Ísafold - 21.09.1887, Síða 4
180
á, að úr 200 pundum af mjöli fáist í raun og
veru 47—48 brauð, með þeirri stærð og þunga,
sem almennt gerist, hjer eins og annarstaðar
(6 pd.). Sje nú þetta satt, þá þykir mjer nú
fyr mega vera, að haft sje af almenningi, en að
draga sjer 3'/2—4'/8 brauð af hverjum ein-
asta mjölsekk, sem bakað er úr árið um kring
hjá öllum bökurunum hjerna í Reykjavík.
Mjer þykir nú þetta að vísu ótrúlegt. Mjer
þykir ótrúlegt, að bakarar, sem maður hlýtur
að álíta jafn-heiðvirða meðborgara eins og
hverja aðra, leyfi sjer slíkt, og ekki síður ótrú-
legt, að hinir hátt-upplýstu ibúar höfuðstaðar-
ins láti fara svo með sig. Fyr mætti nú vera
rænuleysið, — liggur mjer við að segja. Jeg
verð að kalla það ljettvæga vörn eða viðbáru,
af bakaranna hálfu, þó þeir kunni að segja, að
þetta sje eins og hver annar samningur ; geri
kaupandi sig ánægðan með, að svona ódrjúgt
bakist úr mjölinu, þá sje ekkert um það að tala.
Mjer þykir þetta hvorttveggja ótrúlegt. En
rnjer þykir líka ótrúlegt, að skrökvað hafi verið
að mjer, að það fáist 47—48 brauð úr mjölsekkn-
um; mjer hefir meira að segja verið sagt, að það
sje ómögulegt að baka svo venjuleg rúgbrauð
úr £00 pundum af mjöli, að minna verði úr en
47 brauð.
Hvernig á jeg nú að fá leyst úr þessum vafa,
svo óyggjandi sje?
Og hvernig á að fara að „kenna bökurunum
okkar að lifa“, kenna þeim að láta okkur hafa
almennileg brauð og að hafa ekki af okkur
með ódrýgindum á mjölinu?
Búkona.
*
* *
Svar: Áreiðanlega vissu um það, hvað mik-
ið á að bakast úr 200 pundum af rúgmjöli, má
fá eigi einungis með fyrirspurnum til bakara i
Khöfn t. a. m., heldur mun ekki þurfa annað
en aðleita upplýsinga hjá forstöðumönnum verzl-
ana þeirra hjer nærlendis, sem halda bakara
fyrir sig. J>eir hljóta að vita nákvæmlega, hvað
rjett er í þessu efni.
J>egar sú vissa er fengin, má ganga að því
vísu, að bakararnir hjer í bænum bæti ráð sitt
í því efni, annaðhvort orðalaust, eða þá að þeim
verður þröngvað til þess með samtökum, — svo
framarlega sem þeir reynast sekir í þessari
grein. J>eir mega láta sjer lynda það stórfje,
8-em þeir eru þegar búnir að hafa af almenningi
með þessu móti, ef svo er, sem fyrirspyrjandinn
hefir fyrir satt, þó ekki fái þeir að halda því
áfram lengur.— En hvað galla á brauðunum
B'ð nðrn leyti snertir, þá er rjett að sýna þau
hjeraðslækni. sem formanni heilbrigðisnefndar-
innar, ef mikil brögð eru að þeim, svo að heilsu-
spillir geti að verið; — það er raunar sjálfsagt
heilsuspillir að öllum slæmum brauðum. En
annars eru samtök meðal sem flestra „búkvenna“
eða húsmæðra bæjarins sjálfsagt bezta ráðið til
að „kenna bökurunum að lifa“.— Ritstj.
AUGLÝSINGAR
i samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þ.ikkaráv.
3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða
setning I kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útí hönd.
VandaÖur vefstóll til sölu með góðu verði.
Ritstjóri vísar á.
Proclama.
Með því að bóndinn Arni Pdlsson i Narfa-
koti í Vatnsleysustrandarhr. liefur framselt
sem gjaldþrota bú sitt til skipta meðal skuld-
heimtumanna sinna, þd innkallast hjer með
samkv. opnu brjefi 4. jan. 1861 og lugum
12. apríl 1878 allir þeir, sem til skulda
eiga að telja hjd tjeðum Artia Pdlssyni til
þess innan 6 mánaða frd siðustu birtingu,
auglýsingar þessarar að gefa sig fram og
sanna kröfur sínar fyrir undirskrifuðum
skiptaráðanda.
Sýslumaðurinn i Kjósar- og Gullbringusýslu
hinn 6. sept.mán. 1887.
Franz Siemsen.
Uppboðsauglýsing.
