Ísafold - 26.11.1884, Side 2
186
hingað í leið (13. maí), og sömuleiðis Eeykj-
arfjörður hjeðan í sömu ferð (6. júní).
Póstskipin leggja af stað frá Khöfn hingað
15. janúar, 1. marz, 18. apríl, 5. maí, 28.
maí, 13. júní, 1. júlí, 18. júli, 1. ágúst, 29.
ágúst, 27. sept. og 8. nóvbr.
Póstskipin leggja af stað hjeðan frá Evík
til Hafnar 3. febrúar, 22. marz, 6. maí,
1. júní, 1. júlí, 29. júní, 31. júlí, 5. ágúst,
29. ágúst, 24. septbr., 18. okt. og 29. nóvbr.
Ferðaáætlun lanilpóstaiina 1885.
Fyrstu ferðina fer vestanpóstur frá Bvík
8. jan., norðanp. 9. og austanp. 10. jan.
Aðra ferð fara þeir 4., 5. og 6. febrúar.
f>riðju ferð 2., 3. og 4. marz. Fjórðu ferð
24., 25. og 26. marz.
En 9. janúar leggja póstar af stað til
Bvíkur frá Isafirði og Akureyri.
Doktorsnafnbót. Hr. kand. í mál-
fræði Finnur Jónsson (Borgfirðings) hefir
hlotið doktorsnafnbót við Khafnar-háskóla
fyrir bók, er hann hefir ritað á dönsku um
nokkur hin elztu norsku og íslensku forn-
kvæði (Kritiske Studier over en Del af de
ældsta norske og islandske Skjaldekvad).
Dispútazíu-athöfnin fórfram 6. þ. m. And-
mælendur úr flokki háskólakennaranna
voru þeir Konráð Gíslason og L. Wimmer,
er báðir luku mildu lofsorði á ritgjörðina.
Hr. f orvaldur Tliorodilsen er orð-
inn brjeflegur heiðursfjelagi (correspender-
énde Medlem) í Landfræðingafjelaginu
danska, »í viðurkenningar skyni fyrir yðar
miklu verðleika að því er kemur til vísinda-
legra rannsókna á Islandi«, stendur í kjör-
brjefinu, sem er undirskrifað af Friðrik
konungsefni sem forseta fjelagsins ásamt
öðrum stjórnendum þess (Trap geheime-
konferenzráði, Wrisberg aðmirál o. fl.). Að
eins þrír aðrir hafa hlotið þessa heiðurs-
nafnbót af fjelaginu.—það stóð til, að hr.
þorvaldur hjeldi fyrirlestur á fjelaginu 4.
desbr. um rannsóknir sínar hjer á laudi.
Yerzlunarfrjettir t'rá Khiitn. Verð-
lagsskýrsla, dags. 8. nóv. UU sem fyr í
litlu géngi, enn þá verðlægri en sagt er frá
í síðustu skýrslu. Hjer nú sfðast borgað
fyrir hvíta vorull sunnlenzka 56J e.—keypt
í Beykjavík á 60 a. og 5 a. að auki í ferða-
kostnað!—; vestfirzk vorull 56 til 56J eyrir;
norðlenzk nr. 2 seld á 57 til 57J e., en nr
1 haldið í 60 til 61 e. Mislit ull seld á 49
aura ; haustull 52 til 50.
Saltfiskur. íslenzkur saltfiskur geng-
ur nú lakar út á Spáni aptur, síðan farið
var að leyfa aptur innflutning á saltfiski
frá Frakklandi án sóttnæmishreinsunar (des-
infection), er beitt var í sumar við alla
hluti, sem þaðan komu, dautt og lifandi,
vegna kólerunnar. Fyrirhugaðir fiskiflutn-
ingar hjeðan (þ. e. frá Khöfn) til Spánar
hafa því sezt aptur. Hjer í Khöfn hefir
síðast verið gefið fyrir bezta sunnlenzkan
fisk stóran 50 kr. skppdið, og 40 kr. fyrir
nr. 2; en fyrir vestfirzkan stóran 55 til 60,
óhnakkakýldan 75 til 72, og hnakkakýldan
jagtafisk skóran 68 til 70. Smáfiskur 33
til 35. Ýsa 28. Langa 46 til 50.
Rarðfiskur 135 til 140 kr. skippundið.
Tólg 32 til 33 a. pundið.
Sundmagar 95 til 100 a. pundið.
Lýsi. Hákarslýsi tært 44 til 45 kr. tunn-
an (210 pd.), dökkt 35 til 42 kr.
Æðardúnn 18 til 19 kr. pundið.
Sauðakjöt 50 til 52 kr. tunnan (14 lpd.).
Sauðargœrur saltaðar 4J til 5 kr. vöndull-
inn (2 gærur).
Hrogn seljast alls eigi.
Haiinyröasýningin íslenzka í Lnnd
Únum. Eins og ráð var fyrir gert f Isafold
í haust, hefir blaðið fengið með þessari ferð
ýtarlega skýrslu um hannyrðasýninguna,
sem ekki er rúm fyrir nema ágrip af í þetta
sinn.
