Ísafold - 18.08.1887, Blaðsíða 4

Ísafold - 18.08.1887, Blaðsíða 4
156 svaraði Arnljótur Ólafsson glottandi, að hann gæti fyrir nefndarinnar hönd enga von gefið um að henni yrði það auðið fyr en »einhverntíma eptir helgi«, þ. e. líklega ekki fyr en þinglokadaginn, sem er fimmtu- dagur í næstu viku (25.). Nokkrum dögum áður hafði nefndin klofn- að, og minni hlutinn, Sighv. Árnason og Jakob Guðmundsson, komið fram með sitt álit, þess efnis, að deildin ætti að sam- þykkja frumvarpið óbreytt eins og það kom frá neðri deild, og vildi fá forseta til að taka málið á dagskrá, þó að meiri hlutinn, hinir 3 konungkjörnu, hefðu eigi látið til sín heyra. En hann taldi sig ekki hafa vald til þess eptir þingsköpunum. Gæzlustjóei við landsbankann var Ei- ríhur Briem endurkosinn í gær í einu hljóði, — hafði orðið frá að fara eptir hlutkesti. Unglingakennsla. þingið er búið að fella 2 frumvörp liks efnis: um menntun alþýðu og um fræðslu ungmenna. þetta hið þriðja, sem enn lifir, frá Ó. Briem og f>orv. Kjerúlf, fer fram á, að veittar sjeu árlega úr landssjóði 20,000 kr. til þess að koma á fót og styrkja almenna unglingakennslu í landinu annarstaðar en í kaupstöðum, undir umsjón sóknarnefnda, sem hafa auk þess heimild til að leggja nefskatt á alla sóknarmenn, 16 ára eða eldri og sjálfbjarga, ef landssjóðsstyrkur- inn reynist ónógur. Kennslu skal veita í rjettritun, reikningi, sögu, landafræði, heilbrigðisfræði og upp- eldisfræði. »Ennfremur sjeu unglingar látn- ir temja sjer líkamsæfingar, svo sem glím- ur, knattleiki, skautaferðir og skíðaferð«. Lögin eiga ekki að koma til framkvæmd- ar fyr en alþingi hefir í fjárlögum veitt fje til kennslunnar. Lög feA alÞingi. 11. Lög um aðför (í 53 greinum). 12. Lög um verzlun lausakaupmanna. 1. gr. Lausakaupmaður, semengafasta verzlun rekur hjer á landi, getur fengið heimild til að verzla á skipi annarstaðar en á löggiltum höfnum, ef hann fær til þess leyfisbrjef hjá sýslumanni eða bæjarfógeta. Fyrir slíkt leyfisbrjef skal lausakaupmaður gjalda 100 kr. í landssjóð, og veitir leyfis- brjefið honum rjett til að verzla á skipi, hvar sem hann vill við strendur landsins, en að eins það almanaksár, sem leyfið er gefið. þó er honum óheimilt að verzla með áfenga drykki nema á löggiltum höfn- um. 2. gr. Skyldur er lausakaupmaður að fullnægja ákvæðum laganna um tollgreiðslu og sóttvarnir, o. fl. 3. gr. Brot gegn lögum þessum varða sektum allt að 2000 kr., og sæta sömu meðferð, sem á er kveðið í 6. gr. laga 7. nóvbr. 1879 um breyting á eldri lögum um siglingar og verzlun á Islandi. 4. gr. Hjer með er numin úr gildi 1. málsgrein 4. greinar fyrnefndra laga 7. nóv. 1879. 5. gr. Lög þessi öðlast gildi l.dagapr- ílmánaðar 1888. Hitt og þetta. J>ingmannskostir. Maður bauð sig fram til þingmennsku í kjördæmi i f’arís. Mótstöðumaður hans brá lionum um, að hann væri trúaður. f>ing- mannsefnið bar þá ósvinnu (!) af sjer með mikilli ákefð, og gat þess til sannindamerkis, að hann hefði látið veraldlegt yfirvald gefa sig í hjónaband og ætti 6 börn, sem öll væri óskírð. þ>á sagði einn kjósandinn, írskur iðnaðarmaður : „Ekki er rajer það nóg : hann fær ekki mitt atkvæði fyr en hann lætur grafa sig