Ísafold - 02.02.1887, Side 1
Kemur út á miðvikudags-
morgna. Verð árgangsins
(60 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr.
Borgist fyrirmiðjan júlimán.
ÍSAFOLD.
Uppsögn (skrifl.) bundin við
áramót, ógild nema komin sje
tilútg. fyrir l.okt. Afgreiðslu-
stofa i ísafoldarprentsmiðju.
XIV 5.
Reykjavík, miðvikudaginn 2. febr.
1887.
17. Innlendar frjettir (Búnaðarfjelag Suður-
amtsins o. fl.).
18. Verzlunarfjelag Dalasýslu.
19. Nokkrar athugasemdir um alþýðumenntun-
armálið. Ritstjóri „|>jóðólfs“ og sannleik-
urinn.
20. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. n—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Sparisjóður Rvikur opinn hvern mvd ogld. kl. 4—5
Söfnunarsjóður Rvíkur opinn I. mánud. í
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðuratliuganirí Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
jan. febr. Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánöttu um hád. fm. em. fm. em.
M. 26. ~ 6 1 29,5 29, A hv d Sa hv d
F. 27. O 0 28,7 Sv hv d Sv hv d
F. 28. 4- 4 4- 3 28,6 28,5 Sv hv d Sv hv d
L. 29. 4- 5 4- 4 28,6 28,7 Sv hv d Sv hv d
S. 30. 4- 6 4- 5 28,8 28,8 Sv hv d Sv hv d
M. 31. 4- 7 4- 6 28,8 29, Nv h b í) d
Þ. 1. ~ IO 4- 6 29, 29,1 A h d A h d
Alla vikuna hefir verið útsynningur (Sv) optast
hvass og opt með blindbyl frá morgni til kvelds
t. a. m. h. 29. 31. gekk hann til útnorðurs hvass
um tíma, lygndi að kveldi, og i dag er hjer hæg
austanátt, en útsynningur er undir.
Reykjavík 2. Jebriiar 1887.
Tíðarfar. i>að er að heyra stirt al-
staðar: ákaflega snjóasamt; hjer syðra
sífelldir útsynningar; gæftalaust á sjó.
Fiskur var til í Garðsjó, er síðast varð
reynt.
Svo látandi athugasemd hefir oss borizt
út af frjettum í Isafold um aflabrögð þar:
Herra ritstjóri! í „ísafold“ 53. bl. 22. desbr.
síðastl. er sagt frá „túr“ Innnesjamanna suður í
Garð, og skýrt svo frá: „Var hinum aðkomnu
skipshöfnum ýmist bönnuð lending eða sj’njað
húsaskjóls, og látnir standa úti næturlangt í gadd-
frosti“.
J>etta er ekki alls kostar rjett.
Eptir samhljóða vitnisburði skilorðra manna er
það hið sannasta, að nokkrar skipshafnir af Inn-
nesjum voru í þessum „túr" nætursakir í Garðin-
um, og voru þær allar hýstar eina nótt, og einhver,
sem legaðist vegna andbyrjar, fleiri nætur, en eigi
fengu þær loforð fyrir húsnæði nje uppsátri til
frambúðar. Aptur á móti fjekk ein skips-
höfn eða jafnvel 2 eigi húsavist í Leirunni
einhverja nóttina um þetta teyti.
J>ess er óskandi, að bæði Innanmenn og Sunnan-
menn láti sjer annt um, að sanngirni og sannleiks-
ást ráði sem mestu um viðskipti þeirra bæði í orði
verki; þvi að eins mega þau verða happasæl.
p. t. Rvík 29. jan. 1887. J. P.
Búnaðarfjelag Suðuramtsins.
Fyrri ársfundur þess var haldinn hjer í
bænum 28. f. m., og var þann dag liðin
hálf öld síðan fjelagið var stofnað, fyrir
forgöngu yfirdómara þórðar Sveinbjörns-
sonar, eins og forseti, H. Kr. Friðriksson,
skýrði meðal annars frá í upphafi fundar-
ins, í yfirliti yfir sögu fjelagsins. það var
stofnað á afmælisdegi Friðriks konungs VI.
28. janúar 1837, enda hafði konungur heit-
ið fjelaginu aðstoð sinni, sem hann og efndi
með 1000 rd. gjöf árið eptir. J>að var
skírt og nefnt lengi »Suðuramtsins Húss-
og Biistjórnarfjelag«. Meðstofnendur voru:
stiptamtmaður L. A. Krieger, Steingrímur
biskup Jónsson, Páll Melsteð amtmaður (þá
sýslumaður í Árnessýslu), Stefán Gunnlög-
sen landfógeti (þá sýslumaður), sekreteri O.
