Ísafold - 30.06.1886, Side 3
erindi höfðu á hans fund, hvort sem ráð-
herrar voru eða aðrir. Bróðir hans Ottó
er líka brjálaður, en sá frændi hans heitir
Luitpold (f. 1821), sem við stjóminni
hefur tekið.
Látnir eru tveir ágætustu sagnaritarar
f>jóðverja, Georg Waitz (f. 1813), og Leo-
pold v. Rancke, sem varð 91 árs að aldri.
Fhakkland. |>ingið situr nú yfir prinsa-
málinu, og menn þykjast vita, að lyktirn-
ar verði þær, sem seinast var á vikið, eða
að tignarkrefjendur verði landrækir gerðir,
en stjórninni Iátið heimilt að vísa hinum
á burt, þegar henni þykir svo bezt hlýða.
Um fjárupptekt ekkert ráðið að svo stöddu.
Italía. Eldgosið úr Etnu nú rjenað til
muna, og þeim bæ svo borgið, sem Nico-
losi heitir, og helzt var í voða.
í Feneyjum hefir kólera gengið í nokk-
urn tíma, en tala þeirra, sem sýktust á
sólarhring eða dóu, ekki farið fram úr 32
og 14.
Ghikkland. Nú er allt komið í samt
lag; herbramlinu lokið, og hafnleiðabann
stórveldanna á enda.
Noeðuh-amehíka. Nú er dómur upp
kveðinn á máli þriggja byltingamanna (frá
þýzkalandi), sem hafa haldið út byltinga-
blöðum og ritum þar vestra, ög æst verk-
mannalýðinn til illverka og morða. þeir
heita Most, Schenck og Braunschweig. M.
dæmdur í eins árs fangelsi og 500 dollara
bætur; hinir í 9 og 3 mánaða varðhald,
auk bótagjalds. Dómarinn kallaði Most
»allra bófa verstan og níðinglegastan«, og
kvað illa farið, er lögin ljetu slíka ekki
harðara niður koma.
þó verkaföllin sjeu að miklu leyti á enda,
eru enn margar þúsundir manna atvinnu-
lausir. Annars hafa vinnuveitendur fallizt
á víðast hvar, aðstytta vinnutímann (til 8
stunda eða 9).
Cleveland, forseti Bandaríkjanna, giptist
fyrir skömmu dóttur vinar síns, málfærslu-
manns, sem Folsom hjet, en nú er látinn.
Cleveland er fimmtugur að aldri, kona
hans 22 ára. Brúðkaupið viðhafnarlaust
og ekki fjölsetið —25 eða 28 í veizlunni—
en var haldið í »Hvítahúsinu«, aðseturshöll
forseta. Brúðurin kvenna fegurst, en gim-
steinn eða perla sást ekki á búningi hennar.
Stjórnþref Islands og Parliament Englands.
17. maí hélt James Bbyce, undir-stjórn-
arherra Breta í utanríkismálum, mikla
varnarræðu fyrir sjálfstjórnar-lögum Glad-
stones handa Irum, og vék orðum til ís-
lands á þessa leið:—»Eg vil gefa yðr ann-
I
að dæmi, sem er nokkuð eftirtektar-vert.
það er ekki stórvaxið, því að fólkstala eyj-
arinnar er lítil, enn það snertir land, sem
oss ætti að vera ant um—eg á við dæmi
íslands. (Mótflokks-köll: »Ó !«, og lófa-lof).
Heiðarlegum mótflokksmönnum virðist vera
einkum um það hugað, að fá enga fræðslu
um þetta efni. Eg sé þeir myndu heldur
kjósa, að eg færi að staulast aftr um hinn
leiðinlega veg útþvældra röksemda, sem
menn hafa hlustað á frá bekkjum þeirra,
heldr enn að eg skyldi reyna að bregða
nýrri birtu á málið með nýjum upplýsandi
dæmum. (Heyr, heyr !). í 30 ár héldu Is-
lendingar uppi sinni löngu baráttu gegn
ofrvaldi hins danska ríkis. þeir heimtuðu
löggjafarfrelsi, og afsögðu, að eiga atkvæði
og sæti í Ríkisdeginum, vegna þess, að þeir
myndu verða þar í minni hluta, og vegna
þess, að þeir töldu, að Ríkisdagrinn hirti
ekkert og vissi ekkert um hagi Islands.
Stjórn Dana lét loks undan 1874, og veitti
þingi íslendinga það, sem kalla mætti lög-
gjafarfrelsi. Siðan hefir allt gengið nokk-
urn veginn liðugt. Islendingar eru ekki
alveg ánægðir enn, því að þeir óska, að
stjórnarsetrið, sem Danir halda í Kaup-
mannahöfn, verði fluttt til höfuðstaðar ís-
lands; svo þeir hafa að eins fengið hdlfgjörða
heima-stjórn«.
