Ísafold - 08.09.1887, Blaðsíða 1

Ísafold - 08.09.1887, Blaðsíða 1
Kemur út á miðvikudags- morgna. Verð árgangsins (6o arka) 4 kr.; erlendis S kr. Borgist fyrirmiðjan júlímán. ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útg. fyrir l.okt. Afgreiðslu- stofa i ísafoldarprentsmiðju. XIV 43. Feykjavik, fimmtudaginn 8. sept. 1887. 169. Innl. frjettir. TJtlendar frjettir. íslending- ar í Ameríku. 171. Saltfiskaverkun Vesturheimsmanna. Alþingi XIV. 172. Hitt og f>etta. Auglýsingar. Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2 Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. n—2 útlán md., mvd. og ld. kl. 2—3 Söfnunarsjóður Rvíkur opinn I. mánud. í hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganirí Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen 1 Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. Sept. ján6ttu|umhád. fm. em. fm. em. M.31. + 9 + 11 29,4 29,5 0 d 0 b F. 1. + 8 + IO 29,5 29,5 Sv h d n d F. 2. + 6 + 12 29,5 29,6 0 b 0 b L. .?. + 6 + 11 29,7 29,7 0 b 0 b S. 4. + 6 + II 29.7 29,7 0 b 0 b M. 5. -t 1 + II 29,6 29,6 0 b O d t>. 6. + 4 + 9 29.7 29,7 0 b 0 b Enn helzt sama blíc'an og góðviðrið, logn á hverjum degi, jörð enn algræn eins og á hásumar- degi; þessa daga í fyrra gengn óhemju-rigningar Og þá var það 2. þ. m., að skriÖufalliÖ varð á Kjalarnesi. í dag 6. blíða logn og bjart sólskin. Beykjavík 8. sept. 1887. Gufuskipið Camoens kom í morg- ua frá Skotlandi, með nokkuð af vörum, og fer aptur á morguu beint til Skotlands með um 700 hesta. — Með því kom kaup- maður Lauritzen frá Newcastle. Vesturfarar endursendir. Með Ca- moens komu 6 vesturfarar endursendir hingað frá New-York: ekkja úr Borgar- firði með 2 börnum og kvennmaður úr Bvík með 2 börnum. Fólki þessu hafði verið snúið aptur í New-York, vegna fjeleysis; það eru lög í Bandaríkjunum, að innflytj- endum þangað er ekki hleypt á land nema þeir hafi nokkurn forlagseyri með sjer. Fólk þetta fór með 'Anchor-línunni, og hlýtur hún að kosta farið fram og aptur, ef það hefur verið dulið þess þegar það rjeðst til ferðar hjeðan. Skaðabótakröfur Vesturfaranna, þessara 300, sem biðu á Borðeyri í 7 vik- ur, fyrir óorðheldni annaðhvort útgerðar- manna Camoens eða Allanlínunnar, munu hafa lítinn árangur, eptir því sem frjett- ist nú með Camoens. Umboðsmaður All- anlínunnar hjer hafði látið þá fá 10 kr. á mann fullorðinn til bráðabyrgða, úr sín- um vasa(?), en þeir vildu fá sem svaraið 1 kr. á dag á mann þennan tíma sem þeir biðu. þeir sneru sjer fyrst til lands- höfðingja í því efni, en fengu þar vís- bending um, aðþeiryrðuað senda kæruna fyrst til næsta konsúls Danastjórnar, og þá konsúlsins í Leith, samkvæmt útflutnings- lögunum. þeirskrifuðu svokonsúlnum hjeðan og ætluðust til að hann kæmi út á skipið (Camoens) þegar það kæmi til Leith, til þess að hlýða á kærur þeirra. En ekki varð af því, enda urðu þeir að fara af stað til Glasgow undir eins. Ætluðu þeir svo að gera honurn orð þaðan rneð mál- þræði. En þegar þar kom, lá skip það ferðbúið, er átti að flytja þá vestur um haf. Yar hjörðin óðara #drifin« út á það og af stað. Síðasta athvarfið verður þá líklega »hinn næsti