Ísafold - 26.11.1884, Síða 3

Ísafold - 26.11.1884, Síða 3
187 * Hinn 5. sept. þ. á. andaðist á spítala í ] ■ lina- borg Magnús snikkari fórarinsson, jarðvrkju- manns frá Stóra-Hrauni. Hann lagðist næst- liðið vor í brjóstveiki, er hann þjáðist mjög af, og sem að lokum leiddi hann til bana. Magnús sál. var hiun mesi atgjörvismaður og lipurmenni; hann bar sem hetja þjáningar sínar, og var sárt saknaður, ekki einungis af vandamönnum sínum, heldur og af öllum er hann þekktu. jiorleifur jporleifsson, Kolbeinssonar, írá Há- eyri, ver/lunarmaður á tvítugsaldri, drukknaði 17. oktbr. af norsku kaupskipi á leið fráKhöfn til Helsingjaeyrar. Skipstjóri var fyrst grun- aður um að vera valdur að dauöa hans, með því að þeim hafði áður borið eitthvað á milli út af sölu á saltfisksfarmi af skipinu hjeðan frá verzlun forleifs. En í rjettarrannsókn, sem haldin var yfir skipshöfninni, varð ekki ann- ars vart en að frásaga skipstjóra um fráfallið væri sönn. Hún var sú, að jporleifur heiði sjálfur fleygt sjer fyrir borð og auðsjáanlega ekki viljað láta bjarga sjer, er reynt var til þess. Hann ljezt ætla með skipinu út að Hels- ingjaeyri sjer til skemmtunar og þar á land á bát. Hann var að sjá eins og hann átti að sjer og í góðu skapi. Eptir borðun á skipinu, þeg- ar átti að fara að drekkakaffið, gekkhannupp á þilfar og henti sjer útbyrðis að vörmu spori. Aflabrögð. Nú hefir nokkuð á aðra viku verið allgóður reytingur hjer á Inn-nesjum, mest af ýsu. Komnir rúmlega 2 hundr. hlutir, þar sem bezt er. En lítur út fyrir að nú sje á þrotum. Á Akranesi hefir einnig fiskazt nokkuð, og í syðri veiðistöðunum (Garði, Leiru o. s. frv.) sömuleiðis. t Utlendar frjettir. Khöfn 7. nóv. 18S4. Diilliuörk. »Kristjánsborg brennur!«— Mönnum hefði orðið bylt við minna í K.- höfn föstudagskvöldið 3. október; þremur dögum síðar átti ríkisþingiö að setjast þar að vinnu, eins og vant er. Allir upp til handa og fóta og strætin full í svipan. það leið þó ekki á skömmu, áður fólki varð kunnugt um eldinn. Hann hafði kviknað í ofnpípu, frá hraðritarastofu þings- ins, en hún stóð í sambandi við hitapípur undir gólfi riddarasalsius, og það var þetta gólf, sem magnaði eldinn til báls, er numið var. Menn ætluðu í fyrstu, að auðslökkt mundi, og ljetu sem minust á bera. Hvað hjer hefir í fáti farið eða handaskolum, er bágt að vita; en eptir tvær stundir, eða minna, hafði eldurinn færzt til fleiri sala, og af reyknum og eimyrjunni yfir höllinni var hægt að sjá, er skyggja tók, hvað við sig var. Að sumum hafi orðið ráðfátt, er sízt skyldi, og til ýmiss vangætt, t. d. teppu brenniloptsins, má af mörgu ráða, sem kunn- ugt er nú orðið. I efri loptum hallarinnar var litmynda- safn eptir frægustu meistára, útlenda og danska, og var mestu kappsmunum beitt til að bjarga þeim dýrindum. þetta tókst nær þvi til fulls, en sumt lestist til nokkurra muna, því menn urðu í flýti að höggva eða skera uppdrættina úr umbúðunum. Af bókum konungs vors og bókasafni þingsins, einnig ýmsum munum, er þau drottning áttu í höllinni, brann sumt áður undan yrði komið, þó alls væri í leitað. En hjer var meira í veði, og svo mikið, að aldrei hefði mátt bóta bíða, er mynda- safn Thorvaldsens stóð á næstu grösum einnar handar, en hinnar »konungsbókhlað- an mikla«. Myndasafnið var þó í mestri hættu, því yfir það bar neistaflugið og eim- yrjuna, enda mundi öll vörn hafa til ónýtis orðið, ef hvassviðri hefði á staðið. þá mundi og mjög ósýnt um allan miðhluta borgarinnar. Safnhúsið eða þak þess vörðu menn með rennvotum dúkum og tjöldum, og á þá var vatni þeyst í hrífu, unz eldur- inn tók að rjena. Danir ætla nú líka að láta þenna voða verða sjer að kenningu, og mun sem fyrst sú ráðstöfun gerð, að reisa þau hús handa söfnum landsins, hinum merkustu og dýr- mætustu, og sömuleiðis bókhlöðunni, að því verði öllu mun óhættara síðar en áður. Sem vita mátti, var farið í blöðum hægri manna klökkvilegum orðum um harma kon- ungs og hirðarinnar, og skorað fast á alla konungholla menn og þjóðrækna, að skjóta svo fje saman sem þyrfti, að Kristjánsborg mætti rísa aptur, sem glæstur fönix, aí ösku sinni og rústum. Blöðum vinstri- manna varð það til, að minna menn á, hvern rjett ríki og þing ætti á lóðinni, og að það hlyti að vera komið undir samkomu- lagi þings og stjómar, hvað ráðið yrði til að veita konungi aptur slíkan salakost til há- tíðahalda, sem við naut í höllinni brenndu. Bústað hafa þar ekki átt aðrir konungar en Friðrik sjöundi. Út af samskotunum hefir risið mikið blaðaþref með hægri mönnum og vinstri. Bíkisþingið hefir fengið húsnæði í her- mannaskála einum, í Bredgade, og er nú streita þess nýbyrjuð. I blöðum vinstri- manna, hinum harðtækari, er gefið í skyn, að nú skuli til skarar skríða með þeim Est- rúp. Slíkt hefir heyrzt fyr, og betur færi á að kveða: „Hælumz minnst í mali, metumz heldr at val felldan !“ Af látnum mönnum nefnum vjer Basmus N ielsen, heimspekinginn. Hann dó eptir lang - vinnan lasleik 30. sept., hálfáttræður. Hann mun mörgum kunnur á Islandi, og fléirum en þeim, sem hafa stundað háskólafræði í Kaupmannahöfn. Að gáfum til, einkum eldfjörugri mælsku, bar hann af flestum, st:u honum voru samtfða. I heimspekinní þótti hann ekki við eina fjölina felldur, en þreif þar fast til, sem hann ætlaði feng fólg- inn. Síðasta stöð hans mun hafa verið sú, að trú og þekking væru gagnhverf skaut í vitundarlífi mannsins, og að þau gætu aldei samstætt átt eptir eðli sínu. Hjer risu margir til mótmæla, t. d. Bröchner sál., en svo fimlega sem B. N. hjelt á vopnum sínum í ritvíginu, þá þótti hann færri lögin af sjer bera en þurfti eða við var búizt. Svíþjúð. Hjer eru kosningar nýlega um garð gengnar til »annarar deildar« þingsins. I Stokkhólmi voru flestir af frelsismanna liði, sem kosnir voru. Gallar voru fundnir á_kosningunum, og er því nú til hæstarjett- ar skotið, hvort þær skulu gildar metnar. þýzkalaild. i lok okóberm. fóru fram nýjar kosningar til ríkisþingsins. það virð- ist sem þjóðverjar hafi hlýtt orðum Bis- marcks, er hann svo opt endurtók á'þinginu í fyrra.að þeir skyldu forðast að kjósa menn til þings af liði »framfaramanna«. Sá flokk- ur hefur beðið mestan skaða við kosningarn- ar, eða misst að svo komnu eigi minna en 78 atkvæði. Vera máþeim áskotnist enn nokk- að við eptirkosningar, því endurkosið skal í 100 kjördæmum.en ekki því nær, að þeir fái hlut sinn rjettan. Sósíalistum hefir vegnað betur, og mestu líkur til, að tala þeirra (13) aukist drjúgum, þegar allt er komið í kring. Árið 1881 voru í Berlín kjósendur í þeirra liði 30,000 að tölu, en r.ú eru þeir 68,000. Svo er brugðið, að þjóðverjar og Frakkar leita nú lags og fylgis hvorir við aðra í út- lendum málum. þessa hefir kennt í egipzka málinu, og aptur á ný, er þeirhafa komið sjer saman um öll forspjöll til fuudargerðar í Berlín (17. þ. m.) um löndin við Kongó og Níger í Afríku, eða um lög og aðalregl- ur fyrir útlendar þjóðir, sem sækja þangað til verzlunar eða bólfestu, eða um þær heim- ildir á löndum og öðru, sem ýmsir þykjast þar þegar eiga. Látnir eru tveir tignir menn þar í landi. Annar Friðrekur kjörfursti af Hessen, bróðir Louise Danadrottningar, en hinn Vilhjálmur hertogi af Brúnsvfk. Eptir hann er borinn til erfða Ernst Agúst hertogi af Kumberlandi, tengdason konungs vors. Hann mun vart hafa hugað, að hjer væri að auðu sæti að ganga, þó hann hafi talað svo í ávarpi til landsmanna, og í brjefum til keisarans og annara höfðingja á þýzkalandi. Vjer vitum ekki, hvað hann hefir sagt um fráfall kvaða sinna til ríkis í Hannóver, en hitt er víst, að Bismarck þykja miklir meinbugir á ráði hans, og blað kansellerans (»D. Allgem- Zeit.«) segir, að honum sje vart til annars trúandi en til fláræðis og fjandskapar gegn allsherjarríkinu. Hjer mun líka svo til

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.