Ísafold - 18.08.1886, Side 3
135
líka fundinn »afbrotsmannamótið)> (Forbryd-
ermödet)«. En nú skyldi ekkert eptir
liggja Dana megin ! Og hvernig fór? Lög-
rofarnir fá sjer fundarstað á Marienlyst við
Helsingjaeyri, sigla þangað 16 gufuskipum
troðfullum frá Kaupmannahöfn. Höfuð-
borgarfólkið snemma á fótum þann dag,
skundar þúsundum saman að horfa á burt-
siglinguna og sendir fagnaðarköllin eptir
skipunum. Gengið á land á Helsingjaeyri
—forvígisborg hægri manna hinni helztu,
sem talið er—; vegur öllum greiður að
fundarstaðnum og þangað sóttu 10,000
þús. frá skipunum, en tvöfalt fyrir. Fund-
urinn hinn fjörlegasti og ræðuhaldið. Berg
fullyrti í ræðu sinni, að Estrúp og hans
ráðaneyti væri hið versta og ónýtasta ráða-
neyti, sem fyndist í sögu Danmerkur. En
hvar var þann dag laganna og æðsta dóms
«ágæti skjöldur og vergja»? þ>ví voru «lög-
rofarnir» ekki minntir á hegningarlögin eða
viðbótargreinirnar nýju? Svo mun nokkra
stund spurt, og ekki síður af Svíum en
öðrum, og hvað hefur Landskrónumönn-
um komið í hug, þegar þeir sáu skraut-
flotann renna fram hjá upp eptir Sundinu?
þeir höfðu búizt við öðru en svo dauf-
legum degi.
Nú byrja fundahöldin á Jótlandi. Hátíð-
arfundur í Kolding 1. ágúst (kjörþingi
Bergs).
Onnuk lönd. Salisbury er nú að koma
ráðaneyti saman; á að hafa boðið Har-
tington forsætið. Ekki þegið, en lofað þing-
fylgi f írska málinu.—Blöðin tala mest um
kansellerafund í Kissingen; sum segja, að
v. Giers (frá Rússl.) ætli að finna þar þá
Bismarck og Kalnocky. Sum sjá ný óveð-
ursský í lopti, og halda, að stormurinn
bresti fyrst á á Balkansskaga. Farið líka
að tala um nýjar dylgjur með Rússum og
Englendingum—og sumir fara svo langt,
að þeir hafa á orði sambandsleit með
Frökkum og Rússum.—1. ágúst á að kjósa
til hjeraðsþingmanna á Frukklandi. Ein-
veldisflokkarnir láta drjúgt yfir sjer og
telja sjer góðan sigur í vændum. Auðvitað
að hjer verður farið það komast má með
fjestyrk Orleans prinsanna og fortölum
klerkanna.
n.
England 3O. júlí.
Gladstone hefir beðið ósigur við kosning-
arnar og lagt niður völdin, en Salisbury
tekizt á hendur að mynda ráðaneyti.
Hann hefir nú á bak við sig 316 þing-
manna fylgi, sem hann getur treyst í öll-
um málum ; því það er tala Tory-flokks.
Gladstones sinnar eru að eins 199, en með
þeim má telja í stórmálum öllum Parnells
lið, 83 að tölu, svo að Gladstone getur
mætt Salisbury í írska málinu, sem nú
er aðal-ríkis-mál, með að minnsta kosti,
282 atkvæðum. Milli þessara aðalflokka
liggur nú Einingarflokkurinn, 72 að tölu.
Hann skiptist aptur í tvær deildir; ræður
Hartington annari, en Joseph Camberlain
hinni. þ>essi deild er að eins viðskila frels-
ismenn eða Gladstones flokk 1 írska mál-
inu, en samhendir f öðrum allsherjarmálum.
Hartingtons ;sinnar vilja engu hrófla til
um samband Irlands og Englands, en
Chamberlaains menn vilja gefa írum heima-
stjórn nokkuð takmarkaðri en Gladstone,
og vilja ekkert heyra um það, að Englend-
ingar kaupi út landsdrottna Irlands. Yrði
nú þessi milliflokkur á bandi með Glad-
stones liði 1 einhverju stórmáli, þá hefði
Salisbury 38 atkvæða meiri hluta móti sjer.
þessi flokkaskipun gerir Salisbury mjög
erfitt, að koma saman ráðaneyti, sem til
frambúðar megi verða. Bæði er það, að
Tory-flokkurinn hefir enga menn sem dug-
ur er í til stjórnar að Salisbury einum frá
teknum, en Gladstones megin er fjöldi
manna hver öðrum duglegri, og svo hitt,
að meira en líkur þykja standa til, að
Gladstone takist að sameina aptur allan
flokk frelsismanna á næsta þingi. Nú hefir
Salisbury byrjað með því að fala Harting-
tom í ráðaneyti sitt, og þykir mönnum
það yfir höfuð óvænleg byrjun, hvort sem
Hartington gefur kost á sjer eða ekki, sem
líklegast þykir.