M. Stephensen, landlæknir Jón Thorstein-
sen, Helgi biskup Thordersen (þá dóm-
kirkjuprestur), verzlunarstjóri Tómas H.
Thomsen, og sjálfseignarbændurnir Pjetur
j Guðmundsson í Engey og Jón Jónsson á
Elliðavatni.
Fyrstu 20 árin ,var þórður Sveinbjörn-
sen forseti; síðan Olafur Pálsson dóm-
kirkjuprestur 1856—1868; þá yfirkennari
H. Kr. Friðriksson síðan.
Á fyrstu 10 árunum gaf fjelagið út alls
2 bindi af »búnaðarritum«. Að ööru leyti
voru framkvæmdir þess helzt fólgnar í
| verðlaunaveitingum, er heitið var framan
af fyrir fram fyrir verk, er unnin skyldu
á svo og svo löngum tíma. En síðan 1868,
að yfirkennari H. Kr. Friðriksson varð for-
seti, hafa framkvæmdir fjelagsins einkum
béinzt að því, að fá vatnsveitingamenn og
aðra búfræðinga til að ferðast um ýmsar
sýslur landsins og leiðbeina bændum og
aðstoða þá til jarðabóta.
Árið 1863 var fjelagið búið að verja:
a) til verðlauna fyrir jarðabætur, refa-
veiða o. fl.................. 1005 rd.
b) fyrir hjólbörur og sljettunar-
verkfæri.....................177 —
c) í styrk til að gefa út rit . 595 —
Síðan hefir það goldið 1 verðlaun nálægt
2000 kr.; en til vatnsveitinga og launa
vatnsveitingamanna, til styrks til að nema
búfræði og til að kenna betri meðferð á
mjólk og fleira þess konar, mun fjelagið
hafa goldið úr sínum sjóði um 9000 kr.
síðan 1868.
Tala fjelagsmanna var f árslok 1837 179,
en fækkuðu heldur úr því lengi vel, og
urðu fæstir 112 (1863), svo skýrslur votti;
hin síðari árin hafa þeir fjölgað aptur og
eru nú um 220.
*
íjc íjc
Forseti lagði fram reikning fjelagsins
fyrir árið 1886, og skýrði frá, að eign fje-
lagsins væri nú um 18000 kr. (þar af úti-
standandi vextir og tillög 400—500 kr.).
Til að yfirskoða reikninginn voru endur-
kosnir þeir Björn Jónsson ritstjóri og Jón
Jensson landritari.
Forseti skýrði frá, að Sveinn Sveinsson
búfræðingur væri ráðinn í þjónustu fje-
lagsins næsta sumar.eins og að undanförnu,
svo framarlega sem hann gæti komið því
við, og enn fremur sömuleiðis Sæmundur
Eyólfsson til að ferðast um Skaptafells-
sýslu.
Út af uppástungu frá þorláki alþingis-
manni Guðmundssyni um að setja nefnd
til að semja lög um friðun birkiskóga var
því máli vísað til landshöfðingja, í því
skyni að stjórnin undirbyggi það til al-
þingis.
I verðlaunanefnd voru kosnir : G. Zoega
kaupmaður, Dr. J. Jónassen og Hermann
Jónasson búfræðingur.
I stað lagabreytingaruppástungu í þá átt
var samþykkt, að skora á fjelagsstjórnina,
að gjöra sjer far um, að haldnir væru í
Reykjavík fyrirlestrar um búnaðarmál fyr-
ir almenningi, á hentugum árstímum, og
skyldu fyrirlestrarnir boðaðir fyrir fram
með nægum fresti.
Samþykkt var og, að fjelagsstjórnin
skyldi leggja fyrir búfræðinga þá, ér fje-
lagið kostar, að hvetja menn til að stofna
búnaðarfjelög í sveitum, þar sem þau væru
eigi til áður.
Björn búfræðingur Björnsson hafði haft
í hyggju að halda fyrirlestur í fundarlok,
en það fórst fyrir, með því að fundurinn
var orðinn svo langur (nær 3 kl.stundir).
Fundurinn var óvenjulega vel sóttur, af
um 30 manns. Sex bættust í fjelagið á
fundinum.
*
* >Je
Síðar um kvöldið höfðu rúmir 30 fje-
lagsmenn kvöldverðar-samsæti, í afmælis-
minningu fjelagsins, og var forseti heiðurs-
gestur.
Póstskip ókomið enn.