Ísafold - 13.04.1887, Blaðsíða 2

Ísafold - 13.04.1887, Blaðsíða 2
66 hann maki, faðir og húsbóndi; heimili hans var og jafnan friðsamt. Blindur var hann nokkur síðustu ár æfi sinnar, og þann tima ávallt f rúuiinu. Jarðarför hans fram fór að Hjaltabakka 2. marz voru þar margir menn viðstaddir, og þar á meðal sýslunefnd Húnavatnssýslu, er um þá daga hjelt aðalfund sinn á Blönduósi. P. Dick Fob eða rjettvísin í Slander Creek, Spti* aí h S’t-a-Ut. Dómsalurinn var troðfullur. Dick Fob (frb. fobb), sökudólgurinn, hafði komið til Slander Creek fyrir 10 árum, ein- hversstaðar norðan úr Norðurríkjum, í hinu mikla flóði af töskubökum (carpet-baggers), er streymdi suður eptir fyrstu árin eptir borgara- styrjöldina miklu (1861 —1865), til þess að afla sjer fjár og frama. Honum hafði lánazt hvort- tveggja furðu vel. Hann var nú talinn maður allvel fjáður, og það var naumast nokkur sú tyllistaða í þessum blómlega framfarabæ, að Dick Fob þyrfti ekki að prýða þann hefðarsess fyrir nær samhljóða atkvæði sinna samborgar- manna. Mótstöðumenn átti hann auðvitað, eins og allir, sem mikið ber á; og þegar þeir urðu undir við kosningar, svöluðu þeir sjer á því, að tala um „atkvæða-whisky“, „atkvæða-stórgripi" o. s. frv. En það hafði engin áhrif á lýðhylli Dicks Fobs. Hún átti sjer dýpri rætur en svo. Hann var meðal annars hið mesta uppáhald allra veitingamanna bæjarins, ekki sizt hinna ólöglegu; hann var óspar á fje við sjálfan sig og aðra á skytningi, og auk þess hið þraut- bezta og fjölhæfasta vitni, ef lögreglan ætlaði að hafa hönd í hári þeim. En veitingastofurn- ar voru gróðrarstía almenningsálitsins í Slander Creek, og þar var hinum uppvaxandi mennta- lýð kenndur dag og nótt sá vegur, er hann átti að ganga til forustu og fyrirmyndar fyrir lýðn- um síðar meir. Sækjandi, talsmaður rjettvísinnar, var ný- seztur niður. Hann hafði lokið máli sínu með hátíðlegum þakkarorðum til „hinna ágætu föð- urlandsvina, sem hefðu lagt í sölurnar dýrmæt- an tíma og fje og frið, já, ef til vill sína tím- anlegu velferð, til þess að frelsa land og lýð undan ánauðar- og spillingaroki þessa alræmda falsara, þjófs og lygara, er hann hjer með ofur- seldi i rjettvísinnar hendur, svo að hann nú loks hlyti sín makleg málagjöld, öðrum til skelf- ingar og viðvörunar“. f>að varð stundarþögn eptir þessa dembu. J>að var auðsjeð á áheyrendunum, að þeim þótti sækjanda hafa vel mælzt, og enginn efi á því, að Dick Fob hlyti hin maklegu málagjöld, er talsmaður rjettvísinnar hafði farið fram á. J>á reis upp talsmaður hins sakborna, verj- andinn, roskinn maður, grár fyrir hærum, lot- inn nokkuð, en þó hnellinn að sjá, loðbrýnn og hvasseygur, með niðurbjúgt nef. Hann ræskti sig og þreif höndum um stúkuriðið. Hann kvað sjer sannarlega blöskra jafnfá- heyrt sambland af ósvífni og barnaskap, ersækj- andi hefði hnoðað saman í enda ræðu sinnar,sem hefði annars verið öll frá upphafi til enda þannig vaxin, að hún væri sannarlega alls ekki svara verð, enda þótt að hann reyndar að vísu eins og á stæði fyndi sjer skylt að mæla fáein orð í þessu máli. Hann sagðist játa það hrein- skilnislega, að hann ætti þessum afbragðsmanni, sem hjer væri ranglega fyrir sökum hafður, af persónulegum fjandskap og ofsóknum sinna öfundarmanna, þessara þokkalegu „föðurlands- vina“, sem sannarlega mættu þakka sínum sæla, að þeir hefðu eigi sjálfir fyrir löngu sumir hverjir komizt undir manna hendur fyrir hálfu verri glæpi en þeir með allri sinni óskammfeilni dirfðust að drótta að honum, — hann ætti þessum mannisvo mikið gott upp að inna, að hann mundi bera kinnroða fyrir alla æfi, ef hann horfði þegjandi á jafn-ófagran leik og þeir hefðu hjer með höndum. Hann kvaðst þá fyrst og frerast vilja vekja athygli á því, að það væri sannarlega leit á öðrum eins nytsemdarmanni í bæjarfjelaginu, eins og þessi heiðraði borgari hefði jafnan reynzt alia tíð siðan hann kom til Slander Creek. Hann hefði þegar hin fyrstu ár sín þar í bæn- um komið á fót hverju framfarafyrirtækinu eptir annað, sem borið hefðu ogbæri enn blessunar- rikan ávöxt bæði sjálfum honum og öðrum. J>að væri öllum bæjarmönnum og mörgum fleir- um kunnugt, að hann hefði öll þau ár, er hann hefði verið vor á meðal, aldrei skorazt undan að takast á hendur neinn þann vanda, neitt það ómaks- og ábyrgðarstarf, er traust og hylli hans samborgarmanna hefði á hann hlaðið hvert á fætur öðru, hversu svo sem hann hefði, af sinni alkunnu hæversku, er opt væri einkunn laungáfaðra