Hjer þrffst engin stjórn til lengdar, sem
eigi gerir þann enda á máli Ira, sem þeir
vilja við una. Englendingar eru nú farnir
að athuga betur en áður sögu sambands
síns og þessarar örfátæku þjóðar, sem þeir
voru að sigra frá 1170 — þegar Hinrik
annar 'meðj páfa boði og blessun byrjaði
stórvirkið — þangaðltil 1649, að Cromwell
lauk því með óheyrðri grimmd og hryðju-
verkum. Menn játa það nú opinberlega
og almennt, að Irar sje enn í rauninni
eins ósigraðir og þeir hafi nokkurn tíma
verið ; að á þessum tíma tjái ekki að eiga
ríkiseiningu á papírnum að eins, sem und-
ir niðri sje í raun og veru fullkominn fjand-
skapur annars einingaraðila; slíkt sje ó-
ensk stjórnaraðferð; kúgun hafi verið
reynd um margar aldir ; hvf ekki reyna
það, sem Irar sjálfir játa að sætti sig við
England, og Englandi sjálfu sje tamast að
bjóða öllum einingum ríkisheildarinnar —
heimastjóm með fullu frelsi ? A þessu
er farið að bóla enda í Tory-blöðum nú
upp á síðkastið, og eru menn farnir að
geta í vonirnar, að Salisbury sjálfur muni
ekki allskostar fráleitur því, að vita hvort
hann geti ekki fengið flokk sinn með sjer,
að dæmi Disraelis, til að taka stórmál úr
höndum frelsismanna og koma þvf fram
með þeirra fylgi. þetta leiðir nú tíminn í
ljós.
Nú, þegar til alvöru kemur fyrir Tory-
um að taka við stjórn, og engum þeirra
lízt á blikuna, standa Tory-blöð á öndinni
að hrópa Gladstone fyrir slægvizku hans;
hann hafi verið eini maðurinn, sem vissi
hvað hann fór; eitthvað verði að gera
fyrir írland ; kúgun sje marg-reynt að dugi
ekki; nú sje Tory-flokkur milli steins og
sleggju og framtíð hans í öllu tilliti óvæn-
leg.
Pingmaður Borgfirðinga og stjórnarskrár-
endurskoðunin,
I.
þar sem það er í hvers manns munni, að
þingmaður Borgfirðinga (Dr. Grímur Thomsen)
hafi borið það fram á alþingi, að hann hafi
ekki orðið var við það, á ferð sinni um Borg-
arfjörð i vor, hjá fleirum en að eins einum
manni, að menn vildu fylgja fram hinni endur-
skoðuðu stjórnarskrá frá síðasta þingi óbreyttri,
þá lýsi jeg þvi hjer með yfir, að jeg ljet Dr.
Grími Thomsen i Ijósi mitt eindregið álit um,
að jeg vildi fylgja henni fram. Hið sama hafði
jeg látið honum í Ijósi áður, og hefi einnig
gjört það síðar. í sambandi við þetta lýsi jeg
því yfir, að jeg var viðstaddur samtal A. Fjeld-
steðs og Dr. Grims, þarsem A. Fjeldsteð sagð-
ist gjöra þá kröfu tilhinsihönd faranda auka-
þings, að það hjeldi fast við hina endurskoð-
uðu stjórnarskrá óbreytt i, og vorum við 2 af 3
viðstöddum, er vorum á sama máli. Jeg lýsi
því og yfir, að á undirbúningsfundi undir kjör-
fund er haldinn var á Akranesi 15. apr., lýsti
jeg því yfir i viðurvist nál. 80 kjósenda, að menn
ættu að halda fast við hina endurskoðuðuðu
stjórnarskrá óbreytta einsoghún var samþykkt
á alþingi 1885, og sjerstaklega væri jeg ófáan-
legur til að víkja i nokkru frá henni. þessu
lýsti jeg og yfir á kjörfundi að Leirá og hefi
hvergi tekið þau orð mín aptur, hvorki á opin-
berum fundi nje í viðtali við nokkurn einstak-
an mann.
Staddur í Reykjavík 14. ágúst 1886.
p. porsteins8on frá Leirá.
II.
Sje það rjett, að þingmaður Borgfirðinga hafi
borið það fram á þingi, að hann ekki hafi orð-
ið var við á ferð sinni um Borgarfjörð utan
hjá að eins einum manni, að vilja fram fylgja
hinni endurskoðuðu stjórnarskrá, þá lýsi jeg
þvi hjer með yfir, að jeg Ijet í ljósi við Dr.
Thomsen mitt eindregið álit um fylgi hennar,
eins og eg ásamt mörgum hafði á undirbúu-
ingsfundinum, er haldin var hjer á Akranesi
15. apríl síðastl., fylgt fram. í sambandi við
þetta skal einnig hjer með tjáð, að jeg var við-
staddur samtal herra Andrjesar Fjeldsteðs og
Dr. Thomsens, en sá fyrrnefndi sagðist gjöra
þá kröfu til hins í hönd farandi aukaþings, að
það haldi fast við hina endurskoðuðu stjórnar-
skrá, og vorum við af 3 viðstöddum 2 á sama
máli. Ennfremur skal því yfir lýst, að þingmað-