ritnefnd
Tímaritsins næsta ár voru þessir kosnir:
Björn Jónsson með 47 atkv., Björn Jensson
og Eiríkur Briem með 28 atkv., og Jón Ól-
afsson með 22 atkv. Gestur Pálsson fór
því fram, að kosning Jóns Ólafssonar mundi
vera ógild, af því að hann væri úr fjelaginu
vegna ógreiddra tillaga 1 eða 2 ár; en með
því að alkunnugt er, að fjölda margir fje-
lagar eiga ógreidd tillög um mörg ár og
njóta þó atkvæðisrjettar á fundum umtals-
laust, varð niðurstaðan sú, að sirma þess-
um mótmælum ,ekki, en fela stjóminni að
rannsaka málavexti að því er snerti alla þá
fjelagsmenn er þannig stæði á um.
I stjórn f jelagsins voru þessir kosnir : for-
seti Dr. Jón porkelsson rektor með 20 atkv.,
í stað Magnúsar Stephensen, er mæltist
undan kosningu fyrir fram, en hlaut þó all-
mörg atkvæði, með því að ýmsir hugðu að
hann mundi fáanlegur, ef fast væri eptir
sótt; fjehirðir Arni Thorsteinson landfógeti
eins og áður, með 36 atkv.; skrifari Bjöm
Jónsson ritstjóri með 19 atkv., í stað H. E.
Helgesens skólastjóra; bókavörður Kr. Ó.
Uorgrímsson bóksali, eins og áður, með 23
atkv. Varaembættismenn urðu hinir sömu
og áður, méð 11—13 atkv.: varaforseti Berg-
ur Thorberg landshöfðingi, varafjehirðir E.
Th. Jónassen bæjarfógeti.varaskrifari Indriði
Einarsson revisor, varabókav. Br. Oddsson
bókbindari.
Tíu nýjir fjelagar voru teknir inn í fje-
lagið.
Fundurinn var fjölsóttur vel, en fundar-
herbergið haft svo lítið, að margir urðu að
standa útí eða frá að hverfa, en lítt vært
þeim sem inni voru fyrir hita og þrengslum.
Búnaðarfjelaírsfuridur sá, er boðaðvar
að halda skyldi 7. þ. m., fórst fyrir, af því
engir komu á fund nema stjórnin.
Synodus var haldin 4. þ. m. þar komu
alls 7 prestar og prófastar. Sira Valdeniar
Briem í Hrepphólum prjedikaði. Að öðru
leyti hafðiþessi samkoma að vandaþað helzt
sjer til ágætis, að þar gerðist enginu hlutur
frásagnarverður.
Ensha yerzhmin nýja hjer í Rvik,
þeirra Weidners og hans fjelaga í New-
castle, verzlunarstjóri Gunnl. E. Briem, hef-
ir fengið farm úr gufuskipi, Percy, 221 smá-
lest, er kom hjer 4. þ. m., og fer aptur í dag,
með fram undir 200 hesta. Skipið kom við
í Stykkishólmi í hingaðleiðinni og lagði þar
á land nokkuð af nauðsynjavörum, er Egg-
ert kaupmaður Gunnarsson, sem einnig kom
með skipinu, verzlar með þar.
Skips þessa er von aptur fyrir næstu
mánaðamót, með meira af vörum og eptir
hestum-
Slys það, sem varð f vetur á Flat-
eyri við Ónundarfjörð, við framsetning há-
karlaskips, og sem sagt er frá í lsafold XI
19: að maður varð undir skipinu og beið
bana af, votta margir (16) viðstaddir menn
brjeflega, að ekki hafi verið að kenna skeyt-
ingarleysi, heldur hafi það atvikazt þannig:
»Fyrir framsetningunni stóð skipstjóri Sveinn
Rósinkranzson, sem um 15 eða 16 ár holir
verið við framsetningu hjer, svo að honum
verður eigi borið þekkingarleysi á brýn í
þeim sökum. þegar nokkuð hafði verið
mokað undan þeirri hlið skipsins, er það
ekki lá á, valt það yfir, að því, að vatnsæð
ein, er rann með kili skipsins, hafði etið
sandinn undan honum, svo að það sökk allt
í einu niður og valt við það yfir á hina hlið-
ina. Stýrimaður, er fyrstur sá, að skipið
sökk, kallaði til skipverja að hlaupu út und-
an, og hlýddu því allir tafarlaust, nema
þessi eini maður, sem að líkindum hefir
komið fát á; því víst er það, að hann hefir
heyrt til stýrimanns, þar sem hann stóð
næstur honum. Nær 10 mínútum eptir að
skipið var oltið yfir, var með mannsöfnuði
og vogartrjám búið að velta því til baka og
ná manninurn, sem þá var ekkert lífsmark
með«.