Ísafold - 18.05.1887, Side 1
Kemur út á miðvikudags-
morgna. Verð árgangsins
{6o arka) 4 kr.; erlendis 5 kr.
Borgist fyrirmiðjan júlímán.
ISAFOLD.
Uppsögn (skrifl.) bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útg. fyrir l.okt. Afgreiðslu-
stofa i ísafoldarprentsmiðju.
XIV 23.
Reykjavik, miðvikudaginn 18. maí.
1887.
89. Innl. frjettir. Afleiðingar hallærisins.
91. „Ólafr Pá og Ólafr Upp-á er ekki j'að sama“.
92. Hitt og þetta. Auglýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2
Landsbókrasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 11—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Söfnunarsjóður Rvikur opinn l' mánud. i
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðurathuganirí Reykjavik, eptir Dr. J.Jónassen
maí Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
ánóttu|umhád. fm. em. fm. | em.
M. 11. + 4 + 6 3», 30,1 Nv h b 0 d
F. 12. + 4 + IO 30,3 3°>3 0 d 0 d
F. 13. + 6 + 7 30,2 3°, S hv d S hv d
L. 14. + 6 + 7 30, 29,9 S h d S h d
S. 15. + 5 + » 3°, 29,8 Sv hv d S h d
M. 16. + 3 + 5 29,5 28,9 A hv d Sv hv d
í>. 17- 0 0 29,2 29,3 Sv hv d N hv b
Umliðna viku hefir optast verið sunnanátt með
hlýindum framan af vikunni en með talsverðri úr-
komu og dimmviðri, en þó optast hægur. Síðustu
dagana hefir heldur kólnað i veðri Og i dag 17.
vestan-útsynningur, allt fram til hádegis krapaslett-
ings-bylur, svo eigi varð sjeð húsa á milli i morg-
un fyrir sorta, gjörði alhvíta jörð hjer um tima
i morgun; eptir hádegið gekk hann til norðurs,
rokhvass til djúpa; jörð er hjer nú orðin algræn
víðast hvar á túnum, eins og í fyrra fyrir miðjan
maí, en þá kom hjer norðanbál hinn 13. með
gaddi, sem eyðilagði allan gróður um tima.
Beykjavík 18. maí 1887.
Frestvigður sunnudag 15. þ. m. prestskóla-
kandidat Skúli Skúlason til Odda á Rangárvöll-
um.
Tíðarfar o. fl. í gær gekk upp norðangarður
harður með miklu frosti og fjúki.
Maður kom norðan úr Skagafirði í gær. Hann
sagði beztu tíð norðanlands siðan sumarmálahretið,
en skepnufelli talsverðau allvíða, með þvi að fjen-
aður var orðinn svo langdreginn, en heyþrot al-
menn. A einum bæ í Húnavatnssýslu austanverðri
var engin sauðkind eptir á lífi af 150, er sett
hafði verið á vetur í haust: hafði verið skorið af
heyjum eða farizt smátt og smátt; síðustu 50 kind-
urnar kvöddu heiminn í sumarmálahretinu.
Skip ókomin á hafnirnar nyrðra, nema I á Sauð-
árkrók um síðustu mánaðamót, eitt af Gránufje-
lagsskipum, og ætlaði þaðan til Siglufjarðar 2.
maí, en varð frá að hverfa fyrir hajís þar (á Siglu-
firði) og leita hafnar í Hagavik. þá var og haf-
is kominn inn á Eyjafjörð, inn að Skjaldarvík, að
sagt var ; en Skagafjörður alauður, og Húnaflói
sömuleiðis 9. þ. mán. það sem til sást af Holta-
vörðuheiði, nema mulningsís (hrafl) á Hrútafirði fyr-
ir innan Hrútey. Annað vissi þessi maður ekki
til íss.
Bjargarneyð talsverð nyrðra allviða, einkum á
útnesjum, og farið að brydda á harðrjettis-veikind-
um sumstaðar, skyrbjúg og þess háttar.
I’óstarnir norður og vestur tepptust við Hvitá í
Borgarfirði og eru ef til vill ókomnir yfir hana
enn, af ákaflega miklum vexti í ánni, svo hún var
óferjandi, vegna leysinga, er lítið hefir verið um
áður i vor fram til fjalla.
Skipafregn. þessi kaupskip hafa komið hingað
á höfn það sern af er mánuðinum:
Maí 2. Union, 153 smá]., skipstj. Rasmussen, frá
Khöfn, til Thomsensverzlunar.
