Ísafold - 16.03.1887, Blaðsíða 1
Kemur út á miðvikudags-
morgna. Verð árgangsins
(6o arka) 4 kr.; erlendis 5 kr.
Borgist fyrirmiðjan júlimán.
ÍSAFOLD.
Uppsögn (skrifl.) bundin við
áramót, ógildnema komin sje
til útg. fyrir I.okt. Afgreiðslu-
stofa i ísafoldarprentsmiðju.
XIV 12.
Reykjavik, miðvikudaginn 16. marz.
1887.
45. Innlendar frjettir. Komstu að Kornbrekknm
(kvæði).
46. Um kosningarlög til alþingis.
47. Landsyfirrjettardómurinnog fi^kisamþykktarbrot.
48. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 1*5—2
útlán md., mvd. og ld. kl. 2—3
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd ogld. kl. 4 — 5
Söfnunursjóður Rvíkur opinn I. mánud. í
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðurathuganir i Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen
marz Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttujum hád. fm. em. | fm. em.
M. 9. -14 -f- 8 30,6 3°.« N h b N hv b
F. 10. - 11 -4- 6 30,9 30.9 N h b 0 b
F. 11. - 12 -f 2 30,7 30,8 0 d U b
L. 12. - 9 -r- 3 30.8 30,7 0 b 'I b
s. i.p - 6 + 3 30.5 30,5 V h d V h b
M. 14. - 6 + ' 3°'5 30,5 O b 0 b
Þ. 15- - 6 + 2 3° ,3 30,2 Sv h d Sv h d
Fyrstu daga þessarar viku var hjer norðanátt,
hvass til djúpa, en optast hægur hjer ; seinni part
h. IO. gekk hann ofan og gjörði logn, sem hefir
haldizt síðan, optast bjart og fagurt sólskin. Lopt-
þyngdarmælir hefir alla vikuna staðið óvenjulega
hátt, og 10. var rjett að þvi komið, að hann kæm-
ist ekki hærra, og hefir þetta ekki að borið síðan
1883. fað ár komst mælirinn um sama leyti i
marzmánuði eins hátt og hægt var (6/8 83) og þa
var hjer alveg sama veðrið og þessa vikuna. í dag
15. hægur á suðvestan, dimmur og snjór í lopti;
loptþyngdarmælir fer ofurhægt lækkandi.
Reykjavík 16. marz 1887.
Tíðarfar O. fl. Hjer um suðurland
heíir verið meinlítil veðrátta all-lengi, en
þó nokkuð stormasamt þangað til fyrir
tæpri viku, að brá til hægviðra.
Að norðan er og látið allvel af tíðarfari.
Tíðin hin bezta síðan í mið-þorra, segir
Fróði 1. þ. m. Aptur segir í brjefi úr
Norður-þingeyjarsýslu seint í janúar, að
þar sje þá hið voðalegasta útlit fyrir menn
og skepnur, enda hafi verið sett svo djarf-
lega á fóður þar í haust, að á nokkrum
stöðum í Axarfirði og á Sljettu sje farið að
skera af heyjum.
Af vesturlandi er látið miður af tíðarfari
én nyrða. Hlákurnar á þorranum hafa eigi
orðið þar að liði nema út til nesja. Eink-
um er ástandið mjög illt í Dölumun. Hafa
þar verið jarðleysur alla tíð síðan á jólum,
en heyásetniugin ekki gætilegri en svo,
að allur almenningur er talinn uppiskroppa
nú í góulok, en ekki nema tveir—þrír menn
í sveit, sem endast til sumarmála. Almenn-
ingur þar var farinn nú fyrir viku að sækja
korn í kaupstað til skepnufóðurs, ýmist út í
Stykkishólm eða norður á Borðeyri, á hálf-
horuðum drógum.gegn lánstrausti þeirra sár-
fáu, sem það haia, eða þá út á skepnur sínar;
á Borðeyri t. d. lánað út á ær með 10 kr.
verði að vorlagi, og kostar 18 kr. rúgtunn-
an.— þess er meðal annars getið uin einn
bónda í Dölum, að hann átti í nnðþorra 1
faðm af heyi (útheyi) handa 100 fjár og 11
hesturn.
