Ísafold


Ísafold - 04.05.1887, Qupperneq 1

Ísafold - 04.05.1887, Qupperneq 1
Kemur út á miðvikudags- morgna. Verð árgangsins (60 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrirmiðjan júlímán. ISAFOLD. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útg. fyrir l.okt. Afgreiðslu- stofa i Isafoldarprentsmiðju. XIV 20. Reykjavík, miðvikudaginn 4. maí. 1887. 77. Innlendar frjettir. 78. K.onungkjörnir þingmenn. 79. Útlendar frjettir. Auglýsingar. Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2 Landsoankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. n—2 útlán md., mvd. og ld. kl. 2—3 Póstar fara allir frá Kvik 9. mai. Póstskip fer 7. þ. m. að morgni frá Rvík til Khafnar. Söfnunarsjóður Rvikur opinn I. mánud. í hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganirí Reykjavik, eptir Dr.J.Jónassen apr. maí Hiti (Cels.) Lþmælir Veóurátt. ánóttujum hád. fm. em. ím. em. M. 27. “i" 5 + > 3°,> 30,2 N hv b N h b F. 28. 3 + 2 3°, 2 3°,2 N h b V h b í. 29. + 1 + 6 3»,i 30, 0 b U d L. 30. + 3 + 6 29,9 29,9 V h b 0 b S. 1. + 2 + 6 29,8 29,9 A h d N h b M. 2. -r- 2 + 5 30,2 3° 1 N h b N h b Þ- 3- -7- 2 + & 30. 3°,9 A h d Sa h d Norðanbálið, sem var alla iyrri vikuna, gekk ofan 28. og hefir siðan verið hægð á veðri, en opt hefir brugðið fyrir norðamvælu og stund- um hvass til djúpa, þótt logn hafi verið hjer i bænum ; aðfaranótt h. 29. rigndi hjer dálitið. Síð- ustu dagana hefir verið frost á nóttu og norðan- kaldi til djúpa. í dag 3. dimrnur á austan-land- sunnan bægur. Beykjavík 4. maí 1887. Póstskipið Laura kom hingað að- faranott hins 30. i. m. Með því kom cand. med. & chir. Stefán Gíslason og nokkrir kaupmenn: Eyþór Feiixsson, Dit- lev Thomsen, Jón Guðmundsson frá Elatey, Sturla Jónsson, Dmus Petersen og jþorlákur O. Johnson. Skipið brá sjerupp á Akranes 1. þ. m. Konungkjörnir alþingismenn. Til alþingissetu hm næstu 6 ár hefir konung- ur kvatt lð. f. m.: Július Havsteen amtmann, E. Th. Jónassen amtmann, L. E. Sveinbjörnsson yfirdómara, Árna Thorsteinsson landfógeta, Arnljót prest Ólafsson, og Jón A. Hjaltalin skólastjóra. Ernbætti. Mýra- og Borgarfjarðarsýsla er veitt 15. f. m. settum sýslumanni þar cand. juris Sigurði pórðarsyni, en sýslu- manni Jóhannesi Ólafssyni, er hafði feng- ið veitingu fyrir þeirri sýslu í haust, leyft að sitja kyrrum 1 Skagafjarðarsýslu, eptir ósk sýslubúa þar. Til að þjóna Gullbringu- og Kjósarsýslu í fjarveru sýslumanns Franz Siemsens, er siglir nú með póstskipinu til þess að leita sjer heilsubótar, hefir amtmaður sett cand. juris yfirrjettarmálsfærslumann Hannes Hafstein. Embættispróf. Valtýr Guðmundsson tók embættispróf í norrænni málfræði við háskólann í Khöfn 31. f. m. með eink. admissus. Eldsvoði. Aðfaranótt hins 28. þ. m. kviknaði eldur í geymsluhúsi Kr. Ó. f>or- grímssonar hjer í bænum, einmitt á þeim stað í því þar sem hlaðið var upp mate- ríum af óseldum bókum (Helgapostillu, Jónasarhugvekjum, Lestrarbók Stgr. Th. dönsku o. fl.), en varð brálega niðurbæld- ur af slökkviliðinu, með því að veður var hægt og bjart orðið af degi. Hafði þó sumt af bókunum skemmzt að mun, eink- um af vatni, og þiljur í húsinu brunnið nokkuð. Materíurnar voru í brunabótaá- byrgð fyrir 9000 kr. f>að er óráðin gáta enn, þrátt fyrir löng og mikil rjettarpróf smátt