Laugardaginn 24. þ. m. kl. 11 f. hád.
verður opinbert uppboð sett og haldið í
fjörunni hjd stakkstœði P. C. Knudtzon é
Sön hjer í bœnum og þar selt hcestbjóðend-
um þilskipið »Vonitu, er strandaði 7. p.m.,
með seglum, reiða, veiðarfærum og öllu
tilheyrandi.
Sóluskilmdlar verða birtir d uppboðs-
staðnum.
Bæjarlógetinn i Reykjavík 17. september l88ý.
Haildór Daníelsson.
Uppboðsauglýsing.
Mánudaginn liinn 3. október nœstkom.
kl. 11 f. hdd. verður opinbert uppboð sett
og haldið við hótel »Reykjavík« hjer í bœn-
um og par selt hœstbjóðendum ýms hús-
gögn, rúmfatnaður, fortepiano m. fl.
Söluskilmdlar verða birtir d uppboðs-
staðnum.
Bæjarlógetinn í Reykjavík 15. september 1887.
Halldór Daníelsson.
Hálf jörðin Auðnar á Vatnsieysuströnd
fœst til kaups eða ábúðar i nœstkomandi
fardögzim 1888. Lysthafendur snúi sjer til
kaupmanns H. A. Linnets í Hafnarfirði.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. aprd 1878 og opnu
brjefi 4. jan. 1861 er hjer með skorað d
alla þd, sem til skuida eiga að telja hjd
Gunnari Gunnarssyni frd Sviðholti i Bessa-
staðahreppi, er fór hjeðan til Vesturheims
í sumar, að gefa sig fratn og sanna kröfur
sínar fyrir undirskrifuðum skiptaráðanda
\nnan 6 mdnaða frd birtingu auglýsingar
bessarar.
Sýslumaðurinn i Kjósar- og Gullbringusýslu ,9/9 1887.
Franz Sicmscn.
Jörðin Grímastaðir
í Andakílshrepp i tíorgarfjarðarsýslu getur
fengizt til kaups. Lysthafendur eru beðnir að
snúa sjer til N. Zimsens í Reykjavík, sem af-
gjörir kaupin.
Nýprentað
3. hepti að söngkennslubók fyrir byrjendur, raeð
tveimnr og þremur röddum, að stærð 3 arkir og
kostar í kápu 50 a. Enn fremur fyrsta hepti af
sömu bók (önnur útgáfa aukin og endurbætt),
kostar i kápu 50 a. í þessum heptum eru meðal
annars 20 af lögum nýju Sálmabókarinnar, sem
ekki eru í hinni fjórrödduðu Kirkjusöngsbók minni.
Bækur þessar fást hjá höfundinum.
Jónas Helgason.
Herbergi til leigu frá 1. okt. næstkomandi i
nœsta húsi við skólann; kostur fæst þar einnig.
Ritstj. ávisar.
1 kvartil (70—80 pd) af nýju, prýðilega verk-
uðu kúasmjöri er til sölu. Ritstj. visar á.
Fjármark sira Jóhanns í Stafholti er: sglt og
gat hagra, lógg aptan vinstia,
Samskot til tombólu.
Iljer með eru allir þeir, sem vilja styðja
með gjöfum tombolu, til inntektar fyrir hús
Good-Templar-Stúknanna í Rvik, vinsam-
lega beðnir, að afhenda gjafir sínar til ein-
hvers af undirskrifuðum, helzt fyrir 2. októ-
ber.
Reykjavík 14. sept. 1887.
Helga Eiríksdóttir. lngunn Loptsdóttir.
Jórunn Sighvatsdóttir.
Kristín Schou. Marta Pjetursdóttir.
Ragnheiður Bjarnason. porbjörg Sveinsdóttir.
Andrjes Bjarnason. Árni Gíslason.
Borgþór Jósefsson. Guðl. Guðmundsson.
Indriði Einarsson. Jón Ólafsson.
Magnús Zakaríasson. Ó. Rósinkranz.
P. Pjetursson. S. Jónsson.
porl. Ó. Johnson.
Bónarbrjef um styrk úr styrktarsjóði
verzlunarmanna t Reykjavík fyrir 1887,
verða að vera afhent stjórn sjóðsins fyrir
septembermánaðarlok.
N. Zimsen
p. t. formaður.
Almanak
þjóðvinafjelagsins um árið 1888 er til sölu
á afgreiðslustofu Isafoldar. Kostar 45 a.
Leiðarvisir til lífsábyrgðar fæst ókeypis
hjá ritstjórunum og hja Dr. med. Jónassen, sem
einnig gefur þeim, sem vilja tryggja lif sitt, allar
nauðsynlegar upplýsingar.
Munið eptir lotteríinu, sem aug-
lýst var 1. júni þ. á.
Nærsveitismenn eru beðnir að
vitja „ísafoldar“ á afgreiðsiustofu henn-
ar (i nýja húsinu milli Austurvaliar og
Austurstrætis).
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prent8miðja ísafoldar.