Ísafold - 26.10.1887, Side 4
200
Spakmæli eptir Voltaire. Letingjar eru
vanmenni, hvað sem þeir hafast að.
— Flestir menn deyja svo, að þeir hafa aldrei
lifað.
— Hin fegurstu forrjettindi mannsins eru, að
hann getur gjört gott.
— Sá sem ekki þorir að hugsa nema til
hálfs, hann lifir ekki nema til hálfs.
— Mennirnir gera aldrei allt sem þeir vilja
nje allt sem þeir geta.
— J>að er hættulegt að hafa rjett fyrir sjer í
því, sem mikils háttar menn hafa rangt fyrir
sjer í.
— Hugrekki er engin dyggð, heldur lán,
sem þorpurum er gefið eigi síður en mikil-
mennum.
— JManufólkinu fer eins og dýrunum: hin
stóru jeta þau smáu, og hin smáu stinga þau
stóru.
— J>eir, sem lesa einungis hina fornu rithöf-
unda, eru eins og börn, sem viija aldrei tala
við aðra en hana fóstru sína.
— Jeg vil, að frjálsir mennbúi sjer sjálfir til
lög þau, er þeir eigaundir að búa, eins og þeir
hafa gert sjer sjálfir hýbýli sín.
— Skilnaðurinn er líklega hjer um bil jafn-
gamall hjónabandinu. J>að getur annars verið
samt, að hjónabandið sje nokkrum vikum etdra.
— Sú stjórn er hest, er skipuð er sem fæst-
um ónytjungum.
— J>að ber opt við, er vjer tölum um stór-
virki, að vjer smeygjum oss undan þakklætis-
skyldunni fyrir þau, og segjum, að það sje metn-
aðargirndin, sem hafi afrekað það allt saman.
J>etta er hugsunarferill hinna vanþakklátu.
— Maður verður að fylla einhvern flokk;
arnars veitast allir flokkar að manni.
— Sá, sem getur ekki sjeð ókosti mikilla
manna, hann er eigi heldur fær um að meta
kosti þeirra.
— Heimskingjar dást að öllu, sem frægir
ritliöfundar láta eptir sig sjást.
— í öllum þeim efasemdum, er mennirnir
hafa nú í fjögur þúsund ár leitazt við að greiða
úr, á hundrað vegu, er það vissasta leiðin, að
breyta aldrei á móti samvizku sinni. Með því
móti getur maður notið lífsins og hefir ekkert
að óttast í dauðanum.
AUGLÝSINGAR
i samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv.
3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða
setning 1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.útí hönd.
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu verzlunarstjóra Joh. Hansen,
fyrir hönd H. Th. A. Thomsen, og að
undangenginni fjdmámsgjörð hinn 26. dgúst
þ. d., verður samkv. opnu brjefi 22. apríl
1817 og lögum 16. desbr. 1885 hús Sveins
snikkara Sveinssonar við Hliðarhúsastig
hjer í bcenum selt við 3 opinber uppboð,
sem haldin verða 2 hin fyrstu d skrifstofu
bœjarfógeta, föstudagana 21. þ. m. og 4.
nóvbr. þ. d. og hið 3. og síðasta hjd húsinu
sjdlfu föstudaginn 18. nóvbr. ncestkom., til
lúkningar veðskuld að upphœð kr. 1371,33.
Uppboðin byrja kl. 12 d liád. nefnda
daga og verða söluskilmálar til sýnis hjer
d skrifstofunni 3 dögum fyrir hið fyrsta
uppboð.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 11. október 1885.
Halldór Daiiíclsson.
Samkvcemt lögum 12. apríl 1878 og opnu
brjefi 4. jan 1861 er hjermeð skorað á alta
þd, er telja tit skuída í dánarbúi Jóns Sig-
urðssonar á Rauðsgili í Hálsasveit, er and-
aðist 2. maí þ. d., að koma fram með kröf-
ur sínar og sanna fyrir skiptaráðanda hjer
l sýslu innan 6 mdnaða frá síðustu birtingu
þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Mýra- og Borgarfjarðars. 24. sept 1887.
Sigurður J>órðarson.
Á næstkomandi nýári óskar maður, sem er
vanur bókfœrslu, en nú hefir annað starf, að
skipta um staö, og fá sjer atvinnu við bók-
færslu, gegn 11—1200 kr. launum. JJitstjóri
ávísar.
