Ísafold - 30.11.1887, Blaðsíða 1

Ísafold - 30.11.1887, Blaðsíða 1
Kemur út á miðvikudags- morgna. Verð árgangsins (6o arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrirmiðjan júltmán. ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifl.) bundin víá áramót, ógild nema komin sje til útg. fyrir I.okt. Afgreiðslu- stofa í ísafoldarprentsmiðju. XIV 55. Reykjavík, miðvikudaginn 30. nóv. 1887. 217. Innlendar frjettir. 218. Útlendar frjettir. 220. Hitt 0g þetta. Auglýsingar. Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—'1 Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2 útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3 Póstar fara 2. (v.), og 3. des. Póstskip fer 2. des. Söfnunarsjóður Rvíkur opinn I. mánud. í hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganirí Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen 1 Hiti (Cels.) Lþmælir í Veðurátt. Nóv. |ánóttu|umhád. fm. | em. | fm. | em. M.23. + 2 + 1 29,1 28,6 O h 10 d F. 24. -r- 3 3 28,9 29,2 N hv b N h b F. 25. 5 5 29,3 29,3 0 b O b L. 26. -P 6 s 29,4 29,9 N li b |N h b S. 27. -7-10 6 29,6 29,8 N hv b |N hv b M. 28. -p » 6 29,9 3°, 0 b 0 b Þ. 29. -r- 9 5 29,6 29,5 A h d |A h d Umliðna viku hefir optast verið hæg norðanátt hjer, en hvass til djúpa, bjart veður, með talsverðu frosti. Enginn snjór hefir ullið, svo hjer er al- auð jörð. I dag 29. hægur að morgni á austan og dimmur i lopti; hvesti er á daginn 1 eið af landnorðri. Meykjavík 30. nóv. 1887. Póstskipið Laura kom hingað í fyrra dag að morgni; íór frá Khöfn 12. þ. m. ; var viku hingað írá Færeyjum, vegna storma. Með því kom frú Jóhanna Bjarnason, Nielsen faktor á Isafirði, Bald- vin Baldvinsson vesturfara-erindreki. Ný lög. þéssi 12 lög frá þinginu 1 sumar hafa öðlazt staðfesting konungs, öll 4. þ. m., nema tvenn hin síðast töldu 10. þ. m. 1. Fjárlög fyrir árin 1888 og 1889 (sjá þ. á. ísaf. bls. 167). 2. Fjáraukalög fyrir árin 1884 og 1885 (bls. 166). 3. Fjáraukalög fynr árin 1886 og 1887 (167). 4. Lög um samþykkt á landsreikningnum fyrir 1884 og 1885 (167). 5. Lög um linun í skatti af ábúð og af- notum jarða og af lausafje (159). 6. Lög um veð (151). 7. Lög um aðför. 8. Lög um sveitarstyrk og fúlgu (151). 9. Lög um að stjórninni veitist heimild til að selja nokkrar þjóðjarðir (158). 10. Lög um að umsjón og fjárhald Flat- eyjarkirkju og Ingjaldshólskirkju skuli fengin hlutaðeigandi söfnuðum í hend- ur (132). 11. Lög um vegi (158). 12. Lög um að nema úr gildi lög 16. des. br. 1885, er banna niðurskurð á hákarli í sjó milli Geirólfsgnúps í Strandasýslu og Skagatáar í Hiinavatnssýslu á tíma- bilinu frá 1. nóv. til 14. apríl (151). Lög þessi eru flest prentuð orðrjett í tilvitnuðum stöðum í þ. á. Isafold. Alls voru lögin frá þinginu í sumar 28. Eru þá eptir 16. Guðfræðisnám kvenna. islands- ráðgjafinn hefir gefið út 7. þ. m. auglýs- ingu um það, samkvæmt tilskipun 4. des. 1886 nm rjett kvenna til að ganga undir skólapróf. I öllum námsgreinum, sem kenndar eru á prestaskólanum, mega konur njóta þar kennslu, nema í prjedikunarlist, kenni- mannlegri guðfræði og kirkjurjetti. »Námslokapróf skulu hinir föstu kenn- arar prestaskólans halda, og skal þá reyna námskonur í biflíuþýðingu, trúarfræði, siða- fræði