I blaðinu The Quéen, sem er enskt
kvennablað, er hefir mikla útbreiðslu og
gengur einkum meðal auðfólks og aðals,—
kom út grein 4. okt., þar sem lokið var
hinu mesta lofsorði á hinar íslenzku hann-
yrðir á sýningunni. Eptir það fór hin ís-
lenzka sýning að vekja mikla eptirtekt og
seldist þá mikið af munum, og voru sendir
kaupendum er sýningunni var lokið (var
lokað 30. okt.),
tPantanir hafa komið svo miklar, að allar
konur á Islandi, er band spinna, vandaða
sokka prjona og vetlinga, og vaðmál vinna,
mega senda allt, er pcer komast yfir að
gjörat.
það var þó ekki nema með mestu
eptirgangsmunum, að dómnefnd Allsherjar-
heilsusýningarinnar fjekkst til að skoða
sýnisgripina frá íslandi, og dæmdi loks épt-
ir ríflegan umhugsunartíma íslenzku vinn-
unni bronzemedalíu-verðlaun. þetta þótti
forstöðukonu sýningarinnar, frú Sigríði
Magnússon í Cambridge, órjettlátur dómur,
f samanburði við það sem annara landa
vinna fjekk, og neitaði að taka við verð-
laununum fyrir Islands hönd. Spunnust
úr þvf miklar brjefaskriptir milli frú Sigríð-
ar og skrifara dómnefndastjórnarinnar,
þar sem frú Sigríður varði sitt mál með
svo miklu fylgi og röggsemi, að dómnefnd-
in settist aptur á rökstóla áður lauk, ónýtti
sinn fyrra dóm ogveitti hinniíslenzku vinnu
hina luestu viðurkenningu, er völ var á
(diploma), beint eptir þvf sem frú Sigríður
fór fram á; hún krafðisfr þess »sem rjettar
blátt áfram, en alls ekki sem ívilnunar«. —
|>essi síðustu úrslit málsins gerðust um það
leyti sem póstskipið var að leggja af stað
frá Skotlandi, og náði þar að eins í það
hraðfrjett þess innihalds.
Verðlaunin hlutu þessir sýnendur.
Fyrir vetlinga : Guðrún O. Sæmundsen
(Valþjófsstað), Margrjet Daníelsdóttir (á
Hólmum), Margrjet Egilsdóttir (Beykjavík)
Martha Stephensen, Bagnheiður Daníels-
dóttir og þórunn Stephensen.
Fyrir sokka : Guðrún O. Sæmundsen,
Guðrún M. Stephensen, Margrjet Gísla-
dóttir, og 4. éinhver, sem ekki hafði sagt til
nafns síns.
Fyrir vaðmál: Arnbjörg á Klaustri, Krist-
ín Blöndal (Kornsá), Marfa Einarsdóttir
(Valþjófstað), María þorvaldsdóttir, Sigríður
Kjerúlf og Sophía Einarsdóttír.
Meiftyrðamál. Eins og getið var f ísa-
fold í sumar, kom þá út á prent hjá Einari
þórðarsyni níðrit um einn sýslumann hjer
syðra, Stefán Bjarnarson í Arnessýslu, eptir
mann, sem fór til Ameríku samdægurs, Sig-
urð nokkurn Magnússon frá Skúmstöðum
nál. Eyrarbakka. Samkvæmt prentfrélsis-
lögunum hlaut því prentarinn að bera á-
byrgðina fyrir ritið, er nefndist »páttur um
lögmannínn í Gerðiskoti og athcefi hans ým-
islegU, og var dæmdur í bæjarþingsrjetti
Beykjavíkur 20. þ. m. í 4 mánaða einfalt
fangelsi, 15 kr. málskostnað og 20 kr. sekt
fyrir óþarfa drátt á málinu, en ritið allt í
heild sinni og hvert einstakt orð þess dæmt
dáutt og marklaust.
Skipströnd. Graigforth, sauðakaupa-
skip Slimons, er fór frá Borðeyri snemma í
október með 3200 lifandi fjár, strandaði í
þeirri ferð við Skotland norðanvert og brotn-
aði svo, að ekki er bætandi. Menn kom-
ust allir af, en fátt af fjenu.
Kaupskipið Amoy, eign Bryde stórkaup-
manns, rak upp á Holtsfjöru undir Eyja-
fjöllum í ofsaveðrinu aðfaranótt hins 15. þ.
m. Fór hjeðan 3 dögum áður áleiðis til K,-
hafnar, með alfermi af íslenzkum vörum
(kjöti o. fl.). Menn komust allir af. Skip-
ið var lítt brotið, en engin tök að koma því
á flot; hafði rekið langar leiðir upp fyrir
flæðarmál.
Mannalát. Merkispresturinn síra Brynj-
úlfur Jónsson í Vestmannaeyjum andaðist á
sóttarsæng 19. þ. m., hátt á sextugs aldri,
fæddur 8. sept. 1826. Hantí var sonur Jóns
próf. Bergssonar, er síðast var á Hofi í
Alptafirði. Hann útskrifaðiíst úr skóla 1848,
af prestaskólanum 1850, og vígðist að Beyni-
stað 1852. Varð síðan riðstoðarprestur í
Vestmannaeyjum og hlauli það brauð fám
árum síðar. Hann var á alþyngi 1859 og 1863