danskur konsúll« vestra, ef þá tekst betur til, er þar kemur. Æðsta úrskurðarvald í málinu hefir landshöfðingi. En kæran þarf að komast til hans rjetta leið. Thyra, Strandferðaskipið, var ókomið til Granton frá Khöfn á laugardagskvöldið var, 3. þ. m.; átti að vera farið þaðan hingað á leið 2 dögum áður. Gufuskipið »Horseguards«, stærra talsvert en Camoens, er væntanlegt hing- að um 20. þ. m. frá Skotlandi, frá Slimon, og ætlar hjeðan á norðurhafnirnar eptir fjenaði — tekur 4000 fjár —, og fara með hjeðan til Borðeyrar hinar pöntuðu vörur, er Camoens varð að leggja upp hjer í sumar til geymslu. Tíðarfar er enn hið ákjósanlegasta hjer sunnanlands. Muna elztu menn ekki jafn- blítt og hagstætt sumar. En að norðan frjettist með manni, sem kom í gær, að þar sjeu allir Jirðir fullir af hafís eða hafi verið nú um síðustu iielgi. Líklega hefir hann þó ekki vitað glöggt nema um Húnaflóa með Hrútafirði o. s. frv. þokur og suddar fylgja honum; lítið komið í garð af útheyjum. Aflabrögð eru afbragðsgóð hjer við Faxaflóa. Má heita, að hjer hafi allt af verið nógur fiskur fyrir frá því í vetur; en sjór verið lítt stundaður um hásláttinn. Nú er almenningur farinn að róa aptur, og aflar mætavel. Fiskur genginn inn á Hvalfjörð jafnvel, og er það fágætt mjög nú orðið. Útlendar frjettir. A enskum blöðum, er komu með Camo- ens, og ná til 3. þ. m., sjest, að Ferdínand prinz frá Kóbúrg, er Bolgarar völdu til höfðingja yfir sig, í sumar, er kominn þang- að og tekinn við stjórn ríkisins, að forn- spurðum stórveldunum ogþrátt fyrir eindreg- in mótmæli Bússastjórnar. Honum var fagnað forkunnar vel af hinum nýju þegn- um sínum, eins og lög gjöra ráð fyrir; en hætt við, að það verði skainmgóður verra- ir. Segja síðustu frjettir, að Bússar muni nú koinnir á fremsta hlunn að skerast í leikinn með vopnum; en Tyrkjastjórn þvær hendur sínar og segir allt það mál á ábyrgð stórveldanna, er hafi bruggað Berlínarsáttmálann góða (1878). Kúlera er upp komin af nýju á Sikileyog Italíu sunnanverðri, ekki mjög skæð enn samt.—Frá Indlandi segja skýrslur, að þar hafi dáið 70,000 manna úr kóleru á tveim mánuðum í sumar, júní og júlí, í norð- vesturfylkjum landsins, eða 1 af hundraði af landsfólkinu. Stanley, hinn nafnfrægi landkannari, var sagður dauður í sumar suður í Afríku, — átti að hafa verið skotinn af villimönnum. En sem betur fer þykir nú mega staðhæfa, að fregn þessi sje tilhæfulaus. Jdrnbrautarslys mikið varð í Ulinois í Ameríku 11. f. m. það kviknaði í brú, sem járnbrautarlest var á ferð yfir, svo að hún hrundi niður, og týndust um 200 manns. íslendingar i Ameriku. I ensku blaði, sem kemur út í Winnipeg og heitir »Manitoba Daily Express«, stend- ur 8. f. m. skýrsla um kynlega gjörræðis- meðferð á 86 vesturförum hjeðan frá Is- landi, er þangað voru þá komnir fyrir kemmstu. þeir höfðu allir farseðla til Winnipeg. En þegar þangað kom, var þeim ekki leyft að fara inn í bæinn, heldur sendir jafnharðan nauðugir til einhvers staðar langt þaðan nokkuð, er Brandon heitir. Frjettaritari blaðsins facn að máli síra Jón Bjarnarson, Friðrik Friðriksson kaup-

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.