og smátt dag- ana á eptir, hvernig eldurinn hefir komið upp, með því að í húsinu var engin eldstó og enginn umgangur um það svo vitanlegt sje frá því kvöldið áður að gengið var frá því læstu kl. 9; en opið og lykilslaust var það, þegar eldurinn sást og að því var komið. Lopteldi getur það naumast ver- ið að kenna, þar sem ekkert sást á þakinu; en eldkveykjur úr hinni áttinni, frá neðri byggðum, sem kallað er, mun almenning- ur óvæntanlegur til að trúa á nú á tímum, og það, sem lakara er, ábyrgðarfjelög ó- væntanleg til að bæta. Næturverði heldur tvo en einn hefir höfuðstaðurinn, sem lög gera ráð fyrir, fyrir mikið kaup; en grandvart er það, að þeir hafi nokkurn tíma orðið elds varir á undan öðrum í öll þau mörgu skipti, er húsbrunar hafa orðið í bænum síðan hann komst í brunabótaábyrgð; einu sinni varð jafnvel heil sveit hermanna (frá Díönu) að gera landgöngu í borginni til þess að koma næturvörðunum og öðrum bæjarmönnum í stöfun um, að eitt með stærstu húsum í bænum var að brenna (hús Egils heitins Jónssonar o. fl. 1883). Skammt frá áðurnefndum eldstöðvum, með einu timburhúsi á milli, er landsins bezta og kostnaðarmesta húseign, alþingis- húsið, og þar geymd hin einu vísindasöfn landsins, mörg hundruð þúsund króna virði, að svo miklu leyti sem auðið er að meta þau til [peninga. Að þeirri vænu bráð á eldurinn ekki aðra torfæru, úr næsta húsi t. d., sem örskainmt er á milli, held- ur en örþunnt gler, í geysistórum glugg- um. Fám árum eptir að söfnin voru þangað flutt fóru menn að hafa veður af því, að forsjálla mundi að hafa blera fyrir þessum gluggum á nóttunni, og þá helzt úr járni. Nokkrum árum þar á eptir, 1885, var sú umhugsun komin það áleiðis, að þá veitti alþingi fje til þess að kaupa fyrir slíka hlera. Tveim árum þar á eptir, 1887, var ekki annað eptir en að panta þá; það var þá í undirbúningi. Lengra kunnum vjer ekki þá sögu. Bókmenntafjelagið. Fundur var haldinn hjer í deildinni í gærkveldi, með nál. 50 manns. f>ar var lagður fram reikningur félags- deildarinnar fyrir undanfarið ár, endurskoð- aður. Fjelagsbækur skýrði forseti frá að yrðu þetta ár frá þessari deild : Frjettir frd ís- landi 1886, Nýja sagan II. bindi 3. hepti, Bómeó og Júlía eptir W. Shakspeare, í íslenzkri þýðingu eptir Matth. Jochumsson, er allar væri fullprentaðar, og ennfremur Tímaritið VIII. árg., er mundi verða full- prentað í þessum mánuði. En frá Hafn- ardeildinni væri von á : Skírni 1886, Skýrsl- um og reikningum, og Safni af isl. gátum, þulum og leikjum o. fl. (safnað af Jóni Arnasyni), I. parti. Ennfremur skýrði forseti frá því, eptir tilkynningu frá Hafnardeildinni, að eptir- leiðis væri í ráði að halda áfram »ís- lenzku fornbrjefasafni«, er cand. mag. Jón þorkelsson hefði tekið að sjer að safna og búa undir prentun, gegn 1200 kr. styrk á ári, helmingi úr ríkissjóði, er þegar væri fengið, en hinum helmingnum úr landssjóði Islands, og hefði ráðgjafinn þegar veitt þær 600 kr. fyrir þetta ár, af fjenu »til vísinda- legra og verklegra fyrirtækja«, en ætlazt til að alþingi veiti þær eptirleiðis. þá var tekið fyrir til umræðu theimflutn- ingsmálíð*, og eptir litlar umræður samþykkt nær í einu hljóði svolátandi tillaga til fundarályktunar frá stjóminni :

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.