Af þvi mörgum hefir likað vel við hið svo-
kallaða bú-knffi, sem húsbóndi minn í sumar
flutti hingað, þá leyfi jeg rajer hjer með að
auglýsa, að nú með Lauru er komið mikiö af
þessum kaffiblendingi, sem vel má nota ein-
göngu í kaffi stað, og er mikill sparnaður á
livert heimili, þar eð prísinn er að eins 55 a.
pundið, hvar á móti kaffi kostar hjer um bil
helmingi meira.
Líka er komið aptur til verzlunar H. Th. A.
Thomsens :
ekta carbolineum,
sem er ágætt meðal til að verja trje og timb-
ur frá fúa, og kostar 50 aura pundið í smá-
kaupum, en 28 aura í stórkaupum.
Reykjavik 14. október 1887.
Joh. Hansen,
faktor við verzlun H. Th. A. Thomsens.
Fyrir hálfum mánuði tapaðist frá Skildinga-
nesi rauðblesóttur hestur, 8 vetra gamall,
mark: hvatt hægra fjöður framan, sneitt fram-
an vinstra biti aptan. Hvern sem hitta eða
finna kynni hest þennan, bið jeg að koma
honum til mín eða gjöra mjer aðvart.
Skildinganesi 21. október 1887. Jens Bjömsson.
Fundizt hefir við Leirárvoga karlmannsfatn-
aður. tvennar buxur, vesti, húa og tvennir
sokkar. Hver sem getur saenað það eign sína
má vitja þess til undirskrifaðs móti fundarlaun-
um og borgun fyrir auglýsingu þessa.
Lundum (í Stafholtstungum) í ágúst 1887.
Quðmundur ólafsson.
30. september týndizt á götunum í Reykjavík
svart veski. í því voru 60 kr. í seðlum. Sá
sem finnur og skilar því til ritstjóra „ísafoldar11
fær r.fleg fundarlaun.
Sögu-upplestur.
29. þ. m. kl. 8 e. m. les Gestur Pálsson upp
söguna „SIGURÐUR FORMAÐUR11, í Good-
Templar-húsinu. Aðgöngumiðar á 50 aura fást
hjá Kr. 0. porgrimssyni bóksala og J>orl. O.
Johnson kaupmanni.
Allskonar skófatnað úr góðu efui
og eins ao-
gjörðir á skófatnaði sel jeg undirskriíaður með
svo ódýru verði, sem unnt er. Verkstofa mín
er á loptinu í gömlu prentsmiðjunni í Aðal-
stræti. Inngangurinn til mín er um götudyr
hússins og þaðan beint upp á loptið.
Reykjavik, 28/,0 87.
Björn Bjarnarson
skósmiður.
Bleikstjörnóttur óskilahestur hefur verið hjá
mjer síðan seint á slætti. Hesturinn er mið-
aldra, með mark: blaðstýft fr. liægra, sýlt vin-
stra biti aptan. Rjettur eigandi gefi sig fram
og borgi hirðingu á hesti þessum og auglýs-
ingu þessa.
Ferjuuesi í Villingaholtshrepp 20. okt. 1887.
Einar Hannesson.
4. þ. m. fannst hjer skipsjulla gömul ómerkt.
Sá sem getur sannað hana sína eign, gefi sig
fram við undirskrifaðan. Innsta-Vogi á Akra-
nesi ð/10 1887. Bjórn Jóhannsson
Munið eptir lotteríinu, sem aug-
lýst var 1. júni p. á.
Leiðarvísir til lífsábyrgðar fæst ókeypis
hjá ritstjórunum og hja Dr. med. Jónassen, sem
einnig gefur þeim, sem vilja tryggja líf sitt, allar
nauðsynlegar upplýsingar.
Almanak
J>jóðvinafjelagsins um árið 1888 er til sölu
á afgreiðslustofu Isafoldar. Kostar 45 a.
Salmabokin “KSJ
fyrir 1 kr. til 1 kr. 40 aur.
1t ýmis kouar, skrifbækur, penu-
-t tl1 ar, blek o. fl. ágæt ritföng fást
á afgreíðslustofu ísafoldar, allt með mjög góðu
verði.
Passíusálmar,
i mjög góðu og fallegu s krautbandi,
fást d afgreiðslustofu Isafoldar og kosta 2 kr.
apÉgT" Nærsveitismenn eru beðnir að
vitja „lsafoldar“ á afgreiðslustofu henn-
ar (í nýja húsinu milli Austurvallar og
Austurstrætis).
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.