Ísafold - 09.03.1887, Blaðsíða 1

Ísafold - 09.03.1887, Blaðsíða 1
KLemur út á miðvikudags- morgna. Verð árgangsins (6o arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrirmiðjan júlímán. ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, ógild nema komin sje tilútg. fyrir t.okt. Afgreiðslu- stofa i ísafoldarprentsmiðju. XIV 11. Reykjavík, miðvikudaginn 9. marz. 1887. 41.1nnl. frjettir. 42. Atvinnuleysi og tómthúsmenn. 43. ’„SameininginM. Auglýsingar. Brauð nýlosnuð: Mælifell 4/s : . . . . 1071. , f>ingeyrar 4/s.............1224. Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2 Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2 útlán md., mvd. og ld. kl. 2—3 Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd ogld. kl. 4—5 Söfnunarsjóður Rvíkur opinn I. mánud. í hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganirí Reykjavik, eptir Dr. J. Jónassen marz Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. ánóttujumhád. fm. em. fm. em. M. 2. 0 ''+ 4 2'>,ó 29,5 Sv h d 0 d F. 3- 0 + 2 29,6 29,9 Sv hv b Sv h d F. 4- -7- 2 + 1 29,7 29,6 A h b Sa h d L. 5. + 2 O 29.5 29,6 Sv h b Sv hv d S. 6. +- 4 -i- 1 29,9 29,9 0 b 0 d M. 7. -i- I + 2 3°, 3°, t 0 d N h d Þ. 8- +- 7 +- 7 30,2 30-3 N hv b N hv b Eins og undanfarnar vikur hefir veðurátt verið mjög óstöðug þessa vikuna, snúizt úr einni átt í aðra á sama dægri; h. 2. var hjer dimmviðri mikið og þoka, daginn eptir (3.) gekk hann snemma morg- uns allt í einu til útsuðurs og var á þeirri átt all- an þann dag ; daginn eptir komin austanátt, hvass, svo aptur til útsuóurs (Sv) með jeljagangi, svo logn j og í dag 8. norðangola og bjart veður með tals- verðu írosti. _ Reykjavík 9. marz 1887. Landsbókasafnið. A eptirfarandi töflu má sjá greinilega afnot landsbóka- safnsins árið sem leið : 1886 Útlán, Lántak- Lestrarsalur bindi: endur: bindi notuð: lesendur: Janúar 408 199 393 188 Febrúar 37« 186 2IO 163 Marz 3«3 152 333 <39 Apríl 297 124 357 IIO Maí 170 84 24O 99 Júní 126 52 168 68 Júlí «45 7« 217 96 Agúst «75 76 281 110 September 216 «*3 3«9 114 Október 207 96 269 119 Nóvember 3«4 166 467 «39 Desember 136 62 446 «52 Samtals 2878 138« 3700 «497 Sje þetta boríð saman við skýru þá, sem prentuð er í ísaf. X 14 (1883), þá má sjá, að afnot landsbókasafnsins hafa aukizt eigi alllítið; þá voru lántakendur 740; ljeð bindi út 1425; lesendur 562, og notuð bindi á lestrarsal 991. Af gjöfum hefir bókasafnið aukizt tals- vert þetta ár. Mest hafa gefið A. Fr. Krieger geheimeetazráð, er enn hefir sent safninu 63 bindi að gjöf; Pjetur biskup Pjetursson hefir gefið því 38 bindi, og Bggert verzlunarstjóri Laxdal á Akureyri 19 handrit, auk 9 binda af gömlum ís- lenzkum bókum. Frá þorvaldi prófasti Jónssyni á Eyri við Skutulsfjörð hafa kom- ið 2 skinnbrjef. Bnn fremur hafa verið flutt á landsbókasafnið úr skjalasafni bisk- upsdæmisins 161 númer; er þar á meðal Keykholtsmáldagi, er vera mun elzta frum- skjal á Norðurlöndum, og um 370 skinn- brjef önnur, flest frumbrjef; eru það kon- ungsbrjef, brjef frá biskupum, ýmsir dóm- ar, kaupbrjef fyrir jörðum o. s. frv.; enn fremur brjefabækur biskupa, vísitazíubæk- ur, synodalbækur o. fl. Rvík 3. marz 1887. pr. Jón Árnason Hallgr. Melsted. Landsyfirrjettardómur. Landsyfir- rjettur dæmdi i fyrradag í máli milli þórð- ar bónda Guðmundsonar í Görðunum við Keykjavík og Ogmundar bónda Sigurðsson- ar í Tjarnarkoti á Vatnsleysuströnd, út af netatöku. Ogmundur hafði 26. marz f. á. tekið upp úr sjó 8 þorskanet og 2 stúfa, er Jpórður átti, án hans vilja og vitundar og án þess að skýra honum frá netatökunni, en net- unum hafði hann eigi skilað fyr en fullri viku síðar, og fiskum þeim, er í netunum voru, alls eigi. Krafðist þórður því 500 kr. skaðabóta fyrir atvinnutjón út af netatök- unni og að Ogmundur skilaði aptur aflan- um eða bætti 100 sem ígildi hans, auk málskostnaðar. Hjeraðsdómari sýknaði Ogmund gjörsam- samlega, og komst landsyfirrjettardómur- inn að sömu niðurstöðu og dæmdi auk þess þórð í 30 kr málskostnað fyrir yfirrjetti. (þar var setudómari landfógeti Arni Thor- steinsson, í stað yfirdómara Kr. Jónssonar, er dæmt hafði málið í hjeraði). Segir svo í ástæðum yfirdómsins : »það er sannað í málinu, að hinn stefndi (Ogmundur) hafi verið skipaður tilsjón- armaður eptir fiskiveiðasamþykkt 9. júní 1885, 7. gr. ; enn fremur verður að álíta sannað, að þorskanet þessi, er hann hefir tekið upp hinn 26. marz f. á., hafi verið lögð af áfrýjandanum, er var til sjóróðra í hjeraði því, er samþykkt 9. júní 1885 nær yfir, þar sem eptir samþykkt þessari er bannað að leggja þorskanet, eptir 1. gr. samþykktarinnar, sem og að hinn stefndi (Ogm.) hafði afhent hlutaðeigandi hrepp- stjóra bæði netin og aflann,þegar hann kom í land með þau, allt eptir erindisbrjefi lög- reglustjóra til hans, dags. 8. febr. f. á. og nákvæmari ákvæðum hans í brjefi til hlut- aðeigandi hreppstjóra, dags. 3. marz f. á. þannig er, eptir því sem fram hefir kom- ið í málinu, eigi ástæða til þess að láta hinn stefnda sæta ábyrgð til skaðabóta fyrir upptöku ninna umræddu þorskaneta, og fyrir að hann hefir afhent hreppstjóra netin og afla þann, er í þeim var«. Aflabrögð. Sama dag og hjer var ró- ið, 1. þ. m., öfluðu Akurnesingar nokkrir 20—30 í hlut af vænum þorski nýgengn- um. Síðan getur eigi heitið að gefið hafi á sjó. Lausn frá prestskap hefir lands- höfðingi veitt 2. þ. m. síra Jóni Sveins- syni á Mælifelli (vígðum 1842) og síra þorvaldi Asgeirssyni þingeyraklausturs- presti (v. 1862). Utanþjóðkirkjumenn. Konugurhef- ir 14. jan. þ. á. staðfest kosningu fyrver- andi prófasts sira Ldrusar Halldorssonar til prests fyrir utanþjóðirkjusöfnuðinn í Reyðarfirði. Skipskaðafregn ný hefir borizt austan úr Landeyjum fyrir skemmstu og flutzt víða, en er, sem betur fer, sjílfsagt ekki annað en hræðslu- heilaspuni, er stendur í sambandi við hið dæma- lausa mannhrun í sjóinn, er orðið hefir á þessum vetri. Sagan var sögð á þá leið, að á þykkvabæjar- fjörum hefði átt að reka flösku með brjefi í frá Vestmannaeyjum—það er hinn algengi vetrarpóstur Vestmanneyinga til meginlands - , þar sem sagt var frá stórkostlegum skiptapa, er 17 manns hefðu átt að fara i sjóinn. Enn það er nú sannfrjett, að til- efni sögunnar er það eitt, að í flöskupóstbrjefi f úr eyjunum, dagsettu degi sfðar en skip úr Land- eyjum með 17 manns á til útróðra i Vestmannuyj- um lagði af stað út þangað, var þeas látið ógetið, hvort þessir landmenn væru komnir út eða ekki. það er að minnsta kosti mjög fljótfærnislegt, að draga þar af þá ályktun, að skipið hafi ekki kom- ið fram.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.