Ísafold - 13.08.1884, Blaðsíða 4

Ísafold - 13.08.1884, Blaðsíða 4
132 Athugasemd um útgáfur „Lilju“. (Leiðrjetting). Jeg hefi við nánari athugan orðið þess var, að þar sem gefið er í skyn í grein minni um þetta efni í síðasta »þjóðólfi«, að ummælun- um í Eithöfundatalinu um útgáfur »Lilju« hafi verið breytt frá því sem í handriti mínu stóð, án míns vilja og vitundar, þá er þetta ekki rjett. Jeg hafði af vangá litið í annað handrit hjá mjer af þessum kafla rits- ins heldur en það sem prentað var eptir. Handritið, sem jeg ljet prentaeptir, það var alveg samhljóða því, sem prentað stendur í Eithöfundatalinu á áminnztum stað, þ. e. orðið »rjett« vantaði inn í og eins stóð þar »slðustu« fyrir »fyrstu«. Mjer þykir illa farið, að jeg hefi haft sak- lausa fyrir rangri sök í þessu efni, og bið þá afsaka vangá mína. Eeykjavík 9. ágúst 1884. Jón Borgfirðingur. HITT OG JjETTA. Til langlífis sjer gerði ameríkskur auðmað- ur, William King, sem nýlega er dauður, það ráð fyrir nokkrum árum, að hann hjet lækni sínum 1000 dollörum, ef hann hjeldi i sjer líf- inu eitt ár, og lifði hann lengur, skyldi gjaldið tvöfaldast fyrir hvert ár, |t. e. 2000 annað árið, 4000 hið þriðja, 8000 hið fjórða o. s. frv. þeg- ar King dó, fjekk læknirinn 75,000 dollara eða hjer um bil 270,000 kr.; King hafði lifað á 11. ár eptir að hann gerði lækninum áheitið. Hefði hann lifað 12 ár, hefði þóknunin orðið meira en 2 miljónir dollara, á 5. miljón, hefði hann lifað 13 o. s. frv., og er óvíst hvað lengi auður Kings hefði enzt með þvi móti. það er svipað þessu, sem sagt er frá Kín- verjum: að þeir gjaldi lækni sínum fyrir þann tíma, sem þeir eru frískir, en ekkert fyrir þann tíma, sem þeir eru veikir. þykir það vel gefast, sem skiljanlegt er. Lífeyrir Viktoríu Bretadrotningar er 7 miljónir króna á ári. J>ar að auki hefir hún hjer um hyl 1 milj. kr. i tekjur af óðalsejgn sinni, hertogadæminu Lancaster. Elzti sonur hennar, Albert konungsefni, prinz af Wales, hefir í árstekjur hjer um bil 1,620,000 kr.; kona hans, Alexandra Kristjánsdóttir Danakonungs, 180,000 kr.; yngri synir Viktoríu drottningar, hertogarnir af Edinburgh og Connaught, 450,000 kr. hvor; fjórði sonurinn, Leópold hertogi af Albany, sem andaðist í vor, hafði 370,000 kr. um árið; móðurbróðir drottningar, hertoginn af Cambridge, 216,000 kr. auk hershöfðingjal. sinna — hann er yfirhershöfðingi alls hins enska her- liðs. Ýmsir aðrir ættingjar og venzlamenn drottningar hafa stórfje í lífeyri úr ríkissjóði. Er svo sagt, að að öllu samtöldu muni kon- ungsfólkið enska kosta landið um 36 miljónir kr. á ári. Kristján konungur níundi hefir 1 milj. kr. í lífeyri; hitt konungsfólkið samtals tæpa '/»milj. Synt yfir Eyrarsund. Sænskur maður, Akei að nafni, vann það þrekvirki á Jónsmessu- dag í sumar, að hann synti yfir Eyrarsund, þar sem það er mjóst, milli Helsingjaeyrar og Hels- ingjaborgar. J>að er sögð hálf vika sjávar. það var talsverð gola og því nokkur öldugangur. Sundmaður lagði af stað frá Helsingjaeyri kl. 3.40 e. m. Hann var í rauðum sundfötum. Fjöldi manna hafði þyrpzt saman að horfa á, þegar hann lagði af stað, og eins var fullt af bátum með áhorfendum á sundinu. Kl. 6.50 náði hann landi í Svíþjóð, við Helsingjaborg, Hann fór mest á baksundi, og fjekk sjer hress- ingu á leiðinni tvisvar, portvín og konjak bland- að saman. Múgur og margmenni tók á móti honum, þar sem hann kom á land, og fagnaði honum með lófaklappi. AUGLÝSINGAR i samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.) hvert orð 15 slata frekast m. oðru leiri eía setning 