og kirkjusögu, svo ítarlega sem segir í áðurgreindri reglugjörð 8. gr. Prófið er bæði munnlegt og skriflegt í hinurn þrem- ur fyrst töldu námsgreinum, en í kirkju- sögu að eins munnlegt. Námskonur ganga og undir próf í barnaspurningafræði, eptir því sem prestaskólinn ákveður það ná- kvæmar«. Aðra einkunn þarf kvennmaðurinn að fá til þess að standast prófið; — 3. eink. er að eins látin duga karlmönnum (presta- efnunum). Próf í forspjallsvísindum verður kvennmaðurinn að hafa tekið áður, og fengið ekki minna en »vel«. Gripasýningin í Kaupmannahöfn- Eptir tilmælum landshöfðingja hefir ráð- gjafinn fyrir Island fengið ádrátt um það hjá forstöðunefnd gripasýningar þeirrar, er halda á í Khöfn að sumri, að fresturinn til að tilkynna nefndinni, hverjum munum sje von á til sýningarinnar, skuli lengdur til febrúarloka næsta ár að því er snertir íslenzka sýnismuni. þó segir nefndin: að búast megi við, að hæpið kunni að verða um nægilegt rúm fyrir munina, ef sagt sje til þeirra mjög seint, og eins hitt, að illt kunni a.ð verða að koma þeim á rjettan stað í sýningaskránni. Embætti. Vestur - Skaptafellssýslu- læknishjerað (17.) er veitt cand. med. & chir. Bjarna Jenssyni, er þjónað hefir aukahjeraði á Austfjörðum nokkur ár. Kálfafellstaðarbrauð veict 25. þ. m. síra Sveini Eiríkssyni á Sandfelli, eptir kosn- ingu safnaðarins. Hæstarjettardómur í málinu rjett- vísin gegn Kr. Ó. þorgrímssyni, uppkveðinn 17. þ. m. (Landsyfirrjettardómur er prent- aður í Isaf. XIV 27; undirrjettardómur XIV 16). »|>ar sem upplýsingum í þessu máli er svo ábótavant, verður að láta standa við dóm þann, sem hjer er áfrýjað til hæsta- rjettar, að því leyti sem hinn ákærði er sýknaður af skjalafölsun og sviksamlegu athæfi í þeim atriðum, sem nefud eru í dóminum, tölulið 1—6; en aptur á móti verður að dæma hann, eins og gjört er í yfirrjettardóminum, fyrir sjóðþurð þá, sem fannst hjá honum, samkvæmt hinum ís- lenzku hegningarlögum 145 gr., 1. kafla, sbr. við 136. gr., 1. málsgrein. Hegning- inguna ber, með tilliti til þess, að gjöra verður ráð fyrir eptir athugasemd í undir- rjettardóminum, að ákærði hafi endurborg- að fje það sem vantaði í sjóðinn, að á- kveða einfalt fangelsi í 3 vikur. Auk þess ber honum að greiða málskostnað. því dœmist rjett að vera: Kristján Ó. þorgrímsson skal setja í ein- falt fangelsi í 3 vikur. Svo ber honum og að greiða málskostnað, þarmeð talin máls- fœrslulaun þau, sem ákveðin eru í lands- yfirrjettardóminum, og sömuleiðis málsfœrslu- laun fyrir hæstarjetti, til hœstarjettarmáLa- flutningsmannanna Halkjer og Lunn, 40 kr. til hvors«. Strandferðir. Fyrir þessi 9,000 kr. á ári, sem alþingi veitti í sumar til þeirra, ætlar gufuskipafjelagið danska að láta fara 3 ferðir kringum landið, í stað 5. — |>ess- ar þrjár ferðir eru : 1. Frá Khöfu 5. maí, Eskifirði 14., Seyðisf. og Vopnaf. 15., Akureyri og Sauð- árkróki 17., Skagaströnd 18., ísafiiði 20., Dýraf. 21., Stykkishólmi 22., og til Reykja- víkur 25. maí; þaðan aptur 2. júní, kem- ur á sömu hafnir og hingað á í leið, nema Vopnafjörð og Eskifjörð, og auk þess á Flatey, Patreksfjörð og Reykjarfjörð, en til ] Khafnar 23. júní.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.