lika prestlaust og i óvígðri mold“. AUGLYSINGAR í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning 1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útí hönd. Proclama. Með þvi að Björn Erlendsson bóndi á Hofi í Lýtingsstaðahreppi hefur framselt sem gjaldþrota bú sitt tii shipta meðal skuld- heimtumanna sinna, þá innkallast hjermeð, samkvœmt opnu brjefi 4. jan. 1861 og lög- um 12. apríl 1878 allir þeir, sem eiga að telja tit skulda hjá nefndum Birni Erlends- syni, tit þess innan 6 mánaða frá birtingu þessarar auglýsingar að gefa sig fram og sanna kröfur sínar fyrir skiptaráðanda Skagafjarðarsýslu. Skrifstofu Skagafjarðarsýslu 23. júlí 1887. Jóhannes Ólafsson. Proclama. Iljer með er samkv. lögum 12. apríl 1878 og opnu brjefi 4. jan. 1861 skorað á allaþá, sem telja til skulda í dánarbúi Ólafs þor- leifssonar, veitingamanns í Keflavik, að lýsa kröfum sínum og sanna þœr fyrir skipta- rjetti Kjósar- og Gullbringusýslu áður en 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu birtingu innköllunar þessarar. Skrifstofu Kjósar- og Gullbr.sýslu 15. júlí 1887. Hannes Hafstein settur. Proclama. Samkvœmt Lögum 12. apríl 1878 og 0. b. 4. jan. 1861 er hjer með skorað á alla þá, er telja til skulda í dánarbúi Einars Eiríks- sonar í þverárkoti í Kjalarneshreppi, að lýsa kröfum sínum og sanna þœr fyrir skipta- ráðandanum í Kjnsar- og Gullbringusýslu innan 6 mánaða frá siðustu birtingu þessar- ar auglýsingar. Skrifst. Kjósar- og Gullbr.sýslu 20. júlí 1887. h'annes Hafstein settur. Uppboðsauglýsing. Eptir kröfu þórðar bónda Jónssonar í Ráðagerði og að undangenginni fjárnáms- gjörð hinn 8. þ. m. verður bcerinn »Suður- hoLU, með tilheyrandi lóð, hjer í lögsagnar- umdœminu seldur við 3 opinber uppboð, sem haldin verða miðvihidagana 24. og 31. þ. m. og 7. sept. nœstkomandi, 2 hin fyrstu á skrifstofu bœjarfógetans og hið 3. og síð- asta hjá banum Suðurholti, til lúkningar veðskuld, að upphað kr. 250, er á bœnum hvílir. Upphoðin byrja kl. 12 á hádegi of- annefnda daga, og verða söluskilmálar til sýnis hjer á skrifstofunni degi fyrir hið 1. uppboð. Bæjar fogetinn í Reykjavík, 16. ágúst 1887. Halldór Damelsson. Plagð þiljuborð, plœgð gólfborð og annar borðviður þakhetta og Cement fæst með mjög góðu verði í verzlun W. Fischers. þcgar skotœfingar farafram í Skothúsinu, verður flagg cLregið upp á skotpallinum f part stundar áður en skotið er, almenn- ingi til aðvörunar um, að vera ekki of ná- lœgt. Rvik it. ágúst 1887. Stjórn fjelagsins. Rauð bryssa ójárnuð óaffext með hvítt lauf á nös, er hjer í óskilum með marlc: blaðstýft apt. h. stýft v. biti apt. ftjettur eigandi vitji hennar til undirskrifaðs. Miðdal 16. ágúst 1887. Guðm. Einarsson Leiðarvísir til lifsábyrgðar fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hja Dr. med. Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja lif sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar. Nærsveitismenn eru beðnir að vitja „Isafoldar11 á afgreiðslustofu henn- ar (i nýja húsinu milli Austurvallar og Austurstrætis). Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil. Prentsmiðja Isafoldar

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.