1 kr. íjrá þumlung dálks-lengdar. Borgun ál i hönd. Hér með er öllum, að undanteknum lóðs- ínum, bannað að fiara út í skip, er hingað koma firá útlöndum, áðr en lögreglustjórinn hefir fiengið vissu fiyrir, að engin sóttncem veiki sé á skípinu. Hver sem brýtur þetta bann, verðr sektaðr. Bœjarfiógetinn í Beykjavík hinn 9. ágúst 1884. E. Tk. Jónassen. þeir, sem þurfa að láta taka her vatn handa hrossum eða öðrum skepnum, er útflutt eru hjeðan, eða fylla t’omar tunnur, sem á að senda út, með vatni, eiga að taka það úr pósti þeim, sem er á Lækjartorgi, en mega ekki taka það úr hinum póstum bcejarins,þar eð þeir naumlega á sumrin hafa í sjer ncegi- legt vatn handa bcejarbúum og skipum, er hjer þurfa að fá neyzluvatn. Bœjarfógetinn i Bvik h. 6. ágústmán. 1884. E. Th. Jónassen. Alþýðu- og gagnfræðaskólinn í Flensborg. peir, sem cetla sjer að koma piltum á alþýðu- og gagnfræðaskólann í Flensborg við Hafnar- fijörð á komandi vetri, eru beðnir að scekja um skóla handa peim til undirskrifaðs eða skóla- nefindarinnar í seinasta lagi fyrir 20. sept. næstkom. Flensborg við Hafinarfjörð 11. ág. 1884. Jón J»órarinsson. Verzhm Símonar Johnsens selur eptir- fylgjandi vin firá Kjœr & Sommerfieldt með niðursettu verði, þannig : Maraschino di Zaraýtr. \fii. áður 3,00 nú 2,70 Zouder Doornen - \fi. — 3,00 — 2,70 »« - ifl- — 1,70 — 1,53 Anisette - \fil. — 3,00 — 2,70 »« - ifl- — 2,44 — 2,20 Fleur d’Orange ■ ifl- — 1,70 — 1,53 Créme de Traise - ifl. — 1,70 — 1,53 Créme de Bose - ifl- — 1,70 — 1,53 Parfait d’Amour - ifl. — 1,70 — 1,53 Coffy Likör ■ ifl- — 1,70 — 1,53 \ Anker Eödvin med Træ= 20pott. —22,50 — 20,50 Enn fremur alls konar nConservest og »Syltetöi« með 10j° afslœtti upp og niður. Det kongelige octroierede Brandassu- rance Compagni i Kaupmannahöfn tek- ur ábyrgð á vörum og innbúi (Meubler) alstaðar á íslandi, og svo húsum nema í Reykjavíkvið J. P. T. Brydes-verzl- un í Iteykjavík. Eortepiano. gallalaust, nokkað brúkuð, er til sölu hjá manni hjer í Rvík, sem ritstjóri vísar á. Síðan síðasta auglýsing eru til minnisvarða yfir Hallgrím Pjetursson ínnkomnar: frá Kirkjubóls- og Unaðdalssóknum . kr. 50,00 (von á meiru síðar). — Ási i Fellum.................... — 32,30 — Dvergasteini.................... — 30,00 — Grímsey.........................— 10.00 Alls kr. 122,30 Bessastöðum, 30. júlí 1884. Grímur Thomsen. Næstliðið vor var hirt upp hjá Kolviðarhól grá- skjótt hryssa, altamin, með mark: sneitt fr. vinstra; má eigandi vitja hennar hingað. Keldum í Mos- fellssveit 8. ágúst 1884. Guðni Guðnason. Seint í júni týndist peningabudda á veginum frá Leirá í Borgarfirði inn á miðja Skarðsheiði. í henni voru peningar og signet með „E. Torfason“ á. Finnandinn er vinsamlega beðinn að skila henni til undirskrifaðs móti borgun. Hæli í Flókadal 28. júlí 1884. Eiríkur Torfason. TIL SÖLIJ á afgreiðslustofu ísafoldar: Gröndals Dýrafræði......................2,25 Gröndals Steinafræði....................1,80 íslandssaga f>orkels Bjarnasonar . . 1,00 Ljóðmæli Gríms Thomsens .... 1,00 Um sauðfjenað, eptir Guðm. Einarss. 0,90 Undirstöðuatriði búfjárræktarinnar, eptir sama . •......................0,50 Erslevs landafræði, önnur útgáfa . . 1,25 Dönsk lesbók handa byrjöndum (S. H.) 1,00 Páls Melsteðs mannkynssögu-ágrip, 2. útg..............................2,50 Nærsveitamenn eru beðnir að vitja ísaföldar á afgreiðslustofu hennar, sem er í ísafoldarprentsmiðju, við bakarastiginn, 1. sal. Hitstjóri Björn Jónsson, cand. phil. Frentsmiðja lsafoldar.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.