— 3. Keflavik, 62, Albertsen, frá Khöfn, til
Fischers.
— 8. Dagmar, 100, Nilsen, frá Stafangri með við
til lausakaupa.
— 9. lsland, II2, Christjansen, frá Mandal með
við til lausakaupa.
— 10. Sömanden, 99, Olsen, frá Khöfn til Bryd-
es-verzlunar.
Afleiðingar harðærisins.
ni.
Og þetta er nú einungis á fjárverzlun-
inni. Lítum nú á ullina. Arið 1884 voru
útflutt c. 1,196,000 af ull. Gerum ráð
fyrir jafnmiklu næstliðið ár, og gerum verð-
muninn eigi nema líkt og í sumar hjá
þingeyingum, eða 8 aura á pundi (án -til-
lits til hins betra verðs á útlendu vör-
unni), það yrði þó c. 95,700 kr., og er það
samlagt við 213,600 kr. = 309,300 kr.,
segjum: þrjú hundruð þúsund krón-
ur, sem vjer þá eptir þessu hefðum átt
að græða á fje og ull einungis á einu ári,
með því að verzla að öllu leyti með það
sjálfir á Englandi.1
1) Árið 1884 hafa verið útflutt 40,400 skpd.
af' saltfiski (þorBki og ýsu), sem er með því
minnsta á ári i f> þá síðastliðin ár. (íerum ráð
fyrir, að útfluttur fiskur væri nú ekki meiri en
það á ári, og seldist á Englandi með sama
verði og hjer, að kostnaði frádregnum, og setj-
um verðið 40 kr. fyrir skippundið; en gerum
svo ráð fyrir að vinna á innkaupsverði útlendu
vörunnar í sama hlutfalli sem þingeyingar í
sumar siðastliðið, eða 81,35 °/0, þá yrði það
rúmar............................... 506,600 kr.
Flyt 5Q6,600 kr.
þetta er mjög líklegt. En því miður er
eigi svo langt komið enn, eða svo ná-
kvæmar skýrslur fengnar, að vjer getum
fullyrt, að það sje áreiðanlegt. f>að
vantar t. d. ljósar skýrslur um það frá
frá þingeyingafjelaginu eptir þess reynslu,
hvort ábatasamara mundi að senda ullar-
vinnu (band og prjónles) eða ullina óunna
m. fl., sem upplýst gæti þetta mál betur,
ef nákvæmar skýrslur lægju fyrir.
Vjer vitum til, að einstakir menn (bænd-
ur) hafa sent vörur sínar (fisk) til Eng-
lands, og pantað aptur vörur þaðan, og
hafa þótzt ávinna mikið við það. En um
slíkt vantar skýrslur.
Vjer verðum að álíta, að nóg reynsla sje
fengin fyrir því, að það sje betra að senda
vörur sínar á eigin ábyrgð til Englands,
til að selja þær þar, og kaupa þar aptur
þær útlendu vörur, sem nauðsyn krefur,
en að leggja þær inu hjá kaupmönnum
hjer á landi og taka út aptur hjá þeim
hinar útlendu vörur; og dæmin sýna, að
umboðsverzlunin1 er nú sem stendur um
þriðjungi ábatasamari en kaupmannaverzl-
unin.
Vjer verðum því að álíta, að vænsta
ráðið til að laga verzlun vora sje að snúa
sjer nú fyrir alvöru og almennt að um-
boðsverzluninni, og viljum vjer ráða mönn-
um til nú þegar í vor, að hafa samtök
til þess, þar sem því verður við komið;
en verði því eigi komið við nú í ár, þá að
undirbúa það til næstkomandi ára; því það
er ekkert annað líklegra til að endurreisa
fjárhag vorn, en hagkvæm verzlun.
En umboðsmanninn eða umboðsmennina
ríður á að velja vel. f>að er mjög mikið
undir þeim komið. Einkum er að varast,
að taka eigi reyndum viðsjálnismönnum
eða gallagripum, sem opt eru fúsir til að
Fluttar 506,600 kr.
Sjeu þar við lagðar................ 309,300 —
verður það samtals................. 815,900 kr.
eða sem svarar öllum útgjöldum landssjóösins i
tvö ár!
1) Svo viljum vjer nefna verzlunina við Eng-
land, því þar er manni eða mönnum gefið um-
hoð til að selja og kaupa vörur fyrir aðra, á
sjálfra þeirra kostnað.