Aflabrögð. Fö studag 11. þ. m. var
almennt róið hjer við Eaxaflóa sunnanverð-
an — hafði þá ekki gefið á sjó langalengi—
og fengust allt að 30 í hlut hjer á Inn-
nesjum, af vænum stútung og þorski, en á
Miðnesi syðra jafnvel 80 í hlut (sumir segja
100, hjá Hákoni íStafnesi) ; enda var blíð-
asta og fegursta veður. Veðurblíða þessi
hefir haldizt síðan, og aflabrögð mikið góð:
laugardag 10—35 í hlut hjer inn frá, mánu-
dag viðiíka, og í gær rninna, kring um 10
—12 almennt.
A Eyrarbakka einnig ágætur afli, nú um
helgina, af ýsu, jafnvel um og yfir 100 í
hlut á dag.
Við Isafjarðardjúp reytingsafli.
Fiskiafli í Eyjafirði nokkur, þegar á sjó
gefur, segir í Eróða 1. þ. m.
Mannalát og slysfarir. Drukknað
hafa 2 menn at bát í vetur á Mjóafirði
eystra og 1 á Eskifirði. Eimm menn er
talið sannfrjett að hafi orðið bráðkvaddir
í vetur í Strandasýslu af hákarlsáti.
Sparisjóður Reykjavíkur. það
stendur til, að þessi stofnun verði látin
renna saman við landsbankann frá næstu
mánaðamótum, og tekur þá landsbankinn
til að gegna sparisjóðsstörfum, eins og til
er tekið í bankalögum. Landsbankinn
greiðir að sögn nokkuð hærri vóxtu af inn-
lánum, heldur en sparisjóðurinn hefir gert,
nefnil. 3 kr. 60 a. af hverjum 100 kr., í
stað þess að sparisjóðurinn galt hjer um
bil 3J kr.
riskiskútur hjer úr bænum og af nesinu lögðu
allar út í fyrra dag.
Franskar fiskiskútur tvær hafa komið hjer þessa
daga, til viðgerðar eða vegna veikinda. Höfðu
lítið reynt fyrir fisk. — pað eitt hefir fengist úr
þeirra ferð af útlendum frjettum, að ekki var ó-
friður byrjaður snemma í f. m.
Kornbrekkur1.
(Guðmundur Jónsson, ý 1881).
nKomstu að Kornbrekkum ?«
Kom eg þar fyrrum :
sol var yfir sveit
sumar í garði,
hlógu við hagar,
og i hundraðs fiokkum
skipuðn sauðir
sólbjarta grund.
Brosti við búrausn,
bondi kom til dyra,
blíður í bragði,
bauð mjer til stofu
gjörhygli, greiði
og göfuglyndi
fyllti fögnuði
farmótt hjarta.
vKomstu að Kornbrekkum U
Kom eg þar aptur,
sd þar sandmel,
og svartar rústir.
Úti bauð gestum
auðn og kuldi,
en súgur um sorg
söng við inni.
nKomstu þá að garði U
Kom eg og starði:
allt var auðn
og enginn heima.
sá eg austr á sand:
sorgarskari
dapur var á ferð
með dökkri kistu.
Hafði Helja
hjeraðs miðju
farið ránshendi
og rjóður gert:
Sló hussbóndann
og svo hvað af öðru,
híis og haga,
hjarðir og tún.
pá var mjer sýnt
að sveitin drúpti,
og að hjör henni
við hjarta stoð;
vildi og ei lifa
I) Ein af eyðijörðum þeim, sem fóru í sand á Rang-
árvöllum 1882. par bjó merkisbóndinn Guðmund-
ur Jónsson, rausnarbúi, en andaðist rétt áður en
þessi jörð hans eyddist.