mikilmenna, gert sjer far um að komast undan að verða fyrir kosningu til slíkra hluta. J>etta og margt fleira því um likt væri öllum kunnugt, er hjer væri saman komnir, og væri því í raun og veru óþarfi fyrir sig að taka það fram, enda þótt að sjer virtist samt sem áður eiei að síður við eiga, að drepa á sumt af því við annað eins tækifæri og þetta. En þar sem — með því að — hitt væri ef til vill eigi alls kostar jafnkunnugt hverjum og ein- um, að hann ætti fáa sína líka að höfðinglegri rausn og elskuverðri gestrisni, þá vildi hann leyfa sjer að setja mönnum fyrir sjónir, hvort ekki mundi þykja skarð fyrir skildi , ef honum væri á bak að sjá; — ef hið fagra og friðsæla heimkynni, þar sem hann hefði skipað öndvegi og jafnan kvatt hvern þyrstan og dagmóðan vegfaranda, er að garði bar, hinu fagra og há- leita vinar-nafni, og látið þegar bera fram fleyti- fulla mælira mjaðar og munngáts, — ef þessi þrautalending mótlættra mannvina, er ef til vill ættu á stundum víðast annarstaðar úkvæmt, skyldi leggjast niður. [Hjer klökknaði ræðu- maður]. Hvað sjálfar sakargiftirnar snerti, þá hlyti það að vísu að liggja hverjum heilvita manni í aug- um uppi, hversu hjegómlegar þær væru í sjálfu sjer, og hvílik fásinna og óskammfeilni væri að koma með annað eins og berja það blákalt fram gegn stöðugri og eindreginni neitun hins kærða. En hann kvað þó sjerstaklega vilja leiða at- hygli að því, að þar sem kærendurnir ætluðu að gera kærða líklega helzt að ólífismanni fyrir það, að hann hefði skrifað nafn oddvita bæjar- stjórnarinnar undir þessi skuldabrjef, sem hjer lægju til sýnis, þá sýndi það bezt, hvað mikið saknæmt þar byggi undir, að hinn kærði hefði, með sinni vanalegu hreinskilni, kannazt undir eins við, jafnvel ótilkvaddur, að hann hafi skrif- að nafnið undir, en, eins og hverjum heilskyggn- um manni liggur í augum uppi, þá hefði hann gert það ekki einungis með leyfi oddvitans sjálfs, heldur beinlinis fyrir beiðni hans, vegna hans mikla annrikis, sem væri jafnframt ber- sýnilega orsök í því, að hann (oddvitinn> væri nú öldungis búinn að gleyma þvi, að hann hefði nokkurn tíma beðið kærða um þetta viðvik. Hann kvaðst vilja spyrja hinn heiðraða mót- part, hvernig á því stæði, að hann kæmi ekki með nein vitni,. sem hefðu verið heyrnarvottar að því, að oddvitinn hefði aldrei beðið kærða um að gera þetta fyrir sig. Meðan hann, hinn heiðraði mðtpartur, gæti ekki komið með eitt einasta þess konar vitni, þá mundi honum eins hollt að hafa hægt um sig með þetta kæru- atriði. Hvað snerti þvi næst þessar vegavinnu-nest- isdósir, er krerði hefði lagt til fyrir reikning bæjarsjóðs, og reynzt hefðu fullar afhrossataði í stað niðursoðins kjötmetis, þá kvað verjandi sig furða á því, að kærendurnir hefðu ekki vil.jað gera hann beinlínis að morðingja fyrir það tiltæki. J>á hefðu þeir fyrst verið sjálfum sjer samkvæmir ; og ætli þeim mundi hafaorð- ið skotaskuld úr þvi, að gera sama lífsháskann úr því að láta verkamenn fara með lítið annað nesti upp á fjöll, eins og þegar Sir John Frank- lin var svikinn með líkum hætti á sinni frægu norðurför, er leiddi þá fjelaga til bana ?—„En, sleppum nú öllu gamni — hjer er enginn gam- anleikur á ferðum —, og gerum ráð fyrir, að þessi áburður væri sannur: þá vil jeg spyrja hinn heiðraða talsmann rjettvisinnar, hvort hann ímyndi sjer. að nokkur sem helzt dómari eða dómstóll mundi geta þótzt hafa heimild til að álíta, að þetta hafi verið gert í sviksamleg- um tilgangi, þar sem ákærða hlaut að vera ljóst, að það mundi brátt verða uppvíst, hvað dósirnar hefðu inni að halda, nefnilega óðara en þær væru opnaðar ? J>að . er þar að auki öllum kunnugt, að hinn heiðraði skjólstæðingur minn fæst ekki sjálfur við matreiðslu, hvorki nið- ursuðu nje annað, og má því nærri geta, hvað kunnugt honum hafi verið um það. sem í dós- unum var. J>ar með ætla jeg, að þessu atriði muni sannarlega svarað svo sem við á og duga mun. Lygara-nafnið, sem sækjandi smellti inn í niðurlags-klausu sína, eins og rúsínu i blóm- urskepp, held jeg satt að segja að jeg geti ekki verið að láta hann sæta ábyrgð fyrir, þótt hann hann væri þess meira en maklegur að öðru leyti. Jeg þykist sem sje sjá, að menntun míns heiðraða mótparts sje ekki hásigldari en það, að hann kunni ekki að gera mun á hreinni og beinni lygi eða ósannindum á annan bóginn, og fögru og uppbyggilegu skáldsmíði á hinn bóginn. J>að er, eins og kunnugt er, eitt af

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.