Ldvarðr R. Chubchill.—»Hvað er langt
milli íslands og Danmerkr?«
Beyce.—»Hinn göfugi lávarðr finnr það
með því að líta á landabréfið. það er hér
um bil 1000 eða réttara 1100 mílur, enn
það sé eg ekki að hafi neina þýðingu fyrir
þessa röksemdafærslu. (Nei, nei! lófa-lof).
það var lafhægt alt eins fyrir Dani að segja,
að þeir vissu miklu betr enn íslendingar
sjálfir, hvað þeirn væri fyrir beztu, og þeir
gátu sagt með enn betri rökum, að Island
væri fátækt land og gæti ekki bjargast,
nema undir verndarvæng Danmerkr. (Lófa-
lof). Eg vil lesa upp fyrir þinginu fáeinar
línur, sem eg hefi fengið frá merkum
(eminent) Islendingi um þetta mál. Hann
segir:—»Samband beggja landa er nú langt
um friðsamlegra enn fyrir 1874; af pví, að
stjórnarskráin viðkennir að Islendingar sé
þjóð, sem annast geti sjálfa sig; af því, að
það spekir menn, að vita, að þeir eiga bak-
hjarl í viðrkendum þjóðréttindum; af þvi,
að áhugi þjóðarinnar hefir leiðzt frá æsing-
um, er hún hafði eigi annað að gjöra enn
að iðka íþróttir hatrsins, að hinu margkynj-
aða efni,sem felst í yrkingu auðs-uppspretta
landsins, og í starfsemi að þjóðlegum fram-
förum. Héðan af er alveg ómögulegt, að
hin sama megna óánægja gagntaki þjóðina,
sem átti sér stað fyrir 1874«. (Lófa-lof).
Hinn 25. maí vék Tkevelyan, fyrverandi
írlands-ráðgjafi í ráðaneyti Gladstones (sem
gekk út úr ráðaneytinu, af því að honum
leizt ekki á hin írsku heimastjórnarlög Glad-
stones) máli að þeim kafla í ræðu Bryce,
sem laut að íslandi, og sagði meðal annars:
—»íslands dæmi var óheppilegt, því dag-
inn eptir að hinn hávelborni herra hólt
ræðu sína, hegðaði þetta land sér svo upp-
hlaupslega andspænis ríkinu, sem það er í
sambandi við, að konungr varð að taka
af því Alþing þess«. Landi vor, Eiríkr
Magnússon, svaraði þessu jafnharðan í
»Daily Néws«:—»Ekki að tala um það, að
hinn hávelborni herra gat með engu hugs-
anlegu móti haft alla þessa vitneskju í
Englandi 25. maí um viðburði sem orðið
hefðu á íslandi og Danmörku 18. maí,
skal eg að éins láta þess getið, að orð hans
hafa ekki einu sinni hinn daufasta skugga
nokkurrar tilhæfu að styðjastvið; fyrirþeim
er enginn flugufótr*.
Herra Bryce er Íslands vídt mikill, og
dáist að þeim dug og samheldni, sem þjóð-
flokkr þeirra sýndi í stjórnbótarmálinu.
Ræða hans hefir vakið mikla eftirtekt á
Englandi. *
Fiskiveiðarnar í Faxaílóa.
Eptir
Jon Jónsson prentara.
í þessa árs ísafold nr. 22 og 23 er löng
grein um fiskiveiðar eða netalagnir i Faxa-
flóa á síðastliðinni vertíð, eptir Jón söðla-
smið Rangæing, og er margt í henni fróð-
legt og sögulegt, sem kemur þó lítið við
aðalmálinu. Aðalmálið er eiginlega það,
hvaða nytsemi varð að samþykktinni, sem
náði gildi 14. marz síðastl., með takmarka-
línunni um netalagnir; þar er höfuðatriðið
innifalið í. Allir viðurkenna það, að það
varð þó mikið almennari afli nú en hin
síðustu undanfarin ár, og það mega þó
allir þakka línunni. Annað hitt: missir á
netum mjög lítill móti þvf, sem hefir ver-
ið undanfarin ár, skemmdir máske nokkur-
ar, og þær líkast til meiri af manna völdum
en náttúrunnar, eins og við er að búast,
þar sem allir, sem net brúka, vilja í lengstu
lög endilega vera á þeim yztu takmörk-
um, því allir vilja verða fyrstir til að ná í
fiskinn, og sumir svo ósvífnir, að leggja
fyrir þann lögboðna dag, í forboðinn sjó.
J>að er nú að sönnu galli á samþykktinni,
og hann óþægilegur, að það stendur ekki