Ísafold - 22.04.1885, Page 1

Ísafold - 22.04.1885, Page 1
taur ál á miHvikudajsmorjM. íerf irjanjsius (55-60 arkal 4kr.: erlenlis ákr. öorjist Ijrir rniðjan júlimánnð. ISAFOLD. Upnsögrn (sknS.) bundúi við áramóU- jild nema komin sje íil útg. Ijrir 1. akt. Mjreióslustola ; Isaloldarnrenlsm. i. sal. XII 18. Reykjavík, miðvikudaginn 22. aprílmán 1885. 69. Innlendar frjettir. Útlendar frjettir. 70. Nokkur orð um verðlagsskrár. Búnaðarskóli Suðuramtsins. 71. Hin fornu Fiskivötn. 72. Fóðurstyrks-útbýtingin í Mosfellssveit. Auglýs. P'orngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I — 2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12 — 2 útlán md., mvd. og Id. kl. 2 — 3 Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd. og ld. 4 — 5 Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen Apríl 1 Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. ánóttu um hád. fm. em. fm. em. M. . 5. -r- 5 0 29,9 29,9 N b h 0 b F. 16. -r 2 29.9 >9,8 Na h d N h b F. 17. —L- 2 + 2 29,7 29.5 Na h d A h d L. 18. + 2 + 5 29.3 29.5 N h b N h b S. 19. -T- 2 + 3 29,5 29,4 0 b N h b M. 20. -A_ I + 3 29,6 29,5 N h b N h b þ. 21. — I + 4 29,5 29,5 A h b A h b f>essa vikuna hefir svo að kalla stöðugt blásið frá norðri, hvass til djúpanna en optast hægur hjer innfjarðar; veður hefir verið einstaklega bjart. Föstudaginn 17. snjóaði um hríð fyrri part dags, en rigndi litið eitt síðari part dags. í dag, 21., hæg- ur austanvindur. Reykj ivík 22. apríl 1885. Embætti. Kennara við latínuskólann Halldóri Guðmundssyni hefir konungur veitt lausn í náð frá embætti 19. f. m. frá 1. okt. þ. á. með eptirlaunum vegna lasloika. S. d. hefir konungur samþykkt brauða- skifti þeirra þórhallar prófasts Bjarnarsonar í Reykholti og síra Guðmundar Helgasonar á Akureyri. I gær hefir biskup skipað præp. hon. síra Jón Jónsson á Hofi í Vopnafirði prófast í N orðurmúlasýslu. HókuuMintatjelagið. Hafnardeildin hefir á ársfundi sínum 23. f. m. kosið sjer nýjan forseta, cand. juris Ólaf Halldórsson, assistent í íslenzku stjórnardeildinni, og nýj- an fjehirði, kaupmann Jón Guðmundsson frá Flatey, í stað þeirra Sigurðar L. Jón- assonar og Tryggva Gunnarssonar, er báðir höfðu færzt undan kosningu. Skrifari var endurkosinn Pálmi Pálsson og bókavörður Dr. Finnur Jónsson. Prestvígður sunnud. 19. þ. m. prestaskóla- kaud. Stefán Jónsson til aðstoðarprests hjá pról. síra Stefáni þorvaldssyni í Stafholti. Sviksamlegar veðsetningar m. m. í fyrra dag var Jón kaupmaður Guðnason í Iieykjavík, \ sem varð gjaldþrota í fyrra vetur, dæmdur I fyrir aukarjetti Reykjavíkur í eins árs betrun- arhúsvinnu fyrir sviksamlegar veðsetningar og aðrar sviksamlegar athafnir og stór- kostlega óreglu í því, hvernig hann hefir hald- ið verzlunarbækur sínar. — Hann hefir meðal annars tvíveðsett sviksamlega á sama missirinu 883 hús sitt á Akranesi og jörðina Efrahrepp í Borgarfirði, er þar að auki var áður veðsett svo hann vissi, er hanu eignaðist hana, og enn fremur tekm af honum með fjárnámi þremur árum áður til lúkningar skuld við kaupmann einn í Khöfn. Sömuleiðis tviveðsett sama árið, 1883, búshluti sina (eða allt innbú sitt) og vör- ur í Rvík,í fyrra skiptið Löwe kaupmanni í Liv- erpool, hinum sama sem hann veðsetti nefnda jörð og húsið á Akranesi í síðara sinnið; en í síðara skiptið Pinnboga bónda Árnasyni á Reykjum. Enn fremur hefir hann veðsett Löwe þessum í febr. 1882 „eign sína skipið Elliða“, er hann var þá búinn að selja þórði bónda þorsteinssyni á Leirá samkvæmt löngu þinglesnu kaupbrjefi. Enn fremur hefir hann tekið á móti heimildarlaust og ekki skilað apt- ur að fullu peningum til verzlunar-hlutafjelags, er hann þóttist vera forstöðumaður fyrir, og hann nefndi „bændafjelagið í Glasgow“, en sem hann játar að aldrei hafi verið samin nein lög fyrir og engar bækur verið haldnar fyrir. þá hefir hann enn lýst því yfir í sviksamlegum tilgangi, í skjali, dags. 1. maí 1882, að hann hafi búið til leigu í „Glasgow“ siðau hann kom þar, en aldrei verið eigandi að neinu í húsinu, en hafði þá bæði 4 árum áður selt öðrum manni aktíu í húseigninni og tveim árum áður fram- selt „eign sína í Glasgow“ til fjárnáms fyrir skuld við kaupmann í Khöfn. Loks hafa verzl- unarbækur hans, eptir áliti tilkvaddra verzlun- arfróðra manna, verið óreglulega og mjög svo hirðulauslega færðar, og það svo, að ekki verð- ur hægt að gera upp reikning sumra viðskipta- manna hans; aldrei haldið neina kassabók nje hirt um að hafa verzlunarbækur sínar löggiltar. Aflabrögð. Nú um helgina sem leið voru komnir nokkuð á 4. hundraðs hlutir hæst í Garði og Leh'u, hjá Inn-nesjamönnum ; meðal- hlutur á að gizka um 200 hjá þeim, en tals- minna hjá innlendum, og sumum varla neitt, svo sem 5 — 10 fiska hlutur alla vertíðina. Dag- ana fyrir helgiua fór að verða nokkuð vart í net hjer á Inn-nesjum, á dýpstu fiskimiðum. Og eitt Bkip fjekk í fyrra dag 30 fiska hlut vestur í Rennum „við rek“, af vænum þorski, Á Akranesi byrjaður mikið góður afli í net, sem þar er fremur lítið um. þilskipin, þau 5—6, sem úti voru við fiski- veiðar hjeðan úr plássi, Faxaflóa Bunnanverð- um, komu inn nú fyrir helgina með ágætan afla, 2—6>/, þúsund frá því á páskum. Meðal frakk- neskra fiskiskipa, er hingað hafa skroppið inn nýlega, var eitt, sem hafði fengið 24,000, og sagði formaðurinn, að hann hefði aldrei hitt fyrir jafnmikinn fisk sem nú öll þau 30 ár, sem hann hefði stundað fiskiveiðar lijer við land. Hákarlaskip G. Zoega komu líka inn í vik- unni sem leið, eptir 10—12 daga útivist, með um 140 tunnur hvort. Sigling frá útlöndum. Til Rvíkur 16/4 Imma- nnel, 98 smál., formaður Mogensen, frá Khöfn til Thomsens-verzlunar.— ,<l/4 Agdanæs, 227, gufuskip með timbur frá Mandal, eptir 6 daga ferð. Með þvf kom útgerðarmaðurinn, Herm. Wathne kaup- maður. Skipið fer aptur á morgun, til Austfjarða. — 19/4 Sömanden, 99, Olsen, frá Khöfn til Brydes- verzlunar. Meðalalin verðlagsskrár 1885—88 er skökk í sumum sýslunum í verðlagstöflunni i siðasta blaði. Hún á að vera: í Austur-Skaptafellssýslu 49 aurar, í Vestur-Skaptafellssýslu 46, í Rangárvallasýslu 50 i Vestmannaeyjasýslu 52, í Árnessýslu 58, i Gull- br. og Kjósarsýslu og i Reykjavik 61, í Borgar- fjarðarsýslu 60, í Mýrasýslu 60, i Snæfellsness- og Hnappadalssýslu 63, í Dalasýslu 63, i Barðastrand- arsýslu 60, i ísafjarðarsýslu- og kaupstað 63, i Strandasýslu 60, í Húnavatnssýslu 57,1 Skagafjarð- arsýslu 52, í Eyjafjarðarsýslu og -kaupstað 56, i þingeyjarsýslu 54, í Norður-Múlasýslu 55, í Suður- 'Múlasýslu 56. — Annars fylgir þessu blaði verð- lagstaflan rjett prentuð á lausu blaði, handhæg til geymslu. Hafishroði fyrir Vestfjörðum, alla leið frá Horni að Bjargtöngum,—frjettist i dag með hvalveiðaskip- inu Isafold. Mannslát. Aðfaranótt hins 20. þ. m. and- aðist merkisbóndinn Níels trjesmiður Eyjólfsson á Grímsstöðum á Mýrum, rúmlega sextugur; ættaður af Austfjörðum. Hann var mikill at- orku- og ráðdeildarmaður, og búhöldur góður, í fremstu bænda röð, og mesta sveitarstoð. Utlendar frjettir, Með gufuskipinu frá Mandal og seglskipum frá Khöfn liafa borizt hingað útlendar frjettir til marzloka. Ofriðarviðbúuaður talsverður með Rússum og Englendingum, út úr landaþrætu [í Miðasíu. Englendingar höfðu herskipattota sinn ferðbú- inn til Eystrasalts og Svartahafs, og ekki hægt að sjá síðast, hvort snúast mundi til friðar eða styrjaldar. Frakkar höfðu beðið ósigur fyrir Kínverjum austur í Tonkiu tvisvar síðustu vikuua af marz, í smábardögum, og misst kastalann Laugson, er þeir voru nýlega húnir að ná á sitt vald. í Danmörku útlit hið ískyggilegasta, að því er kemur til stjórnarbaráttunnar. Fólksþingið ritaði konungi ávarp 19. marz um að skipta um ráðaneyti, og gaf [í skyn, að draga kynni að öðrum kosti til borgarastríðs. Landsþingið andæpti þessu í öðru ávarpi daginn eptir, og konungur svaraði hátíðlega næsta dag, 21., að hann muudi halda ráðaneytinu jafnt sem áður, enda væri það engin gild fyrirstaða fyrir sam- komulagi milli þingdeildanna um fjárlögin o.s.frv. Fjárlögin voru óbúin að morgni hins 31. marz, síðasta dag fjárhagsársins, og engin millibils- fjárlög til. Mun því hafa dregið til þess, sem við hefir verið búizt: bráðabirgðafjárlaga o. s. frv., hvað sem þá verður tíðinda úr því. Dáinn prófess. Höedt, leikarinn